Morgunblaðið - 14.09.1982, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö.
Mikilvæg Bandaríkjaför
Fréttirnar af mikilvægri ferð frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta íslands, til Bandaríkjanna segja okkur
sem heima sitjum, að þar gangi allt að óskum. Fyrir tæpri
viku var forsetinn í senn gestur Ronald Reagans, Banda-
ríkjaforseta, og naut þess heiðurs að setja fyrir hönd
Norðurlandanna allra menningarkynninguna umfangs-
miklu, Scandinavia Today. Það er full ástæða til að nota
orðið „mikilvæg“ um þessa för frú Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Vinátta og tengsl Bandaríkjanna og íslands eru báð-
um þjóðunum mikilvæg. Fundur þeirra frú Vigdísar og
Ronald Reagans í Hvíta húsinu var jafn táknræn stað-
festing á þessu mikilvægi og þegar forseti íslands brosti
framan í fréttamann ABC-sjónvarpsstöðvarinnar banda-
rísku, tók í handlegg Reagans, hallaði höfðinu upp að
honum og sagði að samband þjóðanna væri gott.
Hitt er ekki síður mikilvægt, að frú Vigdís Finnboga-
dóttir skyldi hafa verið til þess valin að setja Scandinav-
ian Today fyrir hönd allra Norðurlandaþjóðanna. Þar
með var henni og íslensku þjóðinni sýndur mikill heiður.
Islendingar þurfa ekki að hafa ferðast oft til útlanda eða
dvalist þar lengi til að komast að raun um, að hugmyndir
erlendra þjóða um ísland og raunar Norðurlöndin öll eru
oft á tíðum brenglaðar, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Með því að frú Vigdís var valin til að koma fram fyrir
hönd allra Norðurlandanna og setja Scandinavian Today
fékkst kjörið tækifæri til að minna á sérstöðu og sam-
stöðu Norðurlandaþjóðanna, eins og forseti íslands gerði
með réttum hætti í ræðu sinni við hina hátíðlegu athöfn.
Þá komst frú Vigdís Finnbogadóttir meðal annars svo að
orði: „Um leið og skilningi hefur verið komið á þjóða í
millum myndast vinátta. Þannig byggjast brýr á milli
þjóða. Þá læra mennirnir að skilja hverjir aðra — hve
langt sem kann að vera á milli hér á hnettinum. Slík
vinátta hlýtur að stuðla að heimsfriði."
Með sérstökum samningi hafa Bandaríkjamenn og ís-
lendingar tekið höndum saman um að tryggja frið í okkar
heimshluta, bandaríski markaðurinn er hinn mikilvæg-
asti fyrir íslenskar afurðir en um samstarfið við Banda-
ríkin hefur verið deilt harðast í íslenskum stjórnmálum
frá því við urðum sjálfstætt ríki. Þessar deilur eru ekki
eins harðar og áður og breið samstaða ríkir meðal ís-
lensku þjóðarinnar um gildi vináttunnar og samstarfsins
við Bandaríkin. Bandaríkjaför forseta íslands er mikil-
væg staðfesting á þessu.
Hvorki raunsæi
né óskhyggja
Raunsæi leiddi til þess, að Anker Jörgensen ákvað að
biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt í Dan-
mörku. Anker Jörgensen sá fram á það, að hann gæti ekki
náð málum fram á þingi. Hann brást við vandanum með
þeim hætti sem honum bar miðað við eðlilegan skilning á
þingræðisreglunni. Helmut Schmidt, kanslari Vestur-
Þýskalands, starfar samkvæmt stjórnarskrá sem samin
var til að forða Þjóðverjum frá stjórnskipulegri upplausn
Weimar-lýðveldisins, sem þó var talið byggt á bestu
stjórnarskrá veraldar. Vestur-þýska stjórnarandstaðan
getur því aðeins flutt tillögu um vantraust á kanslara, að
fyrir liggi traustsyfirlýsing meirihluta þingmanna um
nýjan kanslara. Á grundvelli þessa ákvæðis neitar Hel-
mut Schmidt að segja af sér, þótt flestir telji það
óskhyggju hjá honum að stjórn hans lifi veturinn.
Af raunsæi virti Anker Jörgensen þingræðisregluna og
sagði af sér, í krafti stjórnskipunarlaga situr Helmut
Schmidt vegna óskhyggju. Hvorki raunsæi né óskhyggja
geta ráðið hjá ríkisstjórn íslands og því síður virðing
fyrir þingræðinu.
55 þúsund manns voru samankomin á Metrodome-íþróttaleikvanginum við opnun Scandinavia Today í Minneapolis í Minr
Norðurlöndunum. í baksýn til hægri sést 7.000 manna kór sem söng við athöfnina.
Dagur Norðurlandabú
New York 13. september. Frá Önnu
Kjarnadóttur, fréttaritara Mbl.
„ÉG VARÐ steinhissa þegar ég
heyrði að í systraborgunum
Minneapolis og St. Paul búa
fleiri af þýskum uppruna en frá
Norðurlöndunum," sagði banda-
rísk kona, Florens Warner, sem
tók þátt í opnunarhátíðarhöldun-
um á Scandinavia Today í
Minneapolis í Minnesota, „sjálf
er ég hálfsænsk og svo stemmd
yfir þessu öllu saman að ég
keypti meira að segja aukamiða
á Metrodome-íþróttaleikvanginn
til að geta tekið hvern sem var
með mér á hátíðina." Og það var
engin smá hátið, um 55 þúsund
manns voru saman komnir á
íþróttaleikvanginum, yfir 7 þús-
und manna kór söng, George
Bush, varaforseti Bandaríkj-
anna, var viðstaddur og flutti
ræðu, auk þess forseti Islands,
Henrik Danaprins, Norski krón-
prinsinn, Bertil Svíaprins og
utanríkisráðherra Finna. Ríkis-
stjóri Minnesota talaði og sendi-
herrar, ræðismenn, þingmenn
Minnesota og borgarstjórar
systraborganna voru viðstaddir.
Karlakórinn Fóstbræður söng,
flokkur úr Konunglega ballet-
flokknum danska dansaði, Norð-
mennirnir Lillebjörn Nielsen og
Steinar Opsdal komu fram, Tap-
iola-barnakórinn söng og Sven
Bertil Taube skemmti. Þjóð-
söngvar Norðurlandanna og
Bandaríkjanna voru leiknir,
þjóðdansar stignir og í lokin
söng heimsins stærsti kór, allir
viðstaddir hátíðina, American
the Beautiful. Norðurlandabúar
áttu þennan dag í Minnesota og
ef fólk af þýskum ættum er fleira
en þeirra menn í systraborgun-
um þá létu þeir svo sannarlega
lítið fyrir sér fara.
Fulltrúar Norðurlandanna
gengu til sæta sinna úti á leik-
vanginum við trumbuslátt og
fánar þjóðanna blöktu. Fagn-
aðarlætin voru mest þegar Bush
varaforseti gekk út á leikvanginn
og sýndi það að þótt áheyrendur
væru hreyknir af norrænu blóði í
æðum sínum þá voru þeir fyrst
og fremst Bandaríkjamenn. Bush
vitnaði í sænska skáldið Carl
August Sandueg og frásögn hans
af ferð foreldra hans til Banda-
ríkjanna, slæmum aðstæðum og
erfiðleikum en dugnaði. Bush
sagði að árið 1900 hefði verið
ljóst að Vi2hluti íslendinga hefði
flutt til Ameríku. Hann nefndi
Charles Augustus Lindbergh,
Hubert H. Humphrey og Edwin
Aldrin, allir menn af norrænum
ættum sem Minnesota-búar eru
mjög hreyknir af. Hann talaði
um ríkulegan menningararf
Norðurlanda og sagði Bandaríkin
njóta hans og þau ættu að minn-
ast skyldu sinnar gagnvart Norð-
urlandaþjóðunum. Bush sagði í
lok ræðu sinnar að Bandaríkja-
menn ættu að læra af styrkleika
Norðurlandabúa og þori og færa
þá fórn sem þarf til að styðja
varnarkerfið. „Ekki til að heyja
stríð heldur til að tryggja frið-
inn,“ sagði varaforseti.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, talaði um mikilvægi
bæði sálar og líkama og óskaði
Minneapolis-búum til hamingju
með Hubert H. Humphrey-
íþróttaleikvanginn. Hann var
opnaður 3. apríl 1982 og Scand-
inavia Today-hátíðin var fyrsta
hátíðin sem haldin var á vellin-
um, ótengd íþróttum. Þak vallar-
ins er úr trefja-gleri og haldið
uppi með loftþrýstingi. Alls eru
sæti fyrir 62 þúsund áhorfendur.
Fögnuðu áheyrendur jákvæðum
orðum Vigdísar forseta í garð
byggingarinnar og kona ein sagði
að stjórnendur vallarins hlytu að
fá ræðuna til kynningar fyrir
völlinn.
Vigdís forseti sagði í kaffi-
samsæti íslenska kvennaklúbbs-
ins Heklu á sunnudag, að henni
John Derus, formaður sýslunefndar, flytur ræftu vift hyllingu
íslenska fánans í Minneapolis í Minnesota. Vigdís forseti, Quie
ríkisstjóri og fleiri gestir voru viðstaddir.
Valdimar Björnsson, fyrrverandi fjármilaráöherra I
meft 5 íslenskum sýningarstúlkum í móttöku sendi
anna íslensku, sem þau héldu í nafni íslenskra viðsl
Minneapolis.
i