Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
Scandinavia Today:
„Aldrei fengið jafii-
mikið fyrir jaftilítið“
Spjallað við Tómas Karlsson og Kristin Hallsson o.fl.
STANIHNAVIA Today, menningarkynningin mikla, verður opnuð af
Vigdisi Finnbogadóttur forseta íslands í byrjun september á þessu ári
vestur í Kandaríkjunum. Á þessari menningarkynningu Norðuríandanna
verða sex meginlistsýningar þar sem Norðurlöndin fimm, ísland, Dan-
mörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland, sýna verk í sameiningu, en auk
þess verða sýningar undir hatti menningarkynningarinna, Scandinavia
Today, sem hver þjóð Norðurlandanna verður með, sem eigið framlag til
viðbótar, og þá munu löndin ráða hvers eðlis þær sýningar verða og
fjármagna þær. Sem dæmi um slíka sýningu er handritasýning íslend-
inga í Pierpoint Morgan-safninu í New York.
Tómas Karlsson, til vinstri, og Kristinn Hallsson eiga sæti I sameiginlegri
nefnd Norðurlandanna, sem á þátt I að skipuleggja menningarkynninguna
miklu.
Menningarkynningunni er
stjórnað af The Amerikan-Scand-
inavian Foundation og leggja
Bandaríkjamenn tvo þriðju kostn-
aðar til kynningarinnar en Norður-
löndin einn þriðja. Hlutur íslend-
inga í fjármögnun sýningarinnar
er lítill, ekki nema 0,25 prósent af
heildarkostnaði, sem er um fjórar
milljónir Bandaríkjadala. Þessar
upplýsingar fengust hjá þeim Tóm-
asi Karlssyni og Kristni Hailssyni,
en þeir eiga sæti í sameiginlegri
nefnd Norðurlandanna fimm, sem
fjallar um kynninguna. Blaðamað-
ur Morgunblaðsins hitti þá að máli
einn daginn og bað þá að rekja í
fyrstu upphaf og tilurð Scandinav-
ia Today.
Þeir sögðu að í upphafi hafi kom-
ið fyrirspurn frá Bandaríkjunum á
fund menntamálaráðherra Norður-
landanna í Osló um hvort Norður-
löndin vildu vera þátttakendur í
„prógrammi", sem kallað er „To-
day“ í Bandaríkjunum og hefur
verið í gangi í nokkur ár þar vestra.
Það er kynning á menningu ýmissa
landa og var ákveðið að þessi nor-
ræna kynning yrði síðust af sex
samskonar kynningum. Áður hafði
verið kynnt Japan Today og Belgía,
Kanada, Mexíkó og Egyptaland og
nú síðast Norðurlöndin.
Þegar samþykkt hafði verið að
Norðurlöndin tækju þátt í menn-
ingarkynningunni Scandinavia To-
day, var boðið kynnt listasam-
tökum í hverju landi fyrir sig, og
þau beðin um að velja sér tengiliði
sem svo hefðu samband við þá aðila
sem skipuleggja eða velja verk á
hinar ýmsu sýningar. Lokaval er
síðan í höndum listfræðinga, sem
bandarísk söfn samþykkja og eru
þeir einnig samþykktir af The Am-
erican-Scandinavian Foundation.
Þau sem valin voru tengiliðir hér á
landi eru fyrir málverkasýninguna
dr. Selma Jónsdóttir, fyrir grafík-
sýninguna Edda Jónsdóttir, ný-
listasýninguna Magnús Pálsson,
Ijósmyndasýninguna Leifur Þor-
steinsson, textilsýninguna eða
vefnaðarsýninguna Sigríður Jó-
hannsdóttir og fyrir listiðnaðar-
sýninguna Stefán Snæbjörnsson.
Fyrir utan þessar listsýningar er
m.a. kynning á norrænni leikritun.
Eitt verk íslenskt hefur verið valið
til kynningar og er það „Stundar-
friður“, eftir Guðmund Steinsson.
Þá verður mikið um tónlistarflutn-
ing. Frumflutt verða í Bandaríkj-
unum að minnsta kosti þrjú íslensk
tónverk eftir þá Þorkel Sigur-
björnsson, Atla Heimi Sveinsson
og Jón Nordal. Þá mun karlakórinn
Fóstbræður fara í tónleikaferð á
þessum tíma og flytja mikið af ís-
lenskri tónlist og norrænni. Þeir
munu syngja við opnunarhátíðir
Scandinavia Today í Washington
og Minneapolis.
Þá verða margs konar fyrirlestr-
ar fluttir við ýmsar stofnanir og
háskóla víða um Bandaríkin. Munu
fyrirlestrarnir fjalla um ýmis mál-
efni svo sem listir, stjórnmál, sögu,
arkitektúr, barnabókmenntir, leik-
rit og skáldsögur, ljóð og kvik-
myndir, samfélagsgerð og margt
fleira. Tilgangur iestranna er að
auka vitund Bandaríkjamanna á
menningu Norðurlandanna, svara
spurningum sem upp kunna að
koma og auka menningartengsl
milli Bandaríkjanna og Norður-
landanna, sem vafalaust munu
vara löngu eftir 1982.
Er það og markmið menningar-
kynningar Scandinavia Today eins
og segir í kynningarbréfi hennar.
Menningarkynningin stendur til
ársloka 1983 en undirbúningur
hennar hefur staðið í tvö og hálft
ár.
Grafíksýningin
Grafíksýningin verður sýnd í
fimm söfnum víðs vegar um
Bandarikin. Eric Krustkopf for-
stöðumaður Norrænu menningar-
miðstöðvarinnar í Helsinki Finn-
landi er umsjónarmaður grafíksýn-
ingarinnar tilnefndur af Americ-
an-Scandinavian Foundation.
Hann velur verkin á sýninguna.
Það eru fimm íslenskir listamenn
sem taka þátt í þessari sýningu,
Björg Þorsteinsdóttir með þrjú
verk, Jóhanna Bogadóttir með
fimm verk, Jón Reykdal með fjögur
verk, Ragnheiður Jónsdóttir með
fjögur verk og fjögur verk verða á
sýningunni eftir Þórð Hall.
Grafík-sýningar verða i:
National Academy of Sciences í
Washington — 8. sept, 1982,
Minneapolis Institute of Árts — 11.
sept. 1982, National Academy of
Design í New York — 13. sept. 1982,
Seattle Center — 20. nóvember
1982, Craft & Folk Art Museum í
Los Angeles — júni 1983.
Megininntak grafíksýningarinn-
ar á að vera lýsing á því hvernig
listform eins og grafíkin getur haft
bein áhrif á almenningsálitið hvað
varðar mál sem eru í deiglunni,
segir í kynningarbréfi grafíksýn-
ingarinnar. Á Norðurlöndunum
hefur grafíkin orð á sér fyrir að
vera list almennings án nokkurra
átaka og nýtur þar mikils almenn-
ingshyllis, segir og í bréfinu. í allt
taka þátt í grafíksýningunni 34
listamenn, 9 frá Danmörku, 7 frá
Finnlandi, 5 frá íslandi, eins og áð-
ur sagði, 8 frá Noregi og 6 frá Sví-
þjóð.
Textilsýningin
Beate Sydhoff, forstöðumaður
þjóðlistasafns í Stokkhólmi, hefur
yfirumsjón með textilsýningunni.
Hún valdi héðan 22 verk eftir 4
listamenn. 5 verk eftir Ásgerði
Búadóttur, 4 eftir Guðrúnu Þor-
kelsdóttur, 7 eftir Rögnu Ró-
bertsdóttur og 6 verk eftir Sigur-
laugu Jóhannesdóttur. Sýningin
verður opnuð í Fashion Institute of
Technology í New York 15. sept-
ember. Þar á eftir verður hún sýnd á
eftirtöldum söfnum:
Textile Museum í Washington —
15. júní 1983, Chicago Public Libr-
ary í Chicago — 15. mars 1983,
Craft & Folk Art Museum í Los
Angeles — 15. sept. 1983, Science
Museum of Minnesota — 15. des.
1982.
Það eru fjórir listamenn frá
hverju Norðurlandanna sem eiga
verk á sýningunni en til samans,
segir í kynningarbréfi sýningar-
innar, gefa verkin góða mynd af
stöðu vefjarlistar á Norðurlöndun-
um í dag. Verkin hafa verið vand-
lega valin til að sýna hlutverk, fjöl-
breytni og styrk listarinnar á
Norðurlöndunum. Þó getur val
verka fyrir svona sýningu aldrei
verið dæmigert þegar um er að
ræða lýsingu á listgrein hvers
lands fyrir sig. Á sýningu þessari
verða alls 90 verk á 500 fermetra
gólffleti.
Nýlistasýningin
Pontus Húlten er umsjónarmað-
ur nýlistasýningarinnar, sem hald-
in verður í Guggenheim Museum í
New York 13. september 1982 og í
Municipal Gallery í Los Angeles í
júní 1983. Húlten er Svíi og stjórn-
andi nýlistadeildar Pompidou-
safnsins í París og er núna að taka
við Borgarlistasafni Los Angeles.
Húlten valdi tvo listamenn frá
hverju Norðurlandanna fimm og
heimsótti hann af j>ví tilefni öll
Norðurlöndin nema Island. I Amst-
erdam í Hollandi eru búsettir tveir
nýlistamenn, Sigurður Guðmunds-
son og Hreinn Friðfinnsson, en þeir
áttu verk á Pompidousafninu þegar
nýlistadeildin þar var formlega
opnuð. Munu þeir verða fulltrúar
nýlistarinnar á íslandi á nýlista-
sýningu kynningarinnar Scandina-
via Today.
Ljósmyndasýningin
Martin Friedman forstöðumað-
Grafíkverk eftir Ragnheiði Jónsdóttur, gert 1975, sem verður á menningarkynningunni.
Grafíkverk eftir Björg Þorsteinsdóttur, sem hún kallar „tJr ríki náttúrunnar
11“ og verður i kynningunni.