Morgunblaðið - 01.09.1982, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.09.1982, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982 21 fltoggtiiilrlfiMfr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 10 kr. eintakiö. Stödvast flotinn? Stjórn og trúnaðarmannaráð Útvegsmannafélags Suð- urnesja hefur beint því til stjórnar Landssambands íslenskra útvegsmanna, að hún láti kanna hvort útgerðar- mönnum finnist ekki tímabært að fiskiskipaflotinn verði stöðvaður þangað til „fundist hefur viðunandi rekstrar- grundvöllur" eins og segir í ályktun Útvegsmannafélagsins. Þessi ályktun var samþykkt aðeins fimm dögum eftir að ríkisstjórnin hafði að sögn ráðherranna gert efnahags- ráðstafanir, sem áttu „að treysta undirstöður atvinnulífsins ... og tryggja þannig öllum landsmönnum næga atvinnu." Má með sanni segja, að yfirsýn ríkisstjórnarinnar yfir stöðu þjóðarbúsins er ekki mikil, ef ráðstafanir sem gerðar eru í þessum tilgangi duga ekki til að bægja frá stöðvun fiskiskipaflotans. „Það er útilokað að við getum haldið áfram til lengdar við núverandi rekstrarskilyrði," sagði Vilhelm Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyrar, hér í blaðinu í gær um útgerð fyrirtækisins. Gísli Jónasson, útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, sagði augljóst, að flotinn stöðv- aðist sjálfkrafa við núverandi rekstrarskilyrði. Guðmundur Guðmundsson, formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða, sagði: „Útlitið er mjög slæmt; það hefur aldrei verið verra ... Óhjákvæmilega stefnir í stöðvun veiða. í raun kemur ekkert annað til greina nema eitthvað verði að gert.“ Og Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Haralds Böðv- arssonar og Co. á Akranesi, sagði: „Dæmið gengur ekki upp lengur ... Og ljóst er að verði ekki tekið á málum mun atvinnuleysi vaxa til muna hér á landi." Þegar þessi ummæli athafnamanna sem fylgjast daglega með stöðunni í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar eru les- in, sést hve ráðherrarnir eru fjarlægir raunveruleikanum í ákvörðunum sínum. Orð athafnamannanna staðfesta betur en nokkuð annað, að í síðustu efnahagsráðstöfunum tók ríkisstjórnin ekki mið af þjóðarhag heldur byggðust þær á tilliti til þess, hvort ráðherrarnir gætu setið lengur við kjötkatla kerfisins í ráðuneytunum; hvort þeir gætu frestað því að þurfa að hlíta dómi kjósenda. Halldór Ibsen, fram- kvæmdastjóri Útvegsmannafélags Suðurnesja, sagði: „Menn líta þannig á málið nú, að útgerðin eigi alls ekki málsvara innan ríkisstjórnarinnar ... “ Þetta er rétt mat, ráðherrarnir taka aðeins ákvarðanir út frá eigin stöðu í pólitíkinni, þeir eru fyrir löngu hættir að „líta yfir landið allt“. Hvaða mælistika er rétt? Aþað hefur verið bent, að sameiginlegt fylgi Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks minnkaði um 11% á milli þingkosninganna 1979 og sveitarstjórnarkosninganna 1982. Ríkisstjórnarflokkarnir tveir njóta aðeins stuðnings 33,7% kjósenda. Ráðherrarnir halda fast í það, að þeir hafi 31 mann sér til stuðnings í sameinuðu þingi, og vilja alls ekki yfirgefa ráðuneytin, þótt þeir hafi enga vissu fyrir því að koma þingmálum fram. Augljóst er, að eftir því sem viðfangsefni ríkisstjórna eru örðugri er hættusamara að ríkisstjórn sitji, ef verulega skortir á um fylgi hennar með- al þjóðarinnar. Þetta er ein af grundvallarreglum lýðræð- islegra stjórnarhátta. í forystugrein Tímans í gær er því andmælt, að hætta sé því samfara að ríkisstjórnir streitist við að sitja þrátt fyrir afhroð aðstandenda þeirra í kosningum. Eru framsóknar- menn vinsamlega beðnir að löggilda einhverja mælistiku, sem þeir telja heimilt að nota þegar lagt er mat á stöðu þessarar furðulegu stjórnar, úr því að ekki má dæma hana eftir fylguflokkanna, sem að henni standa. Má dæma ríkisstjórnina eftir því hvernig krónan hefur þróast gagnvart dollar í tíð hennar? Á upphafsdegi ríkis- stjórnarinnar var unnt að kaupa 125 dollara fyrir 500 krón- ur — nú fást aðeins 35 dollarar fyrir 500 krónur. Ágætur árangur af skógrækt- arstarfi víðsvegar um land segir Hulda Valtýsdóttir AÐALFUNDUR Skógræktarfélags íslands var haldinn á Akureyri dag- ana 27.—29. ágúst sl., en skógrækt- arfélögin hér á landi eru 31 talsins og eiga þau öll adild aö Skógræktar- félagi íslands. í stjórn Skógræktarfélags íslands eiga nú sæti Hulda Valtýsdóttir, Bjarni Helgason, Jónas Jónsson, Kjartan Olafsson, Ólafur Vil- hjálmsson, Kristinn Skæringsson og Bjarni K. Bjarnason. í varstjórn eru Ásgrímur Halldórsson og Baldur Helgason. Morgunblaöiö spjallaöi stuttlega viö Huldu Valtýsdóttur um skóg- ræktarmál og aðalfund Skógræktar- félagsins. „Mér er óhætt að segja að mikill hugur sé nú í skógræktarfólki yf- irleitt, enda margt sem bendir til þess að skilningur á mikilvægi trjá- og skógræktar hér á landi aukist með ári hverju, bæði hjá stjórnvöldum og meðal almenn- ings,“ sagði Hulda. „Þróunin síðustu ár hefur orðið sú að nú er farið að tala um skóg- rækt sem viðurkennda búgrein og iiggja til þess margar ástæður. Það starf sem fram hefur farið á vegum Skógræktar ríkisins hefur fært mönnum heim sannin um að hér má rækta skóg til nytja á völdum stöðum á landinu og nægir að benda á Fljótsdalsáætlunina sem hafist var handa um fyrir rúmum áratug, en þar eru nokkrar jarðir í Fljótsdal sem eiga hlut að máli. I Árnessýslu hafa þegar verið valdar nokkrar jarðir sem henta þykja til skógræktar og í Eyjafirði hafa verið kannaðar forsendur fyrir hérðasskógræktaráætlun og þar hafa margir bændur og land- eigendur sýnt málinu mikinn áhuga. Nú þegar bændum er uppálagt að fækka fé vegna offramleiðslu er eðlilegt að athygli beinist að nýj- um búgreinum. En skógrækt er búgrein sem gefur ekki arð fyrr en að vissum árafjölda liðnum og því nauðsynlegt að skógarbændur fái ríflega styrki í upphafi. Mætti t.d. hugsa sér að til þessa fengist fé um leið og útflutningsbætur á kindakjöti dragast saman. Þessi mál eru öll til athugunar en menn eru bjartsýnir á fram- gang þessarar atvinnugreinar hérlendis. Á nýrri landgræðsluáætlun fyrir árin 1981—85 sem samþykkt var á Alþingi í vor skipar skóg- rækt drjúgan sess. í áliti sam- starfsnefndar um landgræðslu- áætlun segir m.a.: — Verkefni skógræktar á íslandi eru óþrjót- andi. Þau höfða til allra, hvar sem er og hvað sem þeir stunda og allir eiga að geta átt þess kost að njóta árangurs þeirra. Því meira fé sem varið er til skógræktar, því lengra miðar í þá átt að endurheimta töp- uð landgæði og koma landinu í þá hefð sem loftslag, landslag og jarðvegsskilyrði bjóða upp á — sagði Hulda. „Þá mætti einnig geta þess að á síðasta þingi var lögð fram tillaga til þingsályktunar um landnýt- ingaráætlun en að henni standa þingmenn úr öllum flokkum. Þar segir í kafla um skógrækt: „Skóg- Hulda Valtýsdóttir rækt til nytja er í raun landbúnað- ur og kanna þarf hvernig heppi- legast er að tengja hana traustari böndum þeim atvinnuvegi." Þessi tillaga um landnýtingar- áætlun náði ekki fullnaðaraf- greiðslu á síðasta þingi. Hún er þó komin áleiðis en ætlast er til að drög að henni liggi fyrir í árslok 1983. Á þessum aðalfundi Skógrækt- arfélags íslands flutti Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri erindi um réttarstöðu skógarbúskapar í íslenskri landbúnaðarlöggjöf og þar kom fram að frá lagalegu sjónarmiði er skógarbúskapur jafnrétthár og annar búskapur. Annað umræðuefni aðalfundar- ins var útivist og landnýting í þéttbýli og trjárækt á útivistar- svæðum. Framsöguerindi um þau mál fluttu þeir Hallgrímur Indriðason og Vilhjálmur Sigtryggsson en báðir eru þeir framkvæmdastjór- ar skógræktarfélaga þar sem mjög gott samstarf hefur tekist við við- komandi bæjarfélag, Hallgrímur á Akureyri og Vilhjálmur í Reykja- vík. Árangur af slíku samstarfi hef- ur hvarvetna reynst mjög góður, ekki hvað síst það er varðar úti- vistarsvæði við þéttbýli enda skor- aði aðalfundurinn m.a. á bæjar- og sveitarfélög víðs vegar um land að taka upp eða efla slíka sam- vinnu við skógræktarfélögin á staðnum,“ sagði Hulda. „Skógræktarfélögin eru sem kunnugt er áhugamannafélög 31 talsins um land allt og eru öll að- ildarfélög Skógræktarfélags ís- lands. Þau eru eins og gefur að skilja misstór, en öll starfa þau af fórnfýsi og með bjargfasta trú á möguleika trjá- og skógræktar á Islandi og ég vil nota þetta tæki- færi til að hvetja fólk til að ganga í skógræktarfélagið í heimahéraði sínu og leggja þessum málum sitt lið. Þarna er um að ræða mann- bætandi hugsjónastarf sem auð- gar hvern sem að þeim vinnur og hlýtur að vera landi og lýð til góðs. Við, áhugafólk um skógrækt, finnum að nú blæs byrlega fyrir málstaðinn. Menn sjá nú með eig- in augum ágætan árangur af skógræktarstarfi víðs vegar um land og meta að verðleikum menntun og tilraunir á þessu sviði. Svo er fyrir að þakka ötulu starfi fagmanna á vegum Skóg- ræktar ríkisins og skógræktarfé- laganna," sagði Hulda Valtýsdótt- ir að lokum. Tillögur sem samþykktar voru á aðalfundi Skógræktarfélagsins: Nauðsynlegt að stórauka fjárveitingar vegna héraðs- skógræktaráætlana segir m.a í einni samþykktinni Tillögur sem fram komu og sam- þykktar á aöalfundi Skógræktarfé- lags íslands sem haldinn var dagana 27.—29. ágúst 1982 á Akureyri: Aðalfundur Skógræktarfélags ís- lands haldinn 27.—29. ágúst 1982, skorar á stjórn Skógræktarfélags ís- lands og Skógrækt rikisins að hlut- ast til um að komið verði á fót vinnu- flokki meö þjálfuðu fólki sem færi á milli héraðsskógræktarfélaganna og veitti aðstoð við hin ýmsu störf, t.d. grisjun, áburðargjöf og plöntun. — Aðalfundurinn skorar á Al- þingi að auka fjárveitingu til gróðrarstöðva með sérstöku tilliti til þess að halda megi verði trjá- plantna til skóggræðslu í lág- marki. — Aðalfundurinn bendir á brýna nauðsyn þess að stórauka fjárveitingar vegna héraðsskóg- ræktaráætlana til viðbótar því fjármagni sem þegar er áætlað til þessara verkefna og bendir á að þegar hafa tvö skógræktarfélög, Skógræktarfélag Árnesinga og Skógræktarfélag Eyfirðinga haf- ist handa. Fleiri félög munu fylgja á eftir. — Aðalfundurinn hvetur bæj- ar- og sveitarstjórnir til að styrkja eftir föngum starfsemi skógræktarfélaga í sínu umdæmi og vill um leið benda á þann mikla árangur sem náðst hefur með starfi skógræktarfélaga í Reykja- vík, á Akureyri, í Hafnarfirði og víðar. Á öllum þessum stöðum veita bæjarfélögin styrk til starf- semi félaganna og sjá til þess að þau hafi landrými eftir þörfum. — Aðalfundurinn beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráð- herra og fjárveitingavalds að framlög til skjólbelta verði stór- aukin. Fundurinn telur að ekki megi draga úr þeim framkvæmd- um og áhuga sem vakinn hefur verið. — Aðalfundurinn telur brýna nauðsyn til þess bera að fræðsla um skóg- og trjárækt verði tekin inn í námsskrá grunnskóla. — Aðalfundurinn beinir at- hygli Náttúruverndarráðs að því að við stofnun þjóðgarða og fólk- vanga sé reynt að vernda náttúru- legan gróður eins og kostur er og verja hann fyrir áföllum og eyð- ingu. — Aðalfundurinn skorar á landbúnaðarráðherra að láta endurskoða lög og reglur sem snerta réttarstöðu skógræktar gagnvart ágangi búfjár, fjallskil- um og öðru varðandi samskipti við aðrar greinar landbúnaðarins og tryggja þannig fullt jafnrétti milli búgreina. — Aðalfundurinn vekur athygli á slæmri meðferð kjarrlendis og birkiskóga víða um land og vitnar í því sambandi til skógræktar- könnunar sem gerð var samkvæmt landgræðsluáætlun. Sérstök ástæða er til að benda á þetta nú, þar sem fækkun búfjár er ákveðin vegna offramleiðslu. Fundurinn skorar því á stjórnvöld að stöðva ofbeit og illa meðferð skóga um land allt. — Fundurinn fagnar því að hafinn er undirbúningur nýrrar byggingar fyrir náttúrugripasafn- ið á Akureyri og að sú bygging tengist nafni náttúrufræðingsins og þjóðskáldsins, Jónasar Hall- grímssonar. Viðbrögö við fiskverðshækkun Vegna ákvörðunar yfirnefndar Verölagsráös sjávarútvegsins um 16% hækkun fiskverðs, ræddi Morgunblaðiö við fulltrúa kaupenda og seljenda í nefndinni. Fara hér á eftir viðtöl við Friðrik Pálsson, Eyjólf Isfeld Eyjólfsson, Ingólf Ingólfsson og bókun, sem Kristján Ragnarsson lét gera er fiskverð hafði verið ákveðið. Friðrik Pálsson: Vinnslan getur ekki staðið undir yfirfjár- festingu flotans „VENJULEGA hefur fiskverðið ver- ið i kringum 50% af heildarkostnaði fiskvinnslunnar og því má segja að 16% fiskverðshækkun valdi vinnsl- unni, frystingu og söltun, um 8% út- gjaldaaukningu, eða um 350 milljón- um króna. Þessi 16% hækkun er mikil fiskverðshækkun og við full- trúar vinnslunnar teygðum okkur ör- ugglega eins langt og kostur var og vonumst til þess að vinnslan geti lif- að við þetta úr því að það var engin leið að ná samkomulagi með báðum aðilum," sagði Friðrik Pálsson, ann- ar fulltrúi kaupenda, er hann var inntur eftir kostnaðaraukningu fisk- vinnslunnar í kjölfar fiskverðshækk- unarinnar. „Þess vegna er það enn þá hryggilegra en ella, að samkvæmt bókun fulltrúa útgerðarinnar virð- ist þetta hvergi nærri nægja þeim, þó ég haldi að sjómenn megi til- tölulega vel við una, þar sem þetta er hliðstæð hækkun og landfólk hefur fengið. Mergurinn málsins í þessu er sá, að það hlaut að koma að því, að vinnslan gæti ekki borg- að þessa yfirfjárfestingu í flota- num, sem átt hefur sér stað að undanförnu. Það er fyrst og fremst að koma fram núna. Hins vegar rengi ég ekki þær tölur þjóðhagsstofnunar, sem útvegs- menn vitna í, að hallinn á útgerð- inni er mikill áfram eftir þetta. Á hinn bóginn hafa forsvarsmenn útgerðarinnar sjálfir lýst því yfir að þessi vandi verði aldrei leystur með fiskverðshækkun einni og það held ég að hafi sannazt í dag. Þetta er bara það, sem við höfum verið að búast við að hlyti að koma að. Sjómenn og útvegsmenn hafa sjálfir varað við því mjög sterk- lega undanfarin misseri að flotinn yrði stækkaður, en engu að síður hefur það gerzt og því er svo kom- ið að venjulegar leiðir eins og fisk- verðshækkun og gengisfelling í kjölfar hennar duga ekki til,“ sagði Friðrik. Ingólfur Ingólfsson: A von á harka- legum við- brögðum sjómanna „ÞAÐ er eins fjarri því og hægt er, að ég sé sáttur við þessa fiskverðs- ákvörðun. Það er Ijóst með henni að ríkisstjórnin hefur enn hafnað öllum rökum okkar um að tekið verði tillit til tekjurýrnunar sjómanna, en hún er veruleg vegna minnkandi afla og verðminni afiasamsctningar. Af- koma útgerðarinnar endurspeglar afkomu sjómanna," sagði Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi sjómanna í yfir- nefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins, er Morgunblaðið innti hann álits á nýákveðnu fiskverði í gær. „Það kann að vera að menn leggi ekki trúnað á, að illa sé kom- ið og það sé skýringin á þessu fisk- verði. Ég á von á harkalegum viðbrögðum sjómanna, en erfitt er að segja til um hvort gripið verði til stöðvunar fiskiskipaflotans, en einhverntíma hefði þótt ástæða til þess og af minna tilefni. Bara til þess að halda í við aðra og bæta samdrátt í afla og verðminni afla- samsetningu hefði fiskverðið þurft að hækka langt yfir 20%. Þá hefur það komið fram hjá sjávarútvegsráðherra, bæði fyrr og nú, að hann gerði sér grein fyrir því, að átaks væri þörf til að rétta hlut sjómanna og hefur hann í því tilefni nefnt tölur um miklu meiri hækkun en nú hefur verið ákveðin. Það er því erfitt að gera sér grein fyrir því, sem er að gerast innan ríkisstjórnarinnar, en það virðist þó að þar sé sjávar- útvegsráðherra valdalaus og ekki sé hægt að taka mark á orðum hans. Síðast í morgun lýsti hann því yfir að vilji hans væri að fisk- verðshækkun yrði mun meiri en raunin varð á nú í dag. Það verður fundur hjá Far- mannasambandinu á miðvikudag og ég geri ráð fyrir hörðum við- brögðum þaðan og sömuleiðis frá Sjómannasambandinu," sagði Ing- ólfur. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson: Hækkunin skilur vinnslu- greinarnar eftir á núlli „NÝAFSTAÐIN gengisbreyting var of lítil og kom of seint til þess að hægt væri að skapa viðunandi rekstrarskilyrði i sjávarútvegi. Með tilliti til afleitrar stöðu út- gerðar annars vegar og samdrátt- ar í tekjum sjómanna hins vegar vegna aflarýrnunar, reyndu full- trúar fiskkaupenda að teygja sig eins langt í fiskverðshækkun og frekast var unnt. Því er ekki að leyna að þetta skilur vinnslugrein- arnar eftir á núlli og má þá ekkert út af bera í markaðsmálum. Verð- ur því að treysta á verulegt geng- issig á næstu mánuðum til að mæta vaxtagjöldum og sífelldum kostnaðarhækkunum," sagði Eyj- ólfur ísfeld Eyjólfsson, annar full- trúi fiskkaupenda í yfirnefndinni, er hann var inntur eftir áhrifum 16% fiskverðshækkunar á afkomu fiskvinnslunnar. Bókun Kristjáns Ragnarssonar: Staða útgerð- arinnar nú verri en í sumar Við ákvörðun fiskverðs í gær, lét fulltrúi útgcrðarmanna í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, Krist- ján Ragnarsson, bóka eftirfarandi: Með þessari fiskverðsákvörðun, sem ákveðin er af oddamanni að fyrirskipan ríkisstjórnarinnar, og af fulltrúum fiskkaupenda, er ekk- ert tillit tekið til þess vanda sem að útgerðinni snýr vegna aflarýrn- unar og hækkandi olíukostnaðar. Sjávarútvegsráðherra hefur í allt sumar lýst vanda útgerðar- innar, sem ráða þyrfti bót á. Hef- ur hann flutt um þetta tillögur í ríkisstjórninni en fallið frá þeim öllum þegar á hefur reynt. Eftir þessa fiskverðshækkun er staða útgerðarinnar verri en hún var í sumar þegar sjávarútvegsráð- herra taldi þörf aðgerða. Að mati Þjóðhagsstofnunar er halli minni togara um 16% af tekjum eftir fiskverðsákvörðun, halli báta- flotans lítillega minni og halli stóru togaranna mun meiri, miðað við þann afla, sem verið hefur á þessu ári. Áframhaldandi gengis- sig er yfirvofandi og mun valda enn frekari hækkun á olíu og öðr- um aðföngum útgerðarinnar. Með hliðsjón af því, að ríkis- stjórnin hefur á engan hátt mætt erfiðleikum útgerðarinnar og virð- ist vænta þess að útgerðin geti orðið sér úti um aukið lánsfé í tapreksturinn, mun á það reyna næstu daga hvort útgerðin lætur slíkt yfir sig ganga. Sólrún Árnadóttir og Sturla Pétursson standa hér við bordskreytingu sína, sem hlaut fyrsta sætið í borðskreytingarsamkeppninni á sýningunni. Þau Sólrún og Sturla kepptu fyrir hönd Félags framreiðslumanna. Sýning Bing & Gröndahl á Kjarvalsstöðum: Fegurst skreytt borð I TENGSLUM við sýningu dönsku postulinsverksmiðjunnar Bing & Gröndahl á Kjarvalsstöðum var haldin borðskreytingarsamkeppni þar sem 12 félagasamtök spreyttu sig á þvi að gera úr garði sem feg- urstu borðskreytinguna úr borðbún- aði frá verksmiðjunni. Sýningargest- ir voru fengnir til þess að greiða atkvæði besta borðinu eftir smekk sínum og voru þau talin í lok sýn- ingarinnar á mánudagskvöld. Sigurvegari varð Félag fram- reiðslumanna sem skreytti borð sitt með Ballerin postulínssetti. Það voru J>au Sturla Pétursson og Sólrún Arnadóttir sem kepptu fyrir hönd framreiðslumanna. í öðru sæti varð kvennadeild Rauða kross íslands sem skreytti borð sitt með Offenbach postulínsstelli, en fyrir hönd deildarinnar keppti Unnur Scheving Thorsteinsson. í þriðja sæti varð tímaritið Gest- gjafinn sem notaði Mexico stein- taustell, en þau Hilmar B. Jónsson og Elín Káradóttir kepptu fyrir hönd Gestgjafans. í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin voru styttur frá Bing & Gröndahl verksmiðjunni. Aðrir þátttakendur í keppninni voru Hótel- og veitingaskóli ís- lands, Hárgreiðslumeistarafélag íslands, Svölurnar, Sor-optimista, Hringurinn, Model 79, Módelsam- tökin, Tískublaðið Líf og Hús og híbýli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.