Morgunblaðið - 20.06.1982, Page 19
Frumflytur
orgelverk
í Fíladelfíu-
kirkjunni
Á mánudagskvöldið 21. júní, kl.
20.30, leikur dr. Orthulf Prunner
þriðja þátt Clavieríibung eftir J.S.
Bach á orgel Fíladelfíukirkjunnar í
Reykjavík. Þetta er frumflutningur
þessa orgelverks á íslandi, því að
það hefir aldrei verið flutt í heild
hérlendis, en einstakir þættir hafa
áður verið leiknir svo sem praeludi-
an og fugan í Es-dúr og litli forleik-
urinn um sálminn „Faðir vor, sem á
himnum ert“.
Þetta er eitt merkilegasta og
erfiðasta tónverk, sem J.S. Bach
samdi og er sjaldan leikið. Þættir
þess eru tuttugu og sjö. Jafnframt
er þetta fyrsta orgelverkið, sem
J.S. Bach gaf út á eígin kostnað.
Það var árið 1739 og var hann þá
54 ára gamall.
Orgelverk þetta er reist á til-
beiðsluþáttum hinnar lúthersku
kirkju og á trúarlærdómum henn-
ar eins og þeir eru túlkaðir í
„Fræðum Lúthers“.
Dr. Orthulf Prunner er organ-
isti við Háteigskirkju í Reykjavík.
Hann hefir haldið marga tónleika
á undanförnum árum bæði hér-
lendis og erlendis. A síðastliðnu
ári lék hann Suite I’Ascension í
heild eftir Oliver Messiaen í
Kristskirkju í Landakoti og var
það frumflutningur þessa verks
hérlendis. Honum hefir verið boð-
ið að leika nú í sumar Clavier-
ubung III eftir Bach, bæði í Heid-
elberg í Þýzkalandi, en þar hélt
hann orgeltónleika á síðastliðnu
ári og hlaut frábæra dóma, og í St.
Gallen-dómkirkju í Sviss, en þar
leika ásamt honum ýmsir kunnir
listamenn á sumartónleikum dóm-
kirkjunnar, svo sem Jean-Jaques
Grunenwald og Marie-Claire Al-
ain sem bæði eru organleikarar í
París.
Aðgangur að tónleikunum í
Fíladelfíukirkjunni er ókeypis.
(Fréttatilkynning.)
Halda söng-
skemmtun í
Aratungu
á þriðjudag
Skálholti, 18. júní.
ÞRIÐJUDAGINN 22. júni nk.
klukkan 21.00, halda söngvararnir
Signý Sæmundsdóttir og Guðmund-
ur Gíslason frá Torfastöðum,
söngskemmtun í Aratungu.
Undirleikari verður Jórun Við-
ar. Á efnisskránni verða verk eftir
innlenda og erlenda höfunda.
Signý og Guðmundur hafa stund-
að nám í Söngskólanum í Reykja-
vík og getið sér góðan orðstír.
— Björn.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1982 19
ÞIMOLV
Fasteignasala — Bankastræti
SÍMAR 29680 — 29455 — 3 LÍNUR
Sumarbústaður
Grímsnesi
í landi Vaöness 6 þús. fm eignarland,
skógi vaxiö. Vandaöur bústaöur 44 fm aö
grunnfleti hæö og ris.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 - Simi 84870
Karlhjól 5 gíra - Grátt
Tegund nr. 2F702
Grindarhæð 60 cm - Hjólbarðar 622
EFÞAÐERFRETT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Portúgölsku kókosteppin í sumarbústaðinn
Falleg — Látlaus — Ódýr.
Sniðin eftir yðar óskum.
Einnig 100 cm breiðir
kókosdreglar og mikið
mottuúrval.