Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
31
Dalvík:
Heyfengur nokkuð
undir meðallagi
Dalvík, 2. seplember. ^
Áklæða-og gluggatjaldasýning
Aumastir allra eru alþýðu-
bandalagsmenn er klyfja nú Há-
skóla-Bleik og teyma milli stofn-
ana að sannfæra vinnandi almúga
um nauðsyn kauplækkunar.
Dreifa þeir appelsínugulum
Harmagráti og Heimsendaspám á
kartonspjöldum er ná „meðal-
menni í klof“ eins og Gröndal
gamli orðaði það um doðrant einn
á liðinni öld. Hverra erinda þeir
ganga verður ljóst af ræðu seðla-
bankastjóra á alþjóðafundi Gjald-
eyrissjóðsins er hann kveður
nauðsynlegt að „fjármagna
greiðsluhalla" með „ábyrgri sam-
vinnu verkalýðsfélaga" og viðlíka
speki úr Grútarbiblíu eymdarinn-
ar.
Næstu daga ganga opinberir
starfsmenn til atkvæða um samn-
ing þann er forvígismenn hafa
gert um kjör þeirra. Ljóst er að
þeim er mikill vandi á höndum.
Hvort ber þeim að gjalda jákvæði
eða neikvæði við samningi þeim er
fyrir liggur?
Eigum við að segja já við rétt-
arbótum ýmsum er boðnar eru og
virðast jákvæðar? Eru þær þess
virði að við viljum með jákvæði
afsala okkur samningsrétti þeim
er við höfum talið öllu öðru dýr-
mætari og kyssa á vönd samnings-
rofa og svíðinga?
Með því að segja já afsölum við
okkur framtíðarrétti til áhrifa um
kaup og kjör. Þá afhendum við
ríkisvaldi um alla framtíð ákvörð-
un um samningsrétt okkar. Hver
okkar vill bera ábyrgð á því?
Minnumst þess að við greiðum
einnig atkvæði vegna félaga okkar
í ASI. Spyrjið þá álits. Teflt er um
sjálfan samningsréttinn. Segjum
nei. Nei og aftur nei.
Nei, við bráðabirgðalögum og
launahækkun. Sveium jólaketti
yfirstéttarinnar er hvæsir nú við
hversmanns dyr, þótt hann reyni
að dylja klærnar í blánkuskóm Al-
þýðubandalagsins.
Segjum NEI. Nei og aftur NEI.
Pétur Pétursson, þulur.
Egilsstaðir:
Málefnasamn-
ingur hrepps-
nefndar
Kgils.stddum, 8. september.
Á FUNDI hreppsnefndar Egilsstaða-
hrepps í gær var lagður fram og ein-
róma samþykktur málefnasamning-
ur þeirra þriggja flokka er fulltrúa
eiga í hreppsnefndinni, þ.e. Alþýðu-
bandalags, Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks.
Eins og kunnugt er reyndist
ekki áhugi né þörf fyrir myndun
sérstaks meirihluta í hreppsnefnd
Egilsstaðahrepps að loknum sveit-
arstjórnarkosningum í vor. En
hreppsnefndin ákvað strax að
gera með sér sérstakan málefna-
samning. Að því hefur síðan verið
unnið og samningurinn er nú í
höfn.
I málefnasamningi þessum er
kveðið á um stjórnun sveitarfé-
lagsins og samstarf sveitarfélaga
á Héraði með það fyrir augum að
Fljótsdalshérað verði eitt lögsagn-
arumdæmi. Þá er lögð áhersla á
atvinnumál, landnýtingu og um-
hverfismál, samgöngur og þjón-
ustu í málefnasamningi flokk-
anna. Ennfremur eru heilbrigðis-
og öldrunarmál tíunduð, svo og
skólamál, félags- og menningar-
mál. Gert er ráð fyrir ráðningu
sérstaks félagsmálafulltrúa í lok
þessa árs.
Hreppsnefndin hyggst kynna
málefnasamning þennan rækilega
nú á næstunni með ýmsu móti.
A hreppsnefndarfundinum í
gær var ennfremur samþykkt til-
laga þeirra Helga Halldórssonar
og Ragnars Steinarssonar, Sjálf-
stæðisflokki, um útgáfu frétta-
bréfs varðandi málefni sveitarfé-
laganna og fasta viðtalstíma
hreppsnefndarmanna.
UM ÞESSAR mundir er heyskap í
Svarfaðardal að Ijúka. Ekki verður
um mikinn háaslátt að ræða þar sem
spretta hefur verið lítil sökum
þurrka nú í sumar.
Vorið hér við Eyjafjörðinn
utanverðan var með afbrigðum
kalt svo snjóaði í fjöll í miðjum
júní. Seinni hluta júnímánaðar
brá svo til betri tíðar og var júlí-
mánuður einstaklega hlýr og þurr-
viðrasamur.
Sökum vorkuldanna og þurr-
viðrisins í sumar varð grasspretta
léleg í Svarfaðardal. Heyfengur
mun að öllum líkindum verða
nokkuð undir meðallagi og mun
suma bændur vanta hey til vetrar-
ins. Fóðurgildi þeirra heyja sem
aflast hafa mun þó mjög gott.
Kartöfluuppskera virðist ætla
að verða mjög góð og jafnvel meiri
en í meðalári. Sama er að segja
um berjasprettu sem að þessu
sinni er mjög mikil.
Réttir hafa verið haldnar und-
anfarin ár i kringum 20. sept. en
nú er ráðgert að flýta þeim um
eina viku og verður nú réttað í
Dalvíkurrétt 11. sept. en á Tungu-
rétt í Svarfaðardal 12. sept. Er
þetta gert til að flýta sauðfjár-
slátrun því á undanförnum árum
hafa bændur lent með slátrun í
snjóum og hefur það gert þeim
erfitt fyrir.
Að sögn Kristins Guðlaugsson-
ar, sláturhússtjóra á Dalvík, er
gert ráð fyrir að slátrað verði um
11.700 dilkum nú í haust sem er
7—8% fækkun frá fyrra ári en um
2.000 fullorðins fjár verður slátrað
sem er nokkur aukning. Sláturfé í
sláturhúsi KEA á Dalvík kemur
úr Arnarnes-, Árskógs- og Svarf-
aðardalshreppi og af Dalvík og
Ólafsfirði.
(►'rélUlilkynning.)
Að Kjarvalsstöðum sýna Gefjun
og Epal hf. gerðir áklæða, glugga-
tjalda og værðarvoða sem Gefjun
framleiðir.
Á sýningunni eru sýndar þrjár
nýjar áklæðategundir og ein
gluggatjaldategund auk nýrra
værðarvoða. Segir í frétt frá SÍS,
að áklæðin séu í 109 litaafbrigðum
og gluggatjöldin í 15 litaafbrigð-
um.
Auk þessa séu einnig sýndar
eldri vörur sem Gefjun hefur
framleitt. Sýningin stendur til 26.
september.
UUUIJU
Bíll ársins 1982
RENAULT9
LAGLEGUR, LETTUR OG LIPUR
Dómnefndin sem valdi RENAULT 9 sem bíl ársins 1982,
er skipuð fulltrúum allra helstu bílablaða Evrópu. Gagn-
rýnendum, sem vel má treysta til að velja bíl ársins 1982.
RENAULT 9 hefur einnig hlotið mikið lof þeirra leik-
manna sem hafa reynsluekið honum, og komist í kynni
við kosti hans. Meðal margra kosta má nefna sérhönnuð
sæti, sem hafa fengið sérstaka viðurkenningu í vali
bíis ársins 1982.
Gerð Vél Eyðlsa/90kmVerð
R9TC 48din 5,41 129.000,-
R9GTL 60 din 5,41 139.000.-
R9GTS 72din 5,41 151.000-
R9Automatic 68din 6,31 156.000,-
Fáanlegir með mjög fullkomnum aukaútbúnaði.
Sýningai
KRISTINN GUDNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633