Morgunblaðið - 21.09.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
5
Frá opnun bandarísku vikunnar í Nausti.
Mor^unblaðiö/ Emiiía
Ráðstefna um næringu
og heilsu á Norður-
löndum hefst í dag
RÁÐSTEFNA um næringu og heilsu
á Norðurlöndum hefst i hátíðasal
Háskóla íslands, klukkan tvö eftir
hádegi með ávarpi Guðmundar
Magnússonar, háskólarektors. Aðal-
tungumál ráðstefnunnar verður
enska. Káðstefnan er opin öllum.
Erindi verða flutt í eftirfarandi
röð:
Gustav Nedergaard (Danmörku
kl. 14:15.
Ritva Seppánen (Finnlandi) kl.
14:45.
Jón Óttar Ragnarsson (íslandi) kl.
15:15.
Arne Lövö (Noregi) kl. 16:00.
Björn Isaksson (Svíþjóð) kl. 16:30. _
Að erindaflutningi loknum
verða pallborðsumræður sem
Laufey Steingrímsdóttir stjórnar.
Verður rætt um efnið Næringar-
vandamál Norðurlandabúa. Fund-
arstjóri á fundinum verður Björn
Sigurbjörnsson.
Ung nordisk musik festival:
Tvö íslenzk verk
á tónleikum í kvöld
„Bandarískir dagar“ á Naustinu
SENDIHERRA Bandaríkjanna á
íslandi, Marshall Brement, opnaði
í gærkvöldi „bandaríska daga“ á
Naustinu. „Nú er rúmur aldar-
fjórðungur síðan Naustið hóf þá
nýbreytni að kynna matarvenjur
hinna ýmsu þjóða. Það er við hæfi,
að við hcfjum kynningu á banda-
rískum mat — fyrsta kynningin
sem haldin var í Naustinu, var ein-
mitt „bandarísk vika“. Með þessu
viljum við cndurvekja þá Naust-
stemmningu, sem hér ríkti," sagði
Omar Hallsson veitingamaður.
Halldór S. Gröndal, sem var
veitingamaður í Naustinu,
bryddaði upp á þeirri nýjung að
kynna mat hinna ýmsu þjóða og
svo sló þetta uppátæki svo í
gegn, að „bandaríska vikan" stóð
yfir í þrjár vikur. Þar var m.a. í
fyrsta sinn á íslandi á boðstólum
körfukjúklingur sem varð svo
vinsæll meðal íslendinga.
Á DAGSKRÁ „Ung nordisk musik
festival“ i kvöld eru kammertónleik-
ar. Þeir verða að Kjarvalsstöðum og
hefjast klukkan 20.30.
Á dagskránni eru sjö verk eftir
unga norræna höfunda. Verkin
eru: Strengjakvartett eftir Hauk
Tómasson; Je chante la chaleur
désésperée fyrir píanó, eftir Jouni
Kaipainen frá Finnlandi; Hald
fast, da held’na öve, fyrir gítar,
eftir Glenn Erik Haugland frá
Noregi; Reflekser, fyrir sópran,
altflautu, fiðlu, selló og píanó, eft-
ir Niels Rosing-Schow frá Dan-
mörku; Musik for String Quartet,
eftir Olli Koskelin frá Finnlandi;
In Aeternum, fyrir flautu og pí-
anó, eftir Mist Þorkelsdóttur og A
Wooden Box, tónlist fyrir fimm
blásturshljóðfæri, selló og mar-
imba, eftir Sidney Friedman frá
Svíþjóð.
Satt að segjja, heyrir&i
ddært óvenjulegt úrHiilips hljómtælqum!
thnnig á það líka að vera
Hljómtæki eiga að skila nákvæmlega því sem er á hljómplötu eða kassettu og því sem kemur úr útvarpinu. Engu skal bætt við og
engu sleppt. Þannig er það einmitt hjá Philips. Philips hefur ávallt verið í fararbroddi í hljómtækjaframleiðslu
og með því að hagnýta sér fullkomnustu tækni sem völ er á hefur þeim tekist að framleiða hljómtæki
sem uppfylla kröfur hinna vandlátustu.
9PHILIPS
/ Philips hlustarðu á tónlist en ekki á tækin sjálf!
Haföu samband, vió erum sveigjanlegir i samningum.
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655
Sí
o