Morgunblaðið - 20.04.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982 . 47
og sömuleiðis eina áætlunarfélag
á Norður-Atlantshafsleiðum sem
flýgur til Glasgow-flugvallar.
Ferðir eru því auðveldar til Glas-
gow bæði frá Chicago og New
York.
A Norðurlöndum er hafin kynn-
ingarstarfsemi í Suður-Svíþjóð og
Danmörku vegna enduropnunar
flugsins. í mótöku sem haldin var
að loknum blaðamannafundinum
flutti Sigurður Bjarnason am-
bassador Islands í Bretlandi ræðu
þar sem hann gerði að umtalsefni
samband Skota og íslendinga um
aldir, hann minntist flugs til
Skotlands fyrir 37 árum og áætl-
unarflugs Flugleiða sem nú væri
komið á að nýju. Borgarstjórinn í
Glasgow fagnaði í ræðu sinni
enduruppteknu flugi Flugleiða til
Glasgow. Taldi það misráðið og
missi fyrir Skotland er Flugleiðir
voru neyddir til að draga úr Skot-
landsflugi og hætta því síðan al-
veg, og lýsti ánægju sinni og
Glasgow-búa vegna hins beina
sambands við Kaupmannahöfn
svo og við ísland og Bandaríkin,
sem nú væri komið á að nýju.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, ræddi m.a. um sam-
vinnu við breska aðila um kynn-
ingu Skotlands sem ferðamanna-
staðar og flugs Flugleiða þangað.
Fleiri ræðumenn tóku til máls og
fögnuðu þeim áfanga að Fiugleiðir
hefðu nú hafið á ný flug milli ís-
lands og Skotlands og Danmerkur,
sem hefði alla tíð verið farsælt og
hin mesta samgöngubót. Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, kom
fram í sjónvarpi BBC og skýrði frá
áætlunarfluginu og samvinnu við
heimamenn.
Þegar Flugleiðavélin lenti á
Glasgow-flugvelli þennan morgun
stukku út tveir aivopnaðir vík-
ingar sem gripu skoskar konur í
fangið og voru ljósmyndaðir við
mikinn fögnuð fréttaljósmyndara
og annarra viðstaddra.
Aukaleikurinn meö
Horlem
Globetrotter/
veröur í dag kl. 16.30.
Ennþá er hægt aö fá miða á
þessa stórkostlegu skemmtun.
Forsala fer fram í íþróttahöllinni í Laugardal frá
kl. 2.
Hvers vegna eru öll
Telefunken litsjónvarpstæki
SELD
NOTUÐ?
Verksmiðjan vill fullvissa sig um að tækið sé í fullkomnu lagi
áður en þú færð það. Það er,,notað” fyrir þig í 24 klukkustundir áður en það
fær stimpilinn: „TfLBÚIÐ TIL NOTENDA”. Þetta tryggir öruggt og gott tæki
og auðvitað eru Telefunken litsjónvarpstækin með öllum þeim tækninýjungum
sem góð litsjónvarpstæki þurfa að hafa.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LAGMULA 9 SIMI 38820