Morgunblaðið - 14.09.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
5
Sýning á verkum Ólafar
Pálsdóttur myndhöggv-
ara í London opnuð í dag
FRÚ Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari
og sendiherrafrú í Lundúnum
opnar í dag sýningu á höggmynd-
um sínum; alls 36 verkum. Sýning-
in er í vinnustofu hennar í sendi-
herrabústaðnum í London, og
stendur hún í eina viku. Sýningin
er nokkurs konar yfirlitssýning á
verkum Ólafar, og eru höggmynd-
irnar unnar allt frá námsárum
hennar til dagsins í dag.
Frú Ólöf sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, er blaðamað-
ur hringdi til London, að lengi
hefði verið á döfinni að halda
þessa sýningu, en ýmsar ástæður
hefðu þó orðið þess valdandi að
ekki hefur af því orðið fyrr en nú.
Tvívegis höfðu henni boðist mjög
góðir sýningarsalir, en hún varð
að afþakka þá í báðum tilvikum,
vegna anna hennar og manns
hennar, Sigurðar Bjarnasonar
sendiherra, við opinber störf. Nú
eru þau Sigurður að flytjastheim
til Islands, og sagði Ótöf að mjög
erfitt hefði verið að vinna að upp-
setningu sýningarinnar samhliða
önnum við búferlaflutningana,
kveðjusamsæti og opinber störf.
Hún hefði að athuguðu máli
ákveðið að halda sýninguna í
vinnustofunni, þó þar væri að vísu
þröngt, og erfitt hefði verið að
koma mörgum verkanna upp stiga
og inn í salinn. Þá væri einnig af
eðlilegum ástæðum mikið rask í
bústaðnum vegna yfirstandandi
flutninga, en þetta hefði verið
besti kosturinn.
Verkin á sýningunni eru mjög
misstór, og þau eru afar fjöl-
breytileg að gerð, og unnin í marg-
skonar efni, svo sem brons, gifs og
fleiri tegundir. Sýningin hefur
þegar vakið athygli i Lundúnum,
fyrir opnunina, og stórblaðið The
Times birti til dæmis þriggja
dálka mynd af listamanninum við
eitt verkanna á sýningunni nú
fyrir helgi. — Sýningin er sem
fyrr segir haldin í vinnustofu frú
Ólafar í sendiherrabústaðnum,
101 Park Street, London Wl, og
stendur nú í eina viku.
Fjölmenni við opnun sýningar Errós
SÝNING i verkum Errós, Guðmundar Guðmundssonar, var opnuð í Norræna húsinu i laugardaginn, að
viðstöddu fjölmenni. Hér takast þeir í hendur i sýningunni, Davíð Oddsson borgarstjóri i Reykjavík, og
listamaðurinn, Erró. Þetta er sölusýning, og seldust fjölmörg verkanna þegar við opnunina, en þetta er fyrsta
sýning Errós hér heima í mörg ir, ef undan er skilin yfirlitssýning á verkum hans á Listahitíð fyrir nokkrum
irum.
Septem-hópurinn
sýnir á Kjarvalsstöðum
FJÖLMENNT var á opnun
sýningar Septem-hópsins á
Kjarvalsstöðum um helgina,
en sýningin þar verður opin í
tvær vikur. Septem-hópurinn
sýndi fyrst saman 1947, og
hefur hluti hópsins haldið sýn-
ingar af og til fram á þennan
dag, en þessi sýning er tíunda
sýningin á jafnmörgum árum í
röð, og þegar er ákveðin sýn-
ing að ári. Þetta er sölusýning,
og eru flest verkin unnin á
þessu ári og árinu 1981.
Plasteinangrun
ARMAPLAST
Glerull — Steinull
Armula 16 sími 38640
Þ. ÞORGRlMSSON & CO
! --
■■■■■ ■■■■■?.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Sala og endurnýjun áskriftarskírteina fyrra
misseris þessa starfsárs hefst í dag þriðju-
daginn 14. sept. á skrifstofu hljómsveitar-
innar, Hverfisgötu 50, 4. hæð, sími
22310 (athugið nýtt heimilisfang).
Áskrifendur hafa forkaupsrétt á skírtein-
um sínum til og með 24. þessa mánaðar.
Sinfóníuhljómsveit íslands.
TSíáamatka^utinn
sQiaitisqötu 12-18
Nýr bíll
VWGolfCL 1982
Drapplitur, ekinn 2.600 km. Verð
152 þús. Skipti möguleg á ódýr-
ari.
Citroen GS 1979
Gulbeis, ekinn 30 þús. Endurrið-
varinn, útvarp, segulband. Fal-
legur einkabíll. Verð 88 þús.
Plymoth Volare station 1979
Brúnn, ekinn 50 þús. 8 cyl,
sjálfsk., aflstýri, útvarp, segul-
band, snjó- og sumardekk. Bíll í
sérflokki. Verð 145 þús.
Chervolet Citation 1980
Blár, 5 dyra, ekinn 9 þús. km 4
cyl, beinsk., aflstýri, útvarp, seg-
ulband, snjó- og sumardekk.
Verð 170 þús. Skipti, greiðslu-
skilmálar.
BMW 323 I 1981
Beis, ekinn 13 þús. Sóllúga, litað
gler, rallý stólar o.fl. Verð 225
þús.
Einnig:
BMW 320 1981
Grár, ekinn 30 þús. Útvarp, seg-
ulband, sportfelgur. Verðtilboð.
Nýr bíll
Subaru 1800 4x4 1982
Rauður, ekinn 5 þús. km. Verð
185 bús.
Range Rover 1972
Gulur, ekinn 37 þús. Velútlítandi
bíll. Verð 110 þús.
Mazda 626 1980
Brúnsanseraður 5 gíra. Verð 105
þús. Fallegur bíll.
Blazer 1976
Grænn og hvítur, ekinn 33 þús
míl. 6 cyl vél, 4ra gira kassi
(beinsk.). Útvarp, segulband.
Fallegur bíll. Verð 160 þús.