Morgunblaðið - 10.07.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JIILÍ1982
5
Eggert
Guðmundsson
sýnir I Eden
Hveragerði, 7. júlí.
í EDEN í Hveragerði stendur nú yfir
merkileg myndlistarsýning. Þar er á
ferðinni Eggert Guðmundsson list-
málari með 30 myndir, oliumálverk
og teikningar. Myndefnið er sótt í
isíenzkt þjóðlíf að fornu og nýju og
má sjá þar vinnubrögð, sem heyra
fortíðinni til og eru farin að gleym-
ast, svo sem ullarþvotta, tóvinnu
o.fi. Eru nokkrar myndanna til söhi.
Eggert er einn okkar elzti og
þekktasti málari og því óþarft að
kynna hann hér, en hann hefur
haldið 50 sýningar, heima og er-
lendis.
Ég bað Eggert um að segja mér
eitthvað um þessa sýningu. Hann
kvaðst hafa málað flestar þessar
myndir á þessu ári og væru sumar
þeirra tæpast fullgerðar ennþá.
Mundi hann vinna að þeim og
fleiri verkefnum til haustsins, en
þá ætlaði hann að halda stærri
sýningu í Reykjavík. Hann sagðist
nú vera á sjötugasta og sjötta ald-
ursári og væri þessi sumarsýning
örlítið framlag til árs aldraðra.
Eggert sagðist nú sýna öðru
sinni í Eden og félli sér það vel.
Eden væri tvímælalaust bezti sýn-
ingarstaður á landinu hvað aðsókn
snerti, hér kæmu, vægt áætlað,
um 20 þúsund manns að jafnaði
þær 2 vikur, sem hver sýning
stæði yfir. Hingað til Hveragerðis
kæmu nær allir útlendingar, sem
kæmu til landsins og væru trúlega
þessar sýningar í Eden eina sýn-
ishornið af íslenzkri myndlist,
sem sumir þeirra sæju í förinni.
Því bæru málararnir mikla áb-
yrgð á þeirri landkynningu, sem
þarna gæfi að lita og væri þýð-
ingarmikið að vel tækist til og að
verkin lofuðu meistarana.
Að endingu má geta þess, að
sýningarsvæðið í Eden var nýlega
„skírt“ og hlaut nafnið JLista-
mannaskálinn". Fer vel á því að
þessi aldna kempa skuli vera þar
fyrstur á ferð með þessa þjóðlegu
sýningu.
— Sigrún
$4 hvalir
ÁTTATÍU og tveir hvalir hafa komið
nú á land í HvaLstöðinni í IlvalfirAi,
samkvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaAiA fékk í Hvalfirði í gær.
Hvalbátur með tvo hvali er nú á
leiðinni til hafnar. Þetta er mjög
góð veiði miðað við úthaldsdaga,
að því er Magnús D. Ólafsson
verkstjóri tjáði Morgunblaðinu í
gær.
Kjarvalsstaðir:
Sýningu Magn-
úsar að ljúka
SÝNINGU Magnúsar Tómasson-
ar, „Sýniljóð og skúlptúr", lýkur
um helgina. Magnús hlaut sem
kunnugt er, starfslaun Reykjavík-
urborgar, á liðnu ári, fyrsti lista-
maður sem þau hlýtur, og var af
því tilefni boðið að sýna verk sín á
Kjarvalsstöðum, í tilefni Listahá-
tíðar. Á sýningunni eru 83 verk,
myndverk, teikningar og skúlptúr-
ar, og eru þau flest til sölu. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl.
14—22, og lýkur á sunnudags-
kvöld.
Leiðrétting
í kynningu, sem Mbl. barst
vegna sýninga á kvikmyndinni
Airport SOS kom fram, að myndin
væri sýnd í Nýja bíói í Keflavík og
var svo sagt í frétt blaðsins í gær.
Hið rétta er, að það er Bíóhöllin í
Reykjavík, sem myndina sýnir, en
bæði kvikmyndahúsin eru í eigu
sama aðila.
Lóð í Skerjafirði
Til sölu er eignalóð undir einbýlishús á sérlega góö-
um staö í Skerjafiröi. Þeir sem áhuga hafa á lóöa-
kaupunum sendi tilboö til augl. Mbl. fyrir miöviku-
dagsdvöld 14. júlí. Merkt: „Nýja hverfiö — 3208“
Aukasending! Mazda
929
Rafknúin sóllúga Álfelgur Veltistýri (standard í Limited) Rafknúnar rúður og dyra-
Vegna mikillar eftirspurnar eftir Mazda 929 hefur okkur tekist að
fá takmarkað viðbótarmagn af þessum vinsælu bílum. Þeir eru nú
í skipi og verða til afgreiðslu nú á næstu dögum.
Komið og skoðið Mazda 929 sedan og hardtop í sýningarsal okkar,
gerið samanburð á verði, búnaði og gæðum og tryggið ykkur síðan
bíl, því aðeins örfáum bílum er óráðstafað.
BÍLABORGHF.
Smiðshöfða 23, sími 812 99.
læsingar (standard í Limited)
Verð:
Mazda 929 Super Deluxe
Sedan kr. 140.200.-
Mazda 929 Limited
Sedan kr. 153.500.-
Mazda 929 Limited
Hardtop kr. 159.000.-
(gengissk. 6.7. 82)