Morgunblaðið - 14.09.1982, Qupperneq 28
Vítt og breitt
Kvikmyndír
Sæbjörn Valdimarsson
myndum ársins, KAFBÁTUR-
Skammt er stórra högga á milli í
Ifíóhöllinni l>ar hefur nú gengið i
stærsta salnum um allnokkurt
skcið ágætismyndin THE STUNT
MAN, hvar l’eter OToole sannar
rétt einu sinni hvílíkur afburða-
leikari hann er. En nú er röðin
komin að PORKY’S, bandarisk/
kanadískri gamanmynd, sem er
þriðja vinsælasta myndin vestan
hafs í ár.
Ef við lítum aðeins nánar á
þann vinsældalista hefur E.T. að
sjálfsögðu vinninginn, hefur tek-
ið inn 229 milljónir dala (sækir
nú stöðugt á vinsælustu mynd
allra tíma, STAR WARS, sem
halað hefur inn 319 milljónir þar
vestra. Reyndar telja framleið-
endur hennar að STAR WARS
verði að víkja í kringum áramót-
in fyrir hinni feikna vinsælu
mynd Spielbergs, en minna um
leið á, að þá verður næsta mynd
STAR WA RS-seríunnar, THE
REVENGE OF THE YEDI, rétt
hinum megin við hornið, því
þessi aldýrasta mynd seríunnar
verður frumsýnd í maí nk., slétt-
um sex árum eftir frumsýningu
STAR WARS. Næst kemur
ROCKY III með 109 millj., þá
PORKY’S örlitlu lægri; STAR
TREK II: THE WRATH OF
KAHN með 74 millj., og því næst
POLTERGEIST með 65 milljón-
ir dala. Svo að sjá má að hin
nýja mynd kvikmyndahússins er
hreint ekki í svo afleitum félags-
skap!
Laugarásbíó mun taka til sýn-
inga á næstunni kvikmyndina
NIGHTHAWKS með hinum
vinsæla Sylvestar Stallone og
Billy Dee Williams í aðalhlut-
verkum. Þeir bregða sér hér í
gervi rannsóknarlögreglumanna
í New York . ..
í Háskólabíói hefur verið hálf-
gerð kvikmyndahátíð síðustu
vikurnar — fyrst BREAKER
MORANT, og þessa dagana er
verið að sýna þar eina af bestu
Makalaust tríó.
ARTHUR.
INN ...
I Reynboyanum gengur stór-
myndin ON GOLDEN POND við
miklar vinsældir ásamt ágætum
endursýningum.
Stjömubíó sýnir um þessar
mundir hina endurbættu útgáfu
Spielbergs á CLOSE ENCOUNT-
ER .... sem að mörgu leyti er
betri en frummyndin, a.m.k.
hvað hljóðeffekta varðar — en
það vantar því miður dolby-kerfi
í húsið.
I Austurbœjarbíói er verið að
sýna eitt snjallasta verk Ken
Russels, ALTERED STATES,
sem undirritaður sá vestan hafs
á síðasta ári, og lýsti þá fjálg-
lega á þessum síðum. Hann
stendur enn í þeirri meiningu
sinni að hér sé um að ræða eina
merkilegustu mynd þessa stór-
brotna ruglukolls ...
I Tónabíói má enn sjá tilþrif
þeirra Nicholsons og Lange á
eldhúsborðinu. Lange er tví-
mælalaust ein mest kynæsandi
ieikkona okkar tíma, það eru að-
eins guðsvolaðir eymingjar sem
ekki lifna við undir umræddri
senu, nú og svo er Nicholson
villtur til augnanna . . .
Þeir Bíóbœjarmenn halda sig
stíft við þrívíddarmyndirnar.
Um þessar mundir hafa þeir ein-
ar þrjár slíkar í takinu — BAR-
DAGASVEITINA, vestrann í
OPNA SKJÖLDU og „eina þá
allra djörfustu", GLEÐI NÆT-
URINNAR. í þessu sambandi
má geta þess, að ein vinsælasta
myndin í Bandaríkjunum í dag
er fyrsta þrívíddarmynd stóru
kvikmyndaveranna í Hollywood
um hartnær þriggja áratuga
skeið - FRIDAY - THE 13TH
PART III, sem gerð er af Para-
mount.
Nýja Bíó býður upp á glænýja
gamanmynd, NÚTÍMA VANDA-
MÁL, sem bráðskemmtilegum
„original" mannskap í aukahlut-
verkum. Stórkostleg breyting
hefur orðið á meðaialdri frum-
sýndra mynd hérlendis á síðustu
árum. Það er ekkert tiltökumál
lengur þó að hér séu á boðstólum
ársgamlar myndir, í fjölmörgum
tilfellum, mánaðarlega, eru þær
jafnvel ekki það gamlar. Á ferð
um Amsterdam ekki alls fyrir
löngu, sá ég mér til mikillar
ánægju að þar voru í gangi að-
eins tvær umtalsverðar myndir
sem enn voru ósýndar hér
heima!
Gamla Bíó hefur nú endursýnt
um nokkra hríð FAME, sjálfsagt
sökum vinsæida tónlistarinnar
uppá síðkastið á vinsældalistun-
um í Bretaveldi. Nú, og svo á
náttúrlega ekki illa við að sýna
söngvamyndir í Óperunni ...
Og smáfrétt af einu, alvöru
Hollywood-leikkonunni okkar,
Önnu Bjöms: Hún hefur nýlega
fengið aðalkvenhlutverkið í
gamanmyndinni SHAKE IT UP.
Myndin verður tekin upp í Los
Angeles og nágrenni undir
stjórn Alan Arkish. Af öðrum
leikurum má nefna Daniel Stern
og Gail Edwards. Annað nafn
sem ég hef séð á myndinni er
GET CRAZY.
Og að lokum — svar til Norö-
lendings, sem skrifar mér 5.
þessa mánaðar eftirfarandi bréf:
Ágæta kvikmyndasíða.
Mig langar að spyrjast fyrir
um nokkrar kvikmyndir, sem ég
hef ekki orðið var við að bærust
hingað til lands í kvikmyndahús.
Hugsanlegt er að einhverjar
þeirra hafi farið framhjá mér,
en aðrar veit ég að hafa ekki
sést. Hvers vegna ekki og hve-
nær eru þær væntanlegar? Þessa
spurningu ber ég fram í þeirri
von að Kvikmyndasíðan megi
e.t.v. aðstoða mig við að leita
svars.
Títtnefndar myndir eru þess-
ar:
1. ARTHUR. Aðalhlutverk Dud-
ley Moore. (Lagið úr þessari
mynd fékk Óskarsverðlaunin í
ár, ef ég man rétt.)
2. THE DEVIL AND MAX
DEVLIN. Aðalhlutverk: Ell-
iott Gould, Bill Cosby, Cathy
Lee Crosby. (Þessi kvikmynd
er frá Walt Disney-fyrirtæk-
inu, sennilega framleidd
1980.)
3. S.O.B. (Blake Edwards.)
4. Excalibur. Kvikmynd þessa
veit ég lítið um annað en að
hún fjallar um Arthúr Engla-
kóng og sverð hans frægt.
Bandarísk, líklega gerð 1981.
5. CAT PEOPLE með David
Bowie í aðalhlutverki.
6. E.T. Margumtöluð mynd
Spielbergs.
7. FELIX. Þessi mynd er dönsk
og glæný, frumsýnd þar fyrir
skemmstu og hefur hlotið
mikið umtal og góða dóma, að
því ég vest veit. Líklega lítil
von að hún sjáist hérlendis.
8. THE MEDUSA TOUCH. Svo-
lítið er farið að slá í hana
þessa, en ég get með engu
Dudley Moore, Sir John Gielgud og Liza Minelli I
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
Atriði úr hinni vinsæiu gamanmynd PORKY’S.
móti munað eftir henni hér
heima. Aðalhlutverk Lino
Ventura, Lee Remick og Rich-
ard Burton.
Þakklátur yrði ég ef svör ég
fengi.
Með fyrirfram þökk,
Norðlendingur.
Svar:
Mér er það létt og Ijúft að
verða við bón þinni, en þetta get
ég upplýst þig um:
1. Myndin verður fljótlega tekin
til sýninga í Austurbæjarbíói.
Hún er bráðskemmtileg og
þeir Moore og Sir John Giel-
gud fara á kostum.
2. Þessi mynd var gerð af Dis-
ney i fyrra og verður sýnd í
fyllingu tímans í Gamla Bíói.
3. S.O.B. var sýnd í sumar í
Tónabíói.
4. EXCALIBUR, sem er af hinni
svokölluðu „sword and sorc-
ery“-gerð mynda, sbr.
SVERÐIÐ OG SEIÐ-
SKRATTINN, er leikstýrð af
John Boorman 1981. Fjallar
um riddara hingborðsins,
Merlin, Arthur konung, Sir
Lancelot, Guinevere, og allt
það ágæta fólk. Verður frum-
sýnd í Austurbæjarbíói fljót-
lega.
5. og 6. Þegar þessar línur birt-
ast, verður forstjóri Laugar-
ásbíós að semja um sýn-
ingarrétt þessara mynda
hérlendis í London. Aðspurð-
ur sagðist hann leggja alla
áherslu á að fá hina geysi-
vinsælu mynd, E.T., sem fyrst
til sýninga hérlendis.
7. Þrátt fyrir allmargar fyrir-
spurnir komst ég ekki á snoð-
ir um framtíð FELIX hér-
lendis, síðan stendur öllum
upplýsingum opin.
8. THE MEDUSA TOUCH var
frumsýnd í Háskólabíói 3. júlí
’79. Hlaut hún ríflega meðal-
aðsókn, eða rösklega sjö þús-
und manns.
Með þökk fyrir bréfið,
S.V.
NasUssia Kinski (hér I TESS), fer ne* aAalhlutverkið í CAT PEOPLE.
Bladburóarfólk
óskast!
U‘"”7IS 35408
Austurbær
Laugavegur
Skólavöröustígur
Hverfisgata
Uthverfi
Síöumúli
Drekavogur
Karfavogur
Nýtt bliW
Bliw er hentug sápa, sem vegna umbúðanna er mjög
hentug í notkun.
Hún er drjúg, þar sem hún liggur ekki á vaskinum og
leysist upp. , .
Heildsölubirgðir: KaiipSel Sf.
Sími 27770.