Morgunblaðið - 21.09.1982, Page 16

Morgunblaðið - 21.09.1982, Page 16
18 MORGUNBLAÐH}, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON Deng áfram áhrifamest- ur, þótt heill söfnuður haldi í stjórnartaumana NVAKSTADU) flokksþing kínverska kommúnistaflokksins markar að ýmsu leyti timamót í kínverskum þjóðmálum. Þar var goðsognin um Maó endanlega kveðin i kútinn og bann lagt við persónudýrkun. Formannsemb- a'ttið var lagt niður en framkvæmdastjóri gerður að æðsta manni flokksins. Jafnframt tryggja nýjar skipulagsreglur að einn maður geti ekki tekið ákvarðanir í flokksnafni í meiriháttar málum, eins og var í tíð Maós, ákvarðanatakan verður héðan í frá sameiginlega í höndum þriggja flokksstofnana, framkvæmdanefndarinnar, nýrrar ráðgjafanefndar, sem aidraðir leiðtogar eiga sæti I, og flokksagaeftirlitsnefndarinnar, sem fær aukin völd, einkum þegar ný innrætingarherferð hefst á hendur „vinstri monnum" á næsta ári. Það er því heill söfnuður, sem skipar forystusveitina í Kína, en ekki einn maður, eins og í tið Maós. Hin nýja flokksskipan er undan rifjum Deng Xiao- pings runnin, hans hug- arsmíð í einu og öllu, þannig sniðin, að ekki verði horfið af þeirri braut, sem hann hefur leitt Kína inn á siðustu misseri. Og þótt hann hafi að vissu leyti horfið úr sviðsljósinu, dylst það engum, að hann verður áfram áhrifamestur leiðtoga þar í landi. Honum hefur tekist það sem Maó tókst ekki, að koma nýrri kynslóð skjólstæðinga sinna í áhrifamestu stöðurnar og endurskipuleggja stofnanir þær sem þeir stjórna. Deng tók sjálf- ur sæti í öldungaráðinu, en í það lét hann kjósa ýmsa þá í mið- stjórninni, sem hann vildi losna við þaðan. Menn, sem málum eru kunnugir, segja að með því að stjórna öldungaráðinu, vilji Deng tryggja áhrif sín, og með setu sinni þar geti hann haft hemil á Hu Yaobang framkvæmdastjóra, ef Hu skyldi vilja færa sig upp á skaftið og reisa sér stall a la Maó. Og nú á tíminn einn eftir að leiða í Ijós hvernig skipulags- breytingarnar reynast. Einnig á eftir að reyna hvernig hinn al- menni flokksmaður bregst við breytingunum, einkum þær 20 milljónir félaga, sem gengu í flokkinn í menningarbyltingunni og Deng kallar vinstri sinna. Þeirra bíður hreinsunareldur, verða að innrita sig upp á nýtt og gangast undir inntökupróf á næsta ári. Á flokksþinginu veittust þeir Deng og Hu hart að vinstri mönnum í flokknum og fór Hua Guofeng fyrrum flokksformaður og forsætisráðherra ekki var- hluta af ásökunum um „vinstri mistök". Hua var helzti skjól- stæðingur Maós sem sat í áhrifa- stöðum, en áhrif hans minnkuðu í síðustu viku, þegar honum var vikið úr framkvæmdanefndinni fyrir að fylgja Maó blint. Nokkr- um dögum áður var embætti varaformanns, sem Hua hélt þrátt fyrir að vera í ónáð fyrir „vinstri villu", lagt niður. Eftir flokksþingið er Hua, sem eitt sinn var nefndur „hinn vitri leið- togi“, aðeins einn af 210 mið- stjórnarmönnum. Langmestur meirihluti miðstjórnarmanna eru stuðningsmenn Dengs, margir þeirra lítt þekkt nöfn á uppleið undir verndarvæng Dengs. Sól Hua hefur því heldur betur hrap- að, þegar haft er í huga, að aðeins sex ár eru liðin frá því Maó sagði við Hua: „Nú get ég andað léttar, þar sem þú ert tekinn við.“ Erlendir fréttaskýrendur líta á brottvikningu Hua sem sigur fyrir Deng og sem viðvörun til hinna, sem enn hafa ekki sýnt Deng undirgefni. Talið er líklegt að framundan séu hjaðningavíg í Kína, sem hefjist fyrir alvöru þegar helm- ingur flokksmanna verður að inn- rita sig á ný og gangast undir eins konar inntökupróf, þar sem þeir verða prófaðir í flokkslín- unni. Þegar hefur verið flett ofan af ýmsum mótstöðuhópum, sem umsvifalaust hafa verið sakaðir um fylgni við ekkju Maós og fjór- menningaklíkuna og dregnir fyrir rétt. Réttarhöld af þessu tagi hóf- ust skömmu fyrir flokksþingið og er timasetning þeirra ekki talin nein tilviljun. I þessu sambandi á það eftir að koma í ljós hvernig Hu Yaobang framkvæmdastjóra og Zhao Ziy- ang forsætisráðherra ferst stjórnirLÚr hendi, hvort þeir hafi þá eiginleika til að bera og þann styrk, sem til þarf til að hreins- unarherferð Dengs beri árangur. Verkaskiptingin milli Hu og Zhaos verður skýr í hinni nýju stjórnskipan. Hu einbeitir sér að innri málum flokksins og Zhao að efnahagsmálunum. Skiptingin er tilkomin vegna sérþekkingar þeirra, en menn, sem málum eru kunnugir, segja að áhugamál þeirra og pólitísk áform fari ekki saman að öllu leyti, og því muni ef til vill einhverjir „vinstri sinn- ar“ sjá smugu til að komast upp á milli þeirra og láta til sín taka. Sagt er að Deng óttist þennan möguleika, og að reyndur flokks- leiðtogi, Chen Yun, hafi gert þennan hugsanlega ágreining að umtalsefni á þinginu. Chen hefur verið einn helzti sérfræðingur Kínverja í efnahagsmálum, og lenti honum m.a. saman við Maó út af stóra framfarastökkinu og menningarbyltingunni, þar sem hann hélt því fram að vonin um efnalegan ávinning fengi fólk til að leggja harðar að sér. Jafnframt því sem flokksþingið samþykkti breytingar á stjórn- skipaninni, voru samþykktar til- lögur Dengs um meiriháttar átak í efnahagsmálum, sem felst í því að fjórfalda verðmæti ársfram- leiðslu iðnaðar og landbúnaðar í Kína fyrir næstu aldamót. Einnig var kveðið á um aðgerðir er mið- uðu að því að ná fram betri og hagkvæmari árangri í atvinnulíf- inú, þ.e. stefnt skyldi að aukinni framleiðni, sem er heldur lítil í Kína þegar á heildina er litið. Vestrænir efnahagssérfræðingar telja þessar áætlanir fram úr hófi bjartsýnar, og ef til vill verði þær aldrei nema pappírsgagn. Þó er ljóst eftir þingið að Deng og menn hans eru reiðubúnir áfram- haldandi tilraunum með kapítal- isma, þar sem lögmál framboðs og eftirspurnar verða látin ráða ferðinni. Hugsanlega er mest hætta á andstöðu við stefnu Dengs innan hersins, þar sem ýmsum öldnum hershöfðingjum þykir að of hratt hafi verið horfið frá hugmyndum Maós. Deng hefur að ýmsu leyti sett herinn til hliðar, og ákveðið að brýnna sé að tæknivæða iðn- aðinn og landbúnaðinn og efla vísindin en endurnýja búnað hersins. Þess vegna þurfa efna- hagsundur að gerast í Kína til þess að efla megi herinn, án þess það verði gert á kostnað framfara á öðrum sviðum. Talið er að Deng sé það fullljóst, að hann hafi tek- ið mikla áhættu með því að láta herinn mæta afgangi. Hann eigi því ekki annarra kosta völ en beita öllum tiltækum úrræðum til að tryggja efnahagslegar framfarir. Hann hafi ekki efni á því að slaka á klónni í þeim efn- um, ef hann ætli að draga sig í hlé og eftirláta stjórnartaumana ungum mönnum, sem eiga sömu hugsjón og hann um auðlegð í Kína. (Heimildir: Observer, New York Times, AP, Newsweek og Economist.) Hreinsanir Tökum aö okkur aö hreinsa gufukatla, vatnsrásir, meö kemískum efnum. Kemhýdró-salan sf. Sími 12521 og 43116. Falleg birta - Ijúf áhrlf Hver kannast ekki við gömlu, góðu olíuluktirnar? Þær gefa fallega birtu og hafa Ijúf áhrif á umhverfi sitt. í heimahúsi, sumarbústað, — eða hvar sem er. Eigum nú fjölbreytt úrval af vönduðum olíuluktum í gamla stílnum, stórar sem smáar. Fást einnig hjá umboðsmönnum Olís. Býð^öða< QÍSbúdin Grensásvegi 5, Sími: 84016 CTláDUIIURDCDICHOI A u I JUnNIIN Anr nfttloL fl TOLLSKJÖL OG VERÐÚTREIKNINGAR Leiöbeinandi: Efni: — Helstu skjöl og eyöublöö viö toll- afgreiöslu og notkun þeirra. — Meginþættir laga og reglugeröa er gilda viö tollafgreiöslu vara. — Grundvallaratriöi tollflokkunar. — Helstu reglur viö veröútreikning. — Gerö veröa raunhæf verkefni. Karl Garöarsaon viöskipta- fræöingur Námskeiöiö er einkum ætlaö þeim sem stunda innflutning í smáum stíl og iðnrekendum, sem ekki hafa mikínn innflutn- ing. Einnig er námskeiöiö kjöriö fyrir þá sem eru aö hefja eöa hyggjast hefja störf viö tollskýrslugerð og veröútreikn- inga. Staður: Síöumúla 23, 3. hæö. Tími: 4.-7. október 1982 kl. 09—12. ATH: Fræðslusjóöur Verslunarmannafólags Reykjavíkur greiðir þátttökugjald félagsmanna sinna og skal sækja um þaö á skrifstofu VR. ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL STJÓRNUNAR- FÉLAGSINS í SÍMA 82930. ASTJðRNUNARItLAG ISIANDS SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.