Morgunblaðið - 14.09.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
Tal í forystu á
millisvæðamótinu
Mohkvu, 13. septerober. AF.
MIKHAIL Tal tók í g*r, sunnudag, forystuna á millisvKðamótinu i Moskvu
eftir að hann hafði gert jafntefli við landa sinn, Garri Kasparov, í fimmtu
umferð. Tal hefur nú fjóra vinninga og á h*la honum kemur Kasparov með
3,5. 14 skákmenn frá 10 þjóðum keppa á mótinu.
Tass-fréttastofan sovéska segir
að áhorfendur hafi bókstaflega
verið „heillaðir" af skák þeirra
Tals og Kasparovs en í henni hafði
sá síðarnefndi hvítt og beitti mjög
hvössu afbrigði í slavneskri vörn
með peðsfórn. Að lokum hafði
Kasparov aðeins eitt peð á móti
manni en mjög efnilega stöðu.
Hann lenti þó í tímahraki og þáði
jafnteflið þegar Tal bauð það.
Alexander Belyavski sigraði
landa sinn, Yefim Geller, sem féll
á tíma í 33. leik. Ulf Andersson frá
Svíþjóð og Gyula Sax frá
Ungverjalandi gerðu jafntefli.
Jafnt varð einnig með Christian-
sen, Bandaríkjunum, og Murey,
ísrael, John van der Wiel, Hol-
landi, og Florin Gheorghiu, Rúm-
eníu, og Garcia, Kúbu, og Quinter-
os, Argentínu.
Tveir efstu menn á millisvæða-
mótinu í Moskvu munu taka þátt í
áskorendakeppninni, sem mun
skera úr um hvor teflir við Karpov
um heimsmeistaratitilinn 1984.
Þeir, sem þegar hafa áunnið sér
rétt til keppni, eru Korchnoi,
Hubner, Portisch, Ribli, Torre og
Smyslov.
LykiHinn að langlífi:
Grænmetisát
og hugarró
Peking, 13. Heptember. AP.
í MANNTALINU, sem tekið var í Kína á dögunum, kom í Ijós, að í
Hubei-héraði eru 86 manns komnir yfir tírætt, að því er Xinhua-
fréttastofan segir. Flest er fólkið miklar grænmetisætur, gengur
mikið og stekkur sjaldan upp á nef sér.
Meðal öldunganna í Hubei hugarró sinni á hverju sem
eru 17 karlmenn en 69 konur.
Elsti karlmaðurinn er 116 ára
en elsta konan 121. 77 búa til
sveita, 9 í borgum en allir
nærast þeir einkum á græn-
meti, ganga mikið og halda
gengur. I manntalinu, sem
tekið var 1954 voru 45 manns
komnir yfir 100 ára aldurinn í
Hubei og hefur þeim því fjölg-
að um 41.
Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseti, hefur verið á ferð í Kína að undanlornu
og var þessi mynd tekin af honum ásamt Deng Xiao-ping i Alþýðuhöllinni
í Peking sl. miðvikudag. Þar ræddu þeir um samskipti Kínverja og
Bandaríkjamanna og hrósaði Deng Nixon mjög fyrir framlag hans í þeim
efnum. ap.
Deng treystir
tökin í Kína
l'eking, 13. neptember. AP.
DENG Xiao-ping, mestur valdamaður í Kina nú um stundir, var í dag
kosinn formaður nýrrar ráðgjafanefndar flokksins og Chen Yun, mikill
bandamaður hans, var endurkjörinn formaður aganefndarinnar, að því er
segir i frétt frá Xinhua-fréttastofunni. Tólfta þingi kínverska
kommúnistaflokksins lauk sl. laugardag.
Nýkjörin miðstjórn kínverska
kommúnistaflokksins kaus í
gær, sunnudag, nýja fram-
kvæmdanefnd en hún er valda-
mesta stofnunin í Kína og fer
meö stjórnina á milli funda mið-
stjórnarinnar. Deng er einn af
sex, sem skipa innra ráð fram-
kvæmdanefndarinnar, og auk
þess er hann formaður hinnar
valdamiklu hernaðarnefndar.
Athygli vakti, að Hua Guo-feng,
eftirmaður Maó heitins sem
formaður flokksins, náði ekki
kjöri í framkvæmdanefndina en
hann á þó enn sæti í miðstjórn-
inni.
Hua hefur verið gagnrýndur
mjög af Deng og stuðnings-
mönnum hans fyrir „vinstn-
villu" og fyrir að hafa fylgt
stefnu Maós í blindni og dóm-
greindarleysi. Áður héngu uppi
myndir af Maó og Hua um allt
Kína og stuðningsmenn Hua
komu þeirri sögu á kreik, að Maó
hefði sagt við hann skömmu
fyrir andlátið: „Ef þú ert við
stjórnvölinn, get ég verið róleg-
ur.“ Nú hefur þessum myndum
verið varpað út í ystu myrkur og
fordæmdar sem persónudýrkun.
Að nafninu til hefur Deng vik-
ið til hliðar fyrir sér yngri
mönnum en erlendir fréttamenn
í Kína segja, að í raun sé það
hann sem um stýristaumana
haldi.
Mistök mannlegs eða tækni-
legs eðlis ollu dauða 39
PfAeffikon, Sviss, 13. september. AP.
SVISSNESK yfirvöld sögdu í dag, að verið væri að reyna að ákvarða hvort mistök
mannlegs eða Ueknilegs eðlis lægju að baki árekstrinum á milli langferðabifreiðar
og járnbrautarlestar við Pfaeffikon á sunnudag þar sem 39 manns létu lífið.
Voru sum líkanna svo illa leikin,
að í dag hafði enn ekki tekist að bera
kennsl á þau. Bar slökkviliðs-
mönnum, sem kvaddir voru á vett-
vang, saman um að margir farþeg-
anna hlytu að hafa brunnið lifandi
inni í flakinu. Þetta er versta
járnbrautarslys í Sviss á þessari öld.
Ekki er iengra síðan en í júlí að sex
manns létust í árekstri tveggja
járnbrautarlesta vestur af Zurich.
Einhverra hluta vegna var hlið á
veginum sem liggur yfir teinana,
sem á að lokast sjálkrafa nokkru áð-
ur en lest ber að garði, ekki lokað.
Langferðabifreiðin ók því yfir tein-
ana og svo að segja á sama augna-
bliki lenti lestin í hlið hennar á 70
km hraða.
Langferðabifreiðin hreinlega
skarst í sundur og eldur kom sam-
stundis upp í henni. Logarnir læstu
sig ennfremur í stjórnklefa járn-
brautarlestarinnar. Allir farþegar
bifreiðarinnar, að tveimur undan-
skildum, létu lífið. Voru þarna á ferð
meðlimir þýsks íþróttafélags ásamt
eiginkonum sínum.
Kosningabaráttan snýst
um launþegasjóðina
Stokkhólmi, 13. Meptember,
frá Guófinnu Kagnar.sdóttur fréttariUra Mbl.
I,aunþe|>a.sjóóir. Launþegasjóðir og aftur launþegasjóðir. Kftir sex daga
gongur sænska þjóðin að kjörborðinu og kýs sér stjórn. Og það sem allt virðist
velta á eru launþegasjóðirnir. Borgaraflokkarnir beina skeytum sínum mark-
visst að jafnaðarmönnum og tillögum þeirra um launþegasjóði. „Hvert leiða
launþegasjóðirnir annað en til sósíalisma," spyrja þeir. „Hagsmunasamtökin
ná völdum í Svíþjóð ef launþegasjóðirnir komast á. Og jafnaðarmenn verja sig
og lofa að ræða málin við alla aðila áður en til framkvæmda komi. En
launþegasjóðir," segja þeir, „skulu koma til framkvæmda. Öðruvísi verður
sænskur efnahagur ekki réttur við“.
En þótt launþegasjóðirnir hafi
verið aðalmál kosningabarátt-
unnar til þessa, og verið ræddir í
mörg undanfarin ár, virðist
þekking manna á þeim mjög
takmörkuð. Það kom í ljós í
könnun sem sænska blaðið Dag-
ens Nyheter lét gera nýlega.
Meira en helmingur þeirra sem
spurðir voru vissu ekkí um hvað
tillaga jafnaðarmanna um laun-
þegasjóði fjallar.
Það eru ekki bara stjórnmála-
mennirnir sem eru á kafi í kosn-
ingabaráttu. Atvinnurekend-
asambandið hefur undanfarna
mánuði farið mikla herferð gegn
sjóðunum og fengið til liðs við
sig margt þekkt fólk, m.a. Abba-
-sönghópinn og umboðsmann
þeirra, Stikkan Anderson.
Abba-sönghópurinn á mörg
fyrirtæki og Stikkan Anderson
hefur sjálfur reiknað út að ef
launþegasjóðir væru komnir á,
hefði Abba og fyrirtæki þeirra
orðið að greiða 17 milljónir
sænskra króna í launþegasjóði.
í gær birtist einnig í sænska
kvöldblaðinu Expressen opið
bréf frá Kurt Nigolin, formanni
atvinnurekendasambandsins, og
Per Gyllenhammar, fram-
kvæmdastjóra Volvo-verksmiðj-
anna, og Hans Werghen,
framkvæmdastjóra m.a.
Electrolux-fyrirtækisins. í bréf-
inu segir m.a.: Ekkert getur aft-
urkallað andúð okkar á
launþegasjóðunum. Við munum
aldrei láta okkur nægja að semja
um tæknilega framkvæmd á til-
lögu, sem ógnar lýðræðinu og
einstaklingsfrelsinu. Formaður
jafnaðarmanna, Olof Palme, lof-
aði í dag að svara iðnjöfrunum
þremur einhvern næstu daga.
í stuttu máli er tillaga jafnað-
armanna um launþegasjóðina
eftirfarandi: Öll fyrirtæki sem
rekin eru með ákveðnum gróða
láta hluta af gróðanum í sjóði,
svokallaða launþegasjóði. Þang-
að á einnig að renna hluti af
kauphækkunum iaunþega.
Peninga sjóðanna á síðan að
nota til að kaupa hlutabréf í
gróðavænlegum fyrirtækjum og
efla þannig iðnaðinn.
Launþegasjóðirnir eiga að
vera samciginleg eign fyrirtækja
og launþega. Þeir eiga að vera
dreifðir um allt land, og sem
flestir eiga að geta haft áhrif á
hvernig peningunum er varið.
í tillögu Verkalýðssambands-
ins, LO, er enn fastar kveðið að
auknu áhrifavaldi launþeganna,
og þar er gert ráð fyrir að hags-
munasamtökin hafi umsjón með
sjóðunum. Þar eru einnig áætl-
anir um hvenær hagsmunasam-
tökin verði búin að ná valdi á
sænskum iðnaði.
Þrír í
svelti í
Belfast
Belfant, 13. neptember. AP.
ÞRÍR hryðjuverkamenn úr írska lýð-
veldishernum (IRA) hófu í dag hung-
urverkfall í Crumlin Road-fangels-
inu í Belfast til að mótmæla hand-
töku sinni og varðhaldi, sem þeir
segja án stoðar í lögum.
Búist var við að 31 hryðjuverka-
maður til viðbótar í fangelsinu
tæki þátt í mótmælasveltinu.
Hungurverkfallið er hið fyrsta
frá því í október, en þá lauk hung-
urverkföllum í Maze-fangelsinu,
sem samtals stóðu í sjö mánuði og
drógu 10 hryðjuverkamenn IRA
til dauða.
Þremenningarnir, sem nú fasta,
eru Tommy Parr og Bobby Tohill
frá Belfast og Con Tinney frá
Strabane við írsku landamærin.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amaterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
Brussel
Chicago
Dytiinni
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mexíkóborg
Miami
Moskva
Nýja Delhí
New York
Osló
Paris
Perth
Rio de Janeiro
Reykjavik
Rómaborg
San Francisco
Stokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vinarborg
bórshöfn
5 skúrir
20 skýjaó
30 heiöskírt
29 þokumóöa
23 heióskírt
25 heióskírt
27 skýjaó
19 heióskírt
28 heióskirt
27 heiöskírt
25 heiðskfrt
15 skýjað
26 rigning
29 heióskirt
24 heióskírt
33 heióskírt
19 heióskírt
32 heiöskírt
23 heiöskírt
24 skýjaó
31 heióskírt
25 lóttskýjaó
26 skýjaó
31 skýjaó
14 skýjaó
35 heióskfrt
30 heióskírt
15 heiðskirt
27 skýjaó
19 heióskfrt
33 heióskírt
7 úrk. í gr.
30 heióskirt
26 heióskfrt
17 heióskirt
19 heióskfrt
30 heióskírt
29 heiðskírt
16 skýjaö
22 heióskirt
9 alskýjaö
22 farast
/■ A/ • X •
i farviðri
í Japan
Tókýó, 13. júní. AP.
FÁRVIÐRI gekk yfir eyna Honshu,
stærstu eyju Japans, i dag, með þeim
afleiðingum að 22 fórust af völdum
vatnavaxta eða skriðufalla. Auk þess
var tíu saknað og 86 nutu aðhlynn-
ingar í sjúkrahúsi.
Fárviðri hefur gengið yfir Japan
tvisvar áður það sem af er ári, og
hafa rúmlega 100 manns týnt lífi í
veðurhamnum. Þá fórust rúmlega
300 í flóðum og skriðuföllum við
Nagasaki í júlí.
Um 17 þúsund manns urðu að
hafast við í járnbrautarlestum í
nótt vegna óveðursins. Stöðvuðust
lestirnar þar sem brautarteinar
fóru víða undir aurskriður.