Morgunblaðið - 20.06.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.06.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982 7 í Efesusbréfinu segir Páll postuli, að við eigum „aðgang til föðurins". Hann á að sjálf- sögðu við hið nána samband, sem á að vera milli Guðs og hins kristna manns. í huga mínum vekur þessi setning litla mynd. Ég sé barn sitja í stofu. í næsta herbergi er faðir þess. Hann vill vera þar í næði og dyrnar eru lokaðar. Barnið getur því hvorki heyrt föður- inn né séð. En þá opnast dyrn- ar. Faðirinn kemur og lítur til barnsins, talar við það og fer svo aftur inn í herbergið. En dyrnar standa opnar. Barnið veit nú, að það getur farið til hans. Hann er ekki lengur ein- angraður inni í sínu herbergi. Hann er aðgengilegur í tví- þættri merkingu, aðgengilegur og skilningsríkur. Ég veit enga betri líkingu um hlutverk Krists gagnvart mönnunum en þá, að hann hafi opnað dyrnar milli Guðs og mannanna, gert hinum síðar- nefndu fært að nálgast Guð og þekkja hann og þar með breytt guðshugmyndinni, — breytt óttanum í elsku. Guð er þannig kominn til móts við mennina með sérstökum hætti í Kristi. Hnn vildi, að þeir gætu fundið, að hann er alltaf nálægur. Þess vegna var Jesús sendur til hinna þá fyrirlitnu tollheimtu- manna til að deila með þeim kjörum. Þess vegna var hann sendur til þeirra, sem sjúkir voru og hann læknaði þá bæði á sál og líkama. Þess vegna var hann jafnvel sendur til að forða hórsekum frá dauðarefs- ingu, af því að allir áttu að geta fundið, að Guð var þeim nálægur, að líf þeirra var þrátt fyrir allt einhvers virði, af því að Guð elskaði þá og bar um- hyggju fyrir þeim. Þeir voru svo margir þá, sem voru í þörf fyrir þessa vissu, Farísearnir og fræðimennirnir sögðu, að Guð væri þeim fjarri, þeir væru honum glataðir. En Jes- ús kom og opnaði dyrnar og sýndi bæði í orði og verki, að Guð fer ekki í manngreinar- álit. Við vitum, að Jesús uppfyllti óskir og þrár mjög margra. Við vitum einnig, að þessar sömu óskir og þrár eru enn fyrir hendi. Og svar hans hljómar enn frá penna Páls: Vér eigum aðgang til föðurins. Það er auðvelt að segja þetta. Það er auðvelt að lesa falleg orð, finna þau tala til sín og endurtaka þau fyrir öðrum. En kannski er málið ekki jafn- auðvelt þeim. Ég sé fyrir mér konu, sem hefur á síðustu tveimur árum séð á eftir tveimur barna sinna í gröfina og situr nú yfir dauðvona eig- inmanni. Finnur hún, að Guð sé henni nálægur? Ég hugsa einnig til unga mannsins, sem hefur verið að lesa um kyn- þáttamisréttið í S-Afríku, hvernig kristnir menn mis- muna þar bræðrum sínum, svipta þá sjálfsögðum mann- réttindum til þess eins að auka sín eigin. Skyldi hann eiga gott með að skynja nálægð Guðs? Er yfirleitt auðvelt að hugsa sér Guð nálægan í slíkum að- stæðum? Það fer að sjálfsögðu Opnar dyr eftir því, hvernig við lítum á málin. Ef konan, sem ég nefndi, horfir ekki á neitt annað en það, sem hún missir, þá er Guð ekki nærri. Komist hitt hins vegar að í huga hennar, að ein- mitt Guð veldur því, að hún hefur engan ástvin misst, að það er hann, sem tekur þá til sín og leyfir henni þar endur- fundi og samfélag við þá síðar meir, breytist þá ekki myndin æði mikið? Sé Guð að baki henni og gefi henni styrkinn, sem hún þarf, til að standast allt, sem á hana hefur verið lagt, gegnir þá ekki öðru máli? Eins er gagnvart unga manninum. Hver er það, sem vekur réttlætiskenndina í sál hans? Hvaðan hefur hann samanburðinn, sem segir hon- um, að kynþáttamisréttið sé óréttlæti? Skyldi sá saman- burður ekki vera frá Guði kominn, frá því réttlæti, sem Kristur hefur boðað? Og ein- mitt sú hugsun vekur okkur til umhugsunar um aðra stað- reynd, þá, að einmitt vegna þess að Guð er, vegna þess að hann er okkur ekki fjarri, heldur aðgengilegur, þess vegna verður aldrei í lífinu sam- inn friður vtð þau öfl, sem mis- réttið skapa. Aður en Kristur kom, færðu menn brennifórnir til að blíðka guðina, friðþægjast við fjarlæg, duttlungafull drott- invöld. En vegna þess að hann kom, breyttist þetta. Hann færði sjálfur þá miklu kær- leiksfórn, sem allar fórnir hljóta síðan að taka mið af, þar sem fórnað er eigin hags- munum, sjálfshyggju og sjálf- umgleði öðrum til góðs og Guði til dýrðar. En fyrst og fremst opnaði Kristur dyrnar og kom til móts við okkur sem Imm- anúel, sem Guð með oss. Þess vegna sjáum við Guð í honum, sjáum vilja Guðs í öllu því, sem hann sagði og gerði. Eins og Kristur kom fram við sam- tíð sína, eins megum við vita, að Guð vill koma fram við okkur. Hann er okkur ekki fjarri. Hann er reiðubúinn með hjálp sína. Þegar við skynjum það, þá er hún fyrir hendi, ef við viljum þiggja hana. Og kannski spyr þá ein- hver: Hvar eru dyrnar? Svarið kemur frá Kristi: Ég er dyrn- ar. Ég er sú skuggsjá, sem þú átt að sjá föðurinn í. Eins og ég elska mennina og legg allt í sölurnar fyrir þá, eins er elska föðurins til þín, hver sem þú ert, hvort sem þú ert hátt eða lágt settur í metorðastiganum, hvort sem þú ert hraustur eða hrjáður, hryggur eða glaður. Það er enginn neitt af sjálf- um sér. Það er enginn neitt, nema honum sé það gefið af föðurnum. Og hans útrétta hönd til þín, lesandi minn, er Jesús Kristur, barnið í jötunni, maðurinn á krossinum og hinn upprisni, lifandi Drottinn, sem er þér alltaf nálægur, færandi þér umhyggju skapara þíns. Komdu því til hans með allar þínar áhyggjur, en ekki síður gleði þína og gæfu. Samfélagið við hann mun gera þig styrk- an. Það mun gera lífsbyggingu þína sterka og hamingju þína varanlega. Það er eins og Páll postuli ritar í Efesusbréfinu: Fyrir hann eigum vér aðgang til föðurins. Metsölubkið á hverjum degi! 73íéamatkadutinn í'l Datsun 260 C 1978 Grænn, 6 cyl., ekinn 118 þús. km, sjálfskiptur, aflstýri, útvarp. Verö 90 þús. Ath.: Skipti á ódýr- ari. ^3-ia.ttLspötu 12-18 Honda Quinted 1981 Blágrár, ekinn 15 þús. km, út- varp. Með topplúgu. Verö 125 þús. Mazda 626 1980 Kristalgrár, ekinn 37 þús. km, út- varp. Verö 105 þús. Ath.: Skipti á mjög ódýrum. Fiat 127 CL 900 2 dyra 1980, hvítur, útvarp, ekinn 30 þús. km. Verð 65 þús. Mazda 929 Station 1981 Brúnn, ekinn 12 þús. km, sjálf- skiptur, aflstýri. Verö 150 þús. Ath.: Skipti á ódýrari. Subaru 1800 árg. 1981 Drapplitur, ekinn 20 þús. km. Verö 135 þús. Ath.: Skipti á ódýrari. Citroén G.S.A. 1982 % Ljósdrapplitur, ekinn 6 þús. km. Verö 125 þús. Chevrolet Citation 1980 Blár, ekinn 7 þús. km, segul- band, snjó- og sumardekk. Verö 180 þús. Mazda 323 1980 Hvítur, ekinn 14 þús. km, útvarp, snjó- og sumardekk. Verö 85 þús. FRÆBI POPFÞÉTTAR MELÓDÍUR í ROKKRÉTTU SAMHENCI J^’unnur er / k-.f yy FbygJis. Præböbl (Þlgjast \)V' j Jl ur .skaldskapnum reynt her. ____ I ögin á plötunm eru mörg mjö^^,.- Hctt er að nefna lagið Fnöur á iörö’’r '-'fi rneðan Fræbbblarrur geta’ gert svo góða hiub vonar maöur að þeir haldi áfram. Ég truði því einfald- legaekkiaðþeirættuþetta til. I heUd má segja að Fræbbblarnir hafa mikið brey*-’" - „ó halda þeir fast í gömu’ r •j.-m. L* því að Fr- _,, betri hljór g.itxl r* I ~ ' FALKINN Suöurlandsbraut 8, Laugavegi 24, Austurveri. Heildsöludreifing sími 84670.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.