Morgunblaðið - 20.06.1982, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982
Ronald Reagan kemur á fund með ríkisstjðrn sinni I Hvíta húsinu.
HENRY A. ■■■
KISSINGER: ^
^3 ATBURÐIRNIRI
iH PÓLLANDI
OG REAGAN FORSETI
46
ótt nú séu liðnir nær 6
mánuðir frá setningu her-
laga í Póllandi, liggur enn
ekki fyrir sameiginlega mörkuð
stefna vestrænna ríkisstjórna um
það, hvort veita eigi peningastofn-
unum í einkaeign leyfi til þess að
dæla sparifé Vesturlandabúa inn í
efnahagslíf Póllands, en það skipt-
ir sköpum fyrir Pólverja. Hvað
varðar erfiðleikana á efnahagsleg-
um þvingunum af hálfu Banda-
ríkjanna og álit manna á þéim, þá
er eitt víst, að þeir erfiðleikar
myndu ekki eiga við um stjórn-
málaleg samskipti okkar við
kommúnistaríkin. Akvörðunin um
það, á hvern hátt skuli haga
stjórnmálasambandinu við
Austur-Evrópu er í höndum æðstu
stjórnvalda okkar; þar er ekki þörf
á neinum afskiptum bandaríska
þingsins. Engir einkahagsmunir
eru þar í hættu. Hlutdeild banda-
manna okkar í milliríkjasamning-
um Bandaríkjanna við Austur-
Evrópu er vart teljandi.
Hvernig er þá hægt að útskýra
þennan ákafa okkar Bandaríkja-
manna við að halda áfram alls
konar samningaumleitunum.
Hvernig er unnt að koma þeim
fullyrðingum heim og saman, að
Sovétríkin beri sökina á kúguninni
í Póllandi, en við höldum samt
áfram að taka þátt í ráðstefnunni
í Madrid, sem fjallar einmitt um
það Helsinki-samkomulag, sem
virt er svo algjörlega að vettugi í
Póllandi þessa stundina? Hvaða
skýringar eru til á fundum
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
og utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna á meðan herlög gilda í Pól-
landi og fangabúðir eru þar enn
við lýði? Hvað er það, sem gerir
fund Brézhnevs og Reagans svo
bráðnauðsynlegan við þessar
kringumstæður. Hvað mega
bandamenn okkar, og raunar aðrir
hlutaðeigandi aðilar einnig, álíta
og álykta um þvingunaraðgerðir
af nkkar hálfu og samn-
ingaviðræður æðstu manna, sem
haldið er uppi á einum og sama
tíma?
Mér er vel kunnugt um þau
gagnrök, að sumar samningavið-
ræður séu of mikilvægar til að
láta ókyrrð og hverfulleika í
heimspólitíkinni á líðandi stund
hafa úrslitaáhrif á gang þeirra.
Því er haldið fram, að Madrid-
ráðstefnan sé kjörinn vettvangur
til þess að fletta ofan af glæp-
samlegri sök Sovétríkjanna á at-
burðunum í Póllandi, að Haig
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
muni hundskamma hinn sovézka
starfsbróður sinn, Gromyko, eða
að Reagan forseti muni svo sann-
arlega tala yfir hausamótunum á
Brézhnev. Skriffinnum banda-
ríska utanríkisráðuneytisins verð-
ur aldrei skotaskuld úr því að tefla
fram hinum hugvitsamlegustu
skynsemisrökum fyrir því að láta
fremur tala um málin en að taka á
þeim. Þeir virðast sannfærðir um,
að með þeirri einlægni, sem við
Bandaríkjamenn leggjum í mál-
flutning okkar, raunum við hafa
spekjandi áhrif jafnvel á fram-
ferði valdhafanna í Kreml.
En við þurfum tæpast á
Madrid að halda til þess að
refsa Sovétríkjunum fyrir
yfirsjónir þeirra; Washington og
Sameinuðu þjóðirnar væru fullt
eins hentugur vettvangur til þessa
og ekki eins neyðarlegur. Fundir
utanríkisráðherra og fundur
æðstu manna stórveldanna geta
verið nytsamlegir, en þó ekki þeg-
ar stofnað er til þeirra af slíkri
fullkominni léttúð — eða undir-
búningi þeirra jafnvel hraðað á
sömu stundu og fyrstu fregnirnar
bárust um að lýðfrelsi sé fótum
troðið í Mið-Evrópu. Það getur
ekki þjónað pólitískum hagsmun-
um Bandaríkjanna, að við skulum
auka stórlega samskipti hátt-
settra embættismanna okkar við
sovézka ráðamenn meðan ríkir
pólitískt vandræðaástand, sem
Sovétríkin eiga sök á. Það væri þá
helzt, að við vildum endilega
hvetja Sovétríkin til að koma af
stað enn frekari pólitískum vand-
ræðum.
Ég hef verið nokkuð hikandi við
að gagnrýna utanríkismálastefnu,
sem að nokkru hefur verið mótuð
af svo mörgum vina minna og
fyrri samstarfsmönnum. Ég ber
fullt traust jafnt til þeirra sem og
starfsfélaga þeirra. Ég fagna því,
hve mjög þeir láta sér annt um að
viðhalda stefnunni um friðsam-
lega sambúð ríkja. En þessu
markmiði ná þeir hins vegar ekki
fram, nema þeir veiti mótaðilan-
um verðuga refsingu fyrir póli-
tíska þvermóðsku, en hvetji hann
jafnframt til að taka upp hófsam-
ari og sáttfúsari stefnu. Eigi frið-
urinn að vera bæði varanlegur og
skynsamlegur, verður hann ekki
einungis að hafa hagkvæmni í för
með sér, heldur og þá tilfinningu
að réttlæti ríki.
(The New York Times.)
mm 'y*?'* Wif " i
Trésmiðjan Víðir
auglýsir
Vorum aö fá þessi glæsilegu húsgögn frá Old
Charm. Gott verö og góöir greiðsluskilmálar.
Verslið þar sem úrvaliö er mest og kjörin best.
Verslið í Víði.
Trésmiðjan Víðir,
Síöumúla 23, Dúnahúsinu,
sími 39700.
Tækifærið gríptu greitt
Til afgreiöslu STRAX
fyrir næstu STÓRHÆKKUN
• Toyota Celica — Liftback
• Toyota Carina — Liftback
• Toyota Corolla — Liftback
Bílar þessir eru nýir, ókeyrðir, árgerð 1981, og vegna góðra samninga
eru þeir á mjög hagstæðu verði.
8B
BÍLASALAN BUK s/f
SÍOUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK
SÍMI: 86477
LEITID UPPLÝSMGA
Að hika er sama og tapa