Morgunblaðið - 20.04.1982, Side 18

Morgunblaðið - 20.04.1982, Side 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982 Sér grefiir gröf... Hugleiðing í tilefni af Alþjóða leikhússdeginum Leiklist Ólafur M. Jóhannesson A alþjóðlega leikhúsdatíinn brá undirritaður sér í Þjóð- leikhúsið, sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Að Kamni ók ég gegnum gamla miðbæinn á leiðinni í leikhús- ið. Fátt virtist á ferli og ósköp dauðalegur blær yfir öllu enda ýrði úr lofti og þokuslæða sleikti gangstéttir. Varð mér hugsað til þess sem nú heyrist æ oftar fleygt á mannamótum og í blöðum að miðbærinn sé að deyja. Virtist mér sú fuil- yrðing hreint ekki útí bláinn þar sem ég renndi silfurfákin- upi yfir hljótt malbikið. Nú, en klukkan kallaði og ökutækið leitar í átt til Þjóðleikhússins. Þá bregður svo við að allstaðar er fólk. Gljábónaðir leigubílar spegla ljósin við Hverfisgötu og fólkið streymir útúr þeim til vinstri inní Þjóðleikhúsið og til hægri upp í Gamla Bíó sem nú er óperuhöll. Skyndi- lega leið mér eins og á Markús- artorginu í Feneyjum, ann- arsvegar hljómaði Mozart og hins vegar bárust ómar frá óperuhúsi. Og fólkið sveiflast á vit tónanna í sparifötunum, sumt rjótt og sællegt eftir að hafa neytt dýrindisrétta á nærliggjandi veitingahúsum. Hver var að tala um miðbæ í dauðateygjunum? Ég ætla ekki að fella hér dóm um þá sýningu sem fyrir augu mín bar þetta kvöld í Þjóðleikhúsinu. Sú vinna hefir þegar verið innt af hendi. Þó er ég ekki frá því að mér fyndist veröldin ögn bjartari er ég skálmaði út í bíl við kveðju- tóna Amadeusar. Og enn á ný var silfurfákurinn knúinn sporum. Haldið sem leið lá niður á Skúlagötu. Þar blasti við úlfgrátt hafið l.ífgað af stöku siglingarljósi. Eg hrekk ónotalega við á leiðinni fram- hjá Arnarhólnum. Það er eins- og þessi fallegi hóll hafi svart opið sár í hjartastað. Enn brunar fákurinn. Hlýleg ljós stafa frá Torfunni og við Tjörnina er líf og fjör, fólk að skálma útaf leiksýningu í Iðnó. Síðan tekur við Hljómskála- garðurinn fullur af fyrirheit- um um komandi vor. Þegar heim er komið sest ég í góðan stól og hugleiði nýaf- staðna leiksýningu svona af gömlum vana. En það er eins- og hugurinn fái ekki stað- næmst við svið Þjóðleikhúss- ins. Myndin af gapandi sárinu í Arnarhólnum kemur aftur og aftur fram í hugann. Og smám saman rennur hún saman við aðra mynd, þá sem ég fékk af miðbæ Reykjavíkur er ég renndi gegnum hann á leið í leikhúsið. Einhvernveginn fannst mér sami dauðablærinn Sífellt þyngist gullasninn. TEPPAVERSLUN FRIDRIKS BERTELSEN berið sanian veröoggæðí Gram Teppi £yrir: Stigahús Skrífstofur Versianir Bamaherbergí Stofur Ganga © Á DÖNSK GÆÐAVARA ÁLÁGUVERÐI AFRAFMÖGNUÐ -VATNSVARIN TEPPAVÉRSLUN FRIDRIKS BERTELSEN SÍDUMÚLA33 ® 86860-86866 í leitinni að forfeðrunum Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háakólabió: Leitin að eldinum („Quest for Fire“) Leikstjóri: Jean-Jacques Annaud. Handrit: Gerard Brach, byggt á sögu e. J.H. Rosny sr. Kvikmyndataka: ('laude August- ini. Aðalhlutverk: Everett McGill, Rae Dawn Chong, Ron Perlman, Mas- eer El-Kadi. Bandarísk-frönsk, frumsýnd 1981. Mannkynið við upphafi sið- menningar. Við fylgjumst með þremur görpum af Ulam ætt- flokkinum sem valdir eru til að leita að eldi er annar kynflokkur spillir honum í ránsferð. Ulamar kunna að hagnýta sér eldinn, en kunna hinsvegar ekki að kveikja hann. Þetta verður svaðilför hin mesta þar sem að félagarnir lenda í miklum hættum af völd- um bæði mannæta og dýra. Þeir lenda í höndum manna af ætt- bálki ívaka sem mun lengra eru komnir á þróunarbrautinni. Hér kynnist foringi Ula- manna, Noah, stúlkunni Iku og kennir hún honum flest það sem ættbálkur hennar kann fyrir sér, eins og þann galdur að kveikja eld. Eftir að hafa öölast mikilvæga þekkingu frá hinum mun þróaðri Ivökum hala félagarnir þrír aft- ur í norður ásamt stúlkunni Iku, með eld í farangrinum og ný vopn. Það hefur verið lög geysileg vinna og alúð í að gera þessa merkilegu mynd sem vandaðasta úr garði. Það kemur best fram í snilldarlegum gerfum og förðun og því augljósa álagi og harð- ræði sem hvílt hefur á leikurun- um og kvikmyndagerðarmönn- um. Reyndar er Leitin að eldin- um svo sér á bati að illmögulegt er að fjalla um hana á svipaðan hátt og aðrar myndir. Til að gera hana sem sennilegasta og trú- verðugasta fengu framleiðend- urnir t.d. dýra- og atferlisfræð- inginn Desmond Morris (Nakti Samband Iku og Noah sýnir frum- sta tt ástarsamband, upphaf nútíma tilfinningasambands manns og konu. apinn), til að semja allar hreyf- ingar og táknmái persónanna og þau fáu orð og hljóð sem þær nota í myndinni eru komnar úr smiðju vísindaskáldsagnahöf- undarins Anthony Burgess sem m.a er kunnur fyrir að nota mik- ið af eigin orðsmíðum í bók- menntum sínum. Mikil áhersla var lögð á að finna hinar sér-1 stæðu, landfræðilegu aðstæður sem myndefnið krefst og líkt og alþjóð veit, þá stóð til að taka hér meginhluta myndarinnar. Útkoman er eiknaráferðargóð, vönduð og sennileg, (ef hægt er að nota það orð) mynd um hina fremur óhrjálegu forfeður okkar, útlit þeirra skoðanir, lifn- aðarhætti og venjur. Þá hefur höfundum tekist að glæða mynd- ina bráðnauðsynlegum húmor og skapa einstætt ástarævintýri á milli Iku og Noah. Þessi atriði, öðrum fremur gefa Leytinni að eldinum enn meira gildi og dýpt og færa hana fjærri heimildar- myndinni. Hinu er ekki að leyna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.