Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
23
• Sigurlás Þorleifsson markakóngur 1. deildarinnar með 10 mörk.
Heimir Karlsson skoraði jafnmörg mörk og skipta þeir því med sér titlinum.
Sigurlás Þorleifsson:
„Áttum að vinna
stærri sigur"
„ÞETTA var þokkalegur leikur hjá
okkur í dag. Það var mikið í húfi hjá
báðum liðum og taugarnar því þand-
ar til hins ýtrasta hjá leikmönnum,"
sagði Sigurlás Þorleifsson, marka-
kóngur þeirra í ÍBV, eftir leikinn á
laugardaginn. Sigurlás fékk fjöl-
mörg góð marktækifæri í leiknum
og skoraði eitt mark. „Það leiðinleg-
asta við þennan leik er það að ég
endaði keppnistímabilið eins og ég
byrjaði það, með því að klúðra góð-
um færum. Framliðið var slakt, sér-
staklega vörnin og við hefðum hæg-
lega getað unnið stærri sigur ef við
hefðum nýtt færin betur. Ég er
ánægður með árangur okkar í
sumar, 2. sætið er allavega okkar og
nú býð ég spenntur en samt rólegur
eftir úrslitunum á morgun. Þetta er
ágætur endir á ágætu sumri hjá
okkur.“ Þetta hafði Sigurlás að
segja eftir leik ÍBV og Fram á laug-
ardaginn. — hkj.
„Mjög ánægður
með sumarið"
HINN viðkunnanlegi þjálfari ÍBV,
Steve Fleet, var að vanda rólegur og
hógvær þegar blaðamaður Mbl. vatt
sér að honum eftir leik ÍBV og Fram
á laugardaginn. „Þetta var skemmti-
legur leikur og góð barátta hjá liðum
sem stóðu í ströngu á sitt hvorum
vígstöðvunum. Þetta er hraðasti
leikur sem ég hefi séð í sumar.
Framarar voru að berjast fyrir líFi
sínu í deildinni og þeir börðust vel,
en raínir menn léku betur og verð-
skulduðu sigurinn. Þegar við erum
nú að ræða saman erura við með 2.
sætið tryggt og sæti í UEFA-keppn-
inni næsta keppnistimabil og ég
mun sofa rólegur í nótt. Hvað
morgundagurinn ber í skauti sér veit
sá einn sem allt veit,“ sagði Steve
Fleet brosandi og benti til himins.
„Annars er ég mjög ánægður með
sumarið hjá okkur í ÍBV, við höfum
átt við ýmis vandamál að stríða, en
leyst þau og sótt stöðugt i okkur
veðrið. Mér finnst knattspyrnan nú
ekkert verri en i fyrra og áhorfendur
hafa verið mjög heppnir að geta
fylgst með jafnri og spennandi
keppni frá fyrstu til síðustu umferð-
ar. Hver einasti leikur i mótinu hef-
ur haft mikla þýðingu.“ Steve Fleet
sagðist ekkert geta sagt um það að
svo stöddu, hvort hann yrði áfram
með ÍBV-liðið næsta sumar. Það
hefði lítið sem ekkert verið rætt enn-
þá. „Fyrst klárum við leikina við
Pólverjana í Evrópukeppninni.“
— hkj.
Framliðið var óhemjuslakt
og ÍBV átti að vinna stærri sigur
FRAM, eitt af stórveldunum í ís-
lenskri knattspymu, er fallið í 2.
deild. Liðið tapaði fyrir ÍBV í Eyjum
á laugardaginn, 2—0, og þegar
leikmenn liðsins komu í búnings-
herbergið eftir þunglamalega göngu
af velli með slæmt tap á bakinu,
biðu þeirra þær fréttir að úrslit ann-
arra leikja í deildinni á sama tima
hefðu orðið á þann veg að fallið í 2.
deild væri orðin óhrekjanlega stað-
reynd. Það má því með gálga-
húmorslegri kaldhæðni segja sem
svo að dauðadómurinn yfir Fram
hafi verið kveðinn upp i Kópavogi, á
ísafirði og í Eyjum, og aftakan fram-
kvæmd á Hásteinsvellinum i Eyjum.
Þetta er mikið áfall fyrir Fram, sem
hefur leikið í 1. deild frá árinu 1967.
Liðið var með í 1. deild frá því
deildaskipting var upp tekin árið
1955, en féll niður i 2. deild 1965,
kom upp aftur strax 1966.
Hjá leikmönnum ÍBV varð
gangan af velli öllu léttari og þeir
gátu leyft sér að brosa út í bæði.
Liðið hafði gulltryggt sér 2. sætið
í deildinni og þar með þátttöku-
rétt í UEFA-keppninni næsta
haust og þeir höfðu sett pressu á
Víkinga í báráttunni um sigur-
launin eftirsóttu í deildinni.
Tveggja marka tap eða meira hjá
Víkingum í leiknum við IA myndi
færa IBV íslandsbikarinn. Það má
því ætla að mörg hlý og hjartnæm
hugskeyti hafi borist úr Eyjum
upp á Skaga á sunnudaginn.
Sunnudagurinn sá leið hjá mörg-
um með naglabítandi óþreyju og
kveljandi eftirvæntingu. Nóg um
það að sinni, snúum okkur að
leiknum sjálfum.
Það varð strax ljóst í upphafi að
leikmenn ÍBV ætluðu sér ekkert
annað en sigur í þessum leik enda
til mikils að vinna. Þeir náðu
strax góðum tökum á leiknum og
höfðu algjöra yfirburði allan fyrri
hálfleikinn, Framarar komust ein-
faldlega aldrei inn í leikinn. Eyja-
menn léku stórvel, þeirra besti
leikur í allt sumar. Boltinn gekk
vel, gott spil. Og fyrra markið kom
á 11. mínútu og þvílíkt mark.
Dæmd var aukaspyrna á Fram út
við hliðarlínuna a.m.k. 30 metrum
frá markinu. Ómar Jóhannsson
var ekkert að tvínóna við hlutina
heldur skaut aldeilis þrumuskoti á
mark Fram og boltinn þaut í netið
án þess að Guðmundur markvörð-
ur Baldursson áttaði sig á því
hvað var eiginlega að ske. Allir
bjuggust við fyrirgjöf frá Ómari
ÍBV— O
Fram
og svo þandi boltinn út marknetið.
Glæsilega gert hjá Ómari, mark
ársins á Hásteinsvelli.
Þetta var einmitt sú byrjun sem
Eyjamenn höfðu vonast eftir og
sem Framarar að sama skapi
höfðu óttast mest. Og Eyjamenn
óðu í færunum. Guðmundur varði
vel á 27. mínútu frá Kára en að-
eins mínútu síðar kom hann eng-
um vörnum við. Þórður Hall-
grímsson skallaði boltann laglega
fyrir fætur Sigurlásar Þorleifs-
sonar sem brunaði í gegnum vörn
Fram og skoraði af miklu öryggi,
2—0. Þrátt fyrir ágæta baráttu
Framara áttu þeir ávallt í vök að
verjast fyrir ágengni sóknar-
manna ÍBV. Á 35. mínútu var Kári
enn í færi, Guðmundur kom langt
út úr markinu á móti Kára sem
vippaði yfir Guðmund en líka
framhjá markinu. Á 44. mínútu
splundraði örn Óskarsson vörn
Fram með frábærri sendingu á Jó-
hann Georgsson, en Guðmundur
varði glæsilega fast skot Jóhanns
úr mjög góðu færi. Og á 45. mín-
útu bjargaði Sverrir Einarsson af
tánum á Sigurlási sem var kominn
inn í markteig með boltann. Því
2—0 í hálfleik.
Eyjamenn gáfu verulega eftir í
s.h. en voru samt sem áður mun
atkvæðameiri í sóknaraðgerðum
sínum. Framarar náðu ekki upp
neinu spili af viti allan leikinn og
satt að segja var fallstimpillinn á
liðinu frá fyrstu mínútu Það var
aldrei minnsta von fyrir Fram í
þessum leik. Sigurlás hafði með
marki sínu í f.h. náð Heimi
Karlssyni í keppninni um marka-
kóngstitilinn og í s.h. fékk Sigur-
lás mörg góð tækifæri til þess að
renna sér framúr Heimi, en eins
og svo oft áður í sumar hljópst
markaheppnin úr skónum hans
Lása. Á 51. mínútu brunaði hann
upp völlinn með alla Framvörnina
á hælunum en í vtiateignum, þeg-
ar hann hugðist renna boltanum
framhjá Guðmundi markverði,
steig hann á boltann og féll, færið
þar með fyrir bí. Á síðustu mínútu
leiksins fékk Sigurlás síðan þrjú
dauðafæri en brást fótfimin í
þeim öllum. Fyrst lék hann einn í
gegn frá miðju en Guðmundur
varði frábærlega vel útfært skot
Lása. Á markamínútu s.h. fékk
Sigurlás boltann á markteig eftir
frábæra aukaspyrnu Ómars en
skot Lása flaug yfir þverslána. Og
svo á allra síðustu mínútu brunaði
Sigurlás enn í gegn en Guðmund-
ur markvörður sá við honum með
því að æða út úr markinu, langt út
fyrir teig.
Þegar augum er rennt yfir
minnisbókina og það sem hér að
’framan er upptalið vaknar
kannski sú spurning hvort Fram-
arar hefðu ekki verið með í þess-
um leik. Jú, jú, þeir voru með og
þeir börðust af krafti og hörku en
þeir sköpuðu sér ekki eitt einasta
færi sem vert er að geta. Þetta var
þannig leikur og þannig er þetta
oft hjá fallliðum.
Eyjamenn léku þennan leik
lengst af mjög vel, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Sönnuðu það enn að
þegar mest á reynir þá nær liðið
sér vel á strik. Vörnin var þétt og
örugg og lítið reyndi á kappann
Pál Pálmason, sennilega rólegasti
leikur hans í sumar. Á miðjunni
átti Ómar Jóhannsson stórgóðan
leik, hreinasti listamaður með
boltann þegar hann tekur sig til.
Sigurlás og Kári Þorleifssynir í
framlínunni voru mjög atkvæða-
miklir og ógnandi. Besti leikur
Kára í sumar.
Framliðið var óhemju slakt í
þessum leik, ekki heil brú til í leik
liðsins. Þó var ágætis keyrsla á
mönnum, en þetta var hjá flestum
hlaup án fyrirheits. Hafþór
Sveinjónsson var langbesti maður
liðsins, barðist allan tímann af
krafti og vilja og allt spii sem sást
til liðsins átti upptök sín hjá hon-
um. Sverrir Einarsson var góður í
vörninni hjá Fram sem að öðru
leiti var slök og opin. Sem gefur að
skilja voru Framarar algjörlega
niðurbrotnir menn eftir leikinn.
I stuttu máli:
Hásteinsvöllur 11. september, 1.
deild.
ÍBV - Fram: 2-0 (2-0).
Mörk ÍBV: Ómar Jóhannsson á
11. mín. Sigurlás Þorleifsson á 28.
mín.
Áminningar: Sverrir Einarsson
Fram, Viðar Elíasson ÍBV og Kári
Þorleifsson ÍBV, fengu allir gula
glýju fyrir augun.
Dómari: Sævar Sigurðsson.
Áhorfendur: Metaðsókn í
sumar.
— hkj.
„Við áttum aldrei nokkra
möguleika gegn Bordeaux"
— sagði Karl Þórðarson eftir 1—4 skell Laval í frönsku 1. deildinni
„VIÐ áttum aldrei nokkra mögu-
leika gegn Bordeaux. Þeir voru ein-
faldlega miklu betri en við,“ sagði
Karl Þórðarson er Mbl. ræddi við
hann um helgina. Sjötta umferð
friinsku 1. deildarkeppninnar fór þá
fram og urðu úrslitin sem hér segir:
Lens — Paris St. Germain 4—0
Mulhouse — Bastia 4—1
Auxerre — Sochaux 2—2
Bordeaux — Laval 4—1
Rouen — Lille 2—0
Tours — Strasbourg 2—0
St. Etienne — Toulouse 2—1
Monaco — Metz 2—1
Nantes — Lyon 1—0
Nancy — Brest 1—1
Það voru þeir Dieter Miiller, 1,
Jean Tigana, 1, og Bernard Lac-
ombe, 2, sem skoruðu mörk Bord-
eaux gegn Laval. Teitur Þórðarson
var ekki með Lens gegn Paris St.
Germain og var heldur ekki á
meðal varamanna. Hefur átt við
meiðsli á fæti að stríða frá því
keppnistímabilið hófst. Hans sæti
hefur ungur leikmaður tekið og
staðið sig með mikilli prýði. Skor-
að mikið af mörkum þannig að
erfitt verður fyrir Teit að endur-
heimta sæti sitt.
Lenz situr nú eitt á toppi
frönsku 1. deildarinnar með 10
stig, hefur enn ekki tapað leik.
Nantes er með 9 stig, þá Toulouse
8, síðan koma Nancy, Bordeaux,
Brest og Laval með 7 stig, Aux-
erre, Lyon, Monaco, Tours, Bastia
og Paris St. Germain öll með 6
stig, Metz Rouen og St. Etienne öll
með 5, Strasbourg og Mulhouse
hafa 4, og Sochauz og Lille reka
lestina með 3 stig.
Það vekur athygli að bæði Lens
og Auxerre, sem voru í bullandi
fallhættu allt keppnistímabilið í
fyrra, hafa byrjað mjög vel, sér í
lagi Lens. Á sama hátt hafa mörg
þeirra liða sem voru í hópi þeirra
efstu í fyrra verið í erfiðleikum í
haust. Þá þar nefna bæði St. Eti-
enne og Sochaux.
LIÐ ÍBV:
Páll Pálmason 6, Viðar Elíasson 6, Snorri Rútsson 6, Þórður Hallgrímsson 6,
Valþór Sigþórsson 6, Örn Óskarsson 6, Ómar Jóhannsson 7, Jóhann
Georgsson 5, Sveinn Sveinsson 6, Sigurlás Þorleifsson 7, Kári Þorleifsson 7,
Hlynur Stefánsson (vm) lék of stutt.
LIÐ Fram:
Guðmundur Baldursson 6, Þorsteinn Þorsteinsson 5, Árni Arnþórsson 4,
Sverrir Einarsson 7, Marteinn Geirsson 5, Valdimar Stefánsson 4, Bryngeir
Torfason 4, Viðar Þorkelsson 4, Einar Björnsson 4, Guðmundur Torfason 6,
Hafþór Sveinjónsson 7, Lárus Grétarsson (vm) 4, Ólafur Hafsteinsson (vm)
lék of stutt.