Morgunblaðið - 14.09.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
15
annan finnum við upp skrýtlur
hver um annan i anda hinnar sí-
gildu sögu: „Það voru einu sinni
Norðmaður, Dani og Svíi ..." —
elskulegar sögur sem móðga ekki
neinn en geta endurspeglað sér-
kenni okkar, lagt áherslu á það að
ekki erum við öll eins.
Það er góðs viti þegar hægt er
að segja slíkar skrýtlur án þess að
særa neinn. Það er vísbending um
vaxandi norrænt samstarf, um
norræna samhygð, sem svo mætti
kalla og skorti svo átakanlega
fyrir þúsund árum. Norðurlanda-
þjóðirnar eru aftur orðnar ein
fjölskylda.
Vitanlega erum við ekki alltaf á
sama máli — hver er sú fjölskylda
sem svo er háttað um? Það er ým-
islegt ólíkt með okkur í fleiri en
einni merkingu orðsins. Þann mun
má rekja til landafræðinnar ekki
síður en til annarra þátta.
Þrjú ríkjanna eru í NATO, tvö
fylgja hlutleysisstefnu. Þetta
kemur samt ekki í veg fyrir að
utanríkisráðherrar okkar eigi náið
samstarf í mörgum málum.
Við höfum ekki komið upp nor-
rænu efnahagsbandalagi eins og
margir hugsjónamenn höfðu von-
að. Við höfum ekki stofnað form-
legt bandalag með sambands-
stjórn, einskonar bandaríki
Skandinavíu. En við eigum mörg
réttindi sameiginleg — réttinn til
að starfa í löndum hvers annars,
réttinn til að fara yfir landamæri
án vegabréfs, jafnvel rétt til að
kjósa í bæjar- og sveitarstjórnir
eftir fárra ára dvöl utan heima-
lands. Allt er þetta árangur af
samstarfi á öllum sviðum, allt frá
samráðsfundum þingmanna í
Norðurlandaráði til menningar-
tengsla á öllum sviðum lista.
Þetta endurspeglar nokkuð það
sem ég tel að við öll getum verið
stolt af: nýjan skilning, nýtt afl,
það sem kallað hefur verið nor-
rænn andi, sem nýtur almennrar
viðurkenningar og virðingar. Við
höfum fundið okkuí-til handa frið
og einingu og vitum hvað þau orð
geta þýtt.
Norrænn höggmyndasmiður,
Ásmundur Sveinsson, hefur gjört
fundahamar þann sem forseti
allsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna notar til að halda umræðum
í réttum skorðum. Haus hamars-
ins sýnir víking sem er að biðja
fyrir friði. Þetta er boðskapur
okkar tíma til allra þjóða, alls
mannkyns, frá afkomendum afar
vígfúsra manna. Norðurlöndin
hafa verið flestum þjóðum fúsari
til að bjóða sig fram til þjónustu
fyrir Sameinuðu þjóðirnar, ekki
til að heyja stríð heldur til að
reyna að koma í veg fyrir styrjald-
ir, og framlag þeirra til þróunar
og samstarfs við ríki, sem verr eru
sett, hefur verið með ágætum.
Það er trú mín, að allt hafi þetta
með vissum hætti sprottið af fjöl-
skyldukenndinni, þeirri samstöðu
sem norræn ríki hafa treyst með
sér. Og hún hefur verið afar þýð-
ingarmikil fyrir hina norrænu
innflytjendur þessi sterka nauð-
syn, þessi þunga ábyrgð, þessi
skylda að byggja upp þá tegund
samfélags, það þjóðfélag, þar sem
fjölskyldutréð gæti blómgast. Og
það er dásamleg ánægja að sjá
þessa samstöðukennd að öflugu
verki enn í dag, og hér í tvíbura-
borgunum, að hafa spurnir af
þeim rnikla tíma og því mikla
átaki sem menn úr öllum hópum
þjóðfélagsins leggja fram til að
trygída að samfélag þeirra, fjöl-
skylda samborgara á öllum aldri,
standi með blóma andlega og
menningarlega ekki síður en á
öðrum sviðum.
Sameiginlegur áhugi á þeirri
menningararfleifð sem við eigum
hlutdeild í hefur stefnt okkur
saman hingað í dag. Síst þarf ég
að segja einmitt ykkur af hinu
mikla menningarframlagi nor-
rænna þjóða til heimsins á öllum
sviðum lista, jafnt í bókmenntum
og tónlist sem og á sviði leiklistar,
málaralistar, höggmyndalistar og
kvikmyndagerðar — eða jafnvel á
sviði hannyrða og þjóðlagasöngs.
Heimskunn nöfn renna Ijúflega af
tungunni, frá Ibsen og Strindberg
til Grétu Garbo, Ingrid Bergman
og Liv Ullman, frá Laxness og
Heinesen til Sibeliusar og Griegs,
frá Kirkegaard og Hans Christian
Andersen til Edvard Munchs og
Ingmar Bergmans. Þessir karlar
og konur sem Norðurlöndin hafa
gefið heiminum og við erum með
rétti stolt af.
í norrænni goðafræði var jörð-
inni haldið saman af heimstré
miklu sem Yggdrasill hét. Þetta
tré tengdi himin við jörð. Þetta
var hið ævaforna fjölskyldutré,
ekki aðeins Skandinavíu heldur
alls heimsins.
Þetta var Skandinavía fyrri
tíma. í Skandinavíu nútímans sjá-
um við ávexti fjölskyldutrés okkar
daga. Við sjáum hvernig mann-
anna munur í fjölskyldunni hefur
skapað ríkulega margbreytni í
menningartjáningu, sem er með
sínum keim hjá hverju okkar. Við
erum komin hingað til Ameríku til
að bjóða ykkur, frændum okkar,
sem eigið forfeður sem lögðu af
trúmennsku rækt við menningu
sína, til að taka þátt í þessari há-
tíð, þessari sýningu, lesa menning-
arblóm af fjölskyldutré okkar
tíma. Megi það vaxa og blómgast,
megi það veita ykkur ánægju og
börnum ykkar og barnabðrnum.
Ég lýsi sýninguna Scandinavia
Today í Minnesota opna.
Þakka ykkur áheyrnina.
Verk 15 íslenzkra
hönnuða sýnd í New York
Á mánudaginn var opnuð í
Cooper Hewitt-safninu í New
York norræn listiðnaðarsýning
undir nafninu Scandinavian Mod-
ern 1880—1980. Sýningu þessari
er ætlað að gefa yfirlit yfir þróun
listiðnaðar og hönnunar á Norður-
löndum frá 1880, en um það leyti
hófu Norðurlandaþjóðirnar
markvissa starfsemi til að efia og
bæta hönnun iðnaðarframleiðslu
sinnar.
Cooper Hewitt-safnið er iðn-
hönnunarsafn Smithsonian-
-stofnunarinnar.
íslensku listamennirnir, sem
eiga verk á sýningunni, eru leir-
listamennirnir Guðmundur Ein-
arsson frá Miðdal (lést 1963),
Gestur Þorgrímsson, Sigrún
Guðjónsdóttir, Jónína Guðna-
dóttir og Steinunn Marteins-
dóttir, veflistamennirnir Júlí-
ana Sveinsdóttir (lést 1966), Ás-
gerður Búadóttir, Sigríður Jó-
hannsdóttir og Leifur Breiðfjörð
og Þorbjörg Þórðardóttir,
gullsmiðirnir Jens Guðjónsson
og Guðbrandur Jezorski og hús-
gagnaarkitektarnir Sveinn
Kjarval (lést 1981), Gunnar
Magnússon og Pétur Lúthers-
son.
Unnið hefur verið að undir-
búningi þessarar sýningar und-
anfarin tvö ár og hefur undir-
búningsstarfið verið í höndum
nefndar, sem skipuð var að til-
hlutan iðnaðarráðuneytisins.
Nefndin naut fyrirgreiðslu Út-
flutningsmiðstöðvar iðnaðarins
og Iðnþróunarsjóðs, en tengilið-
ur nefndarinnar við norræna
undirbúningsnefnd og Cooper
Hewitt-safnið var Stefán Snæ-
björnsson innanhússarkitekt.
Þetta er í fyrsta sinn síðan
1959, að íslenskur listiðnaður er
kynntur á norrænni sýningu
sem tekur til allra greina list-
iðnaðar undir merkinu
Scandinavian Design. Forseti
íslands var viðstaddur opnun
sýningarinnar í Cooper Hewitt.
VIDEO-EXTRA ’82
Verð 25.980.-
Útb. 6.000.-
— Rest á 6 mán.
VERSLtO I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÖMTÆKt SKIPHOLTI 19 SlMI 29800
Hann Siggi mœtir í alla
vélritunartíma með vinkonu
sínafrá
Skrífstofu
vélum!
Hann átti i töluverðum vand-
ræðum með valið, hann Siggi,
þrátt fyrir allt. Hann átti nefni-
lega kost á frábæru úrvali, eins
og þeir segja í auglýsingunum.
Þeir hjá Skrifstofuvélum h.f.
buðu honum hvorki meira né
minna en 5 gerðir af rennileg-
um skólaritvélum - allt frá hin-
um gífurlega vinsælu ABC rit-
vélum upp í bráðfallega Mess-
age rafmagnsritvél.
Siggi valdi ABC. Ást við fyrstu
sýn! Hann féll fyrir laglegu let-
urborði, léttum áslætti, fallegri
hönnun, skýru letri og góðu
verði.
Þær kosta aðeins kr. 2,340,00
þær ódýrustu.
Þau Siggi hafa ekki skilið síð-
an. Þó verður það að segjast
eins og er, að það hefur hvarfl-
að að honum Sigga að næla
sér í aðra, eina rafknúna, til að
hafa sem heimilishjálp. En þá
aðeins til viðbótar við ABC.
Hann er nefnilega dálítið „fjoll-
aður" hann Siggi!
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
7/
____ Hverfisgötu 33
Sim, 20560