Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982 Akurnesingarnir voru með þeim siðustu sem komu ríðandi i mótsstaðinn. Komn þeir um miðnætti aðfaranótt fostudags. Útlendingar sigruðu í GÆRKVÖLDI fór fram fyrri hluti tilrauna-Evrópumótsins. Mikil eftirvænt- ing ríkti bæði meðal keppenda og ihorfenda. Úm kvöldmatarleitið drógu keppendur um hesta og fengu þeir þi afhenta klukkustundu iður en keppnin hófst. Úrslit í „Evrópumóti" urðu þessi: I fjórgangi: 1. Karly Zimgsheim frá Þýska- landi á Dömu. 2. Unn Kroghen frá Noregi á Hvin. 3. Sigurbjörn Bárð- arson á Þokka. 4. Anna Svenson frá Svíþjóð á Kjarval. 5. Sandra Nieuwenijk frá Hollandi á Snæ- kolli. I fimmgangi: 1. Jóhannes Hoyos frá Austur- ríki á Dropa. 2. Johnny Zigerlig frá Sviss á Nasa. 3. Bent Skuevold frá Noregi á Glæsi. 4. Marjolein Tiepen frá Hollandi á Randver. Keppnin fór vel fram, þar til undir lokin í úrslitum fimmgangs. Þá gerðist það að tveir keppendur óhlýðnuðust fyrirmælum dómar- ans og leiddi það til þess að vísa varð öðrum keppandanum af velli en hinn vissi upp á sig sökina og fór sjálfviljugur út af vellinum. Tildrög málsins voru þau að í upp- hafi keppninnar áttu keppendur að sýna fet eins og lög gera ráð fyrir. Annar áðurnefndra kepp- enda, sem er þýskur að þjóðerni, reið þá fast upp að hinum, sem er íslenskur, og upphófst þá samreið þessara knapa sem líktist meira kappreiðum en yfirvegaðri fetsýn- ingu. Leikurinn æstist stöðugt og voru viðkomandi knapar ítrekað heðnir að hægja hesta sína. Yfir- dómari gaf þeim þýska aðvörun, en hvorugur lét segjast og fór svo að lokum að tveir dómaranna gengu í veg fyrir Þjóðverjann og fjarlægðu hann af vellinum. Sá ís- lenski fór þá einnig út af. Þorvaldur Agústsson yfirdóm- ari keppninnar kvaðst hafa gefið Þjóðverjanum eina aðvörun, en hann ekki látið segjast. Kinnig kvað hann sárt til þess að vita að Islendingar skuli láta hafa sig út í slíkt sem þetta. Margir góðir knapar hefðu sóst eftir að fá að keppa fyrir Islands hönd en aðeins tveir útvaldir komist að. Hefði keppendunum verið lánaðir góðir hestar og lágmarkskrafa væri að þeir færu vel með þá og sýndu landsmótinu virðingu, en það gerði áðurnefndur Þjóðverji ekki, sagður Þorvaldur ennfremur. Landsmót hestamanna að Vindbeimamelum — Fri Hiidi Einarsdóttur, Valdimar Kristinssyui og Kristjáni Erni Eiíassyni, Ijósmyndara, 9.júlí Góður irangur hji tvehn ungum, Fjölni frá Kvfabekk, 6 vetra, og eiganda hans og knapa, Tómasi Ragnarssyni, 17 ira. Þeir sigruðu í A-flokki gæðinga með einkunnina 8,69. Hjólað á landsmót Hann kallar ekki allt ömmu sína hann Sigurður Karlsson trommari í hljómsveitinni Friðryk, sem kom hjólandi næstum 300 kílómetra leið fri Reykjavík til að komast i Landsmót hestamanna i Vind- heimamelum. Sigurð hittum við, þegar hann var að koma inn i móts- svæðið, búinn að hjóla fri Blöndu- ósi að Vindheimamelum í einni lotu. Sú for tók hann 24 tíma, enda var drengurinn orðinn nokkuð þreyttur þegar hér var komið og hugðist koma litla tjaldinu sínu upp og leggjast til svefns. Sigurður kvaðst aldrei hafa far- ið í slíka langför á hjóli fyrr, en þessi ferð tók hann ekki nema rúman einn dag. Hann hafði lagt af stað á miðvikudagskvöldi klukkan átta og var kominn á Vindheimamela snemma morguns á föstudegi. Frá Holtavörðuheiði að Blönduósi, fékk hann bílfar með stórum flutningabíl. Sagði Sigurður að ferðin hefði gengið í alla staði vel. Til allrar hamingju hefði ekki sprungið, því hann hefði verið búinn að týna hjól- hestapumpu sinni. Aðspurður hvaða leið hefði verið erfíðust, sagði Sigurður að leiðin yfir Vatnsskarð hefði verið nokkuð strembin og fyrir Hvalfjörð hefði það tekið hann 10 tíma að hjóla. Vel heppnuð sýning kynbótahrossa SÝNING kynbótahrossa fór fram í gær. Stóðhestar voru sýndir fyrir hádegi og hryssur eftir há- degi. Tímaáætlun stóðst vel og sýningarnar gengu vel fyrir sig, en þrátt fyrir leiðinlegt veður komu hrossin vel fyrir. Hæst bar að sjálfsögðu afkvæmasýningu á stóðhestunum, sem keppa til heið- ursverðlauna, en þeir eru Hrafn 802 frá Holtsmúla og Þáttur frá Holtsmúla. Sennilegt er að Hrafn muni standa efstur. Afkvæmi hans vöktu mikla athygli fyrir mikinn vilja, vekurð og mynd- arskap. Stóðhestar sem einstakl- ingar komu vel út í sýningunni og greinilegt að menn leggja nú meiri áherslu á að hafa stóðhest- ana í góðu formi en áður. Hryss- urnar voru góðar að vanda. Á sunnudaginn verða kynbótahross- in sýnd á nýjan leik og verður þá dómunum lýst. Irskur kardináli tekur þátt í kaþólsku móti hér Unnið að uppsetningu sýningartjalds i nýja sýaingarsalnum, sem Stjörnubíó opnar að Laugavegi 96. Nýr salur í Stjörnubíói KAHILSKI söfnuðurinn hér hefur undanfarið verið að undirbúa 100 manna mót kaþólskra manna frá Norðurlöndum og frá Hamborg. Ilefst það 22. júlí og stendur til 29. júlí. Hápunktur mótsins verður sunnudaginn 25. júlí er sungin verð- ur biskupsmessa í Kristskirkju með þátttöku kardinálans Tomas O’Fia- ich frá írlandi. í þeirri messu munu tveir prestsnemar meðtaka djákna- vígshi. Það verður dr. Henrik Frehen biskup sem setur mótið við messu í Kristskirkju 22. júlí: Frá Félagi kaþólskra leikmanna hefur blaðinu borist eftirfarandi fréttatilkynning um mótið: „Dagana 22.-29. júlí verður haldið í Reykjavík mót kaþólskra manna frá Norðurlöndum og Hamborg. Kringum 100 manns sækja mótið, sem verður haldið í Háskóla Islands, hvað talað orð snertir. Gestirnir koma síðdegis 21. júlí, miðvikudag, skoða borgina og þjóðminjasafnið daginn eftir og þann dag, 22. júlí hefst sjálft mót- ið með því að dr. Hinrik Frehen biskup syngur messu í Krists- kirkju, kl. 18. Forseti íslands verð- ur viðstaddur þá messu. Um kvöldið, kl. 20.30, flytur Gunnar F. Guðmundsson cand. mag. erindi um upphaf kaþólskrar kristni hér eftir siðaskipti. Föstudaginn 23. júlí kl. 10, flyt- ur Paul Imhof SJ. dr phil., fyrir- lestur um anda fagnaðarerindis- ins og framtíð kirkjunnar og kl. 11 flytur Iæif Carlsson dr. phil. er- indi um viðhorf, viðfangsefni og framtíðarhorfur kirkjunnar. Um kvöldið, kl. 20.30, talar Halldór Laxness um Maríu sögu. Dagana 23., 26. og 27. ræða starfshópar efni fyrirlestranna frá félagslegu og siðrænu, bók- menntalegu og sögulegu, og trúar- legu viðhorfi. Dagana 22., 23., 26. og 27. júlí verða sungnar messur í Krists- kirkju, kl. 18. Laugardaginn 24. júlí verður farin skemmtiferð um Þingvöll, til Gullfoss, Geysis og fleiri staða. Leiðsögumaður verður séra Heim- ir Steinsson. Sunnudaginn 25. júlí verður sungin biskupsmessa í Krists- kirkju með þátttöku Thomas O’Fiaich kardínála frá írlandi og allmargra presta. í þeirri messu meðtaka djáknavígslu þeir Hjalti Þorkelsson og Jacques Rolland. Kl. 15 þann dag flytur kardínálinn erindi um írska trúboða í Evrópu. Kl. 20 verða kirkjutónleikar í Kristskirkju. Mánudaginn 26. júlí, kl. 10, flyt- ur séra Jan Habets SMM erindi um samkirkjulegt starf. Kl. 11 flytur Elisabeth Peter, dr. theol. erindi um trúleysi og skeytingar- leysi um andleg mál. Kl. 20.30 flyt- ur Wilhelm Nyssen dr. phil, erindi með litskyggnum um kristinn sið til forna í Norður-Evrópu. Þriðjudaginn 27. júlí verða panelumræður kl. 10, og fjalla þær um lifandi sögu og tilveru manns- ins. Viðræðum stjórna Jónas Gíslason dósent, Jarl Gallén dr. phil. og Richardt Hansen dr. theol. Kl. 20.30. flytur Wilhelm Nyssen dr. phil. erindi með litskyggnum um forna list írskra munka. Miðvikudaginn 28. júlí verður farið til Akraness, kringum Hvalfjörð, á slóðir Kelta á íslandi. Leiðsögumaður verður Jónas Gíslason dósent. Fimmtudaginn 29. jú'lí verður Listasafn Islands skoðað. Gestirnir halda síðan heimleiðis 31. júlí.“ í DAG tekur Stjörnubíó formlega í notkun nýjan sýningarsal, að Lauga- vegi 96, en sýningar fyrir almenning hefjast á morgun, sunnudag. Salur- inn er hundrað og tíu fermetrar og tekur 115 manns i sæti. Nokkrar breytingar hafa átt sér stað á and- dyri Stjörnubíós, til þess að koma inngangi að þessum nýju salarkynn- um fyrir. Að sögn Þorvarðar Þorvarðar- sonar, forstjóra Stjörnubíós, verð- ur þessi salur notaður í þeim til- gangi að sýna þær myndir, sem aðsókn er farin að minnka að í stóra salnum. Þetta kvikmynda- húsaform, sem tekið hefur verið upp annars staðar hérlendis og víða erlendis, býður upp á betri sætanýtingu, aukna hagkvæmni í reksti, auk þess sem kostur er að sýna myndir yfir lengra tímabil. Þá verður þessi nýi salur notaður undir sýningar á myndum, sem fyrirfram er vitað að eiga sér lít- inn áhorfendahóp. Við hönnun á salnum var lögð áhersla á að hafa þægileg sæti og nægilegt rými á milli sætaraða. Það er Aðalsteinn Richter, arkitekt, sem hannaði innréttingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.