Morgunblaðið - 02.09.1982, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1982
Framkvæmdastjóri DEMYC í heimsókn á íslandi
DAVID Grayson, framkvæmda-
stjóri DEMYC, en þeim Evrópu-
samtökum er Samband ungra
sjálfsta-Aismanna aðili aó, var
staddur hér á landi í sumar. Hann
hélt fjölsótt kynningarnámskeið
um starfsemi og markmið DEM-
YC, ætlað yngra fólki innan SUS.
David Grayson skoðaði næsta
nágrenni Reykjavíkur í fylgd
nokkurra forystumanna SUS og
einnig var honum haldið kvöld-
verðarhóf. Meðfylgjandi mynd
var tekin af stjórn Heimdallar
og má þekkja David Grayson þar
sem hann stendur á milli þeirra
Geirs H. Haarde og Árna Sig-
fússonar formanns Heimdallar.
„Hugmyndaflug“ Þjóðviljamanna
cr whh»
fni««þá‘,un’
i(,„„ , „mcNk)“
li.lllt ‘f *,nn0,
,|lu»taki*> ii‘v,nl'
Ivvkuhcllltt Clt Cl
iH ss tiKWf a«>
l.lltf.l sWftM"*""5
liiárwá*
Að orlofsdvöl
lokinni
Sýnishorn af hinum staðnaða greinadálki Þjóðviljamanna.
Undanfarna mánuði hefur
öðru hverju birzt í Morgunblað-
inu síða undir heitinu Sjónar-
horn, með fréttum úr starfi
ungra sjálfstæðismanna. Kom
því á óvart að þegar Þjóðviljinn
þóttist þurfa að dubba upp á
staðnaðan greinadálk þar í blaði
skuli ráðamenn þar ekki hafa
haft í önnur hús að venda en það
að taka Sjónarhornsheiti ungra
sjálfstæðismanna traustataki.
Segir það meira en mörg orð um
„hugmyndaauðgi" Þjóðvilja-
manna og er raunar í samræmi
við hugarflugið í þeim greinum,
sem birzt hafa undir samheitinu
Sjónarhorn í Þjóðviljanum und-
anfarið. Vonandi verður fram-
hald á því að starfsemi ungra
sjálfstæðismanna verði aðstand-
endum Þjóðviljans til eftir-
breytni.
Stefnir, blað Sambands ungra
sjálfstæðismanna komið út
STEFNIR, blað Sambands ungra
sjálfstæðismanna, kom út fyrir
nokkru og er þetta 2. tölublað
þessa árs. Ritstjóri blaðsins er
Hreinn Loftsson. Ráðgert er að
næsta tölublað komi út innan tíð-
ar.
I blaðinu eru greinar um ýmis
málefni, en blað þetta er að
nokkru helgað verkalýðsmálum.
Fyrst skal telja grein sem ber
nafnið “Stríð eða friður" eftir
Styrmi Gunnarsson ritstjóra
Morgunblaðsins, en í grein þess-
ari fjallar Styrmir um rit Hann-
esar H. Gissurarsonar — Um
sjálfstæðismenn í verkalýðs-
hreyfingunni — og ræðir hann
um stöðu sjálfstæðismanna í
verkalýðshreyfingunni, stöðu
verkalýðsmanna innan Sjálf-
stæðisflokksins og samskipti
Sjálfstæðisflokksins við
verkalýðshreyfinguna í stjórn og
stjórnarandstöðu. Þá fjallar Sig-
urður Óskarsson formaður
Verkalýðsráðsins um stefnuna í
verkalýðsmálum, Haraldur
Kristjánsson iðnnemi ræðir um
stöðu sjálfstæðismanna í iðn-
nemahreyfingunni og einnig er í
blaðinu birtur kafli úr afmælis-
Forsíða Stefnis, sem að þessu sinni
er helgaður verkalýðsmálum.
riti Verkalýðsráðs, eftir Hannes
H. Gissurarson.
Þá er í blaðinu grein eftir Ingu
Jónu Þórðardóttur, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, um sigur Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórnarkosn-
ingunum í maí sl. Einnig fjallar
hún í grein sinni um stöðu
flokksins að kosningum loknum
og um horfurnar framundan.
Geir H. Haarde, formaður
SUS, fjallar í grein um norsk
stjórnmál og stefnu norska
Hægri flokksins, sem fer með
stjórnartaumana þar í landi, þó
ekki hafi flokkurinn hreinan
meirihluta á þingi. Nú er u.þ.b.
ár liðið frá sigri hægri manna í
Noregi og telur Geir að festa og
ferskleiki einkenni störf norsku
ríkisstjórnarinnar.
Guðmundur H. Frímannsson
ræðir í grein, sem hann kallar
„Brandt-skýrslan", um skýrslu
nefndar sem Willy Brandt, fyrr-
um kanslari V-Þýskalands, var
formaður í, en verkefni nefndar-
innar var að benda á leiðir til að
brúa bilið á milli ríkra þjóða og
snauðra. Guðmundur gagnrýnir
í greininni nokkrar helstu niður-
stöður nefndarinnar.
Hreinn Loftsson, ritstjóri
Stefnis, fjallar í ritstjórnargrein
um nauðsyn þess að rjúfa ríkis-
einokun í útvarpsrekstri og
bendir hann á fjölmörg dæmi
um hlutdrægni í ríkisfjölmiðl-
um. Segir Hreinn í greininni að
ríkisfjölmiðlarnir hafi sem slíkir
runnið sitt skeið á enda og verði
tafarlaust að gera ráðstafanir til
að rjúfa einokun þeirra.
Samband ungra sjálfstæðismanna:
Heldur stjórnarfund
á Akureyri 4. september
STJORN Sambands ungra sjálf-
stæðismanna heldur fund á Akur-
eyri laugardaginn 4. september
næstkomandi og verður fundurinn
haldinn i húsnæði Sjálfstæðis-
flokksins í Kaupangi.
Fundurinn verður haldinn síð-
degis á laugardaginn og er hann
opinn sjálfstæðismönnum frá
Akureyri og nágrannabyggðar-
lögum. Geir H. Haarde, formað-
ur SUS, sagðist í samtali við
Mbl. hvetja unga sjálfstæðis-
menn til að mæta á fundinn.
Hann gat þess einnig að síðast-
liðið vor hefði SUS haldið
stjórnarfund í Vestmannaeyjum,
og hefði sá fundur tekist mjög
vel, ekki síst vegna áhuga
heimamanna.
Á stjórnarfundinum verður
fjallað um vetrarstarf Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna
og rætt um komandi fundahöld
og ráðstefnur og einnig verður
stjórnmálaviðhorfið rætt og
mun stjórnin að líkindum álykta
um stjórnmálaástandið. Þá mun
Halldór Blöndal alþingismaður
mæta á fundinn og flytja ávarp.
Geir H. Haarde sagði í sam-
tali, að stjórn SUS hefði þegar
haldið einn fund utan Reykja-
víkur, í Vestmannaeyjum, eins
og áður gat, og hefðu menn í
hyggju að halda oftar stjórnar-
fundi utan Reykjavíkur á þessu
starfsári, m.a. til þess að efla
starfið á viðkomandi stöðum. Þá
nefndi Geir það að síðasta þing
SUS hefði verið haldið á ísafirði,
en SUS-þingin eru jafnan haldin
úti á landi.
Séð yfir hluta fundarmanna á fundi SUS með stúdentum.
Fundahöld SUS:
Fjallað um afvopnunarmál
og fundað með íslenskum
stúdentum erlendis
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna hélt í sutnar fund með
Birgi ísl. Gunnarssyni og var á
fundinum fjallað um afvopnun-
armál og flutti Birgir framsögu um
það efni.
Birgir var sem kunnugt er
einn fulltrúa á afvopnunarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
New York, en ráðstefnuna sóttu
nokkrir alþingismenn fyrir ís-
lands hönd. Fundurinn með
Birgi var fjölsóttur og að fram-
söguerindi hans loknu fóru fram
umræður.
Þá stóð SUS nýlega fyrir fundi
með íslenskum stúdentum sem
stunda nám erlendis, en sem
kunnugt er fóru þeir Davíð
Oddsson, borgarstjóri, og Geir
H. Haarde, formaður SUS, til
nágrannalandanna fyrir sveitar-
stjórnarkosningamar í maí sl.,
og héldu fundi með íslendingum
sem þar eru við nám. Þessi fund-
ur var haldinn í framhaldi af
þeirri ferð og til þess ætlaður að
auka samskipti SUS og íslenskra
stúdenta erlendis.
Á nawftunrji...
Gjallarhorn
— fréttabréf Heimdallar
GJALLARHORN, fréttabréf
Heimdallar, kom nýlega út, en í
fréttabréfinu er fjallað um starf
Heimdallar. Þar er sagt frá því
sem á döfinni er, námskeiðum
sem staðið er fyrir, og öðrum tíð-
indum sem gerast í starfi félags-
ins. Fréttabréfið er sent öllum
félagsmönnum Heimdallar og
vonast stjórn félagsins til að
fréttabréfið efli tengsl stjórnar-
innar og hins almenna félags-
manns, að sögn Árna Sigfússon-
ar, formanns Heimdallar.