Morgunblaðið - 21.09.1982, Side 23

Morgunblaðið - 21.09.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982 31 in í Beirút ... Fjöldamorðin í Beirút ... Fjöldamorðin í Beirút... Líkin eins og hrá- viði um allt, nályktin og stækjan hroðaleg Meirút, 20. september. AP. „FYRSTU TVÖ líkin var hægt að þekkja sem mannverur. Þau lágu þar hlið við hlið á rykugri aðalgötunni i flóttamannahvern Palestínumanna í Sabra. Þegar lengra var haldið lágu líkin eins og hráviði um allt í stöflum; hendur og fætur vísuðu í allar áttir, andlitin skelfingin uppmáluð. Ógerningur var að kasta tölu á þau eða skera úr um hvort þetta voru lík karla eða kvenna. Enginn hafði áhuga á að grandskoða illa leikin líkin með andlitin þakin flugum í steikjandi hitanum." Þannig segir G.G. Labelle, frétta- ritari AP í Beirút, frá. Hann heldur áfram: „Ég fór í gegnum Sabra-hverfið síðla á laugardagsmorgun eftir að hafa heyrt orðróm um að fjöldamorð hefðu verið framin. Þetta er að- eins þriggja kílómetra leið, en það tók mig klukkustund að kom- ast þangað eftir krókaleiðum því öllum aðalgötum hafði verið lok- að af ísraelska hernum. Þegar ég var kominn þangað lék ekki vafi á, að sögusagnirnar voru á rökum reistar. Lík heilu fjölskyldnanna; mæður, feður og börn, lágu saman víða um þorpið og á götum úti voru lík margra manna, rétt eins og þeim hefði verið smalað saman og þeir skotnir til bana. í einu hreysinu, sem fólkið hafði reist, var pottur á hlóðum, en ekki hafði gefist tími til að borða matinn. Lík fjölskyldunnar lágu eins og hráviði í öðrum enda hreysisins, sum hroðalega leikin. Konur á götum úti sögðu mér að jarðýtur hefðu rutt niður sumum hlutum hverfisins til þess að reyna að hylja líkin. Þeim bar ekki saman um hver hefði drýgt ódæðið. Sumar sögðu það hafa verið ísraela, aðrar sögðu falang- ista hafa verið að verki.“ „Nályktin var hræðileg," segir ljósmyndari AP-fréttastofunnar í frásögn sinni. Hann kom um svipað leyti inn í búðirnar og þar mætti honum ömurleg sjón. Seg- ist hann hafa talið á milli 50 og 60 lik á stuttri könnunarferð sinni um búðirnar. „Ég sá enga hermenn eða varðmenn á meðan ég dvaldi þarna," segir William Foley, ljósmyndari, ennfremur. „Konur voru grátandi um allt og margar þeirra báðu mig um að líta inn í rústirnar, sem eitt sinn höfðu verið heimili þeirra, til þess að líta hina dauðu augum. Ég sá tvö lík gamalla manna og ef marka mátti útlit þeirra var ekki langt síðan þeir höfðu verið skotnir. Sennilega fyrr um morg- uninn. Ég hitti ungan Líbana, sem sagði mér að fjölskyldunum hefði verið skipað að fara inn í kofa sína og þær síðan verið skotnar þar.“ „Fyrir þremur vikum komum við hingað og vöktum þetta sjúkrahús til lífsins. Við vorum rekin á brott og mér er til efs að nokkur maður starfi nú innan veggja þessa húss,“ segir Dr. David Grey frá Liverpool á Eng- landi. Hann vann ásamt 19 öðr- um á vegum kirkjunnar við Gaza-sjúkrahúsið. Að því er hann segir komu varðliðar kristinna snemma á laugardagsmorgun og ráku allt starfsliðið burtu. Var hver og einn spurður hvort hann væri kristinn og þegar menn svöruðu játandi fengu þeir að heyra „þú er skítur, sem vinnur fyrir óvininn". Lýsing sjónarvotta eftir fjöldamorðin í V-Beirút: Jafnvel dýrum var ekki hlíft þegar fjöldamorð voru framin í búðum Palestínumanna í Beirút. Hesturinn á myndinni, sem er að svala þorsta sínum, var skotinn mörgum sinnum. Benco 01 — 600A C.B. 40 rásir AM/40 rásir FM. Sérsmíðuð fyrir ísland. Fullur styrkur. Verö kr. 2.850.- sími 91-21945/84077. Benco, Bolholti 4, sími 91-84077 Tölvunámskeið Byrjendanámskeið Námskeiðin standa yfir í 2 vikur. Kennt er 2 stundir á dag virka daga, kl. 17.30—19.30 eöa 20.00—22.00. Við kennsluna eru notaðar míkrótölvur af algengustu oerö. Námsefnið er allt á íslensku og ætlað byrjend- um sem ekki hafa komiö nálægt tölvum áður. Á námskeiðunum er kennt m.a.: Grundvallaratriði forritunarmálsins BASIC. Fjallað ór um uppbyggingu, notkunarsviö og eiginleika hinna ýmsu gerða tölva. Kynning á tölvukerfum, hugbúnaöi og vélbúnaði, sem notuð eru við rekstur fyrirtækja. TÖLVUSKÚLINN Sklpholti 1. Sími 25400 Hljóðlausar loftpressur hentugar fyrir bólstrara, trésmiði og smærri verkstæöi. Iðnvélar þf. Smíðjuvegi 30. Kópavogi. * Sími 76444. Ballett Kennsla hefst í byrjun október í nýstandsettum Litla sal íþróttahúss Seltjarnarness. Byrjenda- og framhaldsflokkar. Innritun og upplýsingar í síma 15359 kl. 13—17 dag- lega. Ballettskóli Guðbjargar Björgvins. Íþróttahúsínu Seltjarnarnesi, Litla sal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.