Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982
25
Ur
umferðinni
Um helgina
Jónas í
ferðalag fór
hann alltaf á sig sem sérfræðing
á þessu sviði. „Þrýstingurinn
verður að vera í lagi," segir hann
sjálfum sér samkvæmur, og fer
reglulega til læknis í blóðþrýst-
ingsmælingu. En eftir að hann
skipti um bíl hérna um árið dró
úr nákvæmninni á þessi sviði,
þangað til hann sá skiltið í hurð-
arstafnum þar sem loftþyngdin
er tilgreind. Síðan er hann óspar
á að leiðbeina mönnum um mik-
ilvægi réttrar loftþyngdar, „það
er ekki sama hver bíllinn er“.
Anna er búin að gera ítrekaðar
tilraunir til þess að fá mann sinn
til þess að spenna beltið, og hefur
nú náð þeim áfanga að úti á veg-
um fæst hann stundum til að
nota það. En innanbæjar telur
hann það tóma vitleysu að vera
með belti. Hann sem er svo ör-
Frá Umferðarráði
uggur í akstrinum, og hefur þar
að auki stýrið fyrir framan sig ef
einhver annar asnast til að aka á
hann. Lengi vel notaði hann það
sem afsökun að það væri ekkert
gagn í beltunum í þeirra bíl.
Hann væri marg búinn að prófa
það með því að kippa eldsnöggt í
beltið, en ekkert skeði. Það var
ekki fyrr en í vor þegar hann fór
með bílinn í skoðun, að bifreiða-
eftirlitsmaðurinn sagði honum
að ef hann léti beltin liggja þétt
að sér þá læstust þau í þeirri
stöðu við minnsta hnykk sem
kæmi á bílinn. Hann gæti prófað
þetta sjálfur í kyrrstöðu með því
að skella bílhurðinni, það væri
nóg til að læsa beltinu. Nú veit
Jónas allt um þetta, en hefur
þess í stað tekið sér í munn orðin
„skerðing á persónufrelsi mínu",
og „það kemur ekkert fyrir mig
— það lenda aðrir í slysunum".
En innst inni er hann Önnu sinni
þó hjartanlega sammála, auðvit-
að ætti hann alltaf að spenna
beltið, en það er bara stundum
svo erfitt að breyta um skoðun.
En hér lýkur að sinni að segja
frá Jónasi og fjölskyldu, fram-
haldið kemur kannski seinna.
Um leið og ítrekaðar eru góðar
ferðaóskir þeim til handa, er öll-
um öðrum ferðamönnum óskað
hins sama.
loraavGQAoi
CRILLVEIZLA SUMARSINS
Er nokkuö þjóölegra en aö snæða
glóðarsteikt lambakjöt
í Valhöll, Þingvöllum?
Nei, varla
Enda er lamb lostæti
Láttu þig ekki vanta í grillveizlu
sumarsins á morgun, sunnudag.
HÓTEL
Metsölublaó á hvetjum degi!
HANDBOLTAMARKMADUR
1. deild tímabiliö '82-83
Öllum umsóknum verður svaraö. Vinna og
húsnæöi útvegaö, eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir meö nafni, heimilisfangi og meömælum,
sendist:
VISBY IF GUTE
Signalgatan 13 D
62147 VISBY SVERIGE
r
Skólavöröustíg 3 Reykjavík Sími: 25240