Morgunblaðið - 24.08.1982, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI OG HUÓMBÆJARBLAÐ
184. tbl. 69. árg._______1>RIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982_Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Talsmenn útgerðar, iðnaðar, verzlunar og verkalýðssamtaka andmæla bráðabirgðalögunum:
Engin töfrabrögö duga til aö
tryggja rekstur útgeröar
— segir Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna
Erlendur gjaldeyrir hækkar um allt að 18% — helmings
skerðing verðbóta 1. desember — hækkun vörugjalds
Kfnahagsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar, sem kynntar voru á laugar-
dagskvöldið, hafa sætt harðri gagn-
rýni talsmanna atvinnuveganna og
verkalýðssamtakanna. Kristján
Kagnarsson, formaður LÍÚ, segir í
viðtali við Morgunblaðið í dag, að
„það eru engin þau töfrabrögð til,
sem gera útgerðinni mögulegt að
halda rekstri áfram við þessi skil-
yrði“. í ályktun miðstjórnar ASÍ er
því mótmælt „harðlega, að nú skuli
enn einu sinni gripið til vísitölu-
skerðingar á kaupi almenns verka-
fólks“.
Víglundur Þorsteinsson, for-
maður Félags ísl. iðnrekenda, seg-
ir í Morgunblaðinu í dag að verði
Pólland:
Þolinmæði her-
stjórnarinnar
á þrotum
Varsjá, 23. á^Visl. AP.
I’OLSKA herstjórnin virðist nú orðin
mjög uggandi um sinn hag, en í dag
var birt eindregin aðvörun um að þol-
inmæðin gagnvart andófi Samstöðu
væri á þrotum, um leið og þess var
krafizt að vestrænar útvarpsstöðvar
hættu að senda „óhróður" inn í Pól-
land á stuttbylgju. Þá var sendiherrum
Kandaríkjanna, Krakklands, Kretlands
og V-Þýzkalands stefnt í utanríkisráðu-
neytið í Varsjá til að taka við mótmæl-
um vegna „áróðursstarfsemi sem
stefnt væri gegn Póllandi".
Aðvörunin til Samstöðu var birt á
forsíðum tveggja helztu málgagna
stjórnarinnar, en stjórnmálaskýr-
endur leggja þá merkingu í boðskap-
inn að yfirvöld hyggist nú reyna að
einangra hina svokölluðu „öfgasinn-
uðu leiðtoga neðanjarðarhreyfingar-
innar" og aðra andófsmenn frá fjöld-
anum.
Hin friðsamlegu mótmæli gegn
stjórninni héldu áfram um helgina,
en mótmælendur láta sem fyrr mest
að sér kveða í hinni gömlu miðborg
Varsjár. Lögreglan hafði-að vanda
mikinn viðbúnað og stóð með vatns-
þrýstitæki sín við mannfjöldann en
ekki kom til þess að þeim yrði beitt.
Gullverð hækkar
London, 23. ágúst. AP.
IX)LLARINN styrktist nokkuð gagn-
vart evrópskum gjaldmiðli í dag eftir
nokkra óvissu í síðustu viku og er það
rakið til örlítið hærri vaxta í Kandaríkj-
unum. tjlull hækkaði einnig i verði.
Gullkaupmenn í Sviss segja, að
brátt muni gullið komast yfir 400
dollara fyrir únsuna og að ástæðurn-
ar séu fyrst og fremst minnkandi
vextir og óvissa í alþjóðlegum
bankamálum. Þegar viðskiptum lauk
í dag fengust 396,50 dalir fyrir úns-
una, 11 fleiri en sí. föstudag.
ekki gerðar frekari ráðstafanir
„þá er erfiður, langur og harður
vetur framundan í mörgum
iðnfyrirtækjum".
Erlendur Einarsson, forstjóri
SÍS, segir að „miklir erfiðleikar
verði því samfara fyrir verzlunina
að taka á sig skerðingu verzlunar-
álagningar vegna dreifingar nauð-
synjavöru". Erlendur Einarsson
gagnrýnir harðlega lengingu
orlofs og segir: „Ég trúi því ekki
að ríkisstjórnin sé þeirrar skoðun-
ar, að íslendingar sigrist á efna-
hagsvandanum með því að taka
sér lengri frí.“
Jón Karlsson, formaður verka-
lýðsfélagsins á Sauðárkróki segir
Líbanon:
Kristnir fagna
nýjum forseta
Ik-irúl, 23. ácúst. AP.
MIKILL fögnuður varð í hverfum
kristinna manna í Beirút í dag
þegar tilkynnt var um kjör nýs for-
seta. Kashir Gemayel, en hann er
34ja ára gamall foringi úr her
kristinna hægri manna. Gemayel
og menn hans hafa verið hand-
gengnir ísraclska innrásarliðinu í
landinu og eru múhammeðstrú-
armenn afar óánægðir með kjör
hans.
Samkvæmt stjórnarskrá Líb-
anons skal forseti landsins
koma úr röðum kristinna
manna en forsætisráðherrann
úr röðum múhammeðstrúar-
manna.
Það eru þingmenn sem kjósa
forsetann og til að kosning sé
lögmæt þurfa % hlutar þing-
manna að taka þátt. Þegar kjör-
fundur hófst í morgun leit út
fyrir að fundarsókn fullnægði
ekki settum skilyrðum, en þing-
menn tindust inn hver af öðrum
þar til mættir voru 62, sem er
tilskilin tala. í fyrstu atrennu
hlaut Gemayel 58 atkvæði, en í
annarri lotu þar sem einfaldur
meirihluti ræður úrslitum hlaut
frambjóðandinn, sem var sá eini
í framboði, 57 atkvæði og var
þar með kjörinn.
að sig vanti „skýringu á því ennþá
hvers vegna félögin voru ekki
hvött til að segja upp samningum
af miðstjórn Alþýðusambandsins
...“ Aðgerðirnar hafa einnig verið
harðlega gagnrýndar af tals-
mönnum stjórnarandstöðunnar,
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks. Þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins hefur sett fram kröfu
um að Alþingi verði kallað saman
til fundar. Þá lýsir Eggert Hauk-
dal, alþingismaður, yfir því í
Morgunblaðinu í dag, að hann
styðji ekki lengur núverandi ríkis-
stjórn.
Helztu atriði í efnahagsaðgerð-
Brottflutningi PLO-manna frá
Beirút var í dag haldið áfram, en
síðdegis lagði skip af stað til Suð-
ur-Jemen með viðkomu á Kýpur
með um þúsund PLO-liða innan-
borðs. Sprengjutilræði við höfnina
seinkaði komu bílalestar sem flyt-
ur skæruliða úr PLO-búðunum að
skipsfjöl, en cngan sakaði og fleiri
sprengjur sprungu ekki. Þegar
PLO-mennirnir fóru um götur
borgarinnar skutu stuöningsmenn
þeirra af vélbyssum og loftvarna-
um ríkisstjórnarinnar eru þessi:
Helmingur verðbótahækkana á
laun 1. desember næstkomandi er
felldur niður. Þá eru ákvæði um
ráðstöfun gengismunar vegna
13% gengisfellingar, sem ákveðin
var á laugardag. Mælt er fyrir um
hækkun vörugjalds á ákveðnum
vörutegundum og hækkar það úr
24% í 32% og úr 30% í 40% eftir
tegundum, gildir hækkunin til 28.
febrúar 1983. Þá er mælt fyrir um
2,9% frádrátt á verðbótum á laun
1. september nk. Loks er ríkis-
stjórninni heimilað að verja 50
millj. króna til láglaunafólks.
I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
er lýst forsendum efnahagsað-
gerðanna og áhersla lögð á ört
vaxandi erfiðleika íslensks efna-
hagslífs á síðustu mánuðum. Þýð-
ingarmest telur ríkisstjórnin að
draga úr viðskiptahallanum. Þá
hefur yfirlýsingin að geyma 21
byssum í kveðjuskyni, auk þess
sem skothríð kvað við í hverfum
kristinna manna er þeir lognuðu
kosningu Gemayels, svarnasta
óvinar PLO í Beirút, i forseta-
embætti.
Um þriðjungur PLO-manna
hefur þá verið fluttur frá Beirút
á þeim þremur dögum sem liðnir
eru frá því að brottflutningur
hófst, en þegar samkomulag um
flutninginn tókst voru skærulið-
ar í borginni um 7.100.
Búizt ér við því að einhvern
atriði um stefnumál ríkisstjórnar-
innar, sem hún hefur ákveðið að
standa að. Þar má nefna nýtt við-
miðunarkerfi fyrir laun miðað við
þróun framfærslukostnaðar og
tveggja ára bann við innflutningi
á fiskiskipum.
Með skerðingu verðbóta á laun
stefnir ríkisstjórnin að því að
draga úr víxlgangi kaupgjalds og
verðlags. Með aukinni skatt-
heimtu á að draga úr viðskipta-
halla og jafna lífskjör. Með geng-
isfellingunni á að styrkja stöðu
atvinnuveganna og draga úr inn-
flutningi, gengismuni á að helm-
ingi að ráðstafa í þágu sjávarút-
vegs, einkum vegna erfiðleika í
togaraútgerð, segir í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar.
Sjá ennfremur um bráúabirgða-
lojf ríkisstjórnarinnar á bladsíðum:
2,3, 12, 13, 14. 15, 16, 17, 20, 29, 30,
34, 35, 36 og 37.
næstu daga komi um 150 PLO-
leiðtogar og starfsmenn samtak-
anna til Túnis, en þar er mikill
viðbúnaður vegna komu þeirra.
PLO-forystan kemur að líkindum
flugleiðis frá Damaskus, en í
Túnis er ætlunin að samtökin
setji upp nýjar aðalstöðvar í
húsakynnum Arababandalagsins
í borginni. Þó er búizt við því að
„þjóðarráð Palestínumanna"
sem er nokkurs konar þing
þeirra verði eftir í Damaskus.
Sjá ennfremur á bls. 18 og 19.
Vopnlausir PLO-liðar á Larnaca-flugvelli á Kýpur rétt áður en þeir stigu um borð í flugvélar sem fluttu þá til Jórdaníu
og Irak.
Þriðjungur PLO-liða
er farinn frá Beirút
Beirút, 23. ágúst. AP.
AP-símamynd.