Morgunblaðið - 02.09.1982, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.09.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1982 25 Morgunbladid/ Emilía Lerkur í enssafns nssýningarinnar á KjarvalsstöAum í gær, ísnæAinu vegna þessarar sýn ingar. andi: Eva Henschen ritar greinarnar Um höggmyndir og Hinstu ár Thorvaldsens. Kristján Eldjárn ritar um Thorvaldsen og ísland. Dyveke Helsted skrifar um Bernskuár Thorvaldsens, Nemandann í Fagurlistaskólanum, Styrkþega í Róm, í vinnustofunum og Listaverkasöfnun Thorvaldsens. Bjarne Jörnæs ritar um Leiðina til frama, Dvöl í Kaupmanna- höfn, Stóru minnisvarðana, Thorvald- senssafn og Eftirmæli eftir Thorvaldsen. Þá rita þau Helsted, Henschen og Jörnæs skrá um 75 verk eftir Thorvaldsen sem á sýningunni eru. í bókarlok er annáll um líf og starf Thorvaldsens í stuttu máli. Kápusíðu bókarinnar prýðir sjálfs- mynd Thorvaldsens frá 1794. Fannst ekki vansa- laust að verk Thor- valdsens skyldu ekki hafa verið sýnd hér — segir Janus A.W. Paludan sendiherra Dana „Ég hef verið með það i huga að koma á þessari sýningu á verkum Thorvaldsens allt frá þvi ég kom hingað fyrst,“ sagði Janus A.W. Pal- udan sendiherra Dana á fslandi í sam- tali við blaðamann Morgunblaðsins á Kjarvalsstöðum i gær. Paludan er mikill aðdáandi Thorvaldsens, og það var hann sem átti hugmyndina að þvi að koma upp þessari sýningu og hon- um er það öðrum fremur að þakka að íslendingar geta nú séð verk eins kunnasta landa þeirra fyrr og siðar, sem þjóðin á þó í „sameign" með Dönum, þar sem Thorvaldsen var af dönsku móðerni. „í Thorvaldsenssafni í Kaup- mannahöfn eru hundruð listaverka eftir Bertel Thorvaldsen," sagði Paludan, „og mér fannst það ekki vansalaust að aldrei skyldi hafa ver- ið haldin sýning á verkum hans hér á íslandi. Thorvaldsen er á margan hátt mjög íslenskur í list sinni, þótt hann lærði og starfaði í Danmörku og á Ítalíu. Það er við nokkurs konar samruna hins íslenska listuppruna og áhrifa frá rómverskri list, sem þessi „þriðja list“, list Thorvaldsens, verður til og hún er grundvöllurinn að snilld hans. Hann var kominn af íslenskum hagleiksmönnum, og það er ekki nóg með að faðir hans og afi væru kunnir hagleiksmenn, heldur greina íslenskir annálar einnig frá því að langafi hans var mjög hagur og orð fór af honum sem góðum bartskera. Margir hafa lagt hönd á plóginn svo af því gæti orðið að sýning þessi kæmist upp, og þetta fór verulega að ganga eftir að Ingvar Gíslason menntamálaráðherra skrifaði menningarmálaráðherra Danmerk- ur um málið. Þá hefur Birgir Thor- lacius ráðuneytisstjóri í mennta- málaráðuneytinu átt drjúgan hlut að máli auk fjölmargra annarra, ekki síst fyrirtækjanna Flugleiða og SÍS, sem hafa lagt fram mikilvægan skerf. Kostnaður við sýninguna nemur um hálfri milljón danskra króna, og það er talsvert fé. En með aðstoð og áhuga margra aðila hefur þetta tekist. Hér eru að vísu ekki öll verk Thorvaldsens, en þetta er þó byrjunin!" AH Janus Pahidmn sendiberra Dmna við brjóstmynd Thorvaldsens af Napoleon Bonaparte Frakklandskeisara. Frummyndin er gerð í Róm um 1830. Danirnir, sem unnið hafa að undirbúningi og uppsetningu sýningarinnar, á Kjarvalsstöðum í gær. Paludan sendiherra annar frá vinstri. Bertel Thorvaldsen — einn kunnasti listamaður Evrópu um sína daga Bertel Thorvaldsen var einn kunnasti listamaður Evrópu um sína daga. Hann fæddist í Danmörku, sonur islensks föður, en móðir hans var dönsk. Thorvaldsen ólst upp i Danmörku, og þar lést hann einnig, cn mestan hluta ævi sinnar starfaði hann í Rómaborg. Hann kom aldrei til íslands. Á Italiu notaði Thor- valdsen nafnið Albert Thorvaldsen, vegna þess hve ítölum var ótamt að nota skirnarnafn hans, og fanga- mark hans var A.T. þar sem Aið myndaði eins konar umgjörð um upphafsstaf síðara nafnsins. Thorvaldsen fæddist árið 1770, í Danmörku sem fyrr segir. Faðir hans var íslendingur, Gottskálk Þorvaldsson, tréskurðarmaður að atvinnu. Meðal þess sem Gott- skálk starfaði við var útskurður á skip, merkingar þeirra og fleira, en engin verk hans eru kunn, enda mun hafa verið litið á hann sem iðnaðarmann en ekki listamann, að því er Þór Magnússon þjóð- minjavörður sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Gottskálk faðir Thorvaldsens var sonur séra Þorvalds Gottskálks- sonar prests á Miklabæ í Blöndu- hlíð í Skagafirði, en hann fæddist árið 1741 á Reynistað meðan Þor- valdur var þar enn djákni. Móðir Gottskálks var Guðrún Ásgríms- dóttir, en hún var látin áður en fjölskyldan fluttist í Miklabæ. Hún var í ættir fram komin út af Guðbrandi biskupi, en þar í ætt voru margir lista- og hagleiks- menn. Séra Þorvaldur var smiður góður, og hann byggði upp bæði kirkju og bæ í Miklabæ af mikilli smekkvísi. Eiginkona Gottskálks Þorvaldssonar og móðir Thor- valdsens, var dönsk sem áður seg- ir, og hét Karen Dagnes. Fátt er um ætt hennar vitað annað en að hún var jósk að uppruna, frá Nörre Nissum á vesturströnd Jót- lands, þar sem faðir hennar var djákni. Frú Karen var nokkru eldri en maður hennar. Sagt er að æskuár Thorvaldsens hafi ekki ætíð verið sem hamingjuríkust, en þó er vitað að hann hafði gott samband við bæði föður sinn og móður, og hann var ekki gamall er hann var farinn að hjálpa til við tréskurðinn. Thorvaldsen nam dráttlist og höggmyndalist í Kaupmannahöfn og síðar í Róm, þar sem hann sett- ist að. Þar varð hann fyrir miklum áhrifum frá fornrómverskri list og hann telst einn helsti frumkvöðull nýklassísku listastefnunnar. Thorvaldsen fluttist aftur heim til Kaupmannahafnar eftir 40 ára dvöl í borginni eilífu og þar andað- ist hann árið 1844, fjórum árum áður en safn hans þar var opnað. Á safninu eru um 860 verk lista- mannsins, en mikill fjöldi þeirra er dreifður um allan heim. Af verkum hans hér á landi má nefna skírnarfontinn í Dómkirkjunni er hann gaf „ættjörð sinni" eins og segir í áletrun á fontinum frá 1827. Þá er og til hér sjálfsmynd Thorvaldsens er Kaupmannahafn- arborg gaf hingað til lands í til- efni 1000 ára byggðar í landinu árið 1874. Styttan var upphaflega á Austurvelli, en var síðar flutt í Hljómskálagarðinn og er nú við Kjarvalsstaði í tilefni sýningar- innar. Enn er til hér brjóstmynd af Jóni Eiríkssyni konferenzráði og marmaramynd af Ganymedesi. Öll önnur verk á sýningunni 75 að tölu, eru komin frá safninu í Höfn. Sýningarsvæðinu á Kjarvals- stöðum er skipt niður í herbergi er líkjast sölum Thorvaldsenssafns í smækkaðri mynd, en listamaður- inn hafði sjálfur hönd í bagga við skipulagningu þeirra. Er hér um að ræða mjög nýstárlega innrétt- ingu á Kjarvalsstöðum, þar sem er eins og byggð hafi verið hús inni í húsinu, og marka herbergin að nokkru hin ýmsu tímabil í ferli Thorvaldsens. AH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.