Morgunblaðið - 20.04.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
63
Til hamingju með daginn
legri útbreiðslu og fylgi hennar
vex stöðugt.
eftir Inga Rúnar
Eðvarðsson og
Sigmar Þormar
Nú þegar fermingar standa yfir
er ekki úr vegi að minnast þess
sem heimurinn hefur að gefa
fermingarbörnum um þessar
mundir. Fyrir ungmenni heims á
tímamótum er veglegasta og af-
drifaríkasta gjöfin sífellt vaxandi
hætta á tortímingu í kjölfar
kjarnorkuvígbúnaðar. Evrópsk
ungmenni fá þó veglegustu gjöfina
þar sem þau geta glatt hjörtu sín
með tilhugsun um að nú þegar er
hægt að granda hverju manns-
barni í Evrópu 30 sinnum.
Skemmtileg tilhugsun það á hátíð-
isdegi! Við skulum minnast þess
að hér er ekki aðeins um gjöf til
núlifandi kynslóða að ræða heldur
einnig komandi kynslóða, ef ein-
hverjar verða.
Að undanförnu hefur sprottið
upp hreyfing, svokölluð friðar-
hreyfing, sem hafnar algerlega
þessari „fermingargjöf", en krefst
þess í stað vonar um líf hvað sem
hún kostar. Friðarhreyfingin hef-
ur á fáeinum mánuðum náð gífur-
FriÖarhreyfingin
í Evrópu
Friðarhreyfingin í Evrópu hefur
frá því í sumar náð mikilli út-
breiðslu. Til marks um það þá
voru yfir 100.000 fundarmenn í
Hamborg og 200 þús. í Bonn á frið-
ardegi. I Bretlandi og Brussel
settu öflugar mótmælaaðgerðir
svip á síðastliðið sumar og haust.
Eins og sést á þessum tölum er
þetta fjölmenn hreyfing, og sam-
anstendur hún af misjöfnu fé,
kirkjudeildum, kvenfélögum, um-
hverfisverndarmönnum, pólítísk-
um flokkum o.fl. Ný kynslóð hefur
vaxið úr grasi um alla Evrópu sem
hugsar svipað, hún er þreytt á
kalda stríðinu og vill það feigt.
E.P. Thompson, einn frumkvöð-
ull hreyfingarinnar, sem var hér í
heimsókn fyrir skömmu, segir að
markmið friðarhreyfingarinnar sé
að brjóta upp hernaðarbandalögin
og kveða hernaðarstefnu niður.
Höfurverkefnið er að binda endi á
kalda stríðið áður en það snýst
upp í ragnarök og endalok mann-
kyns.
Nú þegar hefur friðarhreyfingin
í Evrópu náð verulegum árangri,
þar á meðal knúið stórveldin til að
ræða um takmörkun meðaldrægra
eldflauga. Benda má á að Wales
hefur verið lýst kjarnorkuvopna-
laust svæði, hollenska þjóðin mun
sennilega neita staðsetningu
stýriflauga á hollenskri grund, og
svo mætti lengi telja.
FriÖarhreyfingin
í Bandaríkjunum
Ráðamenn í Bandaríkjunum
hafa litið óhýru auga á þennan
mikla áhuga Evrópumanna í vetur
á kjarnorkuafvopnun. Töldu þeir
þetta vera merki um ábyrgðar-
leysi þjóða Vestur-Evrópu gagn-
vart hinni sovésku ógn eða þá að
þetta sýndi að Rússar væru farnir
að hafa bein áhrif á skoðanir fólks
í þessum löndum. Þessi afstöðu-
munur NATO-ríkja vestan og
austan Atlantshafs virðist hins
vegar hafa minnkað á undanförn-
um vikum.
Þetta starfar af því að friðar- og
afvopnunarhreyfingum hefur vax-
ið mjög fiskur um hrygg í Banda-
ríkjunum. Afvopnunarvakningin
þar í landi er að flestu leyti lík því
sem gerðist í Evrópu í sumar og
haust. Þannig fylkja sér í Banda-
ríkjunum saman til baráttu gegn
kjarnorkuógninni fólk úr ýmsum
áttum, fólk af öllum aldri og með
mjög mismunandi stjórnmála-
skoðanir og trúarviðhorf. Líkt og í
Evrópu hafa einnig ýmis félags-
samtök gert þetta að baráttumáli
sínu. Einna mesta athygli hefur
vakið að félagasamtökin „Læknar
með félagslega ábyrgð" hafa eflst
undanfarið og tekið upp mark-
vissa baráttu gegn kjarnorku-
vopnauppbyggingunni.
Bandaríska hreyfingin leggur
mikla áherslu á tillöguna um
„frystingu" vopnakapphlaupsins.
Þetta þýddi það að hætt yrði allri
framleiðslu og endurbótum á
kjarnvorkuvopnum hjá bæði
NATO og Varsjárbandalagsríkj-
um. Litið er á þetta sem mikilvægt
skref í þá átt að leggja að lokum
niður öll kjarnorkuvopn.
Hvað veldur slíkum viðbrögðum
meðal alls þessa fólks? Eins og áð-
ur segir er til það mikið af kjarn-
orkuvopnum að þau nægja til að
eyða mannkyninu nokkrum sinn-
um. 400 þúsund færustu visinda-
menn vinna dag og nótt við að
undirbúa ragnarökin. Jafnmikið
er eytt árlega í framleiðslu her-
gagna í heiminum og fer til
menntamála og heilbrigðisþjón-
ustu samanlagt. Allt þetta leiðir
til þess að hætta á kjarnorkustyrj-
öld eykst stöðugt. Eru þetta ekki
ærnar ástæður til að mótmæla?
Sofandi íslendingar
Það vekur hins vegar athygli og
vonbrigði að á sama tíma og þessi
merku tíðindi berast frá hinum
stóra heimi þá sitja íslendingar
með hendur í skauti. Þeir alltof
fáu sem látið hafa þetta mál til sín
taka eru aðeins ákveðnir pólitískir
hópar og fulltrúar kirkjunnar.
Hins vegar hefur hinn almenni
maður og félagssamtök hér á landi
barið hausnum við steininn gagn-
vart þessari ógn.
Að endingu hvetjum við alla
menn, til sjávar og sveita, að láta
þetta mikilvæga lífsspursmál til
sín taka því betra er að vera virk-
ur í dag en geislavirkur á morgun.
Er það ekki allra besta gjöf sem
hægt er að gefa fermingarbörnum
komandi kynslóða?
(Heimildir: Time, Newsweek.)
*
Islenzku kart-
öflurnar búnar
um miðjan maí
— flutt inn frá Hollandi og
Ítalíu til að brúa bilið
NÚ LÍTIIR út fyrir að íslenzkar
kartöflur dugi ekki nema fram í
miðjan maí. Verður þá gripið til þess
ráðs að flytja inn kartöflur frá Hol-
landi og Italíu þar til islenzka fram-
leiðslan kemur aftur á markaðinn að
sögn Kðvalds B. Malmquist, yfir-
matsmanns garðávaxta.
Sagði Eðvald að ársframleiðsla
kartaflna í fyrra hefði numið
80.000 tunnum til dreifingar og
um 20.000 tunnum hjá einstakl-
ingum en árið áður hefði hún
numið 176.000 tunnum alls. Hér
væri um mikinn mun að ræða, en
1980, sem hefði verið metár, hefði
munað litlu að endar næðu saman.
Hann sagði ennfremur að farið
væri að bera á samdrætti í neyzlu
kartaflna á hefðbundinn hátt og
hefði jafnvel minnkað um 30 til
35% á síðustu fimm árum. Salan
hjá Grænmetisverzlun landbúnað-
arins hefði til dæmis verið um
1.100 tunnur fyrstu viku marz-
mánaðar, en hefði átt að vera,
samkvæmt sölu síðustu ára, 1.800
til 2.000 tunnur. Svipað hlutfall
hefði verið með sölu fyrir pásk-
ana. Stafaði það meðal annars af
því að fólk keypti meira af frönsk-
um kartöflum en áður og minni
neyzlu. Því hefði uppskeran enzt
þó nokkuð lengur en búizt var við í
fyrstu.
Eðvald sagði að fyrst í stað yrðu
kartöflurnar fluttar inn frá Hol-
landi, en síðar nýjar kartöflur frá
Italíu, ekki yrði um innflutning
frá Danmörku að ræða vegna gin-
og klaufaveikinnar þar. Sagðist
hann reikna með því að verð á
þeim yrði svipað og á íslenzku
kartöflunum. Það yrði því líklega
um innflutning á kartöflum frá
miðjum maí og til miðs ágúts, en
þá kæmi innlenda framleiðslan yf-
irleitt á markaðinn.
Nú kynnum við nýju FORD traktorana
Sterkari mótorar
Bein eldsneytisúðun í mótor gefur
betri brennslu og minni eyðslu. Stutt
slaglengd — minni stimpilhraði og
minna slit á mótor. Nýju díesel
mótoramir frá Ford.
Betri gírkassar
Með nýju alsamhæfðu girkössunum
er hægt að skipta um gír á ferð við
hvaða aðstæður sem er. 8 hraðar
áfram og 4 hraðar afturábak er
venjulegur búnaður.
Afkastameira vökvakerfi
Stærri gerðir Ford traktoranna eru
nú fáanlegar með tveim vökvadælum
með afköst allt að 66 /min. Það eru
því fá vökvaknúin tæki sem Ford
traktoramir ráða ekki við.
Nýtt 4-hjóladrif
Allar stærðir Ford traktoranna em
nú fáanlegar með 4-hjóladrifi. Með 4-
hjóladrifi nýtist aflið betur,
traktorarnir draga meira og láta
betur að stjórn við erfiðar aðstæður.
Skipting í og úr 4-hjóladrifi er
möguleg á ferð.
Komið og skoðið nýju Ford trakt-
orana
Nýja 10-línan af Ford traktorunum
verður til sýnis hjá okkur næstu
daga að Ármúla 11. Komið og
kynnist nýju 10-línunni — sjón er
sögu ríkari, eða hafið samband við
sölumenn okkar.
PDRf
SÍMI B1500-ARMULA11
FORD TRAKTORAR — ÞEIM ER HÆGT AÐ TREYSTA
i r.i r jI J erl ullt; é einfíl eni.l
JilJuitir ri s si»> n rr.r i.itiió” yjjíijni'srfsitgs TTftr 11$
r ilr.í
t í i 1 ; • 3 ;i( Miia)