Morgunblaðið - 20.04.1982, Page 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
Guttormur Brynjólfsson, 11 ára, sem nýlega varð þrefaldur Austurland.s
meistari í Alpagreinum i flokki 11 og 12 ára.
Egilsstoðir:
Stórbætt aðstaða
til skíðaiðkana
Kgilssltxlum, IB. apríl.
HKR á Kgilsstöðum hefur áhugi
manna á skíðaiðkunum hvers konar
stóraukist hin siðari ár — eins og
raunar víðast hvar á landinu. Tii
þessa hefur þó aðstaöa til skíða-
iókana hér verið nokkuð á þann veg
að heldur hefur hamlað ástundun
íþróttarinnar en hitt. Úr þessu hefur
nú ræst — ekki síst fyrir tilstuðlan
hins ötula skíðaráðs íþróttafélagsins
Hattar.
I Egilsstaðaþorpi hefur verið
komið fyrir upplýstri togbraut,
sem ætluð er byrjendum og til
kennslu skólanemenda. í lok góu
var síðan tekin í notkun ný skíöa-
lyfta í skíðalandi Egilsstaðabúa á
Fagradal. Þessi nýja skíðalyfta
eða togbraut er að sögn hin full-
komnasta, 450 m að lengd og getur
flutt um 700 manns á klukku-
stund. Hún er keypt frá Þýska-
landi og mun hafa kostað hingað
Skiðaráð Hattar: Ásgrímur Ásgrimsson, Brynjólfur Guttormsson, Ari Sigur-
björnsson og Hjálmar Jóelsson (á myndina vantar l>órhall Eyjólfsson).
komin og upp sett hartnær 200
þúsund krónur. Egilsstaðahreppur
fjármagnaði kaupin að mestu, en
skíðaráðið annast rekstur lyftunn-
ar. Þá hefur eldri lyfta og smærri
verið betrumbætt og færð til fyrir
þá sem hægar vilja fara sér í svigi
og bruni.
Um páskana voru að jafnaði
80—100 manns í lyftunum á
Fagradal að sögn Hjálmars
Jóelssonar, eins skíðaráðsmanna
Hattar. Þá hefur ennfremur ótal-
inn hópur manna stundað skíða-
göngur á Dalnum og Fjarðarheiði
að sögn Hjálmars. Þá telja þeir
skíðaráösmenn víst að skíöaiðk-
endum fjölgi enn á Dalnum með
hækkandi sól, en snjór er enn
nægur og skíðafæri hið besta —
eins og sjá má af meðfyigjandi
myndum, sem teknar voru í
Fagradal um páskana.
Ólafur.
Raforkuframleiðslan
jókst um 3,5% í fyrra
Kaforkuframlciðslan mæld í gíga-
vattstundum jókst um rúmlega 3,5%
á síðasta ári miðað við fyrra ár, en
þar af jókst almenn notkun um 7%
en notkun stóriðju aðeins um 1%.
Þessar upplýsingar koma fram i
nýrri þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnun-
ar.
Ástæðurnar fyrir lítilli aukn-
ingu í stóriðju má fyrst og fremst
rekja til orkuskömmtunar Lands-
virkjunar. Ætla má, að án orkusk-
ömmtunar hefði orkuþörf stórið-
junnar aukizt um allt að 9% frá
árinu 1980 til ársins 1981. Hins
vegar varð að takmarka orkusöl-
una mun meira í fyrra en árið áð-
ur eða sem nam 17—18% af áætl-
aðri orkuþörf stóriðjunnar saman-
borið við 10—ll%i árið 1980.
Þá kom orkuskömmtunin illa
við fjárhag Landsvirkjunar, en
undanfarin fjögur ár hefur verið
halli á rekstri fyrirtækisins. Nem-
ur hallinn að meðaltali nær 10%)
af heildartekjum. Árið 1978 var
ástæða hallans einkum lítil hækk-
un gjaldskrár. Árin 1979—1981
hefur gjaldskrá Landsvirkjunar
hækkað talsvert umfram verð-
lagsbreytingar, en samt sem áður
hefur verið halli á rekstri fyrir-
tækisins. Ástæðurnar eru einkum
tekjutap vegna orkuskömmtunar
til stóriðju og mikil aukning
vaxtabyrði í kjölfar vaxtahækkun-
ar á erlendum fjármagnsmarkaði.
Heimkynni fjögurra
norskra höfuðskálda og
ljóðskáld dals dalanna
eftir Ivar Orgland
Hvar og hvernig bjuggu Ibsen,
Björnstjerne Björnsson, Knut
Hamsun og Sigrid Undset? —
Hvernig stendur á því, að
stærsti dalur Noregs, Guð-
brandsdalurinn, hefur verið
kallaður mesti aflgjafi norskra
ljóðabókmennta? — en ekki að-
eins dalur dalanna vegna stærð-
arinnar.
Ibsen var fæddur í Skien í
Þelamörk, en fluttist 8 ára gam-
all til bóndabæjar skammt frá
bænum, af því að faðir hans varð
gjaldþrota. Þar bjó hann í 7 ár
og hélt m.a. leiksýningar á efri
hæðinni. Sjá má drög að meist-
araverki hans, Villiöndinni, frá
þessum dögum. Seinna var hann
lyfsalanemi í Grimstad á suður-
ströndinni og samdi þar fyrsta
leikrit sitt, Catilina, undir dul-
nefninu Brynjolf Bjarme. Upp-
lagið var að mestu leyti eyðilagt,
en bókin er ein hin dýrasta á
uppboðum í Noregi. — Síðustu
ár ævinnar bjó Ibsen í höfuð-
borginni, en á daglegum göngu-
ferðum sínum í veitingastofuna
stillti hann klukkuna eftir úri í
háskólabyggingu á Karli Jó-
hann, en það gerði hann alltaf
Hamsun
stundvíslega klukkan 2, svo að
nærstaddir gátu stiilt klukkur
sínar eftir Ibsen.
Björnstjerne Björnson var
fæddur í Austurdalnum, en
fluttist snemma til Romsdalen,
þar sem hann las aðallega
Snorra í skólanum. Hann taldi
Ibsen
sig vera „romsdöl“ — raumsdæl-
ing. En um Romsdalsfjörðinn og
sveitina þar hefur hann ort eitt
bestu kvæða sinna. — Seinna
hittum við hann á Sögne á suð-
urströndinni, þar sem faðir hans
var prestur, en þar giftist sonur-
inn Karólínu Reimers, sem var
Blönduós:
Húnavaka
Klönduósi 16. apríl.
HIN ÁRLEGA skemmti- og
fræðsluvika Ungmcnnasambands
Austur-Húnvetninga hófst 18. apr-
íl með fjölbreyttri dagskrá. M.a.
verður málverkasýning, sýning á
verkum átta félaga úr Textilfélag-
inu í Reykjavík. Tvö leikrit verða
sýnd og tveir kórar munu
skemmta. Nokkrar kvikmyndir
verða sýndar, dansleikir verða
fjögur kvöld og um miðjan dag
sumardagsins fyrsta verður dans-
leikur fyrir yngstu Húnavökugest-
ina.
Pétur Behrens verður með
málverkasýningu í Snorrabúð,
Hótel Blönduósi.
Pétur Behrens er þýskur að
uppruna, fluttist til íslands 1962
og gerðist síðar íslenskur ríkis-
borgari. Hann stundaði nám við
Meisterschule fúr Grafik og
Hochschule fúr Bildende Kúnste
í Berlín. Pétur vann við auglýs-
ingateiknun eftir að hann kom
til landsins og sem tamninga-
maður m.a. á Melstað, V-Hún. á
Blönduósi 1973 og á jörðinni
Keldnakoti í Flóa.
Pétur hefur kennt við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
og við Myndlistarskólann í
Reykjavík. Hann leggur nú
stund á frjálsa myndlist.
Viðfangsefni á þessari sýn-
ingu eru flest sótt í umhverfið á
Blönduósi og ströndina, auk
þess eru hér mörg portret. Á
sýningunni eru um 35 verk,
teikningar, vatnslita- og olíu-
myndir. Þær eru flestar málað-
ar á þessu ári.
Pétur Behrens sýndi í fyrsta
sinn myndir sínar á Selfossi
1976, hefur síðan haldið einka-
sýningar á Kjarvalsstöðum 1980
í Listhúsinu á Akureyri 1980 og
tekið þátt í Haustsýningu FÍM.
Þetta er fjórða einkasýning
hans á íslandi.
Samband austur-húnvetnskra
kvenna og Textílfélagið í Reykja-
vík mun halda sýningu á verkum
félaga í Textílfélaginu í Kvenna-
skólanum, Blönduósi. Lista-
mennirnir sem verk eiga á sýn-
ingunni eru Hanna Ragnars-
dóttir, Kristín Jónsdóttir, Guð-
rún Auðunsdóttir, Sigrún Guð-
mundsdóttir, Eva Vilhelmsdótt-
ir, Guðrún Marínósdóttir, Guð-
rún Gunnarsdóttir og Anna H.
Björgvinsdóttir.
leikfélag Blönduóss sýnir
Kristnihald undir Jökli eftir
Halldór Laxness í leikgerð
Sveins Einarssonar Þjóðleik-
hússtjóra. Leikstjóri er Svan-
hildur Jóhannesdóttir. Leikritið
verður ekki sýnt utan Blönduóss
vegna mikils sviðsbúnaðar en
leikmynd gerði listamaðurinn
Steinþór Sigurðsson. Hinsvegar
verða sætaferðir víða úr sýsl-
unni svo og frá Sauðárkróki á
sýningar á Húnavökunni.
Leikfélag Skagastrandar mun
sýna gamanleikinn Olympíu-
hlauparinn eftir Derek Kenfield
síðasta vetrardag. Leikstjóri er
Ragnhildur Steingrímsdóttir.
Húsbændavaka USAH verður á
föstudagskvöld. Þar mun Páll S.
Pálsson hæstaréttarlögm. rabba
við samkomugesti en Páll er
húnvetnskur, frá Sauðanesi
skammt frá Blönduósi.
Ómar Ragnarsson hinn lands-
kunni skemmtikraftur sér um
gamanmál en einnig verða flutt
skemmtiatriði af heimamönn-
um. Kynnir á vökunni verður
Sigmar Jónsson.
Harnaskcmmtun USAH verður
kl. 17.00 á föstudag en þar kem-
ur Ómar Ragnarsson fram,
verðlaun verða afhent í skóla-
móti USAH o.fl. verður á
dagskrá.
Á sumardaginn fyrsta verður
1982
fjölbreytt dagskrá fyrir börn og
unglinga. Kl. 11.00 verur æsku-
lýðs- og skátamessa í Blöndu-
ósskirkju. Kl. 14.00 hefst árleg
sumarskemmtun Grunnskóla-
nemenda, Blönduósi, en þar
munu koma fram um 130 nem-
endur undir stjórn kennara
sinna. Áður en sumarskemmt-
unin hefst leikur Lúðrasveit
Blönduóss nokkur lög undir
stjórn Jóhanns Gunnars. Strax
og skemmtun skólans er lokið
verður dansleikur fyrir yngstu
sýslubúa og leikur Upplyfting
fyrir dansi. Um kvöldið verður
leiksýning og að lokum ungl-
ingadansleikur fram á nótt.
Sióasta dag Húnavöku koma í
heimsókn Söngfélag Skaftfell-
inga og Kór Rangæingafélagsins
í Reykjavík og verða með
dagskrá kl. 14.00 í Félagsheimil-
inu. I þessum kórum munu
syngja um 80 manns á Húna-
vökunni.
Sex kvikmyndir verða sýndar á
Húnavökunni. Islenska myndin
„Rokk í Reykjavík" verður
frumsýnd á Norðurlandi á
þriðjudaginn kl. 17.00. Hinar
myndirnar eru: Loðni Saksókn-
arinn fjölskyldumynd frá Walt
Disney, Olíupallaráðin, Brubak-
er, Superman II og Bláa Lónið.
Dansleikir á Húnavöku verða
fjórir og mun hljómsveitin Upp-
lyfting sjá um Húnavökufjörið
þetta árið og á öllum dansleikj-
unum.
Hótel Blönduós hefur mat og
kaffi á boðstólum alla daga
Húnavökunnar en boðið er sér-
staklega upp á veisluborð þrjá
daga. Aðkomufólk getur fengið
gistingu á hótelinu. Hótel
Blönduós og Arnarflug munu
bjóða uppá hagstæðar ferðir og
gistingu alla Húnavökuna.
Fréttaritari.