Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 30

Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 t Eiginkona mín og móöir okkar, ANNA ÞÓROARDÓTTIR, Grundarbraul 20, Ólafavík, lést í Sjúkrahúsi Akraness 11. september. Jarðarförin auglýst síöar. Eyjólfur Snaabjörnason, Halla Eyjólfsdóttir, Guömunda Eyjólfsdóttir. + Systurdóttir okkar og bróöurdóttir mín, RUTH HJARTAR, lést í Laridspítalanum pann 11. þ.m. Ingibjörg J. Hall, Garöar Hall, Ragnar Hall, María Hjartar. Móöir okkar. + GUDRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR fré Vestmannaeyjum, Heimavöllum 5, Keflavík, andaðist 4. september, útförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Börnin. t Móöir okkar, RÓSA ÍVARSDÓTTIR fró Maröarnúpi, andaöist í Héraöshaelinu Blönduósi 11. september. Börn hinnar lótnu. t Eiginkona mín, FRIDRIKKA JÚLÍUSDÓTTIR, Leifagötu 8, Reykjavík, andaöist i Landspítalanum aöfaranótt 13. september. Sævaldur Konráösson. Fao^of'kar, GUÐMUNDUR HJÖRLEIFSSON trésmiöur, Brávallagötu 42, andaöist í Landspítaianum aö morgni 12. september. Erna Guömundsdóttir, fna Guömundsdóttir, Leifur Guömundsson. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÚLÍUS Á. JÓNSSON, Austurbrún 2, Reykjavík, lést í Hafnarbúðum 13. september 1982. Ásta Magnúsdóttir, Hans Júlíusson, Annar Hjartardóttir, Jón Gunnar Júliusson, Þuríóur Beck, Birna Júlíusdóttir, Hlööver Oddsson, Kristin Júlíusdóttir, Guömundur Ingólfsson, börn, barnabörn, barnabarnabörn og aórir aóstandendur. Guðríður Sœmunds- dóttir — Minning Fædd 14. ágúst 1906 Dáin 3. september 1982 Amma okkar, Guðríður Sæ- mundsdóttir, hefur kvatt þennan heim. Hún gerði það á sama lát- lausa og fyrirferðalitla hátt og hafði einkennt allt hennar líf; hún sofnaði og vaknaði ekki aftur. Þó heilsan hafi verið farin að gefa sig og þrekið tekið að minnka áttum við ekki von á þessu. Það var aðeins síðustu vikuna sem hún fór ekki fram úr rúminu að heitið gæti, en þótt það hafi þá hvarflað að manni að endalokin nálguðust, komu þau á óvart, eins og dauðinn gerir reyndar ætíð. Við barnabörnin hennar höfum misst mikið. Jafn hjartagóða og hlýja konu er erfitt að finna. Þeir eru fáir sem alla tíð hafa tekið jafn vel á móti okkur, hvernig sem á stóð. Alltaf vorum við jafn vel- komin í heimsókn til ömmu. Hlýj- an og umhyggjan skein úr hverri hreyfingu og úr hverju orði. Hún vildi alltaf allt fyrir aðra gera. Þegar jafn kær ástvinur er tek- inn á brott, fyllist hugurinn af minningum. Minningarnar um ömmu eiga það sameiginlegt að vera allar góðar. Efst í huga okkar er þó þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta sam- vista með henni, þakklæti fyrir allar þær stundir sem hún deildi með okkur. Megi algóður Guð blessa sál hennar og taka í sinn himneska faðm. Blessuð sé minning hennar. Stýr mínu fari heilu heim, í höfn á frióarlandi. I>ar mig í þinni gaeslu geim, ó, (>ud minn alls valdandi. V. Briem Dúa, Gunnar og Sigurður Grétar Guðríður Sæmundsdóttir and- aðist á heimili dóttur sinnar, Hellulandi 8, Reykjavík, föstudag- inn 3. september sl. og fer útför hennar fram í dag frá Fossvogs- kirkju. Guðríður var fædd hinn 14. ágúst 1906 á Lækjarbotnum í Landsveit, dóttir hjónanna Sæ- mundar Sæmundssonar, bónda, og konu hans, Sigríðar Theodóru Pálsdóttur, er þar bjuggu. Bæði voru þau hjón af góðkunnum rangæskum ættum. Sjö voru systkinin á Lækjarbotnum sem komust til fullorðinsára og eru nú bræður hennar tveir eftir, Sæ- mundur og Árni. Árið 1909 deyr faðir hennar og ári seinna verður móðir hennar að hætta búskap og systkinin dreif- ast meðal frænda og vina. Fer þá Guðríður að Hurðarbaki í Vill- ingaholtshreppi til Árna Pálsson- ar, bónda, móðurbróður síns. Elst hún þar upp í stórum fóstursystk- ina hóp og voru þau henni afar kær, enda reyndust þau henni sem hún væri þeirra eigin systir. Lærði hún þar öll hin almennu sveitar- störf og vann við þau fram að tví- tugu, þá fer hún til Reykjavíkur og flyst til móður sinnar, sem þá var farin að búa í Reykjavík. Vann hún þar við ýmis störf. Fer í Sam- vinnuskólann og naut þeirrar menntunar vel, hún var greind kona og alla tíð fróðleiksfús. Árið 1931 giftist hún Guðmundi Guðmundssyni og átti með honum eina dóttur. Þau Guðmundur slitu samvistum eftir fáein ár. Þá flyst hún á Njálsgötu 48 hér í borg, þar sem móðir hennar bjó. Þar var heimilið sem fjölskyldan gat alltaf sameinast á. Þar var góð frænka sem hjálpaði móður sinni til að sameina fjölskylduna aftur. Dúa, eins og hún var kölluð meðal frænda og vina, varð frændfólki sínu stoð og stytta, því allir sem einhvers þurftu með leituðu til hennar. Árið 1947 giftist hún Þorsteini Jóhannessyni bifreiðastjóra. í + Faöir minn og afi okkar, ÁGÚST ÓLAFSSON fyrrverandi verkstjóri, Sólvallagötu 52. lést á heimili sínu, föstudaginn 10. september. Emil Ágúatsson, Guörún Dröfn Emilsdóttir, Ragna Björk Emilsdóttir. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, BRANDURJÓNSSON fyrrverandi skólastjóri, andaöist aöfaranótt sunnudagsins 12. september i Landakotsspít- ala. Fyrir hönd aöstandenda, Rósa Einarsdóttir og dætur. + Útför eiginkonu minnar og móöur okkar, SIGRÍDAR GRÓU ÞORSTEINSDÓTTUR, Eyrarvegi 13, Akureyri, veröur gerö frá Akureyrarkirkju, miövikudaginn 15. september kl. 13.30. Tryggvi Helgason, Þorsteinn Gunnarsson, Benedikt Gunnarsson, Styrmir Gunnarsson. + Maöurinn minn, faöir okkar og tengdafaöir, KLEMENS ÞORLEIFSSON kennari, Hjallavegi 1, Reykjavík, andaöist sunnudaginn 12. september sl. Guöríóur Þórarinsdóttir, Ólöf Inga Klemensdóttir, Þórarinn Klemensson, Ásdís Sigurgestsdóttir, Þórunn Klemensdóttir, Þröstur Olafsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, JÓNS GUÐNASONAR, Öldugötu 26, Hafnarfiröi. Kristín Sigríöur Einarsdóttir, Einar V. Jónsson, Halldóra G. Jónsdóttir, Marteinn G. Þorléksson, Guóni Jónsson, Berta Björgvinsdóttir, Jóhannes Jónsson, Guörún Lérusdóttir, María Jónsdóttir, Jón Pélmi Skarphéöinsson, og barnabörn. Mjóuhlíð 14, Reykjavík, var heim- ili þeirra, og þar áttu þau með börnum sínum, dótturinni Sigríði Theodóru, börnum Þorsteins, Hrefnu Svövu og Ragnari Hilm- ari, og tengdamóðurinni Guðrúnu, yndislegt heimili. Börnin giftust og eignuðust afkomendur. Fram- tíð og velferð þeirra var þeim fyrir mestu. Dúa var mikil hannyrða- kona og áttu þau marga fagra muni sem vitna um handbragð hennar. Hjónin voru samhent og áttu mörg áhugamál. Þau spiluðu mik- ið og áttu góða spilafélaga. Þau ferðuðust um landið og nutu þess, því bæði voru þau sveitabörn. Kærkomnir gestir voru þau þegar þau komu hér að Skarði, þau glöddu alla, þau gleymdu engum. Og nú þegar síðasta systirin af börnum Sæmundar á Lækjarbotn- um kveður, leitar hugurinn til lið- inna ára, þar sem glæsilegar og góðar frænkur, Katrín, Guðrún, Jóhanna, Pálína og Guðríður mót- uðu huga og störf frændfólksins. Allar voru þær vel gefnar og vinn- andi, fræddu okkur um margt. Þær þekktu alla og gleymdu eng- um. Þær vissu hve mikils virði það var að eiga fjölskyldu. Fjölskyldur systkinanna frá Lækjarbotnum eru í sannleika ein stór fjölskylda. í nafni frændfólksins, þegar við að lokum kveðjum Dúu frænku, verður okkur hugsað með þakklát- um huga til alls þess sem hún gerði fyrir okkur, allar hátíðar- stundirnar á heimili hennar og heimilum okkar. Hún hafði alltaf tíma til að vera með öllum, bæði þegar við glöddumst yfir áföngum og sigrum í lífi okkar, og engin hönd og hugur var betri og hlýrri en Dúu þegar eitthvað var að. Gjafir hennar og góðar óskir geymast í hugum okkar sem dýrmætur fjársjóður. Gott er að leiðarlokum að hugsa til síðustu lífsstunda Dúu frænku. Hún var umvafin ástúð og um- hyKKju dóttur sinnar, tengdasonar og barnabarna. Voru mæðgurnar sérstaklega samrýndar og miklir kærleikar þeirra í milli, sem með- al annars kom fram í því, að þegar Þorsteinn andaðist fluttist Dúa á heimili dóttur sinnar, sem annað- ist hana til dauðadags. Frændfólkið allt sendir fjöl- skyldu og venslafólki Dúu innileg- ustu samúðarkveðjur og biður Guð um að blessa minningu hinnar mætu konu. Sigríður Theódóra Sæmundsdóttir Eitt sinn skal hver einn deyja, tímaglasið tæmist. Síðasta kornið er runnið. Guðríður Sæmundsdóttir lauk þessu tímaglasi sínu að morgni 3. þ.m., 76 ára að aldri, eftir nokkurn aðdraganda, þannig, að ekki kom á óvart. Guðríður fæddist 14. ágúst 1906 að Lækjarbotnum í Landsveit, dóttir hjónanna Sigríðar Theó- dóru Pálsdóttur og Sæmundar Sæmundarsonar, bónda þar. Systkini hennar voru 7. Föður sinn missti Guðríður er hún var 2ja ára, og 4ra ára að aldri fór hún í fóstur til móðurbróður síns, Árna Pálssonar, að Hurðarbaki í Flóa, og ólst þar upp fram yfir fermingu. Að Hurðarbaki voru allir henni góðir, og þar átti hún glaða daga, sem hún minntist með þakklæti æ síðan. Sér í lagi tók hún ástfóstri við mun eldri fóst-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.