Morgunblaðið - 20.06.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982
33
„Það væri óráð ef
þeir fengju að velta
þessu út í verðlagið"
— segir viðskiptaráðherra um ný-
gerða samninga í byggingariðnaði
„Ég lít svo á að það væri óráð ef
þeir fengju að velta þessu útí verð-
lagið, en það er mál sem ríkis-
stjórnin hefur ekki og á ekki að
hafa umboð til að skipta sér af,"
sagði Tómas. Hann áréttaði að það
væri alfarið í höndum verðlags-
ráðs.
Viðskiptaráðherra vildi að fram
kæmi að hann legði áherslu á að
einstakir launahópar fengju ekki
meiri launahækkanir en almennt
semdist um. Hins vegar þyrfti að
verja kaupmátt hinna lægst laun-
uðu.
Þjóðhátíðin Reykjavik:
Ruslið með mesta móti
UM 30 MANNS frá hreinsunardeiM
Reykjavíkurborgar stóðu í ströngu
við að hreinsa til í borginni eftir
þjóðhátíðarhöldin.
Segja má, að ró hafi verið komin
á í bænum um klukkan 4 og var þá
þegar hafist handa við að hreinsa
rusl, sem nú var með mesta móti,
enda ekki óeðlilegt þar sem þátt-
takendur í hátíðarhöldunum hafa
sjaldan eða aldrei verið fleiri. Þess
ber þó að geta, að minna var um
glerbrot en oft áður, enda var ölv-
un tiltölulega lítil miðað við að-
stæður. Hreinsunin gekk mjög vel
og var henni lokið klukkan 8.30.
„ÞAÐ ER spurning hvort þeir velta
þessu út í verðlagið, en það <t mil
verðlagsráðs," svaraði Tómas Árna-
son viðskiptaráðherra er Mbl. innti
hann álits á hugsanlegum afleiðing-
um nýgerðra samninga aðila bygg-
ingariðnaðarins.
Ráðherra sagði að þessi mál
hefðu verið til umræðu innan ríkis-
stjórnar. Hins vegar lægi ekki fyrir
hvað þessir samningar raunveru-
lega þýddu, „það fer eftir því hvort
maður ræðir við fulltrúa ASÍ eða
VSÍ", sagði Tómas. „Við bíðum eft-
ir hlutlausri niðurstöðu Kjara-
rannsóknarnefndar sem forsendum
frekari umræðna innan ríkis-
stjórnar".
Smíöid sjálf meö vinum
og fjölskyldu
„Sumarhús"
Heilsárshús, þú sagar allt efníö í húsiö niöur og
nánast pússlar því svo saman eftir teikningum
okkar.
5 nýjar geröir af stæröunum frá 33 fm til 60 fm.
Teikningar af okkar húsum hafa veriö samþykktar
í flestum sveitarfélögum.
Sendum bæklinga.
„Tjaldvagn" I.
Efnislisti og
leiðbeiningar —
teikningar.
Útvegum tjöld.
„Tjaldvagn" II.
Efnislisti og
leidbeiningar.
Útvegum tjöld.
„Vatnabátur"
og toppgrinda-
búnadur á bíl.
Einfaldur í
smíði.
Sendum allar teikningar í póstkröfu
hvert á land sem er.
TEIKNIVANGUR
Laugavegi 161 - 105 Reykjavík - Simi 25901 & 11820
/m-fmsrmonimiKO
Sattaðsegja,
heyrir&i
ekkertóvenjulegt
úr PhiKps Hjómtækjum!
Þannig á það líka að vera. Hljómtæki eiga að skila nákvæmlega því sem er á
hljómplötu eða kassettu og því sem kemur úr útvarpinu. Engu skal
bætt við og engu sleppt. Þannig er það einmitt hjá Philips.
Philips hefur ávallt verið í fararbroddi í hljómtækjaframleiðslu og með því
að hagnýta sér fullkomnustu tækni sem völ er á hefur þeim tekist að
framleiða hljómtæki sem uppfylla kröfur hinna vandlátustu.
iPHILIPS
/ Phlllps hlustarðu á tónllst en ekkl á tækln sjálf!
"«**»-* -
F 1424 samstæðan með skáp kostar aðeins 9.860 kr.
2x15 watta magnari, kassettutæki, útvarp, hátalarar og skápur.
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655