Morgunblaðið - 10.07.1982, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982
Akurnesingarnir voru með þeim siðustu sem komu ríðandi i mótsstaðinn. Komn þeir um miðnætti aðfaranótt fostudags.
Útlendingar sigruðu
í GÆRKVÖLDI fór fram fyrri hluti tilrauna-Evrópumótsins. Mikil eftirvænt-
ing ríkti bæði meðal keppenda og ihorfenda. Úm kvöldmatarleitið drógu
keppendur um hesta og fengu þeir þi afhenta klukkustundu iður en keppnin
hófst. Úrslit í „Evrópumóti" urðu þessi:
I fjórgangi:
1. Karly Zimgsheim frá Þýska-
landi á Dömu. 2. Unn Kroghen frá
Noregi á Hvin. 3. Sigurbjörn Bárð-
arson á Þokka. 4. Anna Svenson
frá Svíþjóð á Kjarval. 5. Sandra
Nieuwenijk frá Hollandi á Snæ-
kolli.
I fimmgangi:
1. Jóhannes Hoyos frá Austur-
ríki á Dropa. 2. Johnny Zigerlig
frá Sviss á Nasa. 3. Bent Skuevold
frá Noregi á Glæsi. 4. Marjolein
Tiepen frá Hollandi á Randver.
Keppnin fór vel fram, þar til undir
lokin í úrslitum fimmgangs. Þá
gerðist það að tveir keppendur
óhlýðnuðust fyrirmælum dómar-
ans og leiddi það til þess að vísa
varð öðrum keppandanum af velli
en hinn vissi upp á sig sökina og
fór sjálfviljugur út af vellinum.
Tildrög málsins voru þau að í upp-
hafi keppninnar áttu keppendur
að sýna fet eins og lög gera ráð
fyrir. Annar áðurnefndra kepp-
enda, sem er þýskur að þjóðerni,
reið þá fast upp að hinum, sem er
íslenskur, og upphófst þá samreið
þessara knapa sem líktist meira
kappreiðum en yfirvegaðri fetsýn-
ingu. Leikurinn æstist stöðugt og
voru viðkomandi knapar ítrekað
heðnir að hægja hesta sína. Yfir-
dómari gaf þeim þýska aðvörun,
en hvorugur lét segjast og fór svo
að lokum að tveir dómaranna
gengu í veg fyrir Þjóðverjann og
fjarlægðu hann af vellinum. Sá ís-
lenski fór þá einnig út af.
Þorvaldur Agústsson yfirdóm-
ari keppninnar kvaðst hafa gefið
Þjóðverjanum eina aðvörun, en
hann ekki látið segjast. Kinnig
kvað hann sárt til þess að vita að
Islendingar skuli láta hafa sig út í
slíkt sem þetta. Margir góðir
knapar hefðu sóst eftir að fá að
keppa fyrir Islands hönd en aðeins
tveir útvaldir komist að. Hefði
keppendunum verið lánaðir góðir
hestar og lágmarkskrafa væri að
þeir færu vel með þá og sýndu
landsmótinu virðingu, en það
gerði áðurnefndur Þjóðverji ekki,
sagður Þorvaldur ennfremur.
Landsmót hestamanna að Vindbeimamelum — Fri Hiidi Einarsdóttur,
Valdimar Kristinssyui og Kristjáni Erni Eiíassyni, Ijósmyndara, 9.júlí
Góður irangur hji tvehn ungum, Fjölni frá Kvfabekk, 6 vetra, og eiganda
hans og knapa, Tómasi Ragnarssyni, 17 ira. Þeir sigruðu í A-flokki
gæðinga með einkunnina 8,69.
Hjólað á
landsmót
Hann kallar ekki allt ömmu sína
hann Sigurður Karlsson trommari í
hljómsveitinni Friðryk, sem kom
hjólandi næstum 300 kílómetra leið
fri Reykjavík til að komast i
Landsmót hestamanna i Vind-
heimamelum. Sigurð hittum við,
þegar hann var að koma inn i móts-
svæðið, búinn að hjóla fri Blöndu-
ósi að Vindheimamelum í einni lotu.
Sú for tók hann 24 tíma, enda var
drengurinn orðinn nokkuð þreyttur
þegar hér var komið og hugðist
koma litla tjaldinu sínu upp og
leggjast til svefns.
Sigurður kvaðst aldrei hafa far-
ið í slíka langför á hjóli fyrr, en
þessi ferð tók hann ekki nema
rúman einn dag. Hann hafði lagt
af stað á miðvikudagskvöldi
klukkan átta og var kominn á
Vindheimamela snemma morguns
á föstudegi. Frá Holtavörðuheiði
að Blönduósi, fékk hann bílfar
með stórum flutningabíl. Sagði
Sigurður að ferðin hefði gengið í
alla staði vel. Til allrar hamingju
hefði ekki sprungið, því hann
hefði verið búinn að týna hjól-
hestapumpu sinni. Aðspurður
hvaða leið hefði verið erfíðust,
sagði Sigurður að leiðin yfir
Vatnsskarð hefði verið nokkuð
strembin og fyrir Hvalfjörð hefði
það tekið hann 10 tíma að hjóla.
Vel heppnuð
sýning
kynbótahrossa
SÝNING kynbótahrossa fór fram
í gær. Stóðhestar voru sýndir
fyrir hádegi og hryssur eftir há-
degi. Tímaáætlun stóðst vel og
sýningarnar gengu vel fyrir sig,
en þrátt fyrir leiðinlegt veður
komu hrossin vel fyrir. Hæst bar
að sjálfsögðu afkvæmasýningu á
stóðhestunum, sem keppa til heið-
ursverðlauna, en þeir eru Hrafn
802 frá Holtsmúla og Þáttur frá
Holtsmúla. Sennilegt er að Hrafn
muni standa efstur. Afkvæmi
hans vöktu mikla athygli fyrir
mikinn vilja, vekurð og mynd-
arskap. Stóðhestar sem einstakl-
ingar komu vel út í sýningunni og
greinilegt að menn leggja nú
meiri áherslu á að hafa stóðhest-
ana í góðu formi en áður. Hryss-
urnar voru góðar að vanda. Á
sunnudaginn verða kynbótahross-
in sýnd á nýjan leik og verður þá
dómunum lýst.
Irskur kardináli tekur
þátt í kaþólsku móti hér
Unnið að uppsetningu sýningartjalds i nýja sýaingarsalnum, sem Stjörnubíó
opnar að Laugavegi 96.
Nýr salur í Stjörnubíói
KAHILSKI söfnuðurinn hér hefur
undanfarið verið að undirbúa 100
manna mót kaþólskra manna frá
Norðurlöndum og frá Hamborg.
Ilefst það 22. júlí og stendur til 29.
júlí. Hápunktur mótsins verður
sunnudaginn 25. júlí er sungin verð-
ur biskupsmessa í Kristskirkju með
þátttöku kardinálans Tomas O’Fia-
ich frá írlandi. í þeirri messu munu
tveir prestsnemar meðtaka djákna-
vígshi.
Það verður dr. Henrik Frehen
biskup sem setur mótið við messu í
Kristskirkju 22. júlí:
Frá Félagi kaþólskra leikmanna
hefur blaðinu borist eftirfarandi
fréttatilkynning um mótið:
„Dagana 22.-29. júlí verður
haldið í Reykjavík mót kaþólskra
manna frá Norðurlöndum og
Hamborg. Kringum 100 manns
sækja mótið, sem verður haldið í
Háskóla Islands, hvað talað orð
snertir. Gestirnir koma síðdegis
21. júlí, miðvikudag, skoða borgina
og þjóðminjasafnið daginn eftir og
þann dag, 22. júlí hefst sjálft mót-
ið með því að dr. Hinrik Frehen
biskup syngur messu í Krists-
kirkju, kl. 18. Forseti íslands verð-
ur viðstaddur þá messu. Um
kvöldið, kl. 20.30, flytur Gunnar F.
Guðmundsson cand. mag. erindi
um upphaf kaþólskrar kristni hér
eftir siðaskipti.
Föstudaginn 23. júlí kl. 10, flyt-
ur Paul Imhof SJ. dr phil., fyrir-
lestur um anda fagnaðarerindis-
ins og framtíð kirkjunnar og kl. 11
flytur Iæif Carlsson dr. phil. er-
indi um viðhorf, viðfangsefni og
framtíðarhorfur kirkjunnar. Um
kvöldið, kl. 20.30, talar Halldór
Laxness um Maríu sögu.
Dagana 23., 26. og 27. ræða
starfshópar efni fyrirlestranna
frá félagslegu og siðrænu, bók-
menntalegu og sögulegu, og trúar-
legu viðhorfi.
Dagana 22., 23., 26. og 27. júlí
verða sungnar messur í Krists-
kirkju, kl. 18.
Laugardaginn 24. júlí verður
farin skemmtiferð um Þingvöll, til
Gullfoss, Geysis og fleiri staða.
Leiðsögumaður verður séra Heim-
ir Steinsson.
Sunnudaginn 25. júlí verður
sungin biskupsmessa í Krists-
kirkju með þátttöku Thomas
O’Fiaich kardínála frá írlandi og
allmargra presta. í þeirri messu
meðtaka djáknavígslu þeir Hjalti
Þorkelsson og Jacques Rolland.
Kl. 15 þann dag flytur kardínálinn
erindi um írska trúboða í Evrópu.
Kl. 20 verða kirkjutónleikar í
Kristskirkju.
Mánudaginn 26. júlí, kl. 10, flyt-
ur séra Jan Habets SMM erindi
um samkirkjulegt starf. Kl. 11
flytur Elisabeth Peter, dr. theol.
erindi um trúleysi og skeytingar-
leysi um andleg mál. Kl. 20.30 flyt-
ur Wilhelm Nyssen dr. phil, erindi
með litskyggnum um kristinn sið
til forna í Norður-Evrópu.
Þriðjudaginn 27. júlí verða
panelumræður kl. 10, og fjalla þær
um lifandi sögu og tilveru manns-
ins. Viðræðum stjórna Jónas
Gíslason dósent, Jarl Gallén dr.
phil. og Richardt Hansen dr. theol.
Kl. 20.30. flytur Wilhelm Nyssen
dr. phil. erindi með litskyggnum
um forna list írskra munka.
Miðvikudaginn 28. júlí verður
farið til Akraness, kringum
Hvalfjörð, á slóðir Kelta á íslandi.
Leiðsögumaður verður Jónas
Gíslason dósent.
Fimmtudaginn 29. jú'lí verður
Listasafn Islands skoðað.
Gestirnir halda síðan heimleiðis
31. júlí.“
í DAG tekur Stjörnubíó formlega í
notkun nýjan sýningarsal, að Lauga-
vegi 96, en sýningar fyrir almenning
hefjast á morgun, sunnudag. Salur-
inn er hundrað og tíu fermetrar og
tekur 115 manns i sæti. Nokkrar
breytingar hafa átt sér stað á and-
dyri Stjörnubíós, til þess að koma
inngangi að þessum nýju salarkynn-
um fyrir.
Að sögn Þorvarðar Þorvarðar-
sonar, forstjóra Stjörnubíós, verð-
ur þessi salur notaður í þeim til-
gangi að sýna þær myndir, sem
aðsókn er farin að minnka að í
stóra salnum. Þetta kvikmynda-
húsaform, sem tekið hefur verið
upp annars staðar hérlendis og
víða erlendis, býður upp á betri
sætanýtingu, aukna hagkvæmni í
reksti, auk þess sem kostur er að
sýna myndir yfir lengra tímabil.
Þá verður þessi nýi salur notaður
undir sýningar á myndum, sem
fyrirfram er vitað að eiga sér lít-
inn áhorfendahóp. Við hönnun á
salnum var lögð áhersla á að hafa
þægileg sæti og nægilegt rými á
milli sætaraða. Það er Aðalsteinn
Richter, arkitekt, sem hannaði
innréttingu.