Morgunblaðið - 21.09.1982, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Fjöldamorðin í Beirút... Fjöldamorðin í Beirút... Fjöldamorðin í Beirút... Fjöldamorðin í Beirút ... Fjöldamorð
Beittu hnífum í fyrstu svo
ekki heyrðist til þeirra
Boirút, 20. Neptember. AP.
I»EIR SEM komust af í árás-
um kristinna hægrimanna í
flóttamannabúðirnar á
V-Beirút skýrdu frá því í dag,
að árásarmennirnir hefðu
fyrst í stað beitt hnífum svo
að síöur heyrðist til þeirra.
Hryllingurinn hófst á
fimmtudag, degi fyrr en al-
mennt var haldið.
„Þeir komu í 30 stórum bílum
ofan úr fjöllunum," sagði ein
kvennanna, sem lifði árásina af.
Attræður bróðir hennar var einn
þeirra sem létu lífið. Segja sjón-
arvottar, að hver sá sem hætt
hafi sér út úr húsi á fimmtudag
hafi verið skorinn á háls.
Arásarmennirnir réðust síðan
inn í hús í flóttamannabúðunum
á föstudag og drápu þar mikinn
fjölda fólks. Heimildum um
fjölda látinna í árásunum, sem
stóðu allt fram á laugardags-
morgun, ber hins vegar ekki sam-
an. Alþjóðlegi Rauði krossinn
Syrgjandi, palestínsk móðir í Sabra-búðunum í Beirút. Hún sagði fréttamönnum að eiginmað-
ur hennar og tveir synir væru í hópi þeirra tíu sem sjást liggja í valnum.
Viðbrögð ríkisstjórna og þjóðarleiðtoga:
Fordæming fjöldamorð-
anna um heim allan
RÍKISSTJORNIR og fjölmiðlar um heim allan hafa fordæmt fjöldamorðin
í Beirút og látið í Ijósi áhyggjur vegna vaxandi spennu í Líbanon. Hafa
ísraelar verið ásakaðir beint eða óbeint af flestum.
Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, sagðist vera reiður og
stórhneykslaður á því að slíkir
hlutir gætu gerst í Líbanon.
Ásakaði hann Israela harkalega
fyrir að vera ekki færir um að
annast friðargæslu í landinu.
Krafðist Reagan þess að ísraelar
drægju herlið sitt út úr Líbanon
og fregnir frá Hvíta húsinu
hermdu, að Bandaríkjamenn
væru að hugsa um að ræða við
Frakka og ítali um að setja her-
menn á land í Líbanon á ný til að
reyna að stuðla að friði.
Margaret Thatcher, sem nú
dvelur í Tókýó í opinberri heim-
sókn, og Zenko Suzuki, forsætis-
ráðherra Japan, fordæmdu í dag
fjöldamorðin í Beirút og lýstu
þeim sem „vitfirrtum“. í viðræð-
um sínum við Suzuki sagði
Thatcher að Sameinuðu þjóðirn-
ar yrðu að beita sér fyrir því í
snatri að ísraelar drægju herlið
sitt til baka frá Líbanon eins
fljótt og auðið væri. Forseti Eg-
yptalands, Hosni Mubarak, skip-
aði sendiherra sínum að snúa
heim til Kairó um helgina. For-
sætisráðherra landsins, Fuad
Moiheddin, sagði að hermenn
Israela í Vestur-Beirút gerðu það
að verkum að líbanski herinn
væri óvirkur og þar með væru
palestínskir flóttamenn ber-
skjaldaðir.
Leonid Brezhnev fór þess á leit
við Ronald Reagan, að þeir beittu
sameiginlegum áhrifum sínum
hjá Sameinuðu þjóðunum til að
koma í veg fyrir frekari blóðsút-
hellingar í Líbanon. Brezhnev
sagði ennfremur, að vegna yfir-
lýsts stuðnings við ísrael, hlytu
Bandaríkjamenn að teljast
ábyrgir að hluta.
Á Italíu fóru milljónir verka-
manna í klukkustundarlangt
verkfall til að mótmæla fjölda-
morðunum. Þá voru einnig haldn-
ar fjölmennar mótmælagöngur af
þessu tilefni. „Svo virðist sem
hermenn Sharons hafi tekið þátt
í morðunum með hlutleysi sínu,“
sagði Flaminia Piccoli, leiðtogi
kristilegra demókrata.
Italska stjórnin, sem sendi
friðargæslusveitir til Líbanon
ásamt Frökkum og Bandaríkja-
mönnum, gaf í gær út yfirlýsingu
þar sem morðin voru fordæmd og
Israelar harðlega ásakaðir fyrir
að hafa ekki lyft litla fingur til að
koma í veg fyrir hryllinginn.
I frétt frá Xinhua, hinni opin-
beru fréttastofu í Kína, sagði að
Kínverjar fordæmdu fjöidamorð-
in í Líbanon og líktu þeim við
útrýmingaraðferðir nasista.
Sagði ennfremur í frétt Xinhua,
að dvöl Israela væri orsök þess að
svona hefði farið.
I frétt frá Qatar var frá því
sagt að leiðtogar Arababanda-
lagsins hygðust koma saman til
fundar á morgun, þriðjudag, að
beiðni PLO til að ræða fjöldmorð-
in í Líbanon. Fundurinn átti að
vera í dag, mánudag, en var frest-
að. Sagði í fréttinni að Araba-
bandalagið myndi „ákveða sam-
eiginlegar aðgerðir gegn óvinin-
segir að „hundruð manna,
kvenna, barna og gamalmenna"
hafi verið drepin en forsvars-
menn PLO segja að tala hinna
látnu „hlaupi á þúsundum".
Fréttamaður og ljósmyndari
AP-fréttastofunnar, sem skoðuðu
ástandið í búðunum undir hádeg-
ið á laugardag, töldu þá á milli 90
og 100 lík.
ísraelska utanríkisráðuneytið
sagði að árásin hefði verið gerð af
stuðningsmönnum falangista,
flokks hins nýlega myrta forseta-
efnis Líbana, Bashir Gemayel.
Falangistar hafa hins vegar
þverneitað að eiga nokkra aðild
að fjöldamorðum þessum. Enn-
fremur sagði í yfirlýsingu utan-
ríkisráðuneytisins á laugardag,
að ísraelskir hermenn hefðu beitt
öllum hugsanlegum ráðum til að
stöðva árásarmennina og komið í
veg fyrir mun meira manntjón.
PLO ásakaði á hinn bóginn
ísraela um að myrða „hvern
mann, hverja konu og hvert barn
í sjónmáli" innan búðanna.
I öðrum borgarhlutum Beirút
handtóku ísraelskir hermenn
hundruð manna, sem grunaðir
eru um að vera vinstrimenn. Var
húsleit gerð víða og leitað vopna.
Að sögn líbanskra lögreglumanna
voru um 1.000 manns handtekin,
en hins vegar lá ekki ljóst fyrirj
hvar þeim var haldið föngnum.
Yfirmaður alls ísraelska her-
aflans, Raphael Eytan, hershöfð-
ingi, sagði á sunnudag að stöðugt
fækkaði í herliði ísraela í Líb-
anon. Væri sú fækkun í samvinnu
við líbanska hermenn. Hins vegar
myndu hermenn ísraela ekki yf-
irgefa Beirút fyrr en lokið væri
endanlega við að safna saman
„geysilegum fjölda" palestínskra
skæruliða og vopnum þeirra.
Eytan var harðorður í garð
Morris Draper, aðstoðarmanns
Philip Habibs, og ásakaði Banda-
ríkjamenn óbeint um að vera
valda að fjöldamorðunum. Drap-
er hefði þvertekið fyrir, að komið
yrði á beinu sambandi á milli
ísraelskra og líbanskra her-
manna. Með slíkri samvinnu
hefði mátt koma í veg fyrir
fjöldamorðin.
Lögreglan í Jerúsalem varð að
beita táragasi á sunnudag til þess
að sundra hópi 500 mótmælenda,
sem safnast hafði saman við
heimili Menachem Begins, for-
sætisráðherra ísraels. Vildu þeir
mótmæla fjöldamorðunum í Beir-
út. Voru ókvæðisorð hrópuð og
krafðist fólkið tafarlausrar af-
sagnar Begins.
EMCO
REX 2000
EMCO
REX 2000
Allt i einni vél:
10” hefill, 6” þykktarhefill,
hjólsög, töppunarvél og
fræsibúnaður.
Fyrsta flokks vara á góðu verði.
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurtandsbraut 16 Sim 9135200
Akurvik, Akureyri
AFTUR!
HÚN ER KOMHSI
FJÖLHÆFA, SAMBYGGÐA TRÉSMÍÐAVÉLIN FRÁ EMCO
Hríseyingar —
Hríseyingar
Hríseyingamót verður haldid í Átthagasal Hótel
Sögu laugardaginn 2. október 1982.
Þeir sem hafa hugsað sér aö ná í miöa veröa aö hafa
gert þaö í síöasta lagi fyrir 25. september. Hafiö
samband sem fyrst viö Þorstein Þorvaldsson, Lauga-
vegi 80 í síma 10259, Sigurö Brynjólfsson í síma
86481, Valgeröi Magnúsdóttur í síma 66610 og Önnu
Fjalarsdóttur í síma 85370.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AD VANDAORI LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF