Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
57
Mickey Mouse, ein af teiknimyndafígúrum
Walt Disney er í miklu uppáhaldi meöal Banda-
ríkjamanna. Samt sem áöur hefur ekki veriö
framleidd teiknimynd um Mikka í æöi mörg ár
og þaö þótti því fréttaefni vestra, þegar
mönnum barst þaö til eyrna aö mynd um Mikka
væri i bigerö. Mikki og félagar, Minnie, Andrés
Önd etc. munu birtast í Disney-útfærslu á Jóla-
sögu Dickens og er ætlunin aö frumsýna mynd-
ina í lok þessa árs. Hún mun taka 24 mínútur í
sýningu. Mikki er nú oröinn 54 ára gamall og
hann hefur nú fengiö nýja rödd. Fyrstu nítján ár
ævinnar talaöi skapari hans fyrir hann, sjálfur
Walt Disney, síöan tók háttsettur starfsmaöur
hjá Disney-fyrirtækinu viö, maöur aö nafni John
Macdonald, en hann er nú oröinn 75 ára gamall
og óhæfur í hlutverkiö. Þaö varö því aö finna
nýja rödd. Wayne nokkur Allwine, 35 ára gamall
maöur í Bandaríkjunum var ráöinn í starfiö eftir
ákafa leit aö hæfilegri rödd. Maöur þessi segir:
„Rödd Mikka var einhæf og aö ýmsu leyti frá-
brugöin minni eigin, en ég ætla aö gera mitt
besta og vonandi tekst mér eins vel upp og
forverum mínum í þessu hlutverki".
Orson
heiðraður
+ „Orson Welles hefur ekki fram-
leitt margar kvikmyndir, ég trúi
þær séu aöeins tólf, en ég hef séð
þær allar.“ Þaö var enginn venju-
legur bíósjúklingur sem mælti svo
fyrir nokkrum vikum siöan, heldur
enginn annar en sjálfur Frakk-
landsforseti, Francois Mitterand.
Hann sagöi þessi orö í miklu sam-
kvæmi í Elysee-höllinni, þar sem
Orson hlaut hinn æðsta heiður fyrir
framlag sitt til kvikmyndaheimsins.
Orson hefur meöal annars leikstýrt
myndum sem „The Magnificent
Ambersons" og „Citizen Kane“, en
margir muna hann einnig fyrir leik í
stórmyndinni „The Third Man“,
sem Graham Greene skrifaöi.
Orson var ungur maöur þegar
hann lék í þeirri mynd og tók
seinna uppá því aö hlaupa í spik
og hefur veriö ógurlegur ásýndum
hin seinni ár. Hann þykir gáfaöur
maöur og sagöi er hann varð heiö-
ursins aönjótandi í Elysee-höll:
„Leikstjórinn er sá listamaöur sem
mest er ofmetinn hér í heimi. Hann
er hinn eini meöal listamanna sem
getur, gersneyddur hæfileikum átt
mikilli velgegni aö fagna í 50 ár, án
þess aö menn komi nokkru sinni
auga á hæfileikaleysi hans.“
COSPER
Heyrðu pabbi, þú ætlar þó ekki að sýna þig opinberlega með þetta
hlægilega bindi?
Yoko hitt-
ir Paul
og Lindu
+ Yoko Ono heitir japönsk kona,
ekkja John Lennons, bítilsins
fræga, sem var myrtur á stræti í
Bandaríkjunum fyrir rúmu ári síðan
og allt fór á annan endann, því
annar eins maöur haföi ekki lengi
látiö lífiö fyrir hendi morðingja þar
i landi og menn jafnvel uppá Is-
landi voru lengi miður sín á eftir.
Yoko þessi var nýveriö Ijósmynduö
í félagsskap meö Paul McCartney
og konu hans, Lindu, í New York
og þótti þaö tíðindum sæta í heimi
poppsins. Fróöir menn segja að
þetta fólk hafi ekki beinlínis veriö
bestu vinir hin seinni ár, þ.e.a.s.
eftir aö slitnaöi uppúr samstarfi
Bítlahljómsveitarinnar, og var þess
vegna eftir þessu tekiö. Hiö virta
vikublaö „Time“ birti jafnvel mynd-
ina, sem hér fylgir og hafði eftir
sjonarvottum aö þetta fólk heföi
verið hiö alúölegasta hvaö viö ann-
aö og skemmt sór hjartanlega yfir
mat sínum á veitingastofu. Því má
svo hnýta viö aö Yoko Ono kemst
bráöum á sextugsaldurinn, hún er
orðin 49 ára, en Paul McCartney
og Linda kona hans eiga jafnstutt í
aö komast á fimmtugsaldurinn, þvi
þau eru bæði orðln 39 ára gömul.
Datadagur ’82
Skýrslutæknifélag íslands og samtök skýrslutækni-
félaganna á Noröurlöndum, Nordisk Dataunion,
gangast sameiginlega fyrir ráöstefnu um skrifstofu
framtíöarinnar og tölvunotkun framtíöarinnar í
Kristalssal Hótels Loftleiöa, föstudaginn 23. apríl
1982.
Fyrirlestrar veröa á ensku og er dagskráin eftirfar-
andi:
Tími Sameiginlag dagikrá
13.30—14.15 Satning ráðatafnunnar: Or. Jón Þór Þórhallsson,
formaöur félagsins. Ávarp: Matthías Á. Mathiesen,
fyrrverandi forseti Noröurlandaráðs.
Fyrirtastur. Erik Bruhn, aöalrltarl Nordlsk Dataunion:
Efni: Information procoaaing at tha praaant, and
futura tranda with apacial amphaaia on tha da-
valopmant in tha Nordic countrias.
Salur A Salur B
14.30—15.00
15.10—15.40
15.40—16.00
16.00—16.30
Fundarstjóri:
Höskuldur Frímannsson,
rekstrarhagfræöingur.
SKÝRR.
Word Processing
Gunnar Nyström,
Otivetti, Finnlandl.
Information Rasourca
Managamant. Sigvard
Jönsson, INFORESMA,
Svíþjóö.
Kaffihlé.
DP User Education.
Sven Jakobsson, LSns-
forsikringsbolaget.
Sviþjóö.
Fundarstjórl:
Haukur Pálmason,
yflrverkfræölngur,
Rafmagnsveitu Reykjav.
Battar Productivity
in DP Dapartmant.
Henning Jensen, PKK,
Danmörku.
DP Basad Productíon
Control. Asbjörn
Rolstadás, prófessor,
NTH, Noregl.
Future trands in
Data Basa
Managament Systams.
Dr. Jóhann P. Malmquist.
Fjárlaga- og hagsyslu-
stofnun, islandi.
16.40—17.10 Samaiginlag dagskrá. Björn Friðfinnsson, fjármála-
stjóri Reykjavíkurborgar, stjórnar sameiginlegum
fundi í lok ráöstefnunnar.
17.10 Slit ráöstafnunnar. Sigurjón Pétursson. varaformaö-
ur félagsins.
Þátttökugjald á ráöstefnuna er 400 krónur. Aðeins
örfá sæti eru laus. Á meöan þau endast, má tilkynna
þátttöku á skrifstofu fólagsins, í síma 86144, Óttar
Kjartansson. .
Skyrslutæknifélag Islands.