Morgunblaðið - 20.04.1982, Qupperneq 5
Hljóm-
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
37
endurtekning á því, er ég reit
árið 1971 um sýningu Brynjólfs
Þórðarsonar í Listasafni Al-
þýðu, ef ég færi að hæla einni
og einni mynd á þessari sýn-
ingu. Ég vil heldur láta þá
skoðun mína hér í ljós, að
Brynjólfur hafi verið sérlega
merkilegur málari, vegna þess
hve fínleg og um leið heil verk
hans eru. Hann vann aðallega í
olíulitum og vatnslitum, og án
þess að fara út í upptalningar,
er með sanni hægt að segja, að
þarna á þessari sýningu, er
fjöldi af verkum, sem ætíð
verða talin í fremstu röð þess
er gert var á þessum tíma, svo
Hengill
fremi að nokkur sanngirni eigi
sér stað í mati listaverka, en
auðvitað verður það svo á kom-
andi tímum, því að listaverkið
sigrar ætíð fordóma og ósann-
girni. List á borð við verk
Brynjólfs Þórðarsonar þarf
engu að kvíða, hún er sérstakur
kafli í þeirri þróun, sem enn er
í fullum gangi. Hún er framlag,
sem ekki verður sniðgengið í
listasögu íslendinga á tuttug-
ustu öld.
Megnið af þeim verkum, sem
nú eru til sýnis, eru í einkaeign,
og því er það sérstakt lán að fá
sýningu, þar sem fólki gefst
kostur á að kynnast þessum
verkum. Enn einu sinni ætla ég
að enda skrif mitt á því að
benda fólki á að glopra ekki
slíku tækifæri úr höndum sér.
Ég veit, að slíkt hef ég oft áður
sagt, en góð vísa verður ekki of
oft kveðin, eins og þar stendur.
Lesendur góðir, látið þessa sýn-
ingu ekki fara framhjá ykkur.
Hún er þess virði, að á hana sé
litið. Þarna eru 92 verk til sýnis
og eru það bæði vatnslitamynd-
ir og olíumálverk. Veigameiri
sýning hefur ekki verið haldin á
verkum Brynjólfs Þórðarsonar
og ekki vitað, hvenær annað
eins tækifæri gefst til að gera
sér grein fyrir verkum Brynj-
ólfs.
nnrrm
Finnbogi Marinósson
Lindsey Buckingham.
Law and Order.
Mercury G302—167.
Þeir eru ófáir félagar stór-
hljómsveitanna sem ekki hafa
reynt að gefa út eigið efni. Mis-
Ofrumleg
vel hefur gengið, en sólóferill-
inn hefur malað gull fyrir þá
heppnu.
Gítarleikarinn og söngvarinn
í Fleedwood Mac, Lindsey Buck-
ingham, er einn þeirra sem ný-
lega hafa freistað gæfunnar.
Þetta er hans fyrsta sólóplata
og heitir hún „Law and Order".
A henni eru ein 11 lög, flest eft-
ir hann sjálfan. Aðstoðar-
hljóðfæraleikarar eru nokkrir
og ber þar helst að nefna Mick
Fleed og Christine McVia félaga
í Fleedwood Mac.
Eitt laganna á plötunni er
þegar orðið nokkuð vinsælt
vestanhafs „Trouble". Það er
gott en einhvern grun hef ég um
að Fleedwood Mac-hljómurinn
sem er á laginu, standi þar að
baki. Ef svo er þá ættu öll lögin
að vera líkleg til vinsælda, því
sólóplata
öll eru þau undir þessum sama
hatti. Að setjast niður og ætla
að fara að hlusta á sóló-plötu
frá einum félaga FM og fá þá í
eyrun sömu tónlist og Lindsey
spilar með félögum sínum olli
mér vonbrigðum.
Platan er vel unnin og lögin
oft skemmtilega hljóðblönduð.
Lindsey er góður gítarleikari,
þótt hér fari lítið fyrir honum
sem slíkum. Aftur á móti sýnir
hann allar sínar bestu hliðar
sem söngvari, já hann syngur
meira að segja eins og John
Lennon í laginu „September
Song“.
I heild er platan nokkuð góð,
frekar róleg, en vinnur ört á.
Sértu reiðubúinn að kyngja því
að þetta sé ekki sólóplata þá
veldur hún ekki vonbrigðum.
FM/AM.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
t
1
líf og fjör allan sólarhringinn
Rimini - einn vinsælasti sumarleyfisstaöur
Evrópu - hefurá skömmum tíma unnið hug
og hjörtu (slendinga á öllum aldri. Vinsældir
þessa óviöjafnanlega baöstaðar byggjast
öðru fremurá því margfræga lífi og fjöri sem
þar er stööugt að f inna, gnægð af spennandi
ævintýrum fyrir börn og fullorðna ásamt
fullkominni hvíldar- og sólbaðsaðstöðu
sem alla heillar.
Margbreytilegt mannlíf í aðlaðandi umhverfi
er það fyrsta sem vekur athygli þeirra á
Rimini. Veitingastaðir, diskótek,
skemmtistaðir og næturklúbbar skipta
þúsundum og alls staðar ér krökkt af kátu
fólki.
Endalaus ævintýri fyrir
böm og fulloróna
Vegna sérstöðu sinnar meðal sólbaðsstaða
Adríahafsins laðar Rimini árlega að sér fjölda
listamanna hvaðanæva að. Leiksýningar,
hljómleikar og hvers kyns skemmtilegar
uppákomur eru því daglegir viðburðir - jafn-
vel þegar þeirra er síst von
Sérlega ódýrirog góðir veitingastaðir
ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum
fullkomna ánægjulega dvöl þína á Rimini.
Þaulreyndir fararstjórar eru ætíð til taks
og benda fúslega á alla þá fjölmörgu mögu-
leika sem gefast til að njóta lífsins í
ógleymanlegu umhverfi.
• Tivolí
• Skemmtigarðar
• Sædýrasöfn
• Leikvellir
• Hjólaskautavellir
• Tennisvellir
• Mini-golf
• Hestaleigur
• Go-cars kappakstursbrautir
• Rennibrautasundlaugar
Rimini
Riccione
Cattolica
Cesenatico
Adriatic Rivlera of
Emilia - Romagna ( Italy )
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adríatico
Lidi di Comacchio
Savignano a Mare
Ðellaría - Igea Marína
Cervia - Milano Marittima
Ravenna e le Sue Maríne
Heillandi
skoöunarferöir
Róm - 2ja daga ferðir
Feneyjar - ,,Hin sökkvandi borg
Fiórenz - listaverkaborgin fræga
San Marinó - „frimerkja-dvergrikið
o.ft.o.fl
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899