Morgunblaðið - 10.07.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JULI 1982
11
núverandi starfsmannafjölda, þ.e.
250, ætti birtingafjöldinn að vera
162 ritgerðir, samkvæmt íslenska
meðaltalinu en 260 samkvæmt þvi
erienda. Islenskir háskólamenn
eru þannig um 37% undir hinu
erlenda meðaltali. Þó að saman-
burðurinn sé auðvitað mjög
ónákvæmur, gefur hann að mínu
viti athyglisverða vísbendingu,
einkum þegar á það er litið að ég
hef að öllum líkindum sett gæða-
kröfur lægra.
En lestur á Skrá um rit Há-
skólakennara leiðir einnig sitt-
hvað fleira athyglisvert í ljós, ef
að er gáð. í fyrsta lagi kemur fram
að rúm 21% ritgerðanna eru sam-
in af mönnum sem starfa við
rannsóknarstofnanir háskólans,
en eru ekki kennarar. 18,5% til
viðbótar eru unnin af kennurum
sem aðstöðu hafa við sömu stofn-
anir. Þ.e. rúm 40% af framleiðsl-
unni koma þaðan sem aðstaðan er
skárst, en tengslin við kennslu eru
að ætla má lítil. í öðru lagi er
talsvert magn þessarar rannsókn-
arvinnu unnið í samvinnu við út-
lendinga, og að ætla má oft með
fjárstuðningi erlendis frá. Stund-
um finnst mér að lesa megi á milli
lína að hér sé um að ræða sam-
starf sem hefur hafist meðan við-
komandi var við nám erlendis,
heldur áfram í nokkur ár eftir að
heim er komið, en síðan tekur að
draga úr því og jafnframt dregst
framleiðslan saman. í þriðja lagi
er allmikið, raunar langmest, en
litlar rannsóknir, einangruð verk-
efni sem standa skamman tíma.
Og í fjórða lagi er stærsti hluti
ritsmíðanna þess eðlis að vart
þarf mikið annað en tíma, nokkrar
bækur og tímarit til þess að vinna
að þeim. Eg útlista þetta ekki
frekar. Hver og einn getur skoðað
plaggið og túlkað það eftir sínu
höfði. En mér virðist það segja
heldur dapurlega sögu um rann:
sóknarstarf við Háskóla íslands. í
öllu falli virðist mér ljóst, að Há-
skóli Islands er ekki í fararbroddi
í menningar- og vísindalífi þjóðar-
innar. Til þess að svo væri þyrfti
hann að vera uppsprettulind
frjórrar umræðu og rannsókna í
bókmenntum, tungu og sögu þjóð-
arinnar, listum og lífsvenjum
hennar, þjóðfélagsgerð, efnahags-
lífi og trúarlífi. Það er hann ekki.
Þaðan ættu að koma hinar mark-
verðustu rannsóknir í raun-
vísindum og heilbrigðisvísindum.
Svo er heldur ekki. Raunar er það
svo á sama tíma sem Háskóli ís-
lands hefur verið sveltur að fé,
hefur hver stofnunin á fætur ann-
arri risið upp utan háskólans og í
litlum tengslum við hann. Þessar
stofnanir gegna veigamiklum
rannsóknarverkefnum. Til þeirra
virðist ekki sparað fé og þær
bjóða, eða gætu a.m.k. boðið betri
þjálfunarskilyrði fyrir stúdenta
en háskólinn sjálfur. Hvað veldur?
Er það vantraust á háskólakenn-
ara? Og ef svo er virðist það ekki
hálf öfugmælakennt að gera kröf-
ur til þess að færustu vísinda-
mennirnir starfi við háskólann.
Það þarf varla doktorspróf til þess
og langan lista verðleika til að
skila sem svarar hálfri tíma-
ritsgrein á ári.
Ef einhver skyldi ætla að ég sé
að ásaka kennara um athafna-
deyfð, skal sá misskilningur leið-
réttur að bragði. Það sýnir sig
líka, að þar sem aðstaðan er best
eru athafnir mestar. Megin ástæð-
urnar eru vitaskuld fólgnar í að-
stöðuleysi. Þar kemur fyrst í flokk
fjárskortur. Ég hef athugað
hversu hátt hlutfall af rekstrar-
fjárveitingum til háskólans fer til
rannsóknastarfsemi á þremur ár-
um. Fyrir 1977 er hlutfallið 6,6%,
næsta ár 1978, hækkar það svolítið
eá í 7,5%, en nú í ár sígur heldur á
ógæfuhlið, því að talan lækkar í
7,2%. Þetta eru vissulega óhugn-
anlega lágar tölur fyrir stofnun,
sem kennir sig við vísindi. Þess
ber þó að geta, að hér eru ekki
innifaldar rannsóknarstofnanir
sem hafa sjálfstæðan fjárhag.
Hlutfallið 7,2% er rúmar 180
milljónir og skiptist það á milli
átta deilda og þeirra stofnana sem
sameiginleg fjárlög hafa. Sú deild
sem hæst er fær 66 millj. Af því
fer nokkuð til verklegrar kennslu,
afgangurinn er skerfur 60—70
kennara. Rúmar 40 millj. fara til
starfsemi sem teljast verður að
mestu til þjónusturannsókna.
Sumar deildir fá aðeins 2—3 millj.
í sinn hlut. Það liggur í hlutarins
eðli að stórvirki verða ekki unnin
fyrir þetta fé. Og í rauninni engin
tök að vinna að öðru en litlum,
fljótunnum verkefnum.
Það er fróðlegt til samanburðar
að skoða fjárveitingar til rann-
sóknastarfsemi utan háskólans.
Þær eru af nokkuð annarri stærð-
argráðu. Þannig fær Hafrann-
sóknarstofnun um 1300 millj.,
Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðar-
ins um 230 millj., Orkustofnun
1122 millj. (Auk þess er Orkusjóð-
ur með 5 milljarða framlag og fer
hluti þess til rannsókna), Rann-
sóknarstofnun byggingaiðnaðar-
ins 162 millj. og Iðntæknistofnun
287 millj.
Til þess að stunda rannsóknir
þurfa menn oft tækjabúnað.
Framlög háskólans til þeirra
hluta eru 60 millj. í ár. Það er
helmingur þess sem ein deild bið-
ur um, eftir að hafa skorið niður
upphaflegar beiðnir sínar um tvo
þriðju hluta. Sú deild fær nú 30
millj. í sinn hlut. Þegar búið er að
skipta þeirri upphæð niður á milli
starfseininga í deildinni, kemur í
ljós að ekkert rannsóknartæki
fyrirfinnst sem er svo ódýrt að
skerfurinn nægi til kaupa á því.
Þessa sögu geta aðrar deildir sagt.
Öllum er kunnugt aðstöðuleysi
hvað húsnæði varðar og fer ég
ekki nánar út í þá sálma ...“
Þetta er þá heimildin, sem Ein-
ar Pálsson vitnar til. Hér má auð-
vitað finna setningar, sem nota
má sem röksemd fyrir ásökunum
um ódugnað og leti okkar kennara,
séu þær slitnar úr samhengi og
teknar einar sér. En þessi kafli
ætti held ég að taka öll tvímæli af
um það, að sú skoðun er fjarri öll-
um sanni. Og enginn sem rétt vill
fara með annarra sjónarmið lætur
sér nægja að slíta einstakar setn-
ingar úr samhengi. Hann lætur
sér auðvitað umhugað um að lesa
textann í samhengi. Ég er viss um
að þannig vill Einar Pálsson láta
lesa sín verk. Má ég biðja hann að
unna mér sama réttlætis?
Vígslubiskupshjónin Aðalbjttrg Halldórsdóttir og Sigurður Guðmundsson. Á
bak við þau sjást nokkrar bækur Sigurðar, en láta mun nærri að hann eigi
um 12 þúsund bindi bóka og tímarita.
hann tók við biskupsembættinu.
Hyggstu segja af þér þessum emb-
ættum til þess að geta helgað þig
betur starfinu, sem biskup, fela
öðrum þetta, svo þú hefðir ekki
þetta í ofanálag? Yrði um meiri
valddreifingu að ræða?
— Ekki á meðan þetta er eins
og nú er. En svo hlýtur að fara, ef
starf vígslubiskupa verður aukið,
þá leiðir það af sjálfu sér, að þá
verð ég að láta kannski af hvoru
tveggja. A.m.k. einhverju af þessu
eða töluverðu. En á meðan þetta
er allt óákveðið, þá geri ég ráð
fyrir því, að þetta verði svipað og
verið hefur. Én þó hlýtur þetta að
verða þannig, að starf mitt mun
aukast. Og ekki sízt ferðalög um
Stiftið.
— Nú hefur verið rætt um það
undanfarið, að jarðnæði hafi
gengið úr eign kirkjunnar, hlunn-
indi og aðrar eignir. Býstu við því
að þú vísiterir söfnuði í staðinn
fyrir biskup til þess að oftar verði
um biskupsvísitasíur að ræða. Og
þess verði betur gætt, að ekki
gangi jarðir undan kirkjunni?
— Ég geri nú ekki ráð fyrir því
að öllu óbreyttu, að vígslubiskupar
fari í vísitasíur eins og biskup hef-
ur gert, nema að hann feli þeim
það sérstaklega. Hitt er náttúru-
lega, að það hlýtur að verða svo,
að við lítum eftir og höfum eftirlit
ásamt próföstunum. Nú hefur það
verið svo, að prófastar hafa fengið
stöðugt meira og meira starf, eft-
irlitsstarf. Er það gott að svo sé.
En gjarnan í samráði við þá og
með þeim.
— Nú hafa starfsaðferðir og
starfsvettvangur kirkjunnar
breytzt mikið á undanförnum ár-
um. Telur þú, að vígslubiskup ætti
að sinna einhverjum sérstökum
þætti í þessari breytingu, þannig
að hann gæti komið að einhverju
liði við söfnuði eða prófastsdæmi
eða stiftið. Eitthvað meira heldur
en verið hefur hingað til. Jafnvel
einhverja breytingu á starfinu,
sem þú sjálfur hefur hugsað þér?
— Get nú ekki sagt það. Nema
að það hlýtur að verða í Hólastifti,
sem er nú bara Norðlendinga-
fjórðungur. Þess vegna betra að
hafa yfirlit og samstarf við presta
og prófasta, þar sem það er minna,
þá er það þægilegra. Þá geri ég ráð
fyrir því að það aukist eitthvað.
Prestafélag Hólastiftis hefur
verið sá punkturinn, sem hefur
safnað þessu saman. Hefur það
verið undir forystu vígslubiskups
lengi. Og þá hefur það eðlilega
verið þannig, að hann hefur haft
meira og minna samstarf sem
formaður Prestafélagsins — en þá
um leið sem vígslubiskup. Það
hlýtur því að verða svo í mörgum
tilfellum að hann sé frumkvöðull í
því. En það er biskup, sem hefur
stjórnina og samstarf milli bisk-
ups og vígslubiskups hlýtur að
verða mjög náið. Og ég er ekki í
efa um það, að meðan Pétur bisk-
up og ég erum við þetta, þá verði
samstarf okkar náið og gott, svo
sem það hefur verið um áratuga
skeið.
Þú minntist á áðan, að eftir því
sem vígslubiskupsembættið yrði
viðameira, þá þyrfti jafnvel að
leysa undan ákveðin störf, sem
presturinn hefði í viðkomandi
prestakalli. Heldur þú að þessi
aukna þjónusta, sem þú þarft að
sinna, komi niður á söfnuðum þín-
um í Grenjaðarstaðarprestakalli?
— Það getur vel orðið og hlýtur
að verða eftir því sem presturinn
er meira fjarverandi, þá liggur
það í hlutarins eðli. En í sumar, þá
hefi ég um tveggja mánaða skeið
guðfræðinema, Baldur Kristjáns-
son, sem predikar hjá mér. Það er
léttir hjá mér og verður til þess,
að söfnuðinum verður betur sinnt.
Og ég tel það brýna nauðsyn, að ef
á að auka starf vígslubiskupa, þá
verður að leysa þá undan prests-
þjónustu að einhverju leyti.
Innilegar kveðjur og þakkir flyt ég öllum
þeim sem sýndu mér vináttu og hlýhug á
einn eða annan hátt á 80 ára afmæli mínu
13. maí sl. Guð blessi ykkur öll.
Ástríöur Jósepsdóttir.
Einbýlishús viö
Brekkuhvamm, Hafnarf.
Einbýlishús, 114 fm, 30 fm bílskúr. Fallegur garö-
ur. Þetta er eign í sérflokki. Laus eftir samkomu-
lagi.
Bein sala.
Opið alla daga til kl. 10 e.h.
FASTEIGNAÚRVALIÐ
SÍMI83000 SilfurteigM
Sölustióri: Auöunn Hermannsson, Krlstján Eiríksson hæstaréttarlögmaóur.
Diesel bátavélar
Piranha 35—50 hestöfl.
Byggöar á 4 strokka Volkswagen Golf.
Léttbyggöar, þýögengar vélar á hagstæöu veröi.
Til afgreiöslu strax, góöir greiösluskilmálar.
VÉLASALAN H.F.
Ánanaustum,
sími 26122.
Bátakynning
í dag kl. 10.00—16.00 verður kynntur nýr bátur á at-
hafnasvæöi Snarfara viö Elliöaárvog.
Báturinn er frá Bátasmiöju Guömundar, í Hafnarfiröi og
heitir „Sómi 600“ og er hraögengur fisk- og skemmti-
bátur.
Báturinn er kynntur meö
hinni nýju 136 HP BMW
dieselvél frá Vélar og
tæki h.f.
Bátasmiðja
Guðmundar
Helluhrauni 6, Hafn.
Sími 50818.
Vélar & Tæki hf.
TRYGGVAGATA 10 BOX 397
REYKJAVlK SlMAR: 21286 - 21460