Morgunblaðið - 21.09.1982, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
íslandsmótið 1. deild:
KR-ingar notuðu fiesta
leikmenn — 23 talsins
Víkingur:
VÍKINGAR náðu þeim frábæra
árangri í mótinu að tapa aöeins
tveimur leikjum. Liðið sigraði í sjö
leikjum en gerði 9 jafntefli. Liö Vík-
inga byggði upp á mjög sterkri
liðsheild í mótinu. Leikmenn voru í
mjög góðri líkamlegri þjálfun og
léku skipulega knattspyrnu. Enda
hefur árangurinn ekki látið á sér
standa. Liðið hefur verið skipað
sömu leikmönnum núna síðastliöin
tvö ár og byggir því mikið á sama
kjarnanum. Víkingar notuðu 16
leikmenn í mótinu. Alls skoruðu
þeir 25 mörk en fengu á sig 17.
Mörkin skoruðu.
Heimir Karlsson 10
Sverrir Herbertsson 4
Gunnar Gunnarsson 3
Jóhann Þorvaröarson 2
Ómar Torfason 2
Helgi Helgason 1
Þóröur Marelsson 1
Aðaisteinn Aöalsteinsson 1
1 sjálfsmark ÍBK.
ÍBV:
EYJAMENNIRNIR áttu möguleika á
titlinum alveg fram í síðustu um-
ferð og sigur þeirra gegn ÍA á Akra-
nesi í 17. umferö hleypti skemmti-
legri spennu í síðustu umferðina.
Eyjamenn brugðust svo ekki er
þeir sigruöu Fram i 18. umferð,
þannig að hefði Víkingur tapað síð-
asta leiknum gegn ÍA, hefði ÍBV
staðið uppi sigurvegari. Liðið lék
oft ógæta knattspyrnu, en datt
niður á milli. Ómögulegt er að
segja hvernig fariö hefði ef ÍBV
hefði ekki tapað 0—1 fyrir Víkingi í
14. umferö. Var nokkur heppnis-
stimpill á þeim sigri meistaranna,
m.a. fór vítaspyrna forgörðum hjá
ÍBV. Liöiö skoraði 23 mörk á ís-
landsmótinu, þau skiptust á eftir-
talda leikmenn:
Sigurlás Þorleifsson 10
Ómar Jóhannsson 5
Kári Þorleifsson 3
Jóhann Georgsson 2
Valþór Sigþórsson 1
Sveinn Sveínsson 1
Ágúst Einarsson 1
Það er athyglisvert, að eftir 12
umferðir hafði Sigurlás aöeins
skorað 4 mörk, þrjú þeirra í sama
leiknum, eitt því í hinum leikjunum
tíu. Hann tók hins vegar vel viö sér
undir lokin og skoraði 6 mörk í sex
síðustu umferðunum, náöi Heimi
Karlssyni og deilir því marka-
kóngstitlinum með honum. Annað
árið í röð sem Sigurlás stendur
uppi markakóngur, hann skoraði
einnig tíu mörk á síöasta keppnis-
tímabíli, deildi titlinum þá einnig
með öðrum leikmanni, Lárusi Guð-
mundssyni, sem nú leikur sem
kunnugt er með Waterschei í
Belgíu.
Eins og venjulega, hringluðu
Eyjamenn ekki mikið með liðs-
uppstillingu sína, aðeins 14 leik-
menn notaðir.
KR:
JAFNTEFLISKÓNGARNIR úr Vest-
urbænum, voru um tíma meö í
toppbaráttunni og nær allt mótið í
efri hluta deildarinnar. Kom það
nokkuð á óvart, því liðið skoraöi
aöeins 14 mörk í deildinni, eða ekki
einu sinni eitt mark í leik að meðal-
tali. Af ellefu jafnteflum liðsins,
lauk fimm án þess að mark væri
skorað. Eftirtaldir leikmenn skiptu
hinni rýru markauppskeru á milli
sín:
Ágúst Már Jónsson 3
Jósteinn Einarsson 3
Erling Aðalsteinsson 2
Sæbjörn Guðmundsson 2
Willum Þórsson 1
Óskar Ingimundarson 1
Birgir Guðjónsson 1
Sjálfsmark 1
KR var ekki aðeins það lið sem
fæst skoraði mörkin, heldur einnig
það lið sem flesta notaöi leikmenn-
ina og reyndist það undantekning
frá reglunni að illa gangi hjá liðum
sem nota marga leikmenn. KR not-
aði 23 leikmenn.
ÍA:
LIÐ Akraness var að venju sterkt í
íslandsmótinu, enda hefur liðið
marga góða leikmenn á sínum
snærum. Liöið sigraði í bikar-
keppninni og var lengst af í for-
baráttunni um toppinn í íslands-
mótinu. Líðið tapaði sex leikjum í
mótinu gerði sex jafntefli og sigr-
aði í sex leikjum. Jöfn skipting.
Leikmenn ÍA skoruðu 22 mörk í
mótinu en fengu á sig 20. Höföu því
tvö mörk í plús. Mörkin skiptust
þannig:
Sigþór Ómarsson 6
Guðbjörn Tryggvason 5
Kristján Olgeirsson 4
Árni Sveinsson 2
Siguröur Lárusson 2
Júlíus Pétur 1
Jón Gunnlaugsson 1
Sigurður Halldórsson 1
Atján leikmenn fengu aö spreyta
sig í sumar hjá ÍA-liðinu.
Valur:
LIDI Vals gekk ekki vel í fyrstu
leikjum sínum í mótinu, en er líða
tók á efldist liðið í hverjum leik. Og
ef ekki hefði komið til kærumál á
hendur Val hefði liöiö blandað sér í
toppbaráttuna í íslandsmótinu.
Fjögur stig voru dæmd af liðinu.
Valsmenn sigruöu í sex leikjum
sínum, geröu fimm jafntefli og töp-
uðu 7 leikjum. Liðið skoraði 18
mörk. Mörk Vals skoruöu:
Ingi Björn Albertsson 5
Valur Valsson 3
Þorgrímur Þráinsson 3
Njáll Eiðsson 2
Guðmundur Þorbjörnsson 2
Dýri Guömundsson 1
Jón G. Bergs 1
Þorsteinn Sigurðsson 1
Valsmenn notuðu 18 leikmenn I
íslandsmótinu í sumar. Liö þeirra
er með góða blöndu af ungum og
efnilegum leikmönnum og reynd-
um baráttujöxlum sem eiga að geta
náð langt næsta keppnistímabil.
ÍBÍ:
ÍBÍ LÉK í annað skiptið í 1. deild og
voru eitt af þessum liöum sem
flestir spáðu faili í 2. deild. Reyndar
var liðið í fallhættu lengst af, en
kom þó skemmtilega á óvart með
frammistöðu sinni. Knattspyrnan á
köflum fremur stórkarlaleg, en
árangursrík oft og tíðum, þannig
skoraði ekkert lið í 1. deild fleiri
mörk en ÍBÍ. En liðið fékk líka mörg
mörk á sig. Mörkin urðu alls 27, en
þau skiptust á eftirtalda leikmenn:
Gunnar Pétursson 7
Gústaf Baldvinsson 5
Jón Oddsson 4
Örnólfur Oddsson 3
Ámundi Sígmundsson 2
Guðmundur Jóhannsson 2
Kristinn Kristjánsson 1
Jóhann Torfason 1
Einar Jónsson 1
Sjálfsmark 1
ÍBÍ tefldi fram 19 leikmönnum og
það telst gott afrek, að níu þeirra
skoruðu eitt mark eða fleiri. Þess
má geta, að aöeins þrívegis í sumar
tókst ísfirðingum ekki að skora í 1.
deildar leik.
UBK:
LEIKMENN Breiöabliks þóttu til
alls líklegir í upphafi mótsins. Liðið
náði léttum og hröðum samleiks-
köflum sem unun var að horfa á.
Flestir spáðu því liðinu velgengni í
mótinu. En undir lokin var liðiö í
fallbaráttunni. Allur vindur fór úr
leik líösins um mitt mót. Leikmenn
greinilega ekki í nægilega góðri lík-
amlegri þjálfun. Undir lok mótsins
var þjálfarinn látinn fara. Af fyrstu
sjö leikjum sínum tapaöi UBK að-
eíns tveimur. En síöan fór aö halla
undan fæti. Breiðablik notaði 17
leikmenn í mótinu. Ails gerðu þeir
18 mörk. Liðið fékk á sig 22 mörk.
UBK tapaði 7 leikjum í mótinu, I
gerði 6 jafntefli en sigraði í 5 leikj-
um. Mörk liðsins skoruðu þessir:
Sigurður Grétarsson (5 víti) 7
Hákon Gunnarsson 2
Helgi Bentsson 2
Sigurjón Kristjánsson 2
Birgir Teitsson 1
Sævar Geir 1
Vignir Baldursson 1
Ólafur Biörnsson 1
Trausti Omarsson 1
Eftir að síöasta leik UBK lauk í
íslandsmótinu sagði fyrirliði liös-
ins, Ólafur Björnsson: „Næsta
sumar ætlum við að standa okkur
vel og sanna getu okkar.“ Tíminn
sker úr um hvort sú verður raunin,
eða að liö UBK verði bara efnilegt
áfram.
ÍBK:
EKKI byrjaöi tímabilið gæfulega
hjá Suðurnesjaliðinu, þaö tapaði
þremur fyrstu leikjum sínum án
þess að skora mark. Liðið braut
svo ísinn í fjóröu umferðinni með
2—1 sigri gegn Val. Eftir það gekk
betur hjá ÍBK, en vegna hinnar
slæmu byrjunar og hversu jöfn liö-
in voru í 1. deild, var ÍBK í fallhættu
fram í síðustu umferö og bjargaöi
sér aðeins meö því að ná stigi gegn
ÍBÍ í síðustu umferðinni. Liðið skor-
aði ekki mikið af mörkum, en þau
skiptust á eftirtalda leikmenn:
Ragnar Margeirsson 4
Óli Þór Magnússon 4
Einar Ásbjörn Ólafsson 2
Daníel Einarsson 1
Ólafur Júlíusson 1
Magnús Garðarsson 1
Ingvar Guðmundsson 1
Alls notuðu Keflvíkingar 18
leikmenn í leikjum sínum f 1. deild.
Fram:
GAMLA stórveldið mátti bíta í þaö
súra epli að falla í 2. deild eftir
langa og sigrum stráöa dvöl í 1.
deild. Líöið tefldi fram mörgum
kornungum og efnilegum leik-
mönnum, en það kom greinilega
fram er á mótið leiö, að þrátt fyrir
nærveru leikmanna eins og
Trausta Haraldssonar og Marteins
Geirssonar, þá skorti liðið tilfinn-
anlega leikreynslu. Þaö sýndi sig
best í því hvernig liðið hrundi undir
lokin, en ekki var heil brú í tveimur
síðustu umferðunum. Var þó alveg
undir það síðasta ekki útlokað að
bjarga liðinu úr fallsæti.
Eins og oft hjá liðum sem illa
gengur hjá, voru breytingar á
liösskipan frá einum leik til annars
miklar. Alls fengu 22 leikmenn að
spreyta sig, en átta þeirra skiptu á
milli sín 17 mörkum liösins. Mörkin
skoruðu eftirtaldir:
Halldór Arason 5
Guðmundur Torfason 3
Viöar Þorkelsson 3
Ólafur Hafsteinsson 2
Marteinn Geirsson 1
Hafþór Sveinjónsson 1
Sverrir Einarsson 1
Árni Arnþórsson 1
LIÐ KA varð að sætta sig við að
falla niður i 2. deild í íslandsmót-
inu. Af þeím 18 leikjum sem liöið
lék sigraði þaö í 4, gerði 6 jafntefli
og tapaöi 8 leikjum. Liðið skoraði
aöeins 17 mörk í leikjunum 18, en
fékk á sig 22.
Þessir skoruðu mörk KA:
Gunnar Gíslason 5
Eyjólfur Ágústsson 3
Ásbjörn Björnsson 3
Ragnar Rögnvaldsson 2
Hinrik Þórhallsson 2
Ormar Örlygsson 1
Friðfinnur Hermannsson 1 •
Alls notaði lið KA 18 leikmenn I
islandsmótínu. Liö KA hóf keppn-
ina af miklum krafti og framan af
var alls ekki útlit fyrir að liðið
myndi falla niður. En er líða tók á
mótið fór róðurinn að þyngjast.
II
• íslandsmeistarar Víkings 1982. Fremri röð talið frá vinstri: Hafliði Pétursson,
Torfason, fyrirliöi, Ragnar Ríslason, Jóhannes Bárðarson, Stefán Halldórsson.
Aftari röð: Sveinn G. Jónsson, formaður Víkings, Þór Símon Ragnarsson, forn
liðsstjóri, Óskar Tómasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Jón Otti Ólafsson, Róbert
Magnús Þorvaldsson, Gunnar Gunnarsson, Youri Sedov, þjélfarí, Jóhannes Trygg
• Þór frá Akureyri vann sér rétt til þess aö leika í 1. deild é næsta ári. Liðiö varð
Aftari röð f.v.: Halldór Áskelsson, Bernharð Valsson, Birgir Marínósson, Sigurbji
Þórarinn Jóhannesson, Óskar Gunnarsson. Fremri röð f.v.: Bjarni Sveinbjörnssc
Einar Arason, Hafþór Helgason.
• Islenski landsliösmiðherjinn, Lérus Guðmundsson, hefur leikið afar vel með liði
sínu, Waterschei í Belgíu, að undanförnu. Hann skoraöi fallegt mark á sunnudag-
inn er liðið sigraði Winterslag 2—0 í deildarkeppninni.