Morgunblaðið - 21.09.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Egllsstaðir:
Vistheimilið Vonarland
KgilsstöAum, 15. september.
FYRIR réttu ári tók Vistheimilið Vonarland til starfa. Heimilismenn eru nú
10 talsins víds vegar af Austurlandi. Við heimilið starfa fjórir þroskaþjálfar
auk annars starfsfólks og forstöðumanns, Bryndísar Símonardóttur.
Á Vonarlandi eru nú fjögur
börn á skólaskyldualdri og munu
þau sækja hinn almenna grunn-
skóla á Egilsstöðum í vetur. Síð-
astliðinn vetur var gerð tilraun í
þessa átt — sem gafst það vel að
horfið var frá stofnun þjálfun-
arskóla á vistheimilinu eins og
tíðkast hefur á slíkum stofnunum
— en þess í stað ákveðið að leita
samvinnu við hið almenna skóla-
kerfi um kennslu skólaskyldra
heimilismanna.
Grunnskólinn á Egilsstöðum
fékk síðan heimild til ráðningar
sérhæfðra starfsmanna vegna
þessa verkefnis og mun því annast
kennslu þessara barna í vetur í
samvinnu og samráði við starfs-
menn Vonarlands.
Formaður Svæðisstjórnar Aust-
urlands er Guðmundur Magnús-
son, fræðslustjóri.
— Ótafur
Hafnarbryggjan í Stykkishólmi
Stykkishólmur:
Gagnger viðgerð á
hafnarbryggjunni
Stykkishólmi, 8. september.
NÚ FER hér fram gagnger viðgerð á hafnarbryggjunni í Stykkishólmi, eða
elsta hluta hennar, sem er orðinn bæði gamall og hættulegur bifreiðaumferð
og báta.
Ólafur Einarsson stjórnar
verkinu, en það er unnið á vegurn
Hafnarmálastjórnar. 16 metra
staurar eru reknir niður með
rafmagnsafli og er ákveðið að
klára fremsta hlutann nú, svo að
bátar geti verið þar við. Þá verður
skipt um dekk á bryggjunni, en
það er orðið mjög fúið. Helmingur
bryggjunnar var steyptur upp
fyrir nokkru og með tilkomu þess-
arar endurnýjunar er þess að
vænta að bryggjan geti þjónað
Hólminum næstu árin.
Þessi viðgerð var mjög nauð-
synleg. Eitt af því, sem verst er
hér í höfninni, er þegar einhver
frost koma, þá vill höfnina leggja
strax og það hefir auðvitað sín
áhrif. Þess vegna hefir verið
byggð ný hafskipabryggja í Skipa-
vík, en þar er minni hætta á ís-
ingu. Umsvif við höfnina eru mikil
enda hefir bátum fjölgað hér und-
anfarin ár.
FrélUriUri
Nýskipaður sendiherra Frakklands, hr. Louis Legendre, afhenti nýlega for-
seta fslands trúnaðarbréf sitt að Bessastöðum, að viðstöddum Olafi Jóhann-
essyni, utanríkisráðherra.
Stykkishólmur:
Rosknir í skemmtiferð
Stykkishólmi, 6. september.
f GÆR bauð Rotary-klúbbur Stykk-
ishólms, eldri borgurum þessa bæjar
i skemmtiferð í Borgarfjörð. Var far-
ið í Munaðarnes, þar sem boðið var
til hádegisverðar.
Eftir mat var svo ekið sem leið
liggur í Hvalfjörð og til Saurbæj-
ar, þar sem sóknarpresturinn, Jón
Einarsson, tók á móti ferðafólkinu
og sýndi því staðinn og skýrði frá
ýmsu úr sögunni. Kaffi var svo
drukkið í félagsheimilinu á
Hvalfjarðarströnd og þaðan ekið
heim.
Voru allir ánægðir með þessa
ágætu ferð, enda veður með af-
brigðum gott.
FrétUriUri
Nú er tækifærið 28. september
MALLORCA
heim um LONDON
2 vikur á Magalufströndinni kr. 9.800.-
3 vikur á Magalufströndinni kr. 11.000.-
Möguleiki á dvöl í London
. . . og auövitað ÚRVALS-kjör
Sími26900 URVAL^^T
ÚRVALS
innihurðir
Allar hurðir enn á gamla verðinu
ef pantað er strax.
LÆGSTA VERÐ Á LANDINU.
Útsölustaðir í Reykjavík og Kópavogi:
Iðnverk, Nóatúni 17, sími: 25945
Axel Eyjólfsson, Smiðjuvegi 9, sími: 43577
TRÉSMÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: Ó2-3320
8
I