Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982 ,/A þettcx ccb \je.ro~ Sur)dta.ugV' love lis... r O ... að halda fast um sitt. TM Reo U.S. Pat Otf — aM riflhts reserved •1982 Los Angetes Tknes Syndicate Ciætir þú ekki komiA þessum pakka til þeirra í íbúðinni beint á móti, þegar maðurinn þar er búinn að baða sig? I*ú kemur við i efnalauginni og spyrð um lotin þín. Gleymdu því nú ekki! Með morgnnkaffinu HÖGNI HREKKVÍSI Mótorhjólin eru í fæstum tilvikum slysavaldurinn Hinrik Morthens skrifar: „Ég hef lesið Moggann síðan ég var 9 ára, en þegar að ég las þriðju- dagsblaðið í morgun þá varð ég orðlaus í fyrsta skipti. Ég las nefni- lega greinar þeirra Asmundar Brekkan yfirlæknis, Skúla Helga- sonar og 2154 —4167 í Velvakanda. Mig langar til að taka upp hanzkann fyrir mótorhjólastrák- ana og beina fyrst orðum mínum að „gauknum", „gæjanum" og „kauðanum" honum Skúla Helga- syni. Mig langar mig til að biðja þig um, Skúli, að kynna þér vandamál þessara stráka og eyða síðan ör- fáum mínútum með þeim í stað þess að belgja þig út á grátsíðu Moggans. Bentu strákunum á einhverja lausn og vittu til, þeir munu hlusta, því sjálfir eru þeir á höttunum eft- ir stað til að hafa út af fyrir sig, þar sem þeir geta „fretað“ saman. Við 2154 —4167 vil ég segja þetta: Þú hittir naglann á höfuðið þegar þú skrifar: „Þyrfti að taka þetta vandamál til frekari umfjöllunar í fjölmiðlum." Annað sem fram kem- ur í grein þinni (fyrir utan atriðið með Grensásdeildina) tel ég bull og eyði ekki frekari orðum i það. En um Grensásdeildar-ferð þína vil ég leyfa mér að benda á að skoðunar- og kynnisferðir skulu aldrei farnar með bundið fyrir augun né í þeim tilgangi að skoða bara aðra hlið málsins. Eða er kannski grunur minn réttur, að þú hafir alls ekki farið á Grensásdeildina, heldur bara slett þessari klausu framan í mótorhjólainnflytjendur í trausti þess að grein þín yrði skemmtilegri lesning? Ef þessi grunur minn er réttur má þá ekki bjóða þér í aðra skoðunarferð, þ.e. í unglingaskóla landsins og kynnast því af eigin raun hver hin raunverulega ástæða er fyrir þvi að unglingar drekka óhóflega eða sniffa og reykja? Svarið er einfalt því að í nútíma unglingum býr allt of mikil orka og athafnaþrá til að hægt sé að sussa endalaust á þá. Mótorhjólaakstur er ekki slæmt athæfi fyrir ungl- inga, en það þarf að gefa þeim kost á að gera hlutina á réttan hátt. Við sem erum fullorðin hljótum að geta hjálpað þeim eitthvað. Til Ásmundar Brekkan læknis: Þú telur lítinn vafa á því að mót- orhjólin séu langmesti og alvarleg- asti slysavaldurinn. Þótt ég hafi ekki frekar en þú eytt tíma í að kynna mér tölur í þessu máli, vil ég leyfa mér að fullyrða að þú ferð með rangt mál. Því þó svo að mótorhjólin séu títt í umferðar- slysum eru þau í fæstum tilvikum slvsavaldurinn. Það getur ekki talist orsök að slysi að vera í umferðinni. Þarna held ég að þú blandir saman orsök og afleiðingu. Staðreyndin er sú að mótorhjólin eru ekki virt við- lits i umferðinni og verða þannig oft fyrir barðinu á tillitslausum ökumönnum. Það má ábyggilega fá staðfest hjá tryggingarfélögunum hvor sé slysavaldurinn, bíll eða hjól, í þeim slysum þar sem mót- orhjól er annar tjónþolanna. Lausnina er að öllum líkindum að finna hjá ökukennurum eða öku- skólum, þeir geta manna best kennt og frætt ökumenn (ökumenn bíla) um varnarleysi og auðséð til- litsleysi í garð mótorhjóla. Ef satt er að þú og starfsbræður þínir hafi raunverulega áhuga á mótorhjólaslysum og vörnum gegn þeim langar mig að bjóða þér og starfsbræðrum þinum með milli- göngu minni, að fá lánaðar nokkrar skellinöðrur eða bifhjól sem þið munduð síðan aka á til og frá vinnu, í vikutima eða svo. Ég lofa þér því að þig mun undra ósvífnin og tillitsleysíð sem ykkur mundi verða sýnt í umferðinni. Gaman væri að lesa eftir þig aðra grein á eftir. Hvað varðar að banna innflutn- ing á hinu eða þessu, þá er það auðvitað ófært. Éf við færum að kafa í skýrslur þá gætum við ábyggilega fundið út að það ætti að banna innflutning á morðtólum sem heita Mazda eða Lada. Enda værum við þá búin að finna það út að flestir sem létust í bílslysum óku Mazda eða Lada-bílum. En auðvitað er ástæðan sú aö þetta eru metsölubílar en ekki að þeir eða bílstjórarnir sem þeim aka séu hættulegri en aðrir.“ HAHS HATlGNl HERJR SMAKKAFZA! " Á ólíkum grunni Kristjin Kristjánsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég minnist þess, að fyrir nokkrum árum síðan, hlustaði ég á umræður í sjónvarpinu, þar sem Grænmetisverslun ríkisins var á dagskrá. Andstæðingar hennar kölluðu húsnæði fyrirtækisins við Fellsmúla „Gullaugað" og töluðu um „höllína". Það var í raun og veru ekki hægt annað en tala um þessa húsbyggingu í gamansömum tón, eins og til hennar var stofnað. Jóhann Jónasson var eins og eðli- legt er, í forsvari fyrir Grænmet- isverslunina í þessum þætti og nefndi til samanburðar að Morg- unblaðið hefði einnig byggt höll. Hann skildi nefnilega ekki mun- inn a þessu tvennu, að byggja fyrir eigin dugnað og árvekni um áraraðir, frá morgni til kvölds — élju og vakandi starf, eða vera úr leik ella, ef ekki væri hægt að standast kröfur viðskiptavinanna, eða hins vegar að skríða undir handarjaðar ríkisins og biðja um peninga til fjárfestingar og einok- unaraðstöðu til rekstrarins, einka- sölu, innflutningseinokun o.s.frv. Það er hægt að byggja hallir á ólíkum grunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.