Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 27
Sigurvegararnir í Islandsmótinu í knattspyrnu í 2. deild
Þróttur sigraði í 2. deild
• Þróttur Reykjavík varð öruggur sigurvegari í 2. deildar keppninni í knattspyrnu og er sá sigur fyrir nokkru í höfn, þó að ein umferð sé eftir. Þróttur mætti
Fylki á fimmtudagskvöldið síðastliðið og skildu liðin jöfn, 0—0, en það var síðasti leikur beggja liöa í sumar. Á meðfylgjandi mynd má sjá sigurlið Þróttar, en
það skipa eftirtaldir leikmenn og byrjum við á efri rööinni, f.v.: Páll Ólafsson, Rúnar Sverrisson, Ómar B. Siggeirsson, Ásgeir Elíasson, Ólafur Magnússon,
Baldur Hannesson, Jónas Hjartarson, Jóhann Hreiðarsson, Júlíus Júlíusson, Logi Úlfljótsson, Ársæll Kristjánsson og Aöalsteinn Örnólfsson. Krjúpandi, f.v.:
Kristján Jónsson, Sverrir Pétursson, Guðmundur Erlingsson, Nikulás Jónsson, Bjarni Harðarson, Valur Helgason og Arnar Friðriksson. Á myndina vantar
Ágúst Hauksson, Ottó Hreinsson, Daða Harðarson og Sigurð Pétursson.
Hjólreiðakeppnin Hella-Reykjavík:
Einar stakk af í Kömbunum
EINAR Jóhannsson sigraöi í hjól-
rcióakeppni frá Hellu til Reykjavík-
ur annað árið í röð. Þetta var síðasta
hjólreiðakeppni ársins og fór hún
fram í bezta veðri, eins og í fyrra.
Einar háði lengi vel einvígi við
Helga Geirharðsson, sem verið hef-
ur sigursæll í keppnum sumarsins,
en þegar í Kambana kom, tókst Ein-
ari að slíta sig frá Helga og úrslitin
voru þá ráðin. Einar er sterkur í
brekkunum, því hann reif sig einnig
lausan í Kömbunum í fyrra, en
árangur hans var þá betri en nú.
I sveinaflokki var Hilmar
Skúlason í sérflokki, stakk keppi-
nautana einnig af í Kömbunum,
en hörð keppni var um annað sæt-
ið milli Ólafs og Sigurgeirs.
í drengjaflokki sigraði efnilegur
hjólreiðamaður, Ingólfur Einars-
son, og skaut hann jafnframt
mörgum keppendum í karlaflokki
ref fyrir rass. Úrslitin urðu ann-
ars sem hér segir:
Karlaflokkur:
Einar Jóhannsson (Colner) 2:13,22
Helgi Geirharðss. (Peugeot) 2:16,42
Guðmundur Jakobss. (Colner) 2:30,26
Sveinaflokkur:
Hilmar Skúlas. (Motobecane) 2:25,09
Ólafur E. Jóhannss. (Colner) 2:30,31
Sigurgeir Vilhjálmss. (Kalkhoff) 2:30,54
Drengjaflokkur:
Ingólfur Einarss. (Motobecane) 2:41,19
Halldór Kristjánss.(Motobecane) 3JH52
Guðm. Erlendsson (Motobecane)3:06,24
Nokkrir íslenskir hjólreiðamenn
skruppu til Danmerkur í ágúst-
mánuði og tóku m.a. þátt í 300
manna hjólreiðakeppni í Kaup-
mannahöfn. Stóðu þeir Helgi
Geirharðsson og Einar Jóhanns-
son sig með miklum sóma, þótt
ekki byggjust Danir við miklu af
Islendingunum, enda hjólreiða-
áhugi mikill í Danmörku og marg-
ir danskir hjólreiðamenn í
fremstu röð í heiminum. Þeir
Helgi og Einar gerðu sér lítið fyrir
og urðu í öðru og þriðja sæti í
keppninni, Dönum til mikillar
undrunar. Vonandi á þessi árang-
ur eftir að efla og glæða hjólreiða-
íþróttina hér á landi.
— ágás
60.000 áhorfendur horfðu
á Maradona myndaðan
RÚMLEGA 60.000 spænskir barkar
öskruðu sig hása á Nou Camp-
leikvanginum í Barcelona, heima-
velli spænska knattspyrnustórveldis-
ins á dögunum, er argentínska
knattspyrnuundrið Diego Maradona
trítlaði í fyrsta skiptið inn á leik-
vanginn í nýþveginni Barcelona-
peysu sinni. Þetta var ekki í tilefni
af því að hann væri að fara að leika
sinn fyrsta leik fyrir félagið. Nei,
fyrsta æfing Barcelona var á
dagskrá, svo og myndataka fyrir
fjölmiðla! Barcelonabúar eru svo
sjúkir i knattspyrnu, að þeir rúmlega
hálffylltu Nou Camp í tilefni dags-
ins.
Maradona kvartaði oft sáran yf-
ir því að fá aldrei frið heima í
Argentínu, frægðin fór í taugarn-
ar á honum. Hann getur búist við
því að hlutirnir verði enn verri á
Spáni og í því sambandi má geta
þess, að þegar kappinn skar sig á
hökunni með rakvél sinni dag
nokkurn, var því slegið upp með
Heklugosletri í fremsta íþrótta-
blaði Spánar, Mundo Deportivo.
Það er því mikið álag á stráknum
og þjálfarinn, Udo Lattek, hefur
af því miklar áhyggjur, því allir
sáu hvernig álagið lék snillinginn
á HM á Spáni. Lattek hefur reynt
að létta á piltinum með því að
vara við of mikilli bjartsýni. Hann
hefur sagt að Maradona sé að-
framkominn af þreytu eftir HM
og erfið keppnistímabil heima í
Argentínu. Almenningur blæs
hins vegar á slíkan fyrirslátt og
bendir á að strákurinn hafi aðeins
leikið 5 leiki á Spáni og ekki leikið
deildarleik í Argentínu síðan 1981.
Annars á Lattek við sérkenni-
legt vandamál að stríða hjá Barce-
lona, þ.e.a.s. hann hefur of marga
snjalla leikmenn á sínum snærum.
Svo marga, að ef hann teflir fram
því liði sem almennt er talið það
sterkasta sem Barcelona á til,
sitja samt 13 núverandi og fyrr-
verandi landsliðsmenn á bekkn-
um!
Frá hjólreiðakeppni frá Helhi til Reykjavíkur. Fremstur fer Guðmundur
Jakobsson, en Olafur E. Jóhannsson og annar hjólreiðakappi fylgja fast eftir.
Ljósm.: Magnús KrÍMtjánsHon
Frá hjólreiðakeppninni. Sigurgeir Vilhjálmsson (Lv.) og Hilmar Skúlason
berjast um forystuna í sveinaflokki. Ljósm.: M»gnús Krwtjámmon
Björgvin vann Ron Rico
SÍÐASTA opna golfmót Keilis á
þessum keppnistimabili fór fram um
sl. helgi. Veður var gott mótsdagana
enda keppendur 127. Úrslit urðu
þessi:
Meistaraflokkur:
Högg
1. Björgvin Þorsteinsson GA 76
2. Geir Sveinsson GR 77
3. Sigurður Albertsson GS 78
1. flokkur:
1. Guðmundur Arason GR 76
2. Guðbjörn Ólafsson GK 77
3. Peter Salmon GR 78
2. flokkur:
1. Hörður Morthens GR 81
2. Guðlaugur Gíslason GK 82
3. Baldur Brjánsson GK 84
3. flokkur:
1. Haukur Björnsson GR 83
2. Valur Fannar yngri GK 84
3. Gunnar Þorleifsson GR 84
Kvennaflokkur m/f:
1. Lóa Sigurbjörnsdóttir GK 73
2. Inga Magnúsdóttir GA 74
3. Guðbjörg Sigurðardóttir GK 74
Heildverslun E.Th. Mathiesen
gaf mjög vegleg verðlaun til
keppninnar að venju.