Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
Er nemendum mismunað
á grunnskólaprófunum?
eftit Pál Dagbjarts-
•jor skótastjóra í
Varmahlíð
Eins og allir vita er þjóðfélags-
gerð okkar sífellt að verða flókn-
ari og flóknari, sérhæfing meiri og
meiri í hinum ýmsu störfum. Af
þessu léiðir að sérmenntun á ein-
hverju sviði er að verða alger for-
senda þess að fólk sé gjaldgengt á
vinnumarkaði. Þessi svokallaða
sérmenntun hefst, eða að henni
lagður grunnur, strax og grunn-
skólanum lýkur. Þá verða ungl-
ingar að fara að líta í kringum sig
í atvinnulífinu og gera upp hug
sinn, hvar skuli hasla sér völl.
Ymsir þættir hafa áhrif á þessa
ákvarðanatöku unglinganna, en
einn e.t.v. öðrum fremur, það er
samræmda grunnskólaprófið.
Grundvallarhugsunin að baki
grunnskólalaganna er sú að allir
nemendur á landinu skuli eiga
sem jafnastan rétt og búa við sem
minnstan aðstöðumun hvað varð-
ar grunnskólamenntun. Þessi
sjónarmið eiga líka að standa á
bak við framkvæmd samræmdu
grunnskólaprófanna, en gera það
ekki að því er ég fæ best séð.
Þegar prófanefnd hefur lokið
við að 'ara yfir úrlausnir nemenda
og búið er að raða einkunnum á
hópinn er gerður ýmiss konar
samanburður sem ekkert er óeðli-
legt. Hver skóli getur séð hvar
hann stendur miðað við landsmeð-
altal, samanburður er gerður milli
landshluta, milli byggðarlaga o.fl.
o.fl.
Allt frá upphafi þessara prófa
hefur það ætíð komið fram að
nemendur frá landsbyggðinni
hafa fengið lakari útkomu en
nemendur úr Reykjavík og er þar
á mikill munur. Þá kemur það
einnig fram að ár eftir ár eru það
sömu landsvæðin sem verst koma
út (Norðurland vestra, Vestfirðir).
í þessu efni hafa tungumálin sýnt
hvað mestan mismun.
Samning prófanna (innihald) og
framkvæmd hefur oft sætt gagn-
rýni og ekki með öllu að ástæðu-
lausu, þó svo að eðlilegt megi telj-
ast að skoðanir séu skiptar. Eg
ætla ekki að fara að tína til ein-
stök atriði sem mér persónulega
hafa þótt einkum gagnrýnisverð,
en vil þó nefna að enskuprófið var
illa uppsett og ósanngjarnt og
hafði veruleg áhrif á brautargengi
nemenda, ekki bara í þessu fagi
heldur og í þeim þremur sem á
eftir fóru.
Af reynslu undanfarinna ára
hafa vaknað ýmsar spurningar
hjá mér varðandi þessi svokölluðu
„samræmdu próf“. Ætla ég að
nefna nokkrar.
— Er hægt að tala um „jafna að-
stöðu" þegar ár eftir ár kemur
í ljós misræmi sem á engan
hátt er gerð tilraun til að leið-
rétta?
— Hvers vegna ná nemendur í
„Af reynslu undanfar-
inna ára hafa vaknað
ýmsar spurningar hjá
mér varðandi þessi
svokölluðu „samræmdu
prór‘. Ætla ég að nefna
nokkrar.“
Reykjavík ætíð betri árangri í
tungumálum en jafnaldrar
þeirra á landsbyggðinni?
— Er uppsetning prófanna í heild
þannig að þau séu auðveldari
til úrlausnar fyrir nemendur
úr Reykjavík?
— Eru skólar okkar hér í dreif-
býlinu yfir höfuð annars og
þriðja flokks stofnanir?
— Er það sanngjarnt, miðað við
það sem í upphafi þessarar
greinar er nefnt, að láta tvö
erlend tungumál vega 50% á
móti íslensku og stærðfræði
um það hvort unglingar á Is-
landi hafi möguleika á að afla
sér sérmenntunar í fram-
haldsskóla?
Endalaust má spyrja í svipuðum
dúr, en ég læt hér staðar numið að
sinni.
Blikksmíði og
húsbyggingar
eftir Kristján
Ottósson, formann
Félags blikksmiða
Vegna síendurtekinna vanda-
mála, sem upp hafa komið í
blikksmíðaiðninni, er varða bygg-
ingafulltrúaembætti viðkomandi
sveitarfélaga, er rétt að draga
fram aðalatriðin úr Bygginga-
reglugerðinni er varðar blikk-
smiði:
Hafa ber í huga að blikksmíða-
meistarar hafa verið til skamms
tíma einu meistararnir sem ekki
hafa þurft að skrifa upp á þau
verk sem þeir hafa unnið í bygg-
ingaiðnaðinum vegna úreltrar
Byggingareglugerðar.
Þann 16. maí 1979 var samþykkt
af þáverandi félagsmálaráðherra
Magnúsi H. Magnússyni, ný Bygg-
ingareglugerð, Stjórnartíðindi B
nr. 292/1979 sbr. reglugerð nr.
298/1979.
Hafa ber í huga að löggilding
v/Byggingareglugerðar er per-
sónubundin og vísast þar í iðn-
löggjöfina.
Það þýðir, að ekki er hægt að
sækja um löggildingu fyrir fyrir-
tæki (blikksmiðju). Til að öðlast
löggildingu þarf blikksmíðameist-
ari að leggja fram hjá viðkomandi
byggingafulltrúa sveinsbréf og
meistarabréf og undirskrifa um-
sókn sem í flestum tilfellum liggur
frammi.
Blikksmíðameistari sem sækir
um að fá að árita uppdrátt (teikn-
ingu), en sú áritun er algjört skil-
yrði til að verkið sé löglega af
hendi leyst, þarf að sjá um útfyll-
ingu á tilkynningu til viðkomandi
byggingafulltrúa, sjá hjálagt
ljósrit (rétt útfyllt). „Reglugerð
þessi gildir hvarvetna á landinu"
(eins og segir í lið 1.1.).
„Reglugerðin gildir um hvers
konar byggingar og mannvirki
sem sótt er um hjá bygginganefnd
eftir gildistöku reglugerðarinnar
svo og um breytingar á þeim“
(eins og segir í lið 1.3.).
„Þeir meistarar einir mega hafa
umsjón með og bera ábyrgð á
byggingaframkvæmdum hér á
sínu sviði sem til þess hafa hlotið
viðurkenningu bygginganefndar
og fullnægja að öðru leyti skilyrð-
um, sem sett eru í lögum og reglu-
gerðum einstakra veitustofnana"
(eins og segir í lið 4.1.).
Til að fullnægja nýju bygg-
ingareglugerðinni þarf hver og
einn, sem hlotiö hefur meistara-
réttindi að sækja um löggildingu
til bygginganefndar í því sveitar-
félagi sem hann býr í og i öllum
þeim sveitarfélögum sem hann
kann að starfa í.
4.4. Ábyrgð iönmeistara.
I lið 4.4.1., segir: „Húsasmíða-
meistari, sem áritað hefur upp-
drátt, ber m.a. ábyrgð á allri
trésmíðavinnu við bygginguna á
steypumótum svo og á öllum
stokkum og götum sem í þau
koma, á lögnum er varða sjálf-
dragandi loftræstingu eða stokk-
um fyrir slíkar lagnir, sem sett er
í steypumót svo og að gengið sé frá
þakrennum og niðurföllum á við-
urkenndan hátt,“ sbr. 4.4.5. Þar
segir: „Aðrir meistarar bera
ábyrgð hver á sínu sviði eftir því
sem við á, t.d. járnsmíðameistarar
í málmgrindahúsi að því leyti sem
að hans verksviði lýtur, blikk-
smíðameistari m.a. á þakrennun
og niðurföllum, loftræsti- og loft-
hitakerfi bæði vélrænu og sjálf-
dragandi og læstum eða lóðuðum
þunnplötuklæðningum."
Úttektir
Þó ber að hafa sérstaklega í
huga þann þátt er varðar úttektir
verka og verkþátta, og vísast þar
til greinar 4.11. en þar segir:
„Hlutaðeigandi byggingameistar-
ar eða byggingastjórar skulu með
minnst sólarhrings fyrirvara til-
kynna byggingafulltrúa um út-
tektir á eftirfarandi byggingastig-
um.“
T.d. „3. lögnum í grunni þar með
talin rör yfir rafmagnsheimtaug
TILKYNNING
Dags 1/1 1900
Nafn J6n Jónsson
Nsfnnr 12J4-5678
ötksr sftir þvi að
Nafn P*ll Pálsson
blíkksm m nsfnnr 8765-4321
laki aö sár blikksmiöavmnu hússms nr 1000
vió Aðalstr.
Faoð skal sflir sampykklum uppdrállum sem gerðir hala venð
af husmu svö og viðkomandi byggmgarsampykkt
Meislan lekur fram að honum sé skyit að <ara eftir logum
féiags sins og Sambands méim og skipasmiðia
Jón Jónsson.
Þannig lítur útfyllt tilkynning út
eins og frá er skýrt í greininni.
áður en hulið er yfir“.
„10. hita- og hljóðeinangrun,"
„12. tækjum og búnaði loftræsti-
og lofthitunarkerfa og stokklögn-
um fyrir slíkan búnað." Ennfrem-
ur segir í lið 4.12.: „Óheimilt er að
halda áfram framkvæmdum eða
hylja lagnir án samþykkis bygg-
ingafulltrúa."
Allar frekari upplýsingar svo og
staðfestingu á því sem hér hefur
verið vitnað til er að finna í Bygg-
ingareglugerðinni. Eg vil sérstak-
lega hvetja blikksmiði, að kynna
sér vel Byggingareglugerðina og
fylgja því eftir að frágangur verði
eins og best verði á kosið.
Kristján Ottósson
Sveinn Kjartansson i hlutverki séra Jóns prímusar og Stefán Haraldsson
(Umbi) í Kristnihaldinu.
Leikfélag Blönduóss:
Sýnir Kristnihald
undir Jökli
Klönduósi, 13. april.
LEIKFÉLAG Blönduóss frumsýndi
sl. laugardag Kristnihald undir Jökli
eftir llalldór Laxness í leikgerð
Sveins Einarssonar. Leikstjóri er
Svanhildur Jóhannesdóttir sem m.a.
hefur starfað hjá Leikfélagi Akur-
eyrar, auk þess sem hún hefur
leikstýrt fyrir leikfélög úti á lands-
byggðinni. Leikmynd hannaði Stein-
þór Sigurðsson frá Leikfélagi
Reykjavíkur. Mbl. ræddi stuttlega
við Svein Kjartansson, formann LB,
en hann fer með hlutverk Jóns prím-
usar í þessari uppsetningu. Fyrst lék
okkur forvitni á að vita hver væri
ástæðan fyrir því að leikfélagið réð-
ist í að setja upp svo viðamikið verk
sem Kristnihaldið.
„Það var stefnan hjá okkur í ár
að sýna íslenskt leikrit og þá lá
það beint við að að heiðra nób-
elsskáldið okkar á þessu merkis-
afmælisári þess. Við höfðum svo
fljótlega samband við Svanhildi
Jóhannesdóttur og fengum hana
til að leikstýra. Hún kom hingað í
byrjun mars og síðan hefur verið
æft nær daglega. Það eru um 30
manns sem hafa unnið við að
koma þessari sýningu á fjalirnar.
Aðspurður sagði Sveinn að
þetta væri 56. starfsár Leikfélags
Blönduóss, en að sjálfsögðu hafa
komið lægðir í starfsemi þess öðru
hverju. Hin síðari ár hefur félagið
sýnt eitt leikrit á ári, að undan-
skildu 1977. Helstu verk síðasta
áratuginn eru Skáld-Rósa sem
sýnd var 1980 og Þið munið hann
Jörund, 1976. Annars er það
stefna okkar að sýna til skiptis
gamanleiki og alvarlegri verk. Það
má kannski geta þess að það er
draumur okkar að sýna tvö leikrit
næsta vetur. Ævintýri á gönguför
kemur til greina sem annað verkið
á efnisskránni þá.“
Sýnið þið víðar en á Blönduósi?
„Það fer nú aðallega eftir því
hversu viðamikil sviðsmyndin er i
hvert skipti. Við getum t.d. ekki
ferðast með Kristnihaldið. Þess í
stað er fyrirhugað að hafa sæta-
ferðir frá Hvammstanga, Skaga-
strönd og Sauðárkróki. Ferðir
þessar verða á sýningar á Húna-
vökunni. Einnig ætlum við að hafa
sérstaka sýningu fyrir alla skóla i
sýslunni."
Það kom fram í þessu spjalli við
Svein, að félagar í LB eru 73 og
einnig eru styrktarfélagar 64.
Annars er öll vinna við sýningar
unnin í sjálfboðavinnu utan leik-
stjórn og leikmyndahönnun.
Eins og áður segir var Kristni-
haldið frumsýnt sl. laugardag og
voru undirtektir áhorfenda mjög
góðar. Næsta sýning verður laug-
ardaginn 17. þ.m. og síðan eru
fyrirhugaðar þrjár sýningar á
Húnavöku þann 20., 22. og 24. apr-
íl.
Með helstu hlutverkin í þessari
uppsetningu fara Stefán Har-
aldsson, Pétur A. Pétursson,
Sveinn Kjartanson, Sturla Þórð-
arson og Svanfríður Blöndal.
FrétUriUri.
Stefán Haraldsson í hlutverki Umba og Torfhildur Steingrímsdóttir í hlut-
verki Hnallþóru í uppsetningu Leikfélags Blönduóss. LjÓHm (lM>r AeMrw,„n.
Varnarbarátta vid
„hið opinbera“
einkenndi starfsemi Félags vefnaðarvörukaupmanna á sl. ári
AÐALFUNDUR Félags vefnaðarvöru-
kaupmanna var haldinn fyrir nokkru
og var Ragnar Þ. Guðmund.sson kjör-
inn formaður í stað Erlu Wigelund,
sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs.
Erla sagði í skýrslu sinni á fund-
inum, að félagsstarfið hefði að
mestu leyti verið fólgið í varnarbar-
áttu við hið opinbera. „Nokkra
sigra höfum við þó unnið og vil ég
nefna þrjú atriði. Upphækkun á
vörubirgðum verzlana náðist fram,
frá og með 15. maí sl., þannig að nú
má selja eldri vörubirgðir á raun-
virði þegar nýjar vörur koma í
verzlanir.
Þá höfum við fengið því áorkað
að 30%-reglan svokallaða er ekki
viðhöfð lengur eins og verið hefur,
en þegar gengisfellingar hafa orðið
hefur aðeins verið leyft að leggja á
þriðjunginn af þeirri hækkun, sem
stafaði af gengisfellingunni. Nú má
hins vegar leggja á alla hækkunina,
og munar það miklu þegar um svo
lága álagningu er að ræða eins og
raun ber vitni.
Þá vil ég einnig nefna þann sigur
sem vannst fyrir Laugavegskaup-
menn í stöðumælamálinu. Þá sýndi
það sig bezt hvað samstaða fær
áorkað, og þannig væri hægt að
vinna í fleiri málum, ef kaupmenn
áttuðu sig almennt á því, að standa
saman í sínum eigin samtökunum."
Stjórn Félags vefnaðarvörukaup-
manna skipa nú auk Ragnars Þ.
Guðmundssonar, Guðríður Gunn-
arsdóttir, Karólína Sveinbjörns-
dóttir, Sigurður E. Haraldsson og
Erla Wigelund. Varamenn í stjórn
eru Auður Þórisdóttir og Edda
Hauksdóttir. Fulltrúi í fulltrúaráði
Kaupmannasamtaka íslands er Sig-
urðpr E. Haraldsson og Erla Wige-
lund til vara.