Morgunblaðið - 20.04.1982, Qupperneq 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
veitingastað
í Reykjavík
— Þar sem er að finna dansgólf, bar,
setustofu, gufubað o.fl.
„I höfuðborginni hefur enn einn veitingastaðurinn séð dagsins
Ijós. Er sá með þeim glæsilegustu og stærstu, sem um getur, og er þó
langt til jafnað. Opnun þessa nýja staðar hefur gengið hljóðlega fyrir
sig, enda húsbændur ekki haldið henni á lofti.“ — Þetta er upphaf
fréttatilkynningar, sem blaðamönnum var afhent á hlaðamanna-
fundi hjá Sambandi veitinga- og gistihúsaeigenda í gær, þar sem
vakin er athygli á hinni miklu samkeppni sem veitingamenn eiga í,
við aðra þó en þá sem opinberlega stunda veitingarekstur.
Framhald fréttatilkynningarinnar er svohljóðandi: „Tökum við
hjá Sambandi veitinga- og gistihúsaeigenda okkar því það bessaleyfi
að kynna staðinn (þ.e. hinn nýja veitingastað) fyrir þeirra hönd.
Teljum við rétt og skylt að landsmenn fái um hann fulla vitneskju,
enda reistur fyrir þeirra fé — og ekki lítið af því.
Þessi nýi veitingastaður er í
Borgartúni 6, húsi, sem betur er
þekkt undir nafninu Gamla
Rúgbrauðsgerðin. Var hún keypt
af ríkinu fyrir nokkrum árum, að
sögn undir starfsemi Afengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins. Og sú
hefur raunin orðið á um nýtingu
þótt óbeint sé, að hluta til að
minnsta kosti.
Á þriðju og fjórðu hæð hússins,
ásamt turni, hafa nefnilega verið
innréttaðir dýrindis veizlusalir.
Ber þar fyrst að nefna aðalsal,
sem tekið getur allt að 300 manns
sitjandi við borðhald, 350 við
óformlegar aðstæður. Þar er stórt
og gott dansgólf, fullkomið diskó-
tek í sérhönnuðu borði, bar og
setustofa.
Á sömu hæð er að sjálfsögðu
fullbúið veizlueldhús, og að auki
nokkur minni samkomuherbergi,
sem rúma allmarga til viðbótar.
Til að kóróna dýrðina er gufubað,
með tilheyrandi baðaðstöðu, af-
slöppunar- og búningsherbergjum.
Á fjórðu hæð er svonefndur
Langibar. Þar má koma fyrir á
annað hundrað manns. Og í turni
hafa verið innréttaðar notalegar
vistarverur. Loft og veggir þess-
ara glæsisala eru viðarklædd, hús-
búnaður allur af vönduðustu gerð,
ekkert hefur verið til sparað að
gera allt sem vistlegast og rík-
mannlegast úr garði.
Þessi mynd var tekin í salnum umdeilda í Borgartúni fyrir skömmu, á blaðamannafundi utanríkisráðherra Norður-
landa. Samkvæmt upplýsingum Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda, er að finna í salnum m.a. stórt dansgólf,
fullkomið diskótek i sérhönnuðu borði, bar og setustofu, að ógleymdri gufubaðstofu og hvíldarherbergjum á næstu
Gaman hefði verið að geta gefið
upp kostnaðartölur. En því miður,
eins og allt of oft þegar hið opin-
bera ráðskast með fé skattgreið-
enda, þá liggja þær ekki á lausu.
Og til hvers á að nota öll her-
legheitin?
Að sögn var upphaflega ætlunin
að hafa þarna einskonar fram-
lengingu af Ráðherrabústaðnum
gamla, halda „fundi og boð á veg-
um ráðuneytanna". Samþykkt
brunavarnaeftirlits, eini opinberi
pappírinn, sem virðist til um stað
þennan, notar allavega það orða-
lag. Að öðru leyti vefst aðspurðum
ráðamönnum tunga um tönn; helzt
er til svarað að ekki sé enn til nein
reglugerð um rekstur staðarins.
Reglugerð eða ekki, þarna er í
fullum gangi það, sem við hjá
S.V.G. köllum veitingarekstur.
Þarna eru haldnir fundir, kokteil-
boð og árshátíðir. Jubilantastúd-
entar frá M.R. héldu þarna t.d. sí-
na afmælishátíð. Hvernig það svo
fellur undir boð á vegum ráðu-
neytis treystum við okkur ekki til
að svara.
Hefðu sömu stúdentar haldið
sitt bekkjarhóf á venjulegu veit-
ingahúsi hefðu þeir þurft leyfi frá
lögreglustjóra fyrir lokaðri
skemmtun. Beint eða óbeint hefðu
þeir þurft að greiða söluskatt af
mat, drykk og annarri þjónustu,
skemmtanaskatt og menningar-
grosum.
sjóðsgjald, skemmtanaleyfisgjald
og STEF-gjald. Að auki hefðu þeir
þurft að taka þátt í kostnaði vegna
veitinga- og vínveitingaleyfis
hússins, eftirlitsgjalds vínveit-
ingahúsa, svo ekki sé minnst allra
venjulegra atvinnurekstrargjalda,
sem of langt yrði upp að telja.
En þeir voru sniðugir og sluppu
við alla skattlagningu.
Rúgbrauðsgerðin hefur ekkert
veitingaleyfi, enda ekki verið sam-
þykkt af heilbrigðisyfirvöldum til
slíks rekstrar. Skv. upplýsingum
fulltrúa lögreglustjóra var ekki
sótt um eða veitt leyfi fyrir
ofangreindu hófi. Skv. upplýsing-
um fulltrúa tollstjóra voru hvorki
greiddir skemmtanaskattar né
menningarsjóðsgjald af þessari né
öðrum skemmtunum á staðnum.
Skv. upplýsingum fulltrúa skatt-
stjóra hefur ekki verið greiddur
söluskattur af neinni starfsemi
þarna. Skv. upplýsingum frá
skrifstofu STEFs hafa aldrei verið
greidd STEF-gjöld af tónlist, sem
þarna er leikin. í stuttu máli sagt:
Þarna virðist sem neðanjarðar-
hagkerfið hafi teygt arma sína inn
fyrir múra sjálfs stjórnarráðsins
og blómstri nú í skjóli þess.
Við, sem eigum að heita veit-
ingamenn og málsvarar þeirra,
lýsum okkur skák og mát. Bendum
við viðskiptavinum okkar á að
snúa sér til fjármálaráðherra í
framtíðinni; þar eru kaupin betri
en við munum nokkru sinni geta
boðið!“
Óheiöarleg og
ójöfn samkeppni
Hólmfríður Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri S.V.G., sagði á
blaðamannafundinum, að svo ein-
kennilega hefði að vísu viljað til,
að skömmu fyrir blaðamanna-
fundinn hefði ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytisins hringt í
sig, og sagt að tilbúin væru drög
að notkunarreglum fyrir salinn í
Borgartúni. Það hefði þó ekki
breytt þeirri ákvörðun að afhenda
ofangreinda fréttatilkynningu,
enda væri umræddur salur ekki
einsdæmi, miklu fremur dropinn
sem fyllti mælinn í þessu máli.
Veitingahúsaeigendur ættu í
harðri, óheiðarlegri og ójafnri
baráttu við ýmsa aðila, einstakl-
inga, félög, fyrirtæki og stofnanir,
þar sem sjálft ríkisvaldið gengi
jafnvel hvað harðast fram, bæði í
fríðindum, og svo því að fylgja
ekki settum reglum, eins og salur-
inn í Borgartúni væri dæmi um.
Sem dæmi mætti nefna, að
mötuneyti á vegum ríkisins og
annarra þyrftu ekki að greiða
söluskatt, sem þó öll veitingahús
verða að greiða. Þetta væri þeim
mun alvarlegra, þegar þess væri
gætt, að sum mötuneytanna væru
opin öllum sem þangað vildu koma
og borða ódýrar, niðurgreiddar og
söluskattslausar máltíðir. Þess
væru dæmi að menn gætu borðað
árum saman í ríkismötuneytum,
fyrir brot af því sem það kostaði á
veitingahúsum, án þess þó að hafa
nokkru sinni unnið hjá ríkinu!
Opinberlega væri þetta þó ekki
opið öllum, nema í matsölu Fé-
lagsstofnunar stúdenta.
Fyrir utan þessa samkeppni
mætti svo enn nefna að mikið væri
um „bílskúraeldhús" þar sem seld
væru veisluborð við ýmis tæki-
færi, og slík sala færi einnig fram
úr ýmsum mötuneytum, þar sem
starfsfólk nýtti starfsaðstöðuna
til að auka tekjur sínar utan ven-
julegs vinnutíma. Allt færi þetta
að sjálfsögðu fram án vitundar
hins opinbera, og enginn sölusk-
attur eða önnur gjöld kæmu til.
Þannig högnuðust bæði seljendur
og kaupendur, en ríkisjsóður tap-
aði. Starfsemi af þessu tagi færi
LjÓNm.: Kristján Kinarsson.
að sjálfsögðu ekki fram í öllum
mötuneytum, eða í öllum sam-
komusölum, en fullyrða mætti þó
að það væri mjög útbreitt.
A blaðamannfundinum var
einnig dreift eftirfarandi upplýs-
ingum um ýmis gjöld, sem veit-
ingahúsum er gert að greiða um-
fram annan atvinnurekstur:
Greiöa löggæslu
á hendur sér!
1. „Auk veitingaleyfis (venjulegs
atvinnurekstrarleyfis) þurfa
vínveitingahús að greiða vín-
veitingaleyfi, kr. 11.500,- fyrir-
fram á fjögurra ára fresti, eða
á ári kr. 2.875,-.
2. Auk vínveitingaleyfis þurfa
húsin framlengingarleyfi þegar
opið er eftir kl. 23.30, kr. 345,- á
kvöldi eða einstök hús á ári allt
að kr. 125.000,-.
3. Vínhúsaeftirlit, löggæslu á
hendur sér, þurfa húsin að
endurgreiða ríkissjóði. í
Reykjavík gerir þetta í ár kr.
650.000,- eða á einstök hús allt
að kr. 85.000,-.
4. STEF-gjöld ber veitingahúsum
að greiða skv. gjaldskrám stað-
festum af menntamálaráðun-
eyti. Gjaldtökuheimild á hend-
ur meðlima S.V.G. í Reykjavík
verður í ár kr. 1.000.000,- eða á
einstök hús allt að kr. 100.000,-.
5. Af áfengi seldu á veitingahús-
um rennur 59,3% —67,6% í rík-
issjóð. Þekkist hærra inn-
heimtuhlutfall ríkissjóðs af út-
söluverði vöru?
6. Matarsala veitingahúsa er eina
söluskattskylda matarsalan á
Islandi í dag.
7. Áhöld, tæki og hráefni til veit-
ingarekstrar eru undantekn-
ingarlítið í alhæstu hugsanlegu
tollflokkum, vörugjaldi og sölu-
skatti. Verð nauðsynjavara nær
þrefaldast títt við innflutning
til landsins.
Samband veitinga- og gistihúsa:
Ríkið hefur
Frá blaóamannafundi Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda i gær, talið frá vinstri: Áslaug Olafsdóttir, formaður
S.V.G., ilólmfriður Árnadóttir, framkvæmdastóri, Skúli Þorvaldsson Hótel Holti og Emil Guðmundsson Hótel
.............................Ljómw • ftmHhrflþ PftntHdÓtttr
opnað nýjan