Morgunblaðið - 21.09.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
19Ki
Qlof Palme glaðhlakkalegur eftir sigur jafnaðarmanna:
„Sigurinn má ekki
fylla okkur dramblætia
Stokkhólmur, 20. sept. Frá Guðfmnu
Kagnarsdóttur fréttaritara Mbl.
„FÉLAGAR, þessu augnabliki höfum
við beðið eftir lengi.“ Olof Palme
verðandi forsætisráðherra Svíþjóðar
geislaði af gleði, þegar úrslit sænsku
kosninganna sýndu að jafnaðarmenn
höfðu unnið mikinn kosningasigur og
náð völdum eftir sex ára stjórn borg-
araflokkanna.
„En sigurinn má ekki fylla okkur
dramblæti," sagði hann. „Við mun-
um taka meira tillit til stjórnar-
andstöðunnar en hún hefur gert til
okkar. Og nú byrjar vinnan við að
koma Svíþjóð úr kreppunni."
Thorbjörn Fálldin forsætisráð-
herra baðst í morgun lausnar fyrir
sig og stjórn sína, en hann mun
sitja áfram sem forsætisráðherra
þar til ný stjórn hefur verið mynd-
uð.
Stjórnarflokkarnir tveir, Mið-
flokkurinn og Þjóðarflokkurinn,
fóru verst út úr kosningunum.
Miðflokkurinn tapaði 2,7 prósent-
um atkvæða og Þjóðarflokkurinn
4,7 prósentum. Þjóðarflokkurinn
fékk aðeins 5,9 prósent atkvæðanna
og hiaut nú aðeins 0,3 prósentum
meira fylgi en Kommúnistaflokkur-
inn sem hélt sínum 5,6 prósentum
frá því 1979.
Ola Ullsten, formaður Þjóðar-
flokksins, kveðst þó ekki ætla að
láta af formannsstörfum þrátt fyrir
hinn mikla ósigur flokksins.
Margir höfðu spáð því að komm-
únistar myndu hverfa af þingi í
þessum kosningum, en sú varð ekki
raunin.
Jafnaðarmenn unnu mikinn sigur
og juku fylgi sitt um 2,7 prósent.
Þeir fengu samtals 45,9 prósent at-
kvæða. Þar með eru þeir stærri en
borgaraflokkarnir allir þrír til sam-
ans.
Hægri flokkurinn jók fylgi sitt
mest allra flokkanna, eða um 3,1
prósent og fékk alls 23,6 prósent.
Miðflokkurinn, flokkur Thorbjörn
Fálldins, sem er næst stærstur
borgaraflokkanna fékk 15,5 pró-
sent. Litlu flokkarnir tveir, Um-
hverfisflokkurinn, sem spáð hafði
verið 4,5 prósentum, og Kristilegi
demókrataflokkurinn, komust
hvorugur á þing. Umhverfisflokk-
urinn fékk aðeins 1,6 prósent at-
kvæðanna og Kristilegi demókrata-
flokkurinn 1,9 prósent. Jafnaðar-
menn og kommúnistar hafa nú 186
sæti á þingi, en borgaraflokkarnir
þrír 163 sæti.
Jafnaðarmenn unnu einnig borg-
arstjórnarkosningarnar, bæði í
Stokkhólmi og Gautaborg.
Hægri flokkurinn vann eins og
áður segir mikinn kosningasigur og
er nú stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn. Hann er nú mun stærri
en báðir miðflokkarnir samantald-
ir. Hægri menn fá 86 sæti á þingi,
en miðflokkarnir 76.
Ulf Adelhson, formaður Hægri
flokksins, var mjög ánægður með
kosningarnar en að sjálfsögðu
áhyggjufullur yfir stjórnarskiptum.
„Ósamkomulag borgaraflokkanna
undanfarin ár hefur átt sinn þátt í
falli stjórnarinnar," sagði hann.
„En nú er bara að hefja sóknina á
ný. Það virðist sem þjóðin þurfi að
Olof Palme kveður forseta sænska þingsins, Ingemund Bengtson, eftir
viðræður þeirra í gær um myndun nýrrar ríkisstjórnar í kjölfar sigurs sósíal-
demókrata í þingkosningunum.
komast alveg í botn áður en hún
skilur að hér þarf að koma til al-
varlegra sparnaðaraðgerða."
Og hann hélt áfram: „Fólk hefur
látið glepjast af loforðum jafnað-
armanna, en það á eftir að komast
að því að ástandið er alvarlegt."
Ulf Adelhson, sagðist óska Olav
Palme innilega til hamingju með
sigurinn, slíka kurteisi yrði maður
að sýna.
Thorbjörn Fálldin taldi stjórnina
hafa fallið vegna allra þeirra
óþægilegu aðgerða sem hún hefði
orðið að grípa til vegna efnahags-
ástandsins. „Jafnaðarmenn gátu
bara gagnrýnt og gagnrýnt og lofað
og lofað," sagði hann. „Þetta er
kannski eðlileg afleiðing," sagði
forsætisráðherrann, „en ég hafði
samt gert mér vonir um að við
myndum koma betur út úr kosning-
unurn."
Ola Ullsten, formaður Þjóðar-
flokksins, var dapur í bragði yfir
kosningaúrslitunum, en flokkur
hans minnkaði um nær helming.
Hann undirstrikaði samt hversu
þýðingarmikið það væri að halda
uppi miðflokkastefnunni á erfiðum
tímum þegar fólk dregst annað
hvort til hægri eða vinstri.
Garcia tapaði
Moskvu, 20. sept. AF.
GUILLERMO GARCIA frá Kúbu
beió fyrsta ósigur sinn á millisvæða-
mótinu i Moskvu í kvöld, þegar
hann tapaði fyrir Larry Christian-
sen frá Bandartíkjunum, en hann
er enn efstur á mótinu með 6'/>
vinning og eina biðskák.
Mikhail Tal, fv. heimsmeistari,
sem gerði jafntefli við Ungverj-
ann Gyula Sax, er einnig með 6 */4
vinning. Yefim Geller frá Sov-
étríkjunum og John van der Wiel
frá Hollandi gerðu jafntefli, en
hinar skákirnar fjórar fóru í bið.
Andersson og Kasparov eru
með 6 vinninga og eina biðskák
hvor. Geller er með 6 vinninga,
Belyavsky 5% vinning og tvær
biðskákir, Gheorghiu 4 vinninga
og eina biðskák, Christiansen 4
vinninga, Sax 3 'A og eina bið-
skák, Murey 3 vinninga og tvær
biðskákir, Rodriguez og van der
Wiel 3 vinninga og eina biðskák
hvor og Quinteros 2 vinninga og
eina biðskák.
ERLENT
Palme fær að velja
sína eigin ríkisstjórn
Stokkhólmi, 20. september. Frá rréttaritara Mbl. tiuóHnnu Kagnarsdóttur.
ÞRIÐJUDAGINN 5. október kemur sænska þingið saman á ný og föstu-
daginn 8. október mun Olof Palme leggja fram ráðherralista sinn. Þetta er
i fyrsta sinn sem Olof Palme fær að velja sína eigin ríkisstjórn.
Þegar hann var forsætisráð-
herra, 1969 til 1976, tók hann við
ríkisstjórn fyrirrennara síns,
Tage Erlanders.
Mörg nöfn hafa verið nefnd í
þessu sambandi, en víst þykir að
Kjell-Olof Feldt verði fjármála-
ráðherra og Anna-Greta Leion at-
vinnumálaráðherra.
Önnur nöfn sem hafa verið
nefnd eru Lena Hjálm-Wallén
sem menntamálaráðherra, Svante
Lundkvist sem landbúnaðarráð-
herra, Bertil Zatkrisson sem sam-
göngumálaráðherra og Hans
Gustafsson húsnæðismálaráð-
herra. Öll eru þetta gamalkunn
nöfn frá fyrri stjórnartíð jafnað-
armanna.
Garcia í efsta
sætinu á ný
Moskvu, 20. scptember. AF.
KÚBANSKI stórmeistarinn Guillermo
Garria náöi á ný forystunni á milli-
svæðamótinu i skák í Moskvu þegar
hann gerði jafntefli við Yefim Geller
frá Sovétríkjunum í biðskák þeirra.
Nokkrar aðrar biðskákir voru
tefldar í gær. Velimirovic frá Júgó-
slavía gerði jafntefli við van der Wi-
el frá Hollandi og vann síðan
Gheorghiu frá Rúmeníu í annarri
biðskák. Quinteros frá Argentínu
gerði jafntefli við van der Wiel og
Gheorghiu í biðskákum, sem hann
átti ótefldar. Þá stóð Murey frá
ísrael í ströngu. Hann tapaði gegn
Andersson, vann Rodriguez, en
þriðja biðskák hans við van der Wiel
fór i bið á ný.
Garcia er nú sem fyrr sagði efstur
með 6,5 vinninga og biðskák. And-
erson, Kasparov og Tal eru með 6
vinninga, Belyavsky er með 5,5 og
biðskák, Geller með 5,5, Velimirovic
4 vinninga og biðskák, Gheorghiu 4,
Murey og Sax 3 vinninga og biðskák,
Rodriguez og Christiansen 3, van
der Wiel 2,5 vinninga og biðskák og
Quinteros 2 vinninga.
^Dale .
Larnegie
námskeiðið
Kynningarfundur í kvöld kl. 20.30 að
Síðumúla 35.
Námskeiðið
getur hjálpað þér að:
★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust.
★ Bæta minni þitt á nöfn, andlit og staöreyndir.
★ Láta í Ijós skoðanir þínar af meiri sannfæringar-
krafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og við-
urkenningu.
★ Taliö er aö 85% af velgengni þinni sé komiö undir
því hvernig þér tekst aö umgangast aðra.
★ Starfa af meiri lífskrafti — heima og á vinnustaö.
★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
★ Veröa hæfari aö taka viö meiri ábyrgö án óþarfa
spennu og kvíða.
Okkar ráölegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie-
námskeiöinu.
í dag er þitt tækifæri.
Hringið í síma:
82411
f ( E-inkctltíyfi «i Island.
ST J ÓRNUNARSKÓLINN
.\.ÍMSKF.WI.\ Konráð Adolphsson SÍÖUmÚIS 35.
x apGn.
^ Smiðjuvegi 6 - Simi 44544