Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
Launadeild fjármálaráðuneytisins;
Ferdagreiðslur
og km-gjald hækkar
Mjad Mbl. iálhu.
Haröur árekatur varð á Bíldshöföa skömmu eftir klukkan hálftvö í gær. Vörubifreið var ekiö frá Steypustöðinni
inn á Bíldshöföa. Þar var fyrir kyrrstæöur strætisvagn. Toyota-bifreiö var ekið eftir Bíldshöfða. Ökumaöur
vörubifreiðarinnar varö ekki fólksbifreiðarinnar var og skipti engum togum aö vörubifreiöin lenti á hlið
Toyotunnar, sem kastaðist á strætisvagninn.
Ökumaður Toyotunnar, sem er kona, var flutt í slysadeild. Toyotan er mikið skemmd.
Nýr flokkur verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs
Skírteini skulu skráð á nafn og
þau eru framtalsskyld. Sam-
kvæmt gildandi lögum um tekju-
og eignaskatt kemur þó ekki til
skattlagningar á vaxta- og verð-
bótatekjur af skírteinum hjá
mönnum utan atvinnurekstrar.
Við ákvörðun á eignaskatti ber
að telja spariskírteini til eignar.
Séu þær eignir ekki tengdar at-
vinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi manna er heimilt að
draga þær aftur frá að því marki
sem er umfram skuldir.
Spariskírteinin i 2. flokki eru
gefin út í fjórum verðgildum:
500, 1.000, 5.000 og 10.000 krón-
um. Sérprentaðir útboðsskilmál-
ar fást hjá söluaðilum, sem eru
bankar, sparisjóðir og nokkrir
verðbréfasalar.
12 fiskiskip selja nú afla
sinn erlendis í hverri viku
Ferðakostnaðargreiðslur og kíló-
metragjald til opinberra starfs-
manna hækkuðu frá 1. september sl.
Fara upphæðir greiðslna hér á eftir
samkvæmt upplýsingum frá launa-
máladeild fjármálaráðuneytisins:
Almennt kílómetragjald er nú
4,40 kr. fyrir fyrstu 10 þúsund km.,
3,90 fyrir 10—20 þáund km og 3,50
fyrir kílómetra ekna umfram 20
Fáskrúösfjörður:
Oánægja með
að fá ekki
sinfóníu-
tónleika
KáskrúAsnrái, 8. scptember.
MKNN HÉK eystra glöddust er þær
fréttir bárust að Sinfóníuhljómsveit ís-
lands væri væntanleg i hljómleikaferð
ásamt hinum þekkta óperusöngvara
Kristjáni Jóhannssyni frá Akureyri og
fleira af góðu fólki.
Gleðin dvínaði þó hjá mörgum, er
í Ijós kom að aðeins átti að heim-
sækja Egilsstaði, Neskaupstað,
Eskifjörð, Seyðisfjörð og Höfn í
Hornafirði, en sleppa stöðum á borð
við Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð,
Breiðdalsvík og Djúpavog. — Margt
fólk verður því að fara óhemju
langa leið til að heyra hljómsveitina
leika, eða missa af tónleikunum ella.
— Er þó mjög gott hús til tónleika-
halds af þessu tagi hér á Fáskrúðs-
firði svo dæmi sé tekið.
Er það von okkar hér að dag-
skránni verði breytt með tilliti til
þess er áður greinir, en megn óán-
ægja ríkir hér með hvernig að Aust-
fjarðaheimsókninni er staðið.
— Albert.
Fræðsluráð mælti
með Sigurjóni
Fjeldsted
FRÆDSUJRÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær að mæla
með Sigurjóni Fjeldsted skólastjóra í
stöðu fræðslustjórans í Reykjavík.
Tvær tillögur komu fram; um Sig-
urjón Fjeldsted, sem fékk 4 atkvæði,
og um Áslaugu Brynjólfsdóttur, en
hún hlaut 3 atkvæði. Sigurjón fékk
atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins í ráðinu, en Áslaug fékk atkvæði
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks.
Menntamálaráðherra veitir stöðu
fræðslustjóra í Reykjavík.
BRANDUR Jónsson fyrrverandi
skólastjóri við Heyrnleysingjaskól-
ann í Reykjavik andaðist aðfaranótt
sunnudagsins sl. í Landakotsspítala.
Brandur fæddist 21. nóvember 1911
í Kollafjarðarnesi, Strandasýslu,
sonur hjónanna Jóns prests
Brandssonar og konu hans Guðnýjar
Magnúsdóttur. Hann var því 70 ára
að aldri, er hann lézt.
Brandur varð stúdent frá MR
1936. Prófi í forspjallsvísindum
frá HÍ lauk hann 1937, kennara-
prófi 1937. Hann stundaði síðan
framhaldsnám í Þýzkalandi,
Danmörku og Bandaríkjunum og
sérmenntaði sig í talkennslu og
fræðum tengdum kennslu heyrn-
ardaufra. Brandur varð skóla-
stjóri málleysingjaskólans í
Reykjavík árið 1944 og vann mikið
brautryðjendastarf á því sviði. Þá
liggja eftir hann fjölmörg rit
varðandi málefni heyrnardaufra.
þús. Sérstakt kílómetragjald er 5
kr. á fyrstu 10 þús. km, frá 10 til
20 þúsund 4,50 kr. og 4,00 kr. um-
fram 20 þús. km. Torfærugjald er
6,50 fyrir fyrstu 10 þús. km, 5,80
kr. á 10 til 20 þús. km og 5,10 kr. á
kílómetra ekna umfram 20 þús.
Ferðakostnaðargreiðslur á
ferðalögum innanlands eru nú:
Gisting og fæði innanlands í einn
sólarhring 730 kr., gisting ein-
göngu 370 kr., faeði í einn dag,
minnst 10 klukkustundarferðalag,
360 kr. og fæði í hálfan dag,
minnst 6 klukkustundir 180 kr.
Ferðakostnaður erlendis miðast
við New York-borg annars vegar
og aðra staði í heiminum hins veg-
ar. í New York eru þeir 123 sdr. á
sólarhring en annars staðar 107
sdr. Við þjálfunar- og eftirlits-
störf eru þeir 75 sdr. á sólarhring
í New York, en 65 sdr. annars
staðar.
r
Seðlabanki Islands:
Á MORGUN, miðvikudag, hefst
sala á nýrri útgáfu verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóós í 2. flokki
1982. Útgáfan er byggð á heimild í
fjárlögum fyrir yfirstandandi ár,
andvirði þeirra verður samkvæmt
upplýsingum frá Scðlabanka ís-
lands varið til opinberra fram-
kvæmda samkvæmt lánsfjáráætl-
un ríkisstjórnarinnar, en heimild
ríkissjóðs til sölunnar nemur allt
að 150 millj. kr. í ár. Kjör skírtein-
anna eru hin sömu og í 1. flokki
1982. Þau skulu skráð á nafn og
eru framtalsskyld. Grunnvísitala
flokksins verður lánskjaravísitala
októbermánaðar.
Nokkrar breytingar voru gerð-
ar við útgáfu skírteina í 1. fl.
1982 og gilda þær einnig um 2.
flokk. Mikilvægastar eru eftir-
farandi samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Seðlabanka ís-
lands: Vextir voru hækkaðir í
3,5% á ári. Binditími styttist úr
5 árum í 3 ár og verða þau inn-
leysanleg eftir 1. október 1985.
Söluverð þeirra breytist daglega.
Eftirlifandi eiginkona Brands
er Rósa Einarsdóttir. Þau eignuð-
ust þrjár dætur.
ENN er talsvert um það að fiski-
skip selji afla sinn erlendis, enda
eru afskipti viðskiptaráðuneytisins
af ferskHsksölum ekki farin að
hafa áhrif enn. Samkvæmt
ákvörun viðskiptar^óuneytisins
skal sótt sérstaklega til þess um
söluleyfi fyrir hvern bát fyrir sig,
sem óskar sölu frá og með 16.
þessa mánaðar. Síðastliðna viku
seldu alls 12 skip afla í Bretlandi
og Þýzkalandi og það sem eftir er
þessarar viku eru bókaðar 12
Hver sá
rauðan
bíl aka á?
LÖGREGLAN í Kópavogi auglýsir
eftir vitnum aó harðri aftanákeyrslu
aðfaranótt sunnudagsins síðasta.
Líklega er þar um stóra rauða bif-
reið að ræða, sem ætti eftir öllum
ummerkjum að dæma að vera mik-
ið skemmd.
Rétt fyrir miðnætti aðfaranótt
sunnudags var tilkynnt um að ek-
ið hefði verið aftan á kyrrstæða
bifreið á neðra planinu við Fann-
borg í miðbæ Kópavogs. Bifreiðin
sem ekið var á er ljósbrún Sun-
beam 1250 með skráningarnúm-
erinu Y-4953. Við ákeyrsluna
kastaðist bifreiðin upp á gang-
stétt og má sjá greinileg merki á
henni að rauð bifreið var á ferð-
inni, líklega af stærri gerð.
Þeir sem geta gefið lögreglunni
einhverjar upplýsingar um
ákeyrslu þessa eru beðnir að hafa
samband við hana.
ferskfisksölur í þessum löndum.
Síðastliðinn mánudag seldi
Hrafn Sveinbjarnarson GK 62,3
lestir í Hull. Heildarverð var
759.200 og meðalverð 12,00 krón-
ur. Sama dag seldi Gissur ÁR 77,2
lestir í Cuxhaven. Heildarverð var
892.600 og meðalverð 11,56 krón-
ur. Á þriðjudag seldi Glófaxi VE
48,6 lestir í Bremerhaven, Heild-
arverð var 508.500 og meðalverð
10,46 krónur. Ingólfur GK seldi
sama dag 77,3 lestir í Grimsby.
Heildarverð 825.700 og meðalverð
10,68. Þá seldi Rauðinúpur ÞH
144.5 lestir í Hull. Heildarverð
var 1.814.300 og meðalverð 12,55.
Á miðvikudag seldi Jón Finnsson
RE 53,2 lestir í Grimsby. Heildar-
verð var 770.500 og meðalverð
14,48. Þá seldi Kap II 77 lestir í
Bremerhaven. Heildarverð var
807.800 og meðalverð 10,49. Á
fimmtudag seldi Erlingur GK
115,8 lestir. Heildarverð var
1.447.600 og meðalverð 12,51. Þá
seldi Ársæll Sigurðsson HF 109,3
lestir í Hull. Heildarverð var
1.267.100 og meðalverð 11,59. í
gær seldi Helga Jóh. VE 42,9 lest-
ir í Hull. Heildarverð var 622.500
og meðalverð 14,51 króna. Þá seldi
Vöttur SU 56,8 lestir í Grimsby.
Heildarverð var 809.600 og meðal-
verð 14,24 krónur og Viðey RE
seldi sama dag í Bremerhaven
165,5 lestir. Heildarverð var
1.645.700 og meðalverð 9,94 krón-
ur.
í þessari viku eru alls bókaðar
12 sölur í Bretlandi og Þýzka-
landi.
Haukur Sigurðsson bóndi og
hreppstjóri Arnarstöóum látinn
Scykkishólmi, 13. september.
í dag lést á sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi Haukur Sigurðsson bóndi og
hreppstjóri að Arnarstöðum í Helga-
fellssveit. Haukur var fæddur 22.
desember 1897 og því 84 ára að aldri
er hann lést.
Haukur bjó að Arnarstöðum all-
an sinn búskap. Hann var lengi í
hreppsnefnd og oddviti þeirra
Helgfellinga, svo og sýslunefndar-
maður. Fjölda annarra trúnaðar-
starfa gegndi hann, var lengst af í
fulitrúaráði og kjördæmisráði
Sjálfstæðisflokksins og tók virkan
þátt í stjórnmálabaráttunni.
Haukur lætur eftir sig eiginkonu,
Petrínu Halldórsdóttur.
— Árni.
Brandur Jónsson fyrrv.
skólastjóri látinn