Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 10.07.1982, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1982 43 meðvitundar og ekki lengur í lífshættu Markahæstu menn HM-keppninnar MJÖG jöfn og spcnnandi keppni verdur um markakóngstitilinn á HM ef að líkum lætur. Þrír efstu menn leika í síðustu tveimur leikj- unum, Boniek Póllandi í dag, og Rossi og Rummenigge. Rummen- igge byrjar þó ekki inn á þannig aö Rossi stcndur óneitanlega vel að vígi. Þessi eru markahæstir fyrir síð- ustu tvo leikina: Mörk Paolo Rossi, Ítalíu 5 Karl-H. Rummenigge, V-Þýskal. 5 Zbigniew Boniek, Póllandi 4 Zico, Brasilíu 4 Gerry Armstrong, N-írlandi 3 Roberto Falcao, Brasilíu 3 Alain Giresse, Frakklandi 3 I.aszlo Kiss, Ungverjalandi 3 • Harold Schumacher var betri en enginn I vítaspyrnukeppninni í fyrra- kvöld. Hann varði tvívegis fri Frökkunum, þeim Six og Bossis. Stielike misnotaði næstu spyrnu Þýskalands, Ettori varði. Stielike grúfði höfuðið milli handa sér og grét, hélt greinilega að nú væri leikurinn tapaður. En svo var aldeilis ekki. Didier Six steig nú fram og gat tryggt Frökkum sigur í leiknum með því að skora. Það tókst ekki, Schumacher varði, og áttu Þjóð- verjar nú aftur möguleika á að sigra. Littbarski jafnaði 3—3, Platini skoraði fjórða mark Frakka, og Rummenigge sváraði fyrir Þjóðverja. Var því jafnt 4—4 eftir 5 spyrnur. Þá var komið að „sudden-death“ eins og það er kallað, teknar eru vítaspyrnur þar til annað liðið er úr leik. Maxime Bossis, bakvörðurinn snjalli hjá Frökkum, tók fyrstu spyrnuna en Schumacher varði nú í annað sinn. Horst Hrubesch þrumaði síðan næstu spyrnu Þjóð- verja í netið og tryggði sínum mönnum sigur. Stielike, sem nærri var búinn að klúra möguleikum Þjóðverja, var enn náfölur og gat varla kreist fram bros, þrátt fyrir að liði hans hefði tekist að sigra. Six, sem gat tryggt Frökkum sigur, en brást, var eins og í transi og algjörlega vonlaust var að hugga Bossis. FRÁ þvi var skýrt i gærmorgun, að franski leikmaðurinn, Battiston, sem meiddist og varð að bera út af í leiknum gegn Þjóðverjum, væri kominn til meðvitundar og úr allri lífshættu. Derwall bjartsýnn eins og venjulega KARL Heinz Rummenigge, fyrirliði þýska liðsins, mun ekki hefja. leik- inn á morgun að sögn Jupp Derwall, þjálfara Þjóðverja. „Hann er ekki búinn að ná sér fullkomlega af meiðslunum og þarfnast meiri með- höndlunar," sagði Derwall. Rumenigge var varamaður gegn Frökkum í undanúrslitunum, kom síðan inn á í framlengingunni og skoraði eitt mark. Derwall tilkynnti að þýska liöið yrði sennilega það sama og byrjaði leikinn gegn Frökk- um. Sá eini sem á við meiðsli að stríöa, utan Rummenigge, er Uwe Reinders og leikur hann því vænt- anlcga ekki með. Derwall var bjartsýnn á úrslit leiksins er hann talaði við frétta- menn í gær. Hann sagði að úrslit- in í leiknum við Frakkland hefðu haft mjög góð sálræn áhrif á sína menn. Hann sagði að ítalir væru ekki eins sterkir og þegar þeir lögðu Argentinu og Brasilíu að velli í milliriðlinum. „í leiknum gegn Póllandi í undanúrslitunum á fimmtudaginn, náðu þeir ekki að spila nærri eins vel og áður,“ sagði hann. Karl-Heinz Förster mun fá það erfiða hlutverk að gæta Paolo Rossi, sem skoraði hefur 5 mörk í tveimur síðustu leikjum. „Ég held að Förster muni ráða við hann,“ sagði Derwall. Enzo Bearzot: „Megum ekki vera sigurvissir“ Víðir og Tindastóll eru efst í 3. deild KKKERT verður leikið í 1. deildinni um helgina vegna landsleiks íslands og Finnlands i Helsinki. En margir leikir fara fram í 2. og 3. deiid. Úrslit leikja í 3. deild um síðustu helgi urðu þessi. Lið Víðis er efst í A-riðl- inum en Tindastól! er með forystuna í B-riðlinum. A-RIÐILL Selfoss — Víðir ............ 0—3 Víkingur Ó. — Snæfell ...... 1—0 Haukar — ÍK ................ 0—0 HV — Grindavík ............. 2—1 STAÐAN í A-RIÐLI: Víðir ......... 7 6 0 1 17:4 12 Selfoss ....... 7 4 2 1 11:9 10 HV ............ 7 3 2 2 8:5 8 Grindavík ..... 7 3 2 2 9:7 8 IK 7 2 1 4 7:10 5 Snæfell 7 2 1 4 7:10 5 Víkingur Ó 7 1 3 3 5:13 5 Haukar 7 0 3 4 3:9 3 BKIDILL Sindri - HSÞ b frestað Huginn — Magni 4- -0 KS — Arroðinn 3- -0 Tindastóll — Austri 3- -0 Staðan í B-riðli: Tindastóll 7 5 2 0 17:5 12 Huginn 6 4 2 0 11:4 10 KS 6 4 0 2 21:6 8 HSÞ b 5 1 4 0 6:4 6 Austri 7 1 3 3 6:9 5 Magni 7 1 2 4 9:14 4 Árroðinn 7 115 4:14 3 Sindri 5 1 0 4 2:20 2 • Didier Six kom mikið við sögu í leiknum gegn Þýskalandi. Nokkrum sekúndum fyrir leikslok fékk hann gott færi til að taka forystuna fyrir Frakka en mistókst. Síðan gat hann tryggt liði sínu sigur í vítaspyrnu- keppninni, en lét Schumacher verja frá sér spyrnuna. Frakkinn Battiston: Kominn til EINS og komið hefur fram þótti leikur Vestur-Þýskalands og Frakk- lands í fyrrakvöld sá mest spenn- andi í sögu heimsmeistarakeppninn- ar. Þjóðverjarnir mörðu sigur eftir vitaspyrnukeppni, eftir að Frakkarn- ir höfðu náð tveggja marka forystu í framlengingunni. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 1—1, og eftir framlengingu var staðan 3—3. Litum nú aðeins nánar á hvernig málin gengu fyrir sig i vítaspyrnu- keppninni. Hvort lið fékk 5 vítaspyrnur, til að skera úr um hvort liðið kæmizt í úrslitaleikinn. En það reyndist ekki nóg þar sem þau voru enn jöfn eftir það. Frakkar unnu hlutkestið og byrjuðu. Alain Gir- esse skoraði úr fyrstu spyrnu þeirra og Manfred Kaltz jafnaði fyrir Þýskaland. Manuel Amoros skoraði síðan fyrir Frakka og Paul Breitner fyrir Þjóðverja. Rochetau kom Frökkum yfir 3—2, en Uli Hann lenti í samstuði við Har- old Schumacher, markvörð Þjóð- verja, og þótti mörgum sem markvörðurinn hefði brotið gróf- lega af sér, og voru óánægðir með að hann hefði ekki verið rekinn af velli. Tvær tennur brotnuðu í Battiston er þeir skullu saman. • V-þýska liðið kom til Madrid í gærdag og tók þá strax æfingu. Derwall ætlaði líka að láta sína menn efa létt fýrir hádegi í dag en síðan fyrirskipaði hann hvíld fram að úrslitaleiknum. Á myndinni má sjá hann vera að gefa leikmönnum sínum fyrirskipanir á æfingu. Vítaspyrnukeppnin sögulega hjá Frökkum og Vestur-Þjóöverjum Einherji sigraði FH ENZO Bearzot, þjálfari Ítalíu, sagði í gær, að hann væri ekki búinn að ákveða hvaða leikaðfcrð hann beitti í leiknum á morgun, en hann bjóst Opiö kvennamót á Hólmsvelli GOLFKLÚBBUR Suðurnesja heldur opið kvennamót í golfi á morgun, sunnudag, og nefnist það Kosta Boda-mótið. Verður það á Hólms- velli á Leiru og hefst kl. 13.00. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar og hefur Kosta Boda gefið vegleg verðlaun til keppn- innar. Þátttaka tilkynnist til Golf- klúbbs Suðurnesja. við að Þjóðverjarnir myndu leika stífa dekkingu, maður á mann um allan völl. Háværar raddir voru uppi um það í herbúðum Ítalíu að ef Kummenigge kæmi inn á, myndi Gentile verða settur á hann. Gentile tók einmitt Maradona og Zico úr umferð fyrir stuttu. Bearzot sagði að ítalir hefðu ekkert að hræðast nema sigurviss- una. „Það er stórhættulegt að vera of sigurviss fyrir leiki,“ segir hann. „Við verðum að halda okkur við staðreyndir. í úrslitaleikjum er aldrei hægt að segja fyrirfram hvort liðið sigrar. Urslit leiksins ráðast kannski á einu atviki sem enginn getur séð fyrirfram. Við verðum að treysta á sál- rænan styrk okkar. Á hve vel mín- um mönnum líður andlega eftir sigrana í síðustu leikjum. Við vit- um að við getum skorað mörk.“ Bearzot segir um Paolo Rossi, hetju ítala í síðustu leikjum: „All- ir eru að tala um Rossi, nú þegar hann fer að skora. Ég hef sagt að hann þyrfti aðeins að leika til að komast í toppþjálfun, og það er einmitt það sem er að gerast. Allir leikmenn mínir hafa stað- ið sig vel og ég sé ekki ástæðu til að breyta liðinu. En ég hef nóg af mönnum á bekknum tij að skipta inn á ef þörf krefur," segir Bear- zot. Einherji sigraði FH í 2. deildinni í fótbolta í fyrrakvöld með 4 mörkum gegn 3. Fór leikurinn fram á Vopna- firðL Kristján Davíðsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Einherja en Helgi Ragnarsson svaraði fyrir hlé. FH komst síðan í 3—1 með mörkum Pálma Jónssonar og Jóns Erlings Aðalsteinssonar en síðan skoruðu Einherjamenn þrisvar og tryggðu sér sigurinn. Mörkin skor- uðu: Ólafur Ármannsson, Aðal- björn Björnsson og Gísli Davíðs- son. Leikið um 3.—4. sætið PÓLVERJAR og Frakkar mætast í dag, í leiknum um 3. sætið í HM-keppninni. Leikurinn fer fram í Alicante. Boniek mun leika með Pólverjum að nýju eftir eins leiks bann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.