Morgunblaðið - 10.07.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982
Þriggja ára
drengur höfuð-
kúpubrotinn
ÞRIGGJA ára gamall drengur á
hjóli varð fyrir bíl á Eikjuvogi laust
eftir hádegi í gær og slasaðist hann
talsvert, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá slysarannsókn-
ardeild lögreglunnar í gær.
Slysið varð með þeim hætti að
drengurinn hjólaði á litlu reiðhjóli
með hjálpardekkjum, út úr inn-
keyrslu að húsi og lenti á vinstra
afturhjóli bifreiðar, sem leið átti
um götuna. Við rannsókn á slysa-
deild kom í ljós að drengurinn var
höfuðkúpubrotinn, en hann er
ekki talinn í lífshættu, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
47 rússneskir
togarar að veiðum undan
Reykjanesi
SAMKVÆMT upplýsingum Land-
helgisgæzlunnar eru rússneskir
togarar enn að karfaveiðum djúpt
undan Reykjanesi. Þegar vél
Landhelgisgæzlunnar flaug síðast
yfir veiðisvæðið, sem er um 60
mílur fyrir utan 200 mílna mörk-
in, voru 47 rússneskir togarar að
veiðum, auk birgðaskipa og ann-
ara hjálparskipa.
Rússar hófu karfaveiðar á þessu
svæði snemma í vor og virðast
þeir hafa aflað mjög vel á þessum
slóðum.
Nauðungaruppboð
á Manhattan
NAUÐUNGARUPPBOÐ hefur
verið ákveðið á veitingastaðnum
Manhattan við Auðbrekku í Kópa-
vogi mánudaginn 19. júlí næst-
komandi. I gær var haldinn
skiptafundur í búinu og þá tekin
ákvörðun um nauðungaruppboð.
Enn er ekki vitað hve miklar kröf-
ur verða gerðar í þrotabúið, þar
sem kröfufrestur er ekki enn út-
runninn, að því er Morgunblaðinu
var tjáð hjá bæjarfógetaembætt-
inu í Kópavogi í gær.
Rabbað við íslendinga í MUnehen ojí Róm um HM í knattspyrnu
„Hér snýst allt um þetta“
„í GÆR eftir leik V-Þjóóverja og
Krakka, fór fólk út á götur með
fána, það er mikil stemmning í
kringum þetta. Og það eru auðar
götur meðan á leikjunum stendur,
það horfa allir á þetta.“ sagði Val-
ur Ingimundarson, sem stundar
nám í Miinchen, þegar Morgun-
blaðið spurði hann um andrúms-
loftið í V-Þýskalandi, eftir að Þjóð-
verjar komust í úrslitin. „Það er
mikið um það að fólk hittist á
krám og horfi á leikina þar. Við
horfðum á leik Vestur-Þjóðverja
og Frakka í gær og ég hef aldrei
upplifað annað eins fyrir framan
sjónvarpið. Við vorum á krá og það
var mikil stemmning, enda snýst
allt um þetta hér, þessa dagana.“
— Eru menn bjartsýnir á að
V-Þjóðverjar vinni heimsmeist-
aratitilinn?
„Já, mjög. Fyrir keppnina var
gerð skoðanakönnun og það voru
60% sem töldu að V-Þjóðverjar
myndu vinna, en eftir þetta tap á
Paolo Rossi skorar hér fyrra mark sitt á móti Pólverjum, en hann hefur
skorað öll mörk ítala í síðustu tveim leikjum, 5 að tölu, og með því slegið
bæði Brasiliumenn og Pólverja út úr keppninni.
móti Alsír, hrapaði það eitthvað
niður, en ég held að það sé komið
upp aftur. Eg held að menn hafi
trú á sínum mönnum. Það gerir
stoltið."
— Hvað segja blöðin, eru
menn ánægðir með frammistöðu
þýska liðsins?
„Eftir leikinn á móti Austur-
ríki, þá var mjög slæmt hljóðið í
pressunni, en þetta hefur batn-
að, þeir eru byrjaðir að viður-
kenna þá aftur. Blöðin segja um
leikinn í gær, að hann hafi verið
frábær. Þau eru mjög ánægð
með sína menn, en það kemur
fram líka, að þau virða frammi-
stöðu Frakkanna og segja að
þetta hefði getað farið á hvorn
veginn sem var, sem er í raun og
veru rétt.“
— Viltu spá einhverju um úr-
slitin?
„Ég veit ekki, vona bara að
Þjóðverjar sigri. Eigum við ekki
að segja 2—1.“
„Hreint út sagt brjálæði“
„ÞETTA er hreint út sagt brjálæði.
Hér eru menn veifandi fánum út
um allar götur og allir bílar píp-
andi, þeir halda víst að þeir séu að
vinna, enda eru þeir himinlifandi,"
sagði Hilmar Kristjónsson, starfs-
maður FAO í Róm, þegar Mbl.
hafði samband við hann og leitaði
fregna af ástandinu á Ítalíu, í til-
efni af því að ítalir eru nú komnir
í úrslit í heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu.
„Ég hef aldrei upplifað neitt
slíkt á 30 ára dvöl á Ítalíu. Ég og
konan mín fórum út að borða,
eftir að leik Ítalíu og Póllands
var lokið og konan mín varð
hrædd við öll lætin, og er hún þó
enginn veifiskati." Það kom
Klaus Fischer, sem skoraði þriðja mark Vestur-Þjóðverja á móti Frökk-
um sést hér leika sundknattleik 12 timum eftir sigurinn gegn Frökkum.
fram hjá Hilmari, að Rómaborg
er fánum prýdd þessa dagana,
stórir fánar hanga utan á húsun-
um, en einkum er þó mikið um
að fánar séu á bílum og ítalir
fari út í bíla sína að loknum sigri
sinna manna og aki um flagg-
andi og flautandi í sigurvímu.
Hilmar sagðist ekki hafa séð
blöð eftir leik ítala og Pólverja,
en eftir að sigurganga ítala
hófst, með sigrum þeirra yfir
Argentínumönnum og Brasilíu-
mönnum, eftir heldur slælega
byrjun, hefðu þau verið í sigur-
vímu, enda hefur góð frammi-
staða Itala komið mjög á óvart
og þeir fáir sem spáðu þeim ein-
hverju gengi í keppninni.
Hjólareiöalestin:
2.900 km.
lagðir að
baki í
gærkvöldi
Hjólreiðalestin „Eflum
íslenzkt" kemur til Reykja-
víkur á sunnudag, eftir að
hjólað hefur verið kringum
landið.
Hjólreiðalestin fór frá Flóka-
lundi klukkan 8 í fyrramorgun
og var farið í Búðardal, en þang-
að var komið klukkan 01 í fyrri-
nótt. Mikil þáttaka var á þessari
leið og er talið að eigi færri en
500 manns hafi þá hjólað á hjól-
unum þremur, sem notuð eru í
ferðinni. Hjólreiðamennirnir
fóru síðan af stað frá Búðardal í
gærmorgun og var reiknað með
að komið yrði að Arnarstapa á
Snæfellsnesi á miðnætti síðast-
liðið. Þegar í Arnarstapa er
komið verður búið að hjóla 2.900
kílómetra.
Þegar komið verður til
Reykjavíkur á sunnudagsmorg-
un verður stöðvað við Sýn-
ingarhöllina á Ártúnshöfða , en
klukkan 13 verður hjólað frá
Sýningarhöllinni inn í Árbæ og
þaðan yfir Höfðabakkabrúna inn
í Breiðholt. Hjólað verður í
gegnum efra Breiðholtið, yfir á
Breiðholtsbraut. Þaðan liggur
Matthías Lýðsson, formaður
Hérðassambands Strandamanna,
veður með eitt hjólið yfir á á
Steingrímsfjarðarheiði.
leiðin inn í Kópavog, en þar
verður farið eftir Nýbýlavegi yf-
ir á Hafnarfjarðarveg og eftir
honum inn í Reykjavík aftur.
Loks verður hjólað eftir
Hringbrautinni, inn Sóleyjar-
götu, eftir Fríkirkjuveginum,
Lækjargötu og yfir á Lækjartorg
kl. 14.00.
Á Lækjartorgi hefst skemmti-
dagskrá kl.13.15 með því að
hljómsveitin Upplyfting mætir
og leikur nokkur létt lög, ávörp
flytja þeir Davíð Oddsson borg-
arstjóri og Pálmi Gíslason for-
maður UMFÍ.
Ákveðid að leggja annarri
Boeing 747 vél Cargolux
„ÁSTÆÐAN fyrir þessum miklu
vandræðum fyrirtækisins er fyrst og
frcmst gífurlega aukin samkeppni,
auk þess sem dregið hefur úr ílutn-
ingurn," sagði Sigurður Helgason, for-
stjóri Flugleiða, sem sæti á í stjórn
('argolux, en Flugleiðir eiga þar 25%
hlutafjár, í samtali við Mbl. er hann
inntur eftir stöðu mála hjá Cargolux-
flugfélaginu í Luxemborg, sem á í gíf-
urlcgum vandræðum um þessar
mundir.
— Á síðasta stjórarnarfundi í
Cargolux urðu miklar umræður um
stöðu fyrirtækisins og var m.a. tek-
in ákvörðun um að leggja annarri
af tveimur Boeing 747 þotum fé-
lagsins, sem hefur lítil sem engin
verkefni í dag. Þá var ákveðið, að
leita eftir gjaldfresti hjá þeim
bönkum og öðrum aðilum, sem
fyrirtækið hefur átt í viðskiptum
við, sagði Sigurður Helgason enn-
fremur.
— Það var einnig ákveðið að
leita eftir aðstoð ríkisstjórnarinnar
í Luxemborg til þess að halda
rekstri fyrirtækisins áfram, auk
þess sem ákveðið var að segja upp
allt að 150 starfsmönnum til þess
að styrkja stöðu fyrirtækisins,
sagði Sigurður Helgason ennfrem-
ur.
Þess má geta, að hjá Cargolux
starfa liðlega 600 starfsmenn og af
þeim eru um þriðjungur íslend-
ingar, sem eru búsettir í Luxem-
borg. Flugfloti félagsins telur nú
tvær Boeing 747 þotur og þrjár
DC-8 þotur. Sem dæmi um hinn
mikla samdrátt, sem átt hefur sér
stað í rekstri félagsins, má nefna að
félagið flug sl. haust 5 ferðir á viku
til Hong Kong, en í dag eru aðeins
farnar tvær ferðir á viku.
Svavar Gestsson í viðtali við Þjóðviljann:
Efasemdir um stöðu ríkis-
stjórnarinnar á Alþingi
„EN ÞAÐ sér hver maöur að stjórn-
in vinnur sig ekki fram úr vandan-
um né veitir þá leiðsögn sem nauð-
synleg er nema að staða hennar sé
traust á Alþingi," segir Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, í viðtali við Þjóðviljann í
gær. Tilefni viðtalsins eru umræður
meðal aðila að ríkisstjórninni um
efnahagasmál og verða ofangreind
orð Svavars Gestssonar ekki skilin á
annan veg en sem áminning til
Gunnars Thoroddsen, forsætisráð-
herra, um að hann tryggi meirihluta-
stuðning við ríkisstjórnina á Alþingi.
Svavar Gestsson leggur á það
áherslu, að Alþýðubandalagið hafi
„ekki lagt það í vana sinn að
hlaupa frá vandamálunum eins og
sumir aðrir“. Segir formaður Al-
þýðubandalagsins, að flokkur sinn
muni „leggja áherslu á aðgerðir
sem byggjast á félagslegum við-
horfum flokksfélaga okkar" þegar
„mál hafa skýrst enn frekar á
efnahagssviðinu". Telur hann þörf
á „heildaraðgerðum" og segir enga
ástæðu „til þess að mikla fyrir sér
vandann eða láta hann telja úr sér
kjark".
' Um stöðu ríkisstjórnarinnar á
Alþingi segir Svavar Gestsson:
„Það kom að vísu fram á Alþingi í
vetur að þeir sem höfðu með bein-
um eða óbeinum hætti stutt ríkis-
stjórnina virtust hafa losað um
tengsl sín við sjálfstæðismennina
í stjórninni. Það verður að koma í
ljós hvað þeir hugsa sér að gera í
framhaldinu. En það sér hver
maður að stjórnin vinnur sig ekki
fram úr vandanum né veitir þá
leiðsögn sem nauðsynleg er nema
að staða hennar sé traust á Al-
þingi."
Þessi ummæli Svavars Gests-
sonar birtast í Þjóðviljanum eftir
að blaðið hefur í nokkra daga
skrifað um bréf Eggerts Haukdal,
alþingismanns, til forsætisráð-
herra í fréttum og ritstjórnar-
greinum.