Morgunblaðið - 10.07.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1982
31
ÁR ALDRAÐRA ÞÓRIR S. GUÐBERGSSON
Vernd Virkni Vellíðan
Oft eru mörkin
óljós á milli heil-
brigdra og sjúkra
Með háum aldri eða örum
breytingum í vefjum líkamans
og líffærum hans aukast líkurn-
ar fyrir því að hinn aldraði þjá-
ist af mörgum samverkandi
sjúkdómum. Varla ber þó að líta
á elli sem sjúkdóm, en hins veg-
ar er meiri hætta á því að ýmsir
sjúkdómar hrjái okkur fremur á
elliárunum þegar viðnámsþrótt-
urinn dvín og þarf þá oft lítið til
að hinn aldraði leggist í rúmið.
Öldruðum íslendingum fjölgar
stöðugt og því eldri sem við verð-
um, þeim mun meiri líkur eru til
þess að öldruðum og veikum fjölgi
samtímis og þarf því að gera ráð
fyrir því í heilbrigðiskerfinu, að
þeir geti notið þeirrar þjónustu
og umönnunar sem þörf er á.
Lífshorfur íslendinga við fæð-
vin hafa örvandi áhrif til
bættrar heilsu. Það verður því
mörgum erfið raun þegar
ástvinir hverfa á braut og
okkur finnst við vera ein og
yfirgefin. Afallið verður oft
þungbært og viðnámsþróttur
okkar dvín.
4. Að vera líkamlega fatlaður.
Hreyfihömlun, lömun og
hverskonar fötlun veldur
mörgum aukaerfiði og af
skiljanlegum ástæðum þarf
oft mjög mikla orku, bæði lík-
amlega og andlega, til þess að
lifa af ýmsar aðstæður.
5. Að vera nýkominn úr sjúkra-
húsi. Sjúkrahúsvist getur ver-
ið misjafnlega löng og erfið.
Því eldri sem við erum, þeim
mun fljótar stirðnum við í
ýmsum liðum og líffærum, ef
við þurfum að liggja hreyf-
Lengd 6,40 braidd 2,60 Lengd 8,15 breidd 2,95
FISKIBÁTAR
Getum nú boöiö þessa vinsælu fiskibáta meö mjög stuttum fyrirvara. Verö mjög
hagstætt. Fást bæöi fullbúnir og óinnréttaöir. .
BENCO
Bolholti 4.
Sími 21945 og 84077.
Allir cldast og vilja njóta sem lengst góðrar heilsu. Lífshorfur íslendinga
við fæðingu eru með því besta sem um getur í heiminum.
ingu eru með því besta sem um
getur í heiminum. Á það fyrst og
fremst rætur sínar að rekja til
bættrar heilsugæslu, framfara á
sviði læknavísinda, sem m.a.
hafa lækkað dánartölu nýfæddra
barna meira en nokkru sinni
fyrr, svo og bætt efnahagsleg
kjör og félagslegar aðstæður.
Hækkandi lífaldur einstakl-
inga eykur eðlilega líkur á dauða
og hafa verið kannaðar kring-
umstæður aldraðra sem hafa dá-
ið skyndilega og fundnir út svo-
kallaðir áhættuþættir á svipað-
an hátt og við kransæðasjúk-
dóma.
Eftirfarandi áhættuþættir
koma þá helst í ljós:
1. Að vera kominn á níræðisald-
ur. Því eldri sem við verðum,
þeim mun meira aukast lík-
urnar á því að við deyjum.
2. Að búa einn. Einmanakennd
og öryggisleysi getur oft átt
sinn þátt í að veikja viðnáms-
þrótt okkar gagnvart líkam-
legum sjúkdómum. Félagsleg
samvera er því öllum nauð-
syn.
3. Að hafa nýlega misst maka
eða ástvin. Náin tengsl og
góðar samvistir um lengri eða
skemmri tíma við ákveðinn
aðila eins og maka eða góðan
ingarlítil eða hreyfingarlaus í
rúmi vikum saman. Ef að-
stæður eru þannig heima
fyrir, að erfitt er um vik eftir
sjúkrahúsdvöl og við höfum
lítil tækifæri til að þjálfa
markvisst liði og líkamshluta
sem hafa stirðnað, er hættara
við að illa geti farið.
EÖlilegar breytingar
Það þarf engan speking til
þess að segja að eðlilegar breyt-
ingar fylgi ellinni. En hins vegar
er ekki unnt að setja jafnaðar-
merki á milli elli og sjúkdóma.
Margir halda góðri heilsu langt
fram eftir ævi og margir af for-
ystumönnum þjóða, ríkja eða
kirkjueininga eru t.d. menn á
áttræðisaldri eða jafnvel eldri.
Margvíslegar rannsóknir fara nú
fram um víða veröld á öldrun og
hrörnun í líffærum og vefjum
líkamans og verður spennandi að
fylgjast með niðurstöðum vís-
indamanna á þessu sviði á kom-
andi tímum.
Flestum ber þó saman um, að
þeim mun meiri sem virknin er
til hugar og handa, því meiri
verndar sem við njótum undir
eftirliti lækna og ráðgjafa um
bætt heilsufar, þeim mun meiri
líkur eru til þess að við getum
notið elliáranna í ríkara mæli en
margan grunar.
Cerid KAYS ad ykkar eigin stórverslun innan veggja heimilisins. Þjónusta og gæði,
sem jafnast á við það besta er það sem kays býður viðskiþtavinum sínum.
KAYS-þöntunarlistinn er verslun saman kominn í einni bók, og þú, fjölskylda þín og
kunningjar eruð viðskiptavinirnir, sem allt snýst um.
Fyrir ykkur sem komið örmagna heim eftir að hafa ráþað á milli verslana í heilan dag,
er KAYS-pöntunarlistinn rétta lausnin.
Að versla með KAYS við höndina er svo auðvelt og þægilegt, enginn asi, engar áhyggjur.
Þú getur tekið þér þann tíma, sem þú þarft til að kynnast því, sem við höfum upp á
að bjóða, kynnt þér verð og gæði og síðan tekið ákvörðun þegar þér hentar.
Med því aö versla viö kays nýtur þú úrvals og þjónustu stærstu og traustustu póst-
þjónustu Bretlands.
Ég óska eftir aö fá sendan kays pöntunarlista í
pÓStkrÖfU á aðeins kr.59.- (aö viöb póstburöarg)
Viðöótarlisti sendur síðar.
Nafn
Heimilisfang
Staóur Póstnr.
RM B. MAGNUSSON
■■FlVI SÆVANGI 19 SIMI 52866 P.H. 410 HAFNARFIRÐI