Morgunblaðið - 03.03.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1982
61
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
' ÍMgiááa Mtfi
Athyglisverdar barnabækur
Kennari skrifar:
Vegna starfs míns sem kennari
hef ég kappkostað á undanförnum
árum að fylgjast með útgáfu
barna- og unglingabóka. Því mið-
ur koma á markaðinn alltof fáar
íslenskar bækur, yfirgnæfandi
hluti útgáfunnar eru myndasögur
og þýddar bækur. Að sjálfsögðu
eru sumar þýddu sögurnar góðar,
en þær íslensku hljóta þó að
standa okkur nær.
Ein hinna nýju íslensku barna-
bóka sem út komu fyrir síðustu jól
heitir ÆvinUýraheimar eftir Sig-
urð Gunnarsson fyrrv. skóla-
stjóra. Ég las þessa bók mér til
óblandinnar ánægju. Þótt efni
bókarinnar fjalli aðallega um villt
spendýr í sjó og á landi tekst höf-
undi að vekja eftirvæntingu og
áleitnar spurningar, sem eiga
brýnt erindi til allra og þó ekki
síst ungu kynslóðarinnar. Bókin
sameinar mjög vel fræðslu- og
skemmtilestur. Auk þess er sagan
rituð á hreinu og fögru máli, sem
gefur bókinni sérstakt gildi.
Rétt er að geta þess að bókin er
prýdd fjölda ljósmynda og teikn-
inga, til glöggvunar á efninu. En
Sigurður Gunnarsson fyrrv. skóla-
stjórí
slíkt er mikilvægt, til dæmis í
sambandi við kennslu. En ég tel
bókina einmitt vel fallna sem
viðbótarnámsefni í náttúrufræði.
Sigurður Gunnarsson er kunn-
astur sem mikilvirkur og ágætur
þýðandi. En fyrir tveimur árum
kom út fyrsta frumsamda barna-
bók hans „Ævintýrin allt um kring"
sem vakti verðskuldaða athygli.
Ég minnist þess ekki að hafa séð
ritdóma í blöðum eða tímaritum
um Ævintýraheima, og kann ég
enga skýringu á því. En að mínu
mati stendur hún síst að baki fyrri
bókinni.
Það gladdi mig þessvegna er ég
sá nýlega ritað um bækur Sigurð-
ar Gunnarssonar af þekkingu og
raunsæi í dálkum Velvakanda
Morgunblaðsins og dagblaðinu
Tímanum, en þar segir m.a. í
niðurlagsorðum:
„Því eru börnum þessar bækur
Sigurðar Gunnarssonar hollur
lestur. Hann gæti síðar orðið þeim
hvöt til að hverfa á vit landsins —
án skotvopna og tryllitækja en
með stækkunargler og sjónauka í
hönd.“
Ég vil sterklega taka undir þessi
orð greinarhöfundar. Þessar fal-
legu og sönnu sögur af nábýli
manna og dýra í ríki íslenskrar
náttúru er ákjósanlegt lestrarefni,
jafnt á heimilum og í skólum.
Frá Læknum í Öskjuhlíðinni meðan allt lék þar í lyndi.
Þessir hringdu . . .
Skemmdarverk
á „Læknum“ og
útivistarsvæðinu
í Öskjuhlíð
Kona sem stundar útivist
hringdi: „Mig langar til að hefja
máls varðandi atvik sem kom fyrir
okkur hjónin nú í vikunni," sagði
hún. „Sem kunnugt er hefur „Læk-
urinn“ í Öskjuhlíðinni lengi verið
heilsulind margra, jafnt ungra
sem aldinna, er hafa stundað þar
böð. Við hjónin ætluðum að
skreppa í lækinn fyrir skömmu en
þegar við komum að læknum, það
mun hafa verið um fjögurleytið
síðdegis, þótti okkur skrítið að þar
var engan mann að sjá. Um þetta
leyti dags er þarna yfirleitt fullt
af fólki þegar veður er gott. Við
fundum líka megna olíulykt þarna
og sáum að það var olíubrák á
vatninu.
Við skelltum okkur samt ofaní
og þó við værum ekki í vatninu
'nema skamma stund náði svartur
olíuóþverrinn að festast við húð
okkar og urðum við að hafa mikið
fyrir því að þrífa okkur eftir þetta
stutta bað. Þegar við vorum að
fara hittum við ungan pilt sem
stundaði kafanir í voginum þarna
fyrir neðan og sagði hann að þykk
olíubrák væri á sjónum fyrir neð-
an lækinn — Þetta er það sem við
ætlum að bjóða vorfuglunum
okkar og æðarfuglunum, sem
þarna eru mikið á vorin. Mér
finnst að þetta ætti að taka til
athugunar.
En hver er svo ástæðan fyrir
þessu. Undir Öskjuhlíðinni eru
jafnan gömul flugvélaflök þar sem
stundaðar eru eldvarnaræfingar.
Við þær er notuð einhver úrgangs-
olía og kveikja þeir stundum í
flugvélaskrokkunum oft í viku.
Reykurinn sem mengaður er olíu-
óþverra sest að ofar í Öskjuhlíð-
inni en óþverrinn kemst svo í læk-
inn með leysingavatni eftir þíður.
Þetta er hreint skemmdarverk
hvað Lækinn áhrærir — og svo
skil ég ekki í að þessi biksvarti
reykjaróþverri geti verið hollur
fyrir þennan fallega gróður sem
komið hefur verið upp þarna í
Öskjuhlíðinni. Ég trúi því varla að
Reykvíkingar horfi aðgerðarlausir
á það að eitt af aðgengilegustu úti-
vistarsvæðum þeirra sé skaðað
með þessum hætti áfram."
S^5 SlGeA V/öGA í iiLVttAU
/.- HAKI " \
(ram)
Vinnupallar til sölu og
leigu. Einfaldir —
Traustir — Hagkvæmir.
Æjy BREIÐFJOROS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitid nénari upplýaingm
aóSigtúni 7 Simi•29022
Polar-Mohr
..a...
Útvegum þessar heims-
þekktu pappírsskurðar-
vélar beint frá verk-
smiðju.
Vesturgötu 16, sími 13280.
Prufu-hitamælar
-s- 50 til + 1000 C
í einu tæki með elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
SöiarCaaitgy:!?
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480
Ég þakka hjartanlega eiginmanni m'inum, börnum, tengda-
börnum, frændfólki, öörum vinum og kunningjum sem glöddu
mig á sjötugsafmœU mínu 25. febrúar, med heimsóknum, gjöf-
um, blómurn og skeytum.
Guö blessi ykkur um ókomin ár.
María Júlíusdóttir,
Ránargötu 20,
Akureyri.
Erum flutt að
NYTT
SÍMANÚMER
i 8
81055
BJÖRN KRISTJÁNSSON
HEILDVERSLUN
$£% %ÍN! jfó
ALtffi 40 LióóiA M16
5fT/« vMtefitíMÍ