Morgunblaðið - 20.04.1982, Page 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
SUSEMIHL
steypuhrærivélar
HARALD ST. BJÖRNSSON
UMB0ÐS0G HEILDVERZLUN
SÍMI 85222 LÁGMÚLA 5 PÓSTHÓLF 887
Glasgow-Kaupmannahaftiarflug-
Flugleiða hafið á nýjan leik
Víkingar með alvæpni ruddust út úr dugvélinni strax eftir lendingu og létu
ófriðlega. Reyndar voru hér á ferðinni þeir Hilmar B. Jónsson og Hlöðver
Olafsson og skosku stúlkurnar starfandi hjá Servieair en það fyrirtæki
afgreiðir Flugleiðavélarnar i Glasgow.
ÁÆTLUNARFLUG á leiðinni Kena-
vík/Glasgow/Kaupmannahöfn hef-
ur nú verið tekið upp að nýju og fóru
Flugleiðir sina fyrstu ferð föstudag-
inn 2. apríl. í fyrstu verður flogið
tvisvar í viku, á mánudögum og
fostudögum, en frá 26. mai bætist
þriðja ferðin við, á miðvikudögum. f
sumar verða 37 ár liðin frá fyrsta
farþegaRuginu á þessari leið, segir i
frétt Flugleiða.
í frétt Flugleiða segir ennfrem-
ur:
í tilefni af enduropnun þessarar
áætlunarleiðar og vegna sam-
starfs sem nú hefur tekist með
Flugleiðum, breska Ferðamála-
ráðinu, skoska Ferðamálaráðinu
og Ferðamálaráði Norður-Skot-
lands var haldinn blaðamanna-
fundur í Glasgow eftir komu Flug-
leiðavélarinnar þangað föstudag-
inn 2. apríl. Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, Lord Brook
Evans, forstjóri breska Ferða-
málaráðsins, Norman C. Cumley
frá skoska Ferðamálaráðinu og
Ian Macakill frá Ferðamálaráði
Norður-Skotlands skýrðu frá
þeirri samvinnu sem nú hefur tek-
ist um Skotlandskynningu milli
ofangreindra aðila bæði í Banda-
ríkjunum og á Norðurlöndum.
Flugleiðir eru nú eina félagið sem
flýgur milli Chicago og Skotlands
Borgarstjórinn i Glasgow, Dr. Michael Kelley og Sigurður Bjarnason, sendi-
hcrra íslands i Bretlandi heilsast í móttöku á Glasgow-flugvelli er Flugleiðir
hófu að nýju flug milli Keflavikur, Glasgow og Kaupmannahafnar.
TOPPSTAL
• Plötulengdir eftír óskum
kaupenda • Viö klippum og
beygjum slétt efni í sama lit á
kanta í þakrennur, skotrennur
o.fl. • Viðurkennd varanleg
PVF2-huð í lit • Hagkvæmt
verö • Afgreiðslutími 1—2
mán. • Framleitt í Noregi
Fjárfesting jókst hér
á landi um 2% í fyrra
'B BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF
Leitió nánari upplýsinga aö Sigtúni 7 Simi; 2 9022
í FJÁRFESTINGAR- og lánsfjár-
áætlun fyrir árið 1982 voru settar
fram spár um þróun fjármunamynd-
unar árin 1981 og 1982 og gerð grein
fyrir horfunum i þeim efnum. Var þá
gert ráð fyrir, að fjármunamyndunin
drægist saman um 4% á árinu 1981
og var það svipuð niðurstaða og í
þjóðhagsáætlun þess árs, en fyrir ár-
ið 1982 var spáð um 6% samdrætti.
Niðurstöður bráðabirgðatalna
fyrir árið 1981 sýna hins vegar allt
aðra niðurstöðu. í stað samdrátt-
ar, þykir nú sýnt að um aukningu
er að ræða. Er fjárfesting sam-
kvæmt þjóðhagsspá talin hafa
SINDRA
STALHF
aukizt um 2% eftir tæplega 9%
aukningu árið 1980. Breytinguna
frá haustspánni má einkum rekja
til aukningar í fjárfestingu at-
vinnuveganna í stað þess sam-
dráttar, sem reiknað var með á
síðasta hausti, segir í þjóð-
hagsspá, sem birt var fyrir
skömmu.
Að öðru leyti felst þessi breyt-
ing í innflutningi fjárfestingar-
vöru umfram fyrri áætianir, en
aukning vöruinnflutnings síðustu
mánuði ársins var langt umfram
það sem spáð var á liðnu hausti.
Fjárfesting atvinnuveganna er
nú talin hafa orðið um 6% meiri á
árinu 1981 en á árinu 1980, en í
fyrri áætlun hafði verið gert ráð
fyrir töluverðum samdrætti, eða
12,5% í lánsfjáráætlun og um 8%
í þjóðhagsspá sl. haust. Ymsir lið-
ir voru vanáætlaðir í fyrri spám,
ekki sízt innflutningur flutninga-
tækja. Mikið var keypt til landsins
af flutningatækjum á árinu 1980
og því fremur búizt við að úr
drægi á árinu 1981, enda virtist
innflutningur þeirra á fyrri helm-
ingi ársins benda til þess. Síðari
hluta árs var raunin hins vegar
allt önnur en búizt hafði verið við,
og nú er þessi liður talinn hafa
aukizt um 12%.
Svipuðu máli gegnir um inn-
flutning ýmiss konar véla og
tækja, en hann jókst afar mikið á
árinu 1980 og var af þeim sökum
búizt við minni eftirspurn á síð-
astliðnu ári.
Fyrirliggjandi i birgðastöð
ÁLPLÖTUR
(ALMg3) Sæ- og seltuþolnar.
Hálfhart efni í þykktum
frá 0,8 mm — 6,0 mm.
Plötustærðir 1250 mm x 2500 mm.
Borgartúni31 sími27222
Lokubúnaður Sultartangastíflu:
Tilboði Framleiðslu-
samvinnufélags iðnað-
armanna var tekið
„STJÓRN Landsvirkjunar hefur
ákveðið, að taka tilboði frá Fram-
leiðslusamvinnufélagi iðnaðarmanna,
sem jafnframt var lægsta tilboðið, sem
barst,“ sagði Jóhann Már Maríusson,
yfirverkfræðingur hjá Landsvirkjun, 1
samtali við Mbl., er hann var inntur
eftir gangi mála varðandi tilboð i loku-
búnað Sultartangastíflu.
Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar
vegna þessa verkþáttar var að sögn
Jóhanns um 10 milljónir króna, en
tilboð Framleiðslusamvinnufélags-
ins hljóðaði upp á um 8 milljónir
króna. Alls bárust 16 tilboð í verkið
og það hæsta hljóðaði upp á liðlega
13 milljónir króna. „Við vorum mjög
ánægðir að sjá þennan mikla fjölda
tilboða, sérstaklega var athyglisvert
hversu mörg íslenzk fyrirtæki tóku
þátt í þessu útboði," sagði Jóhann
Már ennfremur.
Aðalfélögin í Framleiðslusam-
vinnufélagi iðnaðarmanna eru Rafal
og Stálafl. „Þessir aðilar hafa unnið
mikið hjá okkur bæði við Hraun-
eyjafoss og Kröflu á sínum tíma og
hafa því hlotið ákveðna reynslu.
Smíðin verður hins vegar að mestu
leyti í höndum finnska fyrirtækisins
Tampella, sem er þekkt í þessari
starfsemi," sagði Jóhann Már. Jó-
hann Már sagði að síðustu, að nú
væru fengin tilboð í alla verkþætti
Sultartangastíflunnar og það væri
ánægjulegt, að þau væru öll undir
kostnaðaráætlun.
« 1 * -
\ Vinnupallar — Körfubilar
Pfumfl/on
&v(u//on
Klapparstíg 16
S:27745
is _ 27922
á 1
Léttar