Morgunblaðið - 24.08.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982
23
Víðir með 6 stig
VÍDIK í Garði og Tindastóll frá
Sauðárkróki léku í úrslitakeppni 3.
deildar sl. laugardag og lauk leikn-
um með sigri Víðis 1—0, en leikur-
inn fór fram í Garðinum.
Ekki er hægt að segja að heppn-
in hafi verið með norðanmönnum í
leiknum. Þeir byrjuðu leikinn
mjög vel og fengu gott færi strax á
fyrstu mínútunni. Annars var
leikurinn í jafnvægi allan fyrri
hálfleikinn eða þar til á síðustu
sek. fyrri hálfleiks að Tindastóll
fékk vítaspyrnu. Boltinn skall í
þverslá og út á völlinn og dómari
flautaði til hálfleiks.
Heimamenn voru mun að-
gangsharðari við mark andstæð-
inganna í síðari hálfleik og fengu
mörg gullin tækifæri til að skora.
Á 30. mínútu síðari hálfleiks skor-
aði svo Guðjón Guðmundsson gott
mark eftir glæsilega sóknarlotu
Víðismanna en þetta mark reynd-
ist verða eina mark leiksins. Guð-
mundur Knútsson fékk þó gullið
tækifæri til að bæta öðru marki
við á lokamínútunum.
Beztu menn leiksins voru bræð-
urnir Guðjón og Ingimundur Guð-
mundssynir.
- AR.
Storsigur KS
SIGLFIRÐINGAR unnu stóran sig-
ur á liði Selfoss í úrslitakeppni 3.
deildar á Siglufirði um helgina.
Lokatölur leiksins urðu 7—0, eftir
að staðan hafði verið 2—0 í hálfleik!
Fyrsta stundarfjórðunginn
fengu heimamenn mjög góð færi,
og það var ekki fyrr en
aðalmarkaskorari þeirra, Óli Agn-
arsson, sem skorað hefur yfir 20
mörk í sumar, var farinn út af
slasaður, að mörkin tóku að hrúg-
ast upp. Óli lenti í samstuði við
markvörð Selfyssinga á 15. mín.
og varð fyrir því óláni að kjálka-
brotna. Eru litlar líkur á því að
hann leiki meira í úrslitakeppn-
inni.
Eins og tölurnar gefa til kynna
var leikurinn nokkur einstefna, og
hefði sigurinn jafnvel getað orðið
stærri.
Mörk KS gerðu þessir: Hafþór
Kolbeinsson 2, Þorgeir Reynisson
2, Jakob Kárason 1, Baldur Benón-
ýsson 1 og Gunnar Stefán Jónas-
son 1.
— rb/— SH.
• Framarar, nýbakaðir íslandsmeistarar i 3. flokki, ásamt þjálfara sínum, Hlöðver Erni Rafnssyni.
Mynd Sigurgeir.
Fram sigraði í 3. flokki
Tíu mörk í lífleg-
um leik öldunganna
MIKLAR sviptingar voru í síðustu
leikjum riðlakeppninnar í íslands-
móti öldunga. Hápunktinum var náð
í leik KR og ÍBA, sem fram fór á
KR-vellinum á laugardag. Akureyr-
ingar sigruðu i leiknum með 6 mörk-
um gegn 4. KR-ingar skoruðu fyrsta
mark leiksins, ÍBA jafnaði, en enn
komust KR-ingar yfir. Þá fóru norð-
anmenn almennilega í gang og kom-
ust í 6—2. KR-ingar gáfust þó ekki
upp og skoruðu tvö síðustu mörkin,
10 mörk í fjörugum og bráðskemmti-
legum leik. Kári Árnason skoraði
þrennu fyrir ÍBA, Baldvin Baldvins-
son 2 mörk fyrir KR.
Fyrr í vikunni hafði KR gert
jafntefli við Breiðablik, 2—2, og á
föstudag gerði ÍBA jafntefli við
FH, 1-1.
Staðan í riðlinum er sú, að Vík-
ingar eru efstir með 2 stig töpuð
og hafa lokið leikjum sínum. Ak-
ureyringar hafa tapað þremur
stigum en leik þeirra við Hauka er
ólokið. Sennilega dæmist leikur-
inn Haukum tapaður þar sem þeir
mættu ekki til leiks á ákveðnum
leikdegi.
Víkingar eru þó ekki öruggir í
úrslitaleikinn við Fram, sem sam-
kvæmt mótabók á að fara fram
næsta laugardag. Akureyringar
hafa kært leikinn við Víking og
telja þeir Víkingsliðið hafa verið
ólöglegt. Diðrik Ólafsson mark-
vörður Víkings hafi verið á leik-
skýrslu með 1. deildarliði félags-
ins fyrr í sumar og því megi hann
ekki leika með öldungunum. Vík-
ingar telja hann hins vegar lögleg-
an þar sem hann hafi ekki farið
inn á og því ekki verið þátttakandi
í leiknum.
FRAM varð íslandsmeistari í 3. ald-
ursflokki, sigraði Þór Vm. 2—0 í úr-
slitaleik en úrslitakeppnin í þessum
(lokki var háð í Vestmannaeyjum
um helgina. Átta lið höfðu unnið sér
rétt til úrslitakeppninnar og var
þeim skipt í tvo riðla. { A-riðli voru
Fram, KR, UBK og Reynir Sand-
gerði en í B-riðli, Þór VM., Fylkir,
Völsungur Húsavík og Sindri Höfn.
Úrslit leikja í riðlunum urðu
þessi:
A-riðill:
Reynir — KR 0—4
UBK — Fram 0—2
KR — Fram 1—2
Reynir — UBK 2—4
UBK - KR 0-3
Fram — Reynir 6—0
Fram 6 stig, KR 4 stig, UBK 2
stig, Reynir 0 stig.
B-riðill:
Völsungur — Fylkir 0-0
Þór — Sindri 5-1
Fylkir — Sindri 6-0
Völsungur — Þór 0-1
Sindri — Völsungur 0-5
Þór — Fylkir 1-0
Þór 6 stig, Fylkir 3 stig, Völs-
ungur 3 stig, Sindri 0 stig.
Um 7.-8. sætið léku Reynir og
Sindri og sigraði Reynir 2—0 með
mörkum Finns Bergmanns og
Þráins Maríussonar. Um sæti 5 og
6 léku svo UBK og Völsungur. Þar
fóru Völsungar með öruggan sigur
af hólmi, 3—0. Völsungar léku
þennan leik mjög vel, Sigurður
Már Harðarson skoraði tvö góð
mörk og Skarphéðinn ívarsson
bætti því þriðja við.
Það voru svo iið KR og Fylkis
sem léku um 3. og 4. sætið.
KR-ingar byrjuðu leikinn mjög vel
og voru komnir 2—0 yfir með
mörkum Unnars Ingimundarsson-
ar og Gunnars Skúlasonar sem
skoraði úr víti. En Fylkismenn
sóttu jafnt og þétt í sig veðrið þó
ekki blési byrlega í upphafi. Guð-
mundur Magnússon skoraði tvö
mörk og jafnaði metin og í lokin
varð KR-ingurinn Kristján Páls-
son fyrir því aðþrengdur að senda
boltann í eigið mark, sigur Fylkis,
3—2 var þar með í höfn og þriðja
sætið í keppninni tryggt.
I úrslitunum mættust síðan
Fram og Þór Vm. Framarar byrj-
uðu með krafti og skoruðu eftir 10.
mín., Arnar Halldórsson skallaði
glæsilega í markhornið uppi. Og á
25. mín. bætti síðan Garðar
Ólafsson við öðru marki Fram.
Framarar voru töluvert aðgangs-
harðari í fyrri hálfleiknum en í
þeim síðari komu Þórsarar meira
inn í leikinn en þeim tókst ekki að
skora í leiknum og Framarar náðu
ekki að bæta við skor sitt. Því sig-
ur Fram 2—0 og meistatitillinn í
höfn. Þetta var verðskuldaður sig-
ur Framliðsins, áberandi jafnasta
lið keppninnar.
Jóhann Ólafsson stjórnarmaður
i KSÍ afhenti Framliðinu sigur-
laun sín. Valinn var besti maður
leiksins og fyrir valinu varð Þórir
Ólafsson leikmaður Þórs. Var það
vel við hæfi því Þórir var að mati
undirritaðs besti leikmaður
keppninnar, geysimikið efni sem
Eyjamenn eiga þar. Sindri frá
Höfn í Hornafirði var valið prúð-
asta lið keppninnar af dómurum.
— hkj.
• Lið Breiðabliks í 2. flokki, nýbakaðir lslandsmeistarar, ásamt þjálfara og forráðamönnum. Mynd Cuéjón.
UBK meistari í 2. flokki
UBK 3 2 1 0 5: 1 5 KR 3 1 1 1 7: 4 3
Víkingur 3 1 2 0 5: 2 4 Grindavík 3 0 0 3 1:11 0
Opna Hitachi-mótió:
Ingólfur var bestur
BREIÐABLIK varð um helgina ís-
landsmeistari í 2. flokki í knatt-
spyrnu, er úrslitakeppnin fór fram
í Kópavogi. Fjögur lið léku til úr-
slita; Breiðablik og KR komu úr
A-riðli, Víkingur úr B-riðli og
Grindavík úr C-riðli.
Úrslit leikjanna urðu þessi:
UBK — Grindavík 1:1
KR — Grindavík 6:1
UBK - Grindavík 2:0
KR — Víkingur 1:1
Víkingur — Grindavík 3:0
UBK - KR 3:0
Lokastaðan í keppninni varð því
þannig:
GOLFKLÚBBUR Selfoss (GOS)
gekkst fyrir móti á laugardaginn,
Opna Hitachi-mótinu, og voru
leiknar 18 holur. Efstu menn urðu
þessir:
Án forgjafar:
1. Ingólfur Bárðarson, GOS 77
2. Sigurður Héðinsson, GK 79
3. Sveinn J. Sveinsson, GOS 83
Með forgjöf:
1. Sveinn J. Sveinsson, GOS 66
2. Kolbeinn I. Kristinsson, GOS 67
3. Ingólfur Bárðarson, GOS 68
íþróttir — heilsurækt
íþróttasalur Vals
v/ Hlíðarenda
veröur leigöur út í vetur frá
1. sept. nk. Innanhússknattspyrna,
handbolti, körfubolti, badminton
(4 vellir), blak, leikfimi, o.fl.
Til athugunar fyrir:
íþróttafélög.
Félagasamtök.
Starfsmannahópa — aöra hópa.
íþróttakennara til alm. námskeiöa.
Einstaklinga.
Nánari uppl. gefur
Guömundur Sigurösson ^
aC Hlíöarenda kl. 10—12
og 1—3, sími 11134. Tilboð
berist í síðasta lagi 30. ágúst nk.
Aðalstjórn
Vals.
í . ;
\) J Ú ■■
/Ai