Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
fl
Watford enn í efsta sætið
— Manchester-liöin þó einnig á sigurgöngu meö sama stigafjölda
WATFORD, nýliðinn í 1. deild, hefur endurheimt forystuna í 1. deild eftir
fimmtu umferó ensku deildarkeppninnar á laugardaginn, en það gerði liðið
með því að gersigra WBA, aem annars befur gert það afar gott I fyrstu
umferðunum. Forysta liðsins er þó ekki beinlínis trygg, liðið hefur hlotið
sama stigafjölda og Manchester-liðin tvö, United og City, en öll hafa 12 stig.
Þá er Liverpool með 11 stig og skammt í mikinn sæg annarra liða. Lið
Watford var óstöðvandi á heimavelli sinum, Vicarege Road, sérstaklega lék
Luther Blissett frábærlega, en henn skoraði tvívegis í leiknum. Blissett
skoraði fyrst á 38. mínútu og síðan bætti Les Taylor marki við á 54. mínútu
áður en Blissett bætti siðara marki sínu við á 67. raínútu. WBA stillti upp 5
manna vörn auk markvarðarins, en það hrökk skammL Lítum næst á úrslit
leikja i 1. deild:
Aston Villa — N. Forest 4-1
Brighton — Sunderland 3-2
Coventry — Arsenal 0-2
Liverpool — Luton 3-3
Man. Utd. — Ipswich 3-1
Norwich — Southampton 1-1
N. County — Everton 1-0
Stoke — Swansea 4-1
Tottenham — Man. City 1-2
Watford — WBA 3-0
West Ham — Birmingham 5-0
Manchester-liðin héldu bæði
sínum strikum á laugardaKÍnn og
bæði unnu bráðathyglisverða
sigra. United fékk Ipswich í heim-
sókn og þrátt fyrir að Anglíu-liðið
hafi ekki byrjað vel í haust, er
enginn leikur unninn fyrirfram
gegn því. Hinn 17 ára gamli
Norman Whiteside var stjarna
United í leiknum, hann skoraði
tvívegis og hefur því gert fjögur
mörk í fimm fyrstu leikjunum.
Whiteside skoraði strax á 2. mín-
útu leiksins, en síðan var nokkuð
jafnræði með liðunum allt til
leikhlés og Paul Mariner náði að
jafna metin á 35. mínútu. En í síð-
ari hálfleik náði United mun betur
saman og lék Ipswich oft sundur
og saman. Steve Coppell náði for-
ystunni fyrir lið sitt á 73. mínútu
og sjö mínútum fyrir leikslok inn-
siglaði Whiteside svo sigurinn er
hann vippaði knettinum lævíslega
yfir markvörð Ipswich.
A sama tíma var City að vinna
góðan sigur gegn Tottenham á
White Hart Lane, en það sama
verður sagt um Tottenham og
Ipswich, að liðið hefur ekki byrjað
tímabilið eins vel og reiknað var
með. Graham Baker, sem City
fékk frá Southampton fyrir lítinn
pening, skoraði bæði mörk Iiðsins,
hvort í sínum hálfleiknum. Gary
Mabbutt skoraði eina mark Tott-
enham undir lok leiksins, en hetja
City var raunar öðrum fremur Al-
ex Williams, tvítugur varamark-
vörður sem lék í stað Joe Corrig-
an, en sá gamli meiddist í síðasta
leik City. Williams hélt City-
skipinu á réttum kili langtímum
saman með snjallri markvörslu.
Kannski var stórkostlegasti
leikur umferðarinnar á Anfield í
Liverpool, þar sem meistararnir
áttu í hinu mesta basli með nýliða
Luton. Snemma í leiknum meidd-
ist Jake Findley, markvörður Lut-
on, og tók Kirk Stephens fyrst
stöðu hans, síðar Mal Donaghie,
eða alls þrír markverðir. Þrátt
fyrir hringlið stóðu leikmenn Lut-
on sig frábærlega. Liverpool hafði
yfir, 2—1, í hálfleik, Brian Stein
náði forystunni fyrir Luton, en
þeir Graeme Souness og Ian Rush
svöruðu fyrir Liverpool. Luton var
síðan sterkari aðiiinn framan af
og þeir Dave Moss og Stein náðu
forystunni með mörkum sínum.
Það var svo ekki fyrr en á 75. mín-
útu, að varamaðurinn Craig John-
stone jafnaði metin fyrir Liver-
pool.
Stoke City raðar aideilis mörk-
unum þegar sá er gállinn á liðinu.
Swansea náði forystunni með
marki Bob Latchford strax á 8.
mínútu, en þeir Dave Watson og
Mick Thomas svöruðu fyrir Stoke
fyrir leikhlé. Yfirburðir Stoke
voru sannarlega miklir og minnk-
uðu ekki er Dai Davis, markvörður
Swansea, skoraði sjálfsmark í síð-
ari hálfleiknum. Paul Maguire
skoraði fjórða mark Stoke úr víta-
spyrnu.
Sunderland lék afar vel í fyrri
hálfleik gegn Brighton og tveggja
marka forysta liðsins hefði átt að
nægja til að byggja að minnsta
kosti jafntefli á. Stan Cummins og
Ally McCoist sáu um mörkin, en á
fyrstu 22 mínútum síðari hálfleiks
skoraði heimaliðið þrívegis og
tryKKÖi sér öll stigin þrjú. Gordon
Smith, Gerry Ryan og Tony Greal-
ish skoruðu mörkin, en því miður
fyrir Brighton sáu aðeins um
10.000 áhorfendur góða frammi-
stöðu liðsins.
Arsenal vann sinn fyrsta sigur á
keppnistímabilinu er Coventry var
að velli lagt. Það voru nýju mið-
herjar liðsins, þeir Lee Chapman
og Tony Woodcock, sem skoruðu
mörkin og kannski eru betri tímar
fram undan með blóm í haga hjá
Arsenal fyrst þeir félagarnir virð-
ast vera að ná sér á strik. Chap-
man skoraði með skalla á 40. mín-
útu eftir fyrirgjöf frá John Holl-
ins, en Woodcock bætti marki sínu
við í seinni hálfleik.
West Ham vann stærsta sigur
dagsins og er óhætt að segja að
ekki standi steinn yfir steini hjá
Birmingham, sem fengið hefur á
sig 17 mörk í fimm fyrstu leikjun-
um, skorað aðeins tvö. Alan Dev-
onshire fór á kostum hjá West
Ham, hann skoraði reyndar ekki
sjálfur, en sýndi slík snilldartil-
þrif hvað eftir annað, að fólk reis
Craig Johnstone, t.h., kom inn á sem varamaður og skoraði jöfnunarmark
Liverpool gegn Luton.
Tony Woodcock og Lee Chapman, nýju miðherjarnir hjá Arsenal, skoruðu báðir fyrstu mörk sín fyrir félagið á
laugardaginn.
úr sætum og klappaði honum lof í
lófa. Franqois Van Der Elst og
Paui Goddard skoruðu fyrir West
Ham í fyrri hálfleik, en þeir Ray
Stewart (víti), Alvin Martin og
Sandy Clarke bættu mörkum við í
síðari hálfleik, lokatölur því 5—0.
Aston Villa vann einnig stóran
sigur á laugardaginn og var það
Nottingham Forest sem mátti
kyngja hinum stóra ósigri. Denis
Mortimer skoraði fyrir Villa á 21.
mínútu og Peter Withe var á ferð-
inni með fallegt mark tíu mínút-
um síðar. John Robertson minnk-
aði muninn með marki úr víta-
spyrnu á 44. mínútu, en Forest
hafði enga burði til að fylgja
markinu eftir. Gordon Cowans
skoraði úr víti fyrir Villa á 63.
mínútu og Peter Withe innsiglaði
síðan stórsigur liðsins með marki
á 79. mínútu. Ian Bowyer, fyrirliði
Forest, var rekinn af leikvelli í
síðari hálfleik svona rétt til að
nudda dálitlu salti í sárið.
STAÐAN
1. DKILD:
WaCford 5 4 0 1 11 3 12
ManrheKter Utd. 5 4 0 1 12 5 12
Manchexter City 5 4 0 1 6 3 12
Liverpooi 5 3 2 0 11 6 11
WBA 5 3 0 2 11 6 9
Stoke Cilj 5 3 0 2 10 7 9
Notte (ounty 5 2 2 1 6 6 8
West Ham 5 2 1 2 9 4 7
Tottenham 5 2 1 2 ii 8 7
Swannea 5 2 1 2 8 7 7
Sunderland 5 2 1 2 7 6 7
(oventry 5 2 1 2 4 5 7
Hrighlon 5 2 1 2 5 12 7
Everton 5 2 0 3 9 6 6
Nottinghara Foreat 5 2 0 3 10 12 «
Anton Villa s 2 0 3 9 n «
Norwich 5 1 2 2 8 9 5
Luton 5 1 2 2 11 14 5
Arsenal 5 1 1 3 4 6 4
Southampton 5 1 1 3 3 12 4
lp.swirh 5 0 3 2 5 8 3
Birmingham 5 0 1 4 2 17 1
2. DEILD:
Wolverhampton 5 3 2 0 9 1 11
Grimnby 4 3 1 0 11 3 10
QFK 5 3 1 1 8 4 10
Sherrield Wed. 4 3 0 1 11 5 9
Eulham 4 2 2 0 7 2 8
('rysul P»l*ee 4 2 2 0 7 4 8
Leed* lltd. 4 2 2 0 5 3 8
Neweurtlc 5 2 2 I 6 6 8
I*ekeater 5 2 1 2 11 5 7
Burnley 4 2 1 1 9 4 7
(hetaea 5 1 3 1 3 3 6
Kotherham 5 1 3 1 7 8 6
Oldham 4 1 2 1 3 3 5
(’amhridge 5 1 1 3 6 9 4
Bolton 4 1 1 2 4 8 4
I>erby (ounty 4 1 1 2 3 8 4
Harnnley 4 0 3 1 3 5 3
CarlÍNle 4 1 0 3 « 13 3
Blarkburn 5 1 0 4 5 12 3
Charlton 4 1 0 3 4 12 3
Middknbrough 4 0 2 2 4 9 2
Shrewabury 4 0 0 4 1 6 0
Everton lék vel í fyrri hálfleik
gegn Notts County og nokkrum
sinnum voru leikmenn liðsins
óheppnir að skora ekki. Heimalið-
ið náði hins vegar yfirtökunum í
seinni hálfleik, góð barátta færði
liðinu nokkra yfirburði á miðj-
unni. Eina mark leiksins og sigur-
mark County, skoraði Rachid Har-
kouk úr vítaspyrnu á 56. mínútu.
Hann lék inn í vítateig Everton,
var felldur, og skoraði sjálfur úr
vítinu. Hér voru áhorfendur að-
eins rúmlega 9.000 talsins.
Norwich varð fyrir áfalli í fyrri
hálfleik gegn Southampton er
miðherji iiðsins, Keith Bertchin,
var borinn af leikvelli illa skorinn
á höfðinu. Engu að síður náði
Norwich forystunni á 58. mínútu
er John Deehan skoraði úr víti.
Seint í leiknum náði Dave
Armstrong að jafna metin og þar
við sat þrátt fyrir færi á báða
bóga að gera út um leikinn.
England, 2. deild:
Burnley l(Steven) — Rotherham
2(Fern 2)
Cambridge 3 (Reilley 2, Street) —
Charlton 2 (Ferns, Walker)
Crystal Palace 2 (Mabbutt, Hil-
aire) — Blackburn 0
Derby 1 (Dalziel sjm.) — Middl-
esbrough 1 (Bell)
Fulham 4 (Cooney 2, Lewington,
Houghton) — Bolton 0
Grimsby 2 (Drinkell, Waters) —
Shrewsbury 0
Leicester 6 (Lynex 3, Lineker 3) —
Carlisle 0
Newcastle 1 (Clarke) — Chelsea 1
(Lee)
Oldham 0 — QPR 1 (Gregory)
Sheffield W. 2 (Bannister, Meg-
son) — Leeds 3 (Worthington 2,
Butterworth)
Wolves 2 (Humphrey, Eaves) —
Barnsley 0
Þess má geta að lokum, að þrjú
af mörkum Leicester voru skoruð
úr vítaspyrnum, Lynes tvö, en Lin-
eker eitt.
3. og 4. deild
3. DEILD:
Bournemouth — Sheffield lltd. 0—0
Bradford — Newport 4-2
Brentford — Southend 4-2
Cardíff — Wifran 3-2
Chetrterlíeld - Brtatol R. 0-0
Gillingham — Millwall 1-0
lluddersfield - Wataall 2-2
Lincoln — Reading 4-0
Plymouth — Orient 2-0
Portsmouth — W rexham 3-0
Preston — Oxford 1—2
4. DEILD:
Alderahot — Peterbrough 2-0
Bristoi C. — Blackpool 0-0
Bury — Crewe 0-1
('henter — Torquay 0-0
Parlington — Hererord 2-1
liartlepool — Northampton 2-1
Mannfield - Port Vale 0-2
Swindon — Haiifax 0—1
York — Tranmere 2-1
Hinn 17 ira gamli Norman White-
side hefur sýnt snilldartakta í liði
Manchester Utd. í haust, ekki síst 4
laugardaginn gegn Ipswich, er
hann skoraði tvivegis.