Morgunblaðið - 20.06.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982
37
bandalagsríkjum, sem aðild eiga
að sameiginlegu varnarkerfi þess,
um aðgerðir til að efla hernaðar-
legan varnarmátt bandalagsins.
Er því sérstaklega fagnað í þess-
ari yfirlýsingu, að Spánn skuli nú
gerast aðili að varnarkerfinu.
Ahersla er lögð á það, að efla
þurfi venjulegan vígbúnað banda-
lagsþjóðanna. Jafnframt segir, að
þjóðirnar muni sameiginlega
kanna á vettvangi NATO, hvaða
ráðstafanir kunni að vera nauð-
synlegar til að treysta varnir
bandalagssvæðisins, ef einhvert
aðildarríki beitir herafla sínum
utan þess. En vegna aðgerða
breska flotans við Falklandseyjar,
hefur verið vakið máls á því, að
flotavarnirnar til dæmis á haf-
svæðunum hér í nágrenni íslands
hafi minnkað, þótt ekki sé sér-
staklega getið um það í Bonn-
yfirlýsingunni.
Loks sendu leiðtogar NATO-
ríkjanna sextán frá sér skjal eftir
fundinn í Bonn um takmörkun
vígbúnaðar og afvopnun. Þar er
fjallað um væntanlegar START-
viðræður um takmörkun strateg-
ískra kjarnorkuvopna, INF-við-
ræðurnar í Genf um takmörkun
meðaldrægra kjarnorkuvopna,
MBFR-viðræðurnar í Vín um
samdrátt venjulegra vopna í
Mið-Evrópu, öryggisráðstefnu
Evrópu og Madrid-fundina, störf
afvopnunarnefndarinnar í Genf
og annað auka-allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna um afvopn-
unarmál. í stuttu máli er hvatt til
þess, að á þessum sviðum öllum
náist raunhæfur árangur og
minnt á, að alls staðar hafi Vest-
urlönd lagt fram víðtækar tillög-
ur, sem stuðli að gagnkvæmum
niðurskurði vopna, stöguleika og
friði.
★
í ræðu þeirri, sem Ronald Reag-
an flutti í Bundestag, þýska þing-
inu, lagði hann fram hugmynd um
fækkun hermanna í venjulegum
herafla austurs og vesturs í Mið-
Evrópu. Lagði hann til, að „þak“
yrði sett á fjölda hermanna
beggja vegna við járntjaldið, í
landhernum verði mest 700 þús-
und menn hjá hvorum aðila og
200 þúsund menn í flugher. Að
mati vestrænna aðila eru nú 790
þúsund menn í herafla NATO-
ríkjanna í Mið-Evrópu, og eru þá
franskir hermenn ekki taldir með,
enda tekur land þeirra ekki þátt í
sameiginlegu varnarkerfi NATO.
Þessir sömu aðilar telja, að nú séu
950 þúsund menn í herafla Var:
sjárbandalagsins í Mið-Evrópu. í
Vínar-viðræðunum um jafnan og
gagnkvæman samdrátt venjulegs
herafla í Mið-Evrópu, sem hófust
1973, hafa Vesturlönd í þrjú und-
anfarin ár lagt til, að fjöldi her-
manna verði miðaður við 700 þús-
und manna „þakið" og því marki
náð í tveimur áföngum. Reagan
lagði til í Bonn, að fækkunin verði
strax i einu skrefi og ráðstafnir
til eftirlits verði að nokkru frá-
brugðnar því, sem áður hefur ver-
ið um rætt. Eins og af þessu sést,
er gert ráð fyrir, að Varsjár-
bandalagið fækki um 250 þúsund
hermenn en NATO um 90 þúsund.
Er í því efni tekið mið af mismun-
andi landfræðilegri aðstöðu, því
að austan járntjaldsins yrðu her-
mennirnir í ökufæri frá sínum
gömlu stöðvum í Mið-Evrópu en
fyrir vestan þarf að flytja liðs-
auka frá Norður-Ameríku yfir
Atlantshafið.
Bundestag-ræða Reagans frá 9.
júní er þriðja ræða hans, sem hef-
ur að geyma fastmótaðar tillögur
um afvopnunarmál. 18. nóvember
1981 sagði hann, að Vesturlönd
myndu ekki setja upp meðaldræg-
ar kjarnorkueldflaugar í Evrópu á
árinu 1983, ef Sovétmenn fjar-
lægðu um 300 SS-20 kjarnorku-
eldflaugar sínar. 9. maí 1982 lagði
hann til, að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn fækkuðu hvor um sig
kjarnaoddum í strategískum
landeldflaugum sínum um þriðj-
ung.
¥■
Viðbrögð áróðursmanna
Kremlverja innan og utan Sovét-
ríkjanna við ræðum Ronald Reag-
ans og yfirlýsingu þjóðarleiðtoga
NATO-ríkjanna hafa verið með
hefðbundnum hætti. Þeir hafa
ráðist á Reagan og sérstaklega
látið í ljós sárindi yfir því, hve
harðorður hann var í garð Sovét-
ríkjanna í breska þinginu. Vék
Reagan meðal annars að efna-
hagsvanda Sovétmanna og sagði,
að síðan á sjötta áratugnum hefði
vöxtur þjóðarframleiðslu þeirra
hægt stöðugt á sér, og sé hann nú
innan við helming af því, sem
hann var þá. Komi stöðnunin í
efnahagslífinu fram í hinum
furðulegustu myndum svo sem
þeirri, að í landi, þar sem 20%
þjóðarinnar vinni að landbúnaði,
sé ekki unnt að brauðfæða þjóð-
ina. Þjóðin væri líklega í svelti, ef
ekki nyti ávaxtanna af örlitlu
einkaframtaki í landbúnaði, en
um 3% af ræktanlegu sovésku
landi væri til einkanota og af því
fengist um 25% af landbúnaðar-
framleiðslu þjóðarinnar og ná-
lægt þriðjungi af kjöt- og græn-
metisframleiðslunni.
Reagan sagði einnig í breska
þinginu, að undir fána frelsis og
lýðræðis myndi marxismanum-
lenínismanum verða kastað á
öskuhaug sögunnar og hljóta þar
sömu örlög og aðrar einræðis-
stjórnir, sem kæfa frelsi og til-
finningar fólks.
Undan þessum orðum svíður
vinum Sovétríkjanna utan þeirra
og áróðursmeistararnir í Kreml
eru fullir vandlætingar eins og
vænta mátti. Hefur enn einu sinni
verið hafin persónuleg hatursher-
ferð gegn Reagan í málgögnum
Sovétstjórnarinnar og af mál-
svörum hennar. Er þessum áróðri
dreift hér á landi bæði leynt og
ljóst og í ýmsum myndum, skýr-
ast þó af fréttastofu sovéska
sendiráðsins, APN-Novosti.
★
Leiðtogafundur NATO í Bonn
gekk fram eins og vestur-þýska
stjórnin vildi. Hann staðfesti
samheldnina innan bandalagsins
og var í yfirlýsingu fundarins,
sem hér hefur verið rakin, settur
pólitískur rammi um stefnu Vest-
urlanda í samskiptum austurs og
vesturs. 18 mánuðir eru liðnir síð-
an ríkisstjórn Ronald Reagans
settist að völdum í Washington. Á
þeim tíma hefur gengið á ýmsu
innan Atlantshafsbandalagsins
vegna áherslumunar í orðum og
gerðum. Þessi tími er nú að baki,
samstarfinu innan bandalagsins
hefur verið settur pólitískur
rammi og einnig samskiptunum
við kommúnistaríkin.
Tilgangur Ronald Reagans með
Evrópuferð sinni var meðal ann-
ars sá að afla sér aukins álits og
vinsælda í Vestur-Evrópu. Þótt
efnt væri til mótmælafunda gegn
komu hans, sýnast blöð almennt
þeirrar skoðunar, að ímynd for-
setans hafi batnað hjá almenn-
ingi. Strax eftir fyrsta fund
þeirra Francois Mitterrand og
Ronald Reagans var sagt, að vel
hefði farið á með þeim. Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Breta,
átti ekki nægilega sterk orð til að
lýsa því, þegar hún kvaddi Reag-
an í London, hvað hún væri
ánægð með komu hans. Helmut
Schmidt hlýtur að una sínum hlut
vel, eftir að hafa náð flestum
markmiðum sínum með því að
halda leiðtogafundinn i Bonn. Og
Gunnar Thoroddsen, forsætisráð-
herra, sem hitti Reagan í fyrsta
sinn á fundinum í Bonn, sagði í
útvarpinu við heimkomuna, að
Reagan hefði vaxið sem mikilhæf-
ur stjórnmálamaður á þessum
fundi.
Bj-Bj.
st h.r
nau
Siðumúla 7-9, simi 82722.
BNanaust h.f. hefur nú á boðstólum hljóókúta,
púströr og festingar I flestar geröir blla. Stuðla-
berg h.f., framleiða nlðsterk pústkerfi og hljóð-
kúta sem standast fyllilega samkeppni við sams
konar framleiðslu erlendra fyrirtækja. Þessa isl-
ensku gæðaframleiðslu erum við stoltir af að
bjóða viðskiptavinum vorum jafnhliða vörum frá
HIJÓÐKÚTAR
PUSTKERFI
Suzuki Fox er sterkbyggóur og lipur jap-
anskur jeppi, sem hentar sérstaklega vel
fyrir íslenskar aðstæður
Byggöur á sjálfstæðri grind.
Eyósla 8—10 I pr. 100 km.
Hjólbaröar 195x15 — sportfelgur.
Hæö undir lægsta punkt 23 cm.
Stórar hleðsludyr að aftan.
Aftursæti sem hægt er velta fram.
4ra strokka vél, 45 hestöfl.
Hátt og lágt drif.
Beygjuradíus 4,9 m.
Þyngd 855 kg.
Rúmgott farþegarými m/sætum fyrir 4.
Verð kr. 106.000,00
(gengi 20/5 82)
Söluumboð:
Akranes:
Borgarnes:
isafjöröur:
Sauöárkrókur:
Akureyri:
Húsavík:
Reyöarfjöröur:
Egilsstaöir:
Höfn í Hornafiröi:
Selfoss:
Hafnarfjöröur:
Ólafur G. Ólafsson, Suöurgötu 62,
Bílasala Vesturlands,
Bílaverkstæöi ísafjarðar,
Bílaverkstæði Kaupf. Skagfirðinga,
Bílasalan hf„ Strandgötu 53,
Bílaverkstæði Jóns Þorgrímssonar,
Bílaverkstæðið Lykill,
Véltækni hf„ Lyngási 6—8,
Ragnar Imsland, Miðtúni 7,
Árni Sigursteinsson, Austurvegi 29,
Bílav. Guðvarðar Eliass., Drangahrauni 2,
sími 93-2000.
sími 93-7577.
sími 94-3837.
sími 95-5200.
sími 96-21666.
sími 96-41515.
sími 97-4199.
sími 97-1455.
sími 97-8249.
sími 99-1332.
sími 91-52310.
Sveinn EgHsson hf.
Skeifan17. Sími 85100
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl AIGI.YSIR I M ALLT LAND ÞEGAR
Þl AI GLYSIR I MORGI NBLAÐINL
V