Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982 J 9
Sýning Listmálarafélagsins
Myndlist
Bragi Asgeirsson
Nokkrír þeirra listmálara, sem myndir eiga á sýningu Listmálarafélagsina al Kjarralsstöéum. Taldir frá vinstrí:
Valtýr Pétnrsson, Gunnar örn Gunnarsson, Kjartan Guðjónsson, Sigurður Örljgsson, Jóhannes Jóhannesson,
Hafsteinn Austmann og Einar G. Baldvinsson.
Nýstofnað Listmálarafélag
leitast við að vekja athygli á til-
veru sinni með myndarlegri
samsýningu félagsmanna að
Kjarvalsstöðum og lýkur henni á
sunnudagskvöld.
Formlega var félagið stofnað
hinn 15 apríl sl. en aðdragandinn
er þó miklu lengri. Má hiklaust
telja, að hér sé á ferð enn eitt
stéttarfélag myndlistarmanna,
sem móðurfélagið FIM (Félag ís-
lenzkra myndlistarmanna) á
mikinn þátt í að stofna með van-
hugsuðum stjórnunaraðgerðum.
I hita Kjarvalsstaðadeilunnar
fyrir fjórum árum komu saman
nokkrir listmálarar á kennara-
stofu Myndlista- og handíðaskól-
ans til að semja stuðningsyfir-
lýsingu við svokallað bráða-
birgðasamkomulag er þá lá
frammi. Vildum við binda endi á
deilurnar og að tíminn yrði
notaður til rökræðna um hag-
kvæmustu lausn á framtíðar-
stjórn hússins. Hér vorum við í
andstöðu við stjórn FÍM og BÍL
(Bandalag íslenzkra lista-
manna). Átti þessi yfirlýsing,
sem við allir (9) skrifuðum undir
nokkurn þátt í því að deilan
leystist, en mönnum varð þá
Ijóst að sú eining er sögð var
meðal listamanna var ekki í
samræmi við yfirlýsingar for-
ystumannanna. Við gátum auð-
veldlega tvöfaldað nafnalistann
en létum nöfn okkar nægja. Það
var einmitt þá sem til tals kom,
að stofna sérstakt stéttarfélag
málara enda værum við þeir
einu innan FÍM, sem ekki höfð-
um þegar stofnað sérfélag um
hagsmuni okkar. Hugmyndin
fékk mjög góðar undirtektir og
er það einungis fyrir duttlunga
tilverunnar, að ekki hefur orðið
af stofnun félagsins fyrr en nú.
Stofnfélagar eru m.a. allir er
voru á fyrrnefndum fundi að ein-
um undanskildum.
Þess má geta, að listmálarar
eru einmitt fjölmennasti geirinn
innan FÍM svo að það er ekki
vonum fyrr að þeir stofni með
sér hagsmunafélag.
Er gengið var frá stofnun fé-
lagsins nú í vor var lögð megin-
áhersla á algjöra samstöðu fé-
lagsmanna og að fá sem flesta
þeirra til að vera virkir frá upp-
hafi. Þetta hefur einmitt tekist á
þann veg að allir stofnendurnir
eru með á þessari fyrstu sýningu
félagsins að Kjarvalsstöðum og
er það út af fyrir sig umtalsvert
afrek. Þá var það líka umtals-
vert afrek, sem kann að marka
timamót ekki síður en hitt, að
allir þessir stofnendur að þrem
undanskildum, er voru löglega
forfallaðir, komu saman í góðum
fagnaði að kvöldi opnunardags-
ins.
Má ætla, að allir hefðu fagnað
stofnun þessa sjálfsagða félags
en sú hefur víst ekki orðið raun-
in á svo sem sjá hefur mátt er
fjallað hefur verið um framtakið
í fjölmiðlum.
Hér er þó ekki verið að stofna
félag til höfuðs öðru en ólýðræð-
islegum vinnubrögðum á ís-
lenzkum myndlistarvettvangi og
höfða jafnframt til samstöðu,
manndóms og eindrægni. Fólk er
orðið svo ruglað á þessum hlut-
um, að það veit hvorki upp né
niður og er þetta þannig einnig
viðleitni til að skýra stöðuna í
dag.
Þess má geta að inntökuskil-
yrðin eru svipuð og voru áður í
FÍM og mun félagsmönnum því
vafalaust fjölga í framtíðinni og
í fyllsta samræmi við rökrétta
þróun um virkni og samstöðu
hvað sem öllum sérskoðunum
viðvikur innan félagsins.
Þá hefur hvorki verið rætt um
lágmarksaldur frekar en há-
marksaldur en skoðanir meiri-
hluta munu ráða um framtíðar-
þróunina og hér mun verða leit-
ast við að sem flestir verði virkir
þátttakendur og láti skoðanir
sínar óhikað í ljós.
Það veit sá er þessar línur rit-
ar, að þekking erlendra á ís-
lenzkri myndlist er lítil og rugl-
ingskennd og að mikill áhugi er
fyrir því að fá úr þesu bætt m.a.
með aukinni kynningu á ís-
lenzkri málaralist í formi sýn-
inga og útgáfustarfsemi.
Framtíðarverkefni félagsins
felst m.a. í því að sinna þessum
þáttum, og leita fyrir sér að föst-
um sýningarvettvagni erlendis
ekki síður en hérlendis.
Af ofanskráðu má vera ljóst
að félagsmenn eru ekki að troða
öðrum um tær en þeim er virðast
vilja ráða þróuninni í einu og
öllu og einungis kynna það á er-
lendum vettvangi sem þeim er
þóknanlegt að viti að útlendum,
— en fela hitt. Furðar engann
lifandis par, að slíkum sé mis-
boðið.
Að hér hafi verið tekin farsæl
stefna í hagsmunamálum
myndlistarmanna sannar gengi
sýningarinnar meðal almenn-
ings, þrátt fyrir takmarkaða
umfjöllun í fjölmiðlum og ein-
hvers afleitasta sýningartíma
ársins. Við þetta bætist nýaf-
staðin Listahátíð, sem mettar
flesta af listsköpun um langa
framtíð og skapar eyðu í aðsókn
að listviðburðum.
í stuttu máli þá hefur aðsókn
og gengi sýningarinnr almennt
farið fram úr björtustu vonum
og þannig er þriðjungur mynda á
sýningunni seldur er þetta er rit-
að, — sem i sjálfu sér er eins-
dæmi um samsýningu málara
hérlendis.
Um sýninguna sjálfa hef ég
það að segja, að mér segir svo
hugur um að þetta sé ein heilleg-
asta samsýning jafn margra
málara um árabil. Ýmsir agnúar
eru að sjálfsögðu á framtakinu
enda fyrirvarinn stuttur og í
enga sjóði né reynslu að leita. En
sjón er sögu ríkari og ég taldi
það verðugara mark að fjalla um
félagsstofnunina almennt en um
myndir einstakra félagsmanna.
Eyða misskilningi og skýra í
fáum dráttum stefnmörkun fé-
lagsins.
Það er þegar ljóst, að hér mun
hafa verið farið rétt af stað og að
Listmálarafélagið hefur í sér
vaxtarbrodd til að verða öflug-
asti og virtasti myndlistargeir-
inn. Hvort svo verður sker tím-
inn úr um en að því ber hiklaust
að stefna.
— Svo er að lita björtum aug-
um til framtíðarinnar og hugsa
stórt.
Úrslit útiskák-
móts Skák-
sambandsins
Skáksamband fslands hélt úti-
skákmót á Lækjartorgi mánudaginn
5. júlí, svo sem fram hefur komið í
Mbl. Alls styrktu 30 fyrirtæki SKÍ
vegna þátttöku íslands í Evrópu-
keppni landsliða. Úrslit mótsins
urðu þessi:
1. sæti: Þjóðviljinn 7 v. 2. sæti:
Búnaðarbankinn 5% v. 3.-4. sæti:
Morgunblaðið, Útvegsbanki ís-
lands 5 v. 5.-9. sæti: Landsbanki
íslands, Almenna verkfræðistof-
an, Dagblaðið & Vísir, B.M. Vallá,
Smíðastofa Halldórs Karlssonar
4V4 v. 10.—13. sæti: Tíminn, Flug-
leiðir, Álafoss, Hampiðjan 4 v.
14.—15. sæti: Guðmundur Arason
— Smíðajárn, Máining hf. 3V6 v.
16,—23. sæti: Samvinnutryggingar
G.T., Vörumerking hf., Brunabóta-
félag Islands, Þýsk-íslenska versl-
unarfélagið, Samvinnubankinn,
Sanitas, Eimskip, Egill Vil-
hjálmsson hf. 3 v. 24.-26. sæti:
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Slippurinn — málningar-
verksmiðja, Hlaðbær 2Vi v. 27.
sæti: Verslunarbanki íslands 2 v.
28. sæti: Hljómbær 1V4 v. 29.—30.
sæti: Ölgerðin Egill Skallagríms-
son, Tímaritið Skák 1 v.
Dagblaðið Tíminn gaf farand-
bikar til keppni þessarar. Sterk-
ustu skákmenn landsins tefldu
fyrir hönd þessara fyrirtækja.
Fyrir hönd Þjóðviljans tefldi
Helgi Ólafsson.
UMBOÐSMENN
UM
LAND ALLT
iHlHEKLAHF
J Laugavegi 170-172 Sími 2124-0