Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
25
Umdeilt víti færði
Breiðablik sigur á KA
KA VAKÐ að bíta í það súra epli að
sætta sig við að falla niður í 2. deild.
Liðið tapaði fyrir Breiðabliki á laug-
ardag 1—2 á Kópavogsvelli. Sigur-
mark Breiðabliks kom úr vítaspyrnu
sem var nokkuð umdeild. Línuvörð-
urinn hafði veifað á rangstöðu
nokkru áður en boltanum var spark-
að í hendina á Eyjólfi bakverði. Sig-
urður Grétarsson skoraði svo örugg-
lega úr vítaspyrnunni.
Það var mikil barátta í leik
beggja liðanna á Kópavogsvelli á
laugardaginn og leikurinn var all-
vel leikinn og hraður. Strax á 4.
mínútu átti Ásbjörn þrumuskot
beint i vinkilinn og út. En fyrstu
mínútur leiksins voru það Blik-
arnir sem pressuðu stíft og voru
þá nálægt því að skora. Besta færi
þeirra í fyrri hálfleik kom þegar
ungur nýliði, Sævar Gunnleifsson,
skaut þrumuskoti af stuttu færi
eftir góða sókn en beint í þver-
slána. Liðin skiptust á að sækja og
náðu að skapa sér ágæt tækifæri
en ekki tókst þó leikmönnum að
skora fyrr en á 36. mínútu leiks-
ins. Þá braust Elmar upp kantinn
og náði að gefa vel fyrir markið á
Ásbjörn Björnsson sem skallaði
örugglega í markið af stuttu færi.
Sami kraftur var í leikmönnun-
um í síðari hálfleiknum og sýnt
var að liðin ætluðu að selja sig
dýrt. Á 69. mínútu síðari hálf-
leiksins jöfnuðu Breiðabliksmenn
leikinn. Sævar Geir Gunnleifsson
fékk góða sendingu fram völlinn
frá Sigurði Grétarssyni. Sævar
brunaði inn í vítateiginn og tókst
með harðfylgi að skora. Litlu
munaði þó að Aðalsteinn mark-
vörður næði að handsama boltann
er hann reyndi að bjarga með
góðu úthlaupi.
Á 76. mínútu áttu KA-menn
gott tækifæri er Gunnar gaf á
Hinrik í góðu færi en fæst skot
hans hafnaði í hliðarnetinu.
Sigurður Grétarsson átti mjög
gott tækifæri á að skora mark á
85. mínútu. Hann fékk sendingu
frá Sævari en skot Sigurðar fór
framhjá. Vítaspyrnan umdeilda
kom svo á 85. mínútu leiksins. Síð-
ustu fimm mínúturnar lögðu
leikmenn KA mikið kapp á að
jafna metin en þrátt fyrir góðar
tilraunir í þá átt tókst það ekki.
Bæði liðin sýndu ágætis
knattspyrnu í leiknum. I liði
Breiðabliks átti Sævar Gunn-
leifsson sem var að leika annan
leik sinn með meistaraflokki, góð-
an dag og sýndi að þar er mikið
efni á ferðinni. Leikmenn KA
börðust vel í leiknum og hefðu
verðskuldað jafntefli. Elmar átti
góða spretti með liðinu svo og
Ásbjörn. Þá voru varnarmenn
liðsins sterkir, sérstaklega Guðjón
sem stendur ávallt vel fyrir sínu.
í stuttu máli: Kópavogsvöllur:
Breiðablik—KA 2-1 (0-1).
Mörk Breiðabliks: Sævar Gunn-
Klmar Geirason á fullri ferd upp
kantinn, með miklum tilþrifum.
Mark KA kom eftir góða fyrirgjöf
Elmara. tjómm. Grtjia.
leifsson á 69. mínútu og Sigurður
Grétarsson á 85. mínútu úr víta-
spyrnu.
Mark KA: Ásbjörn Björnsson á 36.
mínútu.
Gul spjöld: Engin.
Áhorfendur voru 753. Dómari var
Guðmundur Haraldsson og dæmdi
hann leikinn vel ef undanskilið er
það atvik þegar hann dæmdi víta-
spyrnuna á KA. __ >R.
Sævar Gunnleifsson n*r að koma boltanum framhjá Aðalsteini markverði sem hefur hlaupið út á móti.
(Sjá nedri mynd.)
LUGLEIDI,
Besta markt*kif*ri Víkinga í leiknum gegn ÍA. Heimir gaf boltann á Jóhann Þorvarðarson fyrir miðri mynd. Hann skaut, en Bjarni bjargaði naumlega með úthlaupi.
Ljúnn. KÖE.
Víkingar íslandsmeistarar
EINU jafnasta íslandsmóti i knatt-
spyrnu sem sögur fara af lauk síðast-
liðinn sunnudag er lið Víkings og ÍA
léku á Laugardalsvellinum. Leik lið-
anna lauk með markalau.su jafntefli
og það nægði Víkingum og uröu þeir
því (slandsmeistarar í knattspyrnu á
þvi herrans ári 1982. Er þetta annað
árið í röð sem Víkingar verða ís-
landsmeistar í knattspyrnu og er það
gott afrek. Það er nefnilega ávallt
mjög erfitt að verja íslandsmeistara-
titil í boltaíþróttum. Lið Víkings
hlaut 23 stig í mótinu af 36 stigum
mögulegum. Víkingur sigraði í sjö
leikjum af 18, gerði 9 jafntefli en
tapaði aðeins 2 leikjum.
Það var mesta furða hvað leik-
menn Vikings og ÍA gátu sýnt á
Laugardalsvellinum á sunnudag-
inn. Völlurinn var eitt forarsvað
og varla uppá það bjóðandi að
leika á honum knattspyrnu. Það
verður óskemmtilegt fyrir Víking
að leika Evrópuleik á honum á
miðvikudag eftir alla rigninguna.
Allt frá upphafi var mikil bar-
átta í leik Víkings og ÍA. Greini-
legt að leikmenn ætluðu að selja
Víkingur
— ÍA 0—0
sig dýrt. Víkingar náðu að pressa
mjög stíft á mark ÍA á upphafs-
mínútum leiksins og voru nálægt
því að skora. Tvívegis björguðu
Skagamenn á marklinunni, fyrst á
5. og síðan á 6. mínútu leiksins. En
leikmenn IA áttu líka sín tæki-
færi. Sigþór átti skalla ofan á
þverslá Víkingsmarksins og síðan
skot rétt yfir. Stefán Halldórsson
átti góðan skalla eftir hornspyrnu
að marki IA en yfir. Skömmu áður
en flautað var til hálfleiks átti
Sigþór mjög gott skot að marki
Víkings en Ogmundur varði vel.
Litlu munaði í upphafi síðari
hálfleiksins að Jóhann Þorvarð-
arson skoraði fyrir Viking og
kæmi liðinu yfir í leiknum. Fyrra
færi Jóhanns kom á 53. mínútu
leiksins og var það besta mark-
tækifærið í leiknum. Heimir
braust í gegn og gaf góða sendingu
til Jóhanns sem var inni í miðjum
vítateig ÍA í opnu marktækifæri.
En Jóhann var full seinn á sér og
Bjarni markvörður ÍA bjargaði
með góðu úthlaupi. Skömmu síðar
fékk Jóhann annað tækifæri til að
skora en skot hans hrökk þá í
varnarmann. Frekar dofnaði yfir
leiknum er líða tók á hann, enda
eðlilegt við þær slæmu aðstæður
sem leikurinn fór fram við.
Lið Víkings var mjög jafnt að
getu í Ieiknum. Og það sem færir
liðinu öðru fremur sigur í ís-
landsmótinu að þessu sinni er
mjög sterk liðsheild. Varla veikur
hlekkur í keðjunni. Vörn Víkinga
var sterk og góð gegn ÍA. Stefán
Halldórsson mjög öruggur sem
miðvörður, þá voru bakverðirnir
báðir þeir Magnús og Þórður dug-
legir og ákveðnir í leik sínum.
Ögmundur lék af öryggi í markinu
eins og hann hefur gert í allt
sumar. Á miðjunni léku Ómar og
Aðalsteinn vel. Ómar hafði mikla
yfirferð og sýndi mikinn baráttu-
vilja. Frammi voru þeir Heimir og
Sverrir báðir hættulegir þegar
þeir voru í boltanum. Skagaliðið
gaf Víkingum lítið eftir í leiknum
og lék vel eins og það hefur reynd-
ar oftast gert í sumar. Bjarni var
góður í markinu og Sigurður Hall-
dórsson lék vel í vörninni en báðir
þessir leikmenn léku aftur með
eftir nokkurt hlé. Sigurður Lár-
usson og Árni Sveinsson áttu báð-
ir snjallan leik gegn Víking.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild, Laugar-
dalsvöllur: Víkingur—ÍA: 0—0
Gul spjöld: Árni Sveinsson ÍA og
Sigurður Jónsson IA.
Áhorfendur voru 1657.
— ÞR.
Og hér rekur Sævar endahnútinn á sóknina er hann skorar af öryggi, fyrsta mark Breiðabliks og jafnar leikinn.
LjÓMm. Guðjón.
Ömar Torfason:
„Erum með
ÞAÐ ríkti mikil gleði í búningsklefa
Víkinga eftir að sigurinn sæti var í
höfn. Forystumenn félagsins fóðm-
uðu leikmennina að sér og þjálfar-
inn Sedov fékk hvern rembingskoss-
inn af öðrum á vangann. Tappar
flugu úr kampavínsflöskum og skál-
að var fyrir þvi að íslandsmeistara-
titillinn var í höfn. Þegar mesta gleð-
in var yfirstaðin tókst að ná fyrirliða
Víkinga, Ómari Torfasyni, afsiðis og
fá álit hans á mótinu.
—Þetta er ánægjulegt, það er
stórkostlegt að liðið skuli vera bú-
ið að verja titilinn. Þetta er búið
að vera mjög erfitt mót frá upp-
hafi. Það hefur verið mikil pressa
á okkur. Öll lið leika vel gegn Vík-
ingum og reyna að sigra þá af því
að við erum meistarar. Sigur
okkar vannst fyrst og fremst á
mjög sterkri liðsheild. Þjálfarinn
besta liðið“
okkar hefur unnið mikið og gott
starf. Hann hefur byggt upp mjög
markvisst og hefur uppskorið eins
og hann hefur sáð. Nú hvílum við
okkur vel fram að Evrópuleiknum
gegn Spánverjunum á miðvikudag.
En í þeim leik ætlum við að standa
okkur vel. Við höfum aðeins tapað
tveimur leikjum í sumar í deild-
inni og það er afrek. Við höfum
tvímælalaust verið með besta lið-
ið, á því er enginn vafi. Nú erum
við líka reynslunni ríkari. Frá og
með deginum i dag stefnum við að
þriðja íslandsmeistaratitlinum.
Máltækið segir: Allt er þegar
þrennt er. Við getum ekki verið
síðri en handknattleiksmennirnir,
að vinna þrjú ár í röð, sagði Ómar
Torfason fyrirliði Víkinga.
— ÞR.
á- r *:
W *#'**'*$
• Ómar Torfason fyrirliði Víkinga með íslandsbikarinn er Víkingar fagna sigrinum á sunnu-
daginn. Ljó»m. KÖE.
Sanngjarn KR-sigur
í fjörugum leik
KR SIGRAÐI Val með einu marki
gegn engu í eina leik síðustu um-
feröarinnar í 1. deildar keppninni
sem hafði enga þýðingu varðandi
fallsKti eða toppsæti. Þetta voru tvö
af þremur liðum deildarinnar sem
ekki gátu unnið deildina eða fallið í
2. deild. Þá höfðu liðin ekki einu
sinni að UEFA-sæti að keppa. Fyrir
vikið mættu leikmenn afslappaðir til
leiks, en þeir hafa ekki verið margir
leikirnir i sumar sem boðið hafa upp
á slíkt. Leikurinn var því opinn og
fjörugur, oft og tíðum vel leikinn hjá
báðum liðum, en sigur KR var meira
en sanngjarn, þvi liöið átti bæði
fleiri færi og betri. Var sigur liðsins
reyndar með minnsta móti.
Valsmenn voru skeinuhættari
fyrstu mínúturnar og á 3. mínútu
munaði hársbreidd að Hilmari
Sighvatssyni tækist að beina
fyrirgjöf Guðmundar Þorbjörns-
sonar í KR-netið. Hann var hins
vegar aðþrengdur af varnar-
mönnum og knötturinn fór fram-
hjá. En KR-ingarnir fóru fljótlega
að koma meira inn í myndina og
þó þeir væru alls ekki meira með
knöttinn, voru sóknarlotur þeirra
mikla hættulegri. Óskar Ingi-
mundarson komst í dauðafæri á
10. mínútu eftir að hafa náð mis-
lukkaðri sendingu frá varnar-
manni til markvarðar. En Óskar
var helsti jafnvægislítill er á
hólminn var komið, skotið því ekki
eins hnitmiðað og Brynjari mark-
verði tókst að komast fyrir knött-
inn. En fjórum mínútum síðar
KR— i n
Valur 1' —U
fögnuðu KR-ingar marki, Birgir
Guðjónsson fékk knöttinn í dauða-
færi við markteigshornið eftir fal-
lega sókn KR-inga niður vinstri
kantinn og skoraði með föstu og
öruggu skoti. Fimm mínútum síð-
ar varði Brynjar meistaralega
þrumuskot Hálfdáns örlygssonar,
en síðan róaðist leikurinn mjög
inni í vítateigunum uns KR-ingar
fóru að láta kveða að sér á nýjan
leik undir lok hálfleiksins, þá átti
Óskar Ingimundarson hörkuskot í
þverslá eftir að Valsvörnin hafði
verið opnuð upp á gátt og á síðustu
mínútu hálfleiksins björguðu
Valsmenn af marklínu er Sæbjörn
Guðmundsson hafði skallað að
marki með Brynjar markvörð úr
leik.
KR-ingarnir hófu síðari hálf-
leikinn með sömu látunum og
strax á fyrstu mínútunni sleikti
knötturinn þverslána utanverða
eftir hörkuskot þeirra röndóttu.
En leikurinn jafnaðist meira hvað
varðaði hættulegar atlögur, því
jafnræði var svo sem lengst af
talsvert úti á vellinum. Halldór
Pálsson varði gott skot Dýra Guð-
mundssonar á 65. mínútu og
þremur mínútum síðar var mark
dæmt af Val er Ingi Björn ýtti
knettinum yfir marklínuna eftir
að Halldór hafði hálfvarið hörku-
skot, líklega rangstaða á ferðinni.
Ágúst Már og Jósteinn áttu sitt
hvort þrumuskotið og G-uðmundur
Þorbjörnsson var með annað slíkt
hinum megin á vellinum. Annars
fjaraði leikurinn út eins og um
sjávarföll væri að ræða.
Þetta var í heild fjörugur og
skemmtilegur leikur, létt yfir hon-
um og ágæt knattspyrna á köflum.
KR-liðið var betra og leikmenn
liðsins jafnir að getu, utan hvað
Sæbjörn sýndi öðru hvoru takta
sem báru af því sem félagar hans
gerðu best. Ágúst Már, Hálfdán og
Óskar áttu mjög góða spretti, en í
heild var þetta góður dagur hjá
liðinu.
Valsmenn léku oft laglega úti á
vellinum, góður samleikur og
skiptingar á milli kanta oft vel út-
færðar. En framlínan var daufari
en í síðustu leikjum liðsins,
KR-vörnin hafði góðar gætur á
henni. Besti maður Vals var Guð-
mundur Þorbjörnsson, en aðrir
sluppu mjög bærilega frá hlut-
verkum sínum.
í stuttu máli:
íslandsmótið, 1. deild: KR—Valur
1-0 (1-0)
Mark KR: Birgir Guðjónsson á 14.
mínútu.
Spjöld: Dýri Guðmundsson og
Grímur Sæmundsen, báðir Val.
Dómari: Þorvarður Björnsson.
— gg-
Flautan bjargaði ÍBK frá falli
ÞAÐ munaði aðeins broti úr sek-
úndu, að það yrði hlutskipti ÍBK að
falla í 2. deild en ekki Fram um
helgina, en gæfan var Suðurnesjaliö-
inu hiiðholl, einnig klukka dómar-
ans. Þegar leikurinn hafði farið 40
sekúndum fram vfir venjulegan
leiktíma fékk ÍBÍ-leikmaðurinn
Ámundi Sigmundsson knöttinn í
dauðafæri. Hann lét skot riða af og
knötturinn þandi út netmöskva ÍBK.
En Arnþór Óskarsson dómari blés í
flautuna i sömu andrá og Ámundi
spyrnti, leikurinn því búinn áður en
knötturinn fór inn fyrir marklínuna.
Þetta var nokkuð umdeilt atvik, því
mörgum þótti Arnþór blása of fijótt í
fiautuna miðað við þær tafir sem
urðu i síðari hálfleik. Hvaö um það,
þessu verður ekki breytt, en þetta
munaði því að ÍBK heldur sæti sínu
í 1. deild, en Fram fellur. Hefði
mark Ámunda staðið, hefði Kefiavík
fallið. Leiknum lauk því án þess að
mark væri skorað, úrslit sem hent-
uðu báðum liðum.
Það var ljóst strax í byrjun, að
bæði liðin voru ákveðin að selja
sig dýrt og leika til sigurs til þess
að tryggja sæti sín án nokkurs
vafa. Harka var oft mikil, of mikil
á köflum, því Arnþór dómari hafði
ekki nægilega góð tök á leiknum.
En leikurinn var þó oft skemmti-
Lokastaðan
í 1. deild
Lokastaðan í 1. deildinni varð
þessi:
Víkingur
Vestm.eyjar
KR
Akranes
Valur
Isafjörður
Breiðablik
Keflavík
Fram
KA
18 7 9 2 25-17 23
18 9 4 5 23-16 22
18 5 11 2 14-12 21
18 6 6 6 22-20 18
186 57 18-15 17
18 6 5 7 27-29 17
18 5 6 7 18—22 16
185 6 7 14-19 16
18 4 7 7 17-23 15
18 4 6 8 17-22 14
r r
legur á að horfa, skemmtileg
knattspyrna á köflum og mikil
barátta, spennan mikil.
IBI átti fyrsta hættulega tæki-
færið, langt innkast Jóns
Oddssonar rataði á kollinn á Örn-
ólfi bróður hans, en hörkuskalla
hans varði Þorsteinn Bjarnason
snilldarlega. Þetta var strax á 6.
mínútu, en þótt jafnræði væri
mikið með liðunum úti á vellinum,
voru það leikmenn ÍBK sem fengu
betri færi í fyrri hálfleik. Magnús
Garðarsson skaut yfir úr góðu
færi eftir fyrirgjöf Öla Þórs á 22.
mínútu og sami leikmaður var í
dauðafæri á 30. mínútu, en Hreið-
ar Sigtryggsson markvörður ÍBÍ
bjargaði meistaralega. 8 mínútum
síðar var sami Magnús enn á ferð-
inni, nú með hörkuskot rétt fram
hjá. Eru þá upp talin helstu
marktækifæri fyrri hálfleiks.
Síðari hálfleikur var ekki nema
mínútu gamall, er Ámundi Sig-
mundsson braust í gegn um vörn
ÍBK, en skot hans þandi út hlið-
arnetið. Tveimur mínútum síðar
reyndi Jón Oddsson langskot af
um 20 metra færi, hörkuskot, en
knötturinn þaut rétt yfir markið.
Var mikið fjör í leiknum um þess-
ar mundir og á 50. mínútu bjarg-
aði Hreiðar Sigtryggsson tvívegis
naumlega eftir stórsókn ÍBK, í
báðum tilvikum var hinn hættu-
lega Magnús Garðarsson á ferð-
inni. ÍBI snéri vörn í sókn nær
samstundis og hinu megin varði
Þorsteinn naumlega skot Gunnars
Péturssonar, missti knöttinn, en
náði svo að bjarga í horn.
Um miðbik hálfleiksins var
talsvert miðjuþóf og fátt um færi
á báða bóga, en þegar líða tók að
lokum leiksins fór að færast fjör í
leikinn á ný. Keflvíkingar björg-
uðu af marklínu skalla Gústafs
Baldvinssonar á 73. mínútu eftir
hornspyrnu Jóns Oddssonar, en
tíu mínútum síðar var hamagang-
ur hinu megin á vellinum er
Hreiðar Sigtryggsson varði glæsi-
lega þrumuskot Steinars Jó-
hannssonar í horn. Steinar kom
inn á sem varamaður í hálfleik,
fyrsti leikur hans með ÍBK í
sumar. Sjö mínútum fyrir leiks-
lok, eða á 83. mínútu má segja sið-
ustu fjörbrot leiksins hafa farið
fram. Þá sóttu sunnanmenn og var
mikið hamast og hrint í vítateig
ÍBÍ við þetta tækifæri. En knött-
urinn barst að lokum að marki ÍBÍ
og þar bjargaði Gunnar Guð-
mundsson af marklínu. Knöttur-
inn hrökk til Ragnars Margeirs-
sonar sem spyrnti viðstöðulaust
hörkuskoti að marki ÍBÍ, en
Hreiðar markvörður bjargaði
snilldarlega. Síðustu mínúturnar
dofnaði heldur yfir leiknum og það
var ekki fyrr en á síðustu sekúndu
leiksins að upp úr sauð á ný, en frá
því er greint í upphafi greinar.
Þetta voru sanngjörn úrslit í
góðum leik, sem þó var of grófur á
köflum. Þar átti Arnþór dómari
sök, hann leyfði leikmönnum að
komast upp með of grófan leik og
lenti svo í vandræðum er hann
ætlaði að fara taka fastar á mál-
unum. En það var kannski ein-
kenni þessa leiks, hversu jafnir
allir leikmenn vallarins voru, en
það má glöggt sjá á einkunnagjöf-
inni. Enginn stóð upp úr, en eng-
inn lét sitt eftir liggja.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild, ÍBÍ—ÍBK
0-0
Spjöld: Engin þó full ástæða hefði
oft verið til.
Dómari: Arnþór Óskarsson.
Jens/— gg.